Morgunblaðið - 19.12.1999, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1999 51
í DAG
BRIDS
Umsjón (iuðmundur
Páll Arnarson
LESANDINN er í suður
með einn gosa í flatri hendi:
Austur gefur; NS á
hættu.
Vestur
AD8
VÁ72
♦ K98
* K10963
Norður
AÁK3
V 32
♦ ÁKDIO
♦ ÁDGIO
Austur
* 764
V K983
* G543
* 54
Suður
A 7642
V 64
♦ G732
+ 653
Vestur Norður Austur Suður
— — 1 hjarta Pass
3hj.* Dobl Pass 3 sp.
Pass Pass 4 sp. Pass Pass
*Hindrun.
Norður er einbeittur á
svip þegar hann keyrir í
geim á eigin vélarafli. Eng-
inn doblar, enda spil makk-
ers krafmikil (og veitir ekki
af), en þú saknar þess samt
að sjá ekki fjórða spaðann í
blindum. Vestur kemur út
með smátt hjarta og austur
tekur tvo slagi á drottningu
og ás, og spilar svo kóngn-
um út í tvöfalda eyðu. Það á
sem sagt að veikja trompið
þitt, sem er nú ekki sterkt
fyrir. Hvernig hyggstu
bregðast við?
Það er ljóst að spaðinn
verður að brotna 3-3 og
laufkóngur að liggja fyrir
svíningu. En það er ekki
sama hvort þú trompar
þriðja hjartað í borði eða
heima. Ef þú trompar í
blindum og tekur ÁK í
spaða, þarftu að nota inn-
komuna á tígulgosa til að
trompa út. Þá gæti vörnin
læst þig inni í blindum á
tígul og tryggt sér slag á
lauf:
Norður * ÁK3 V 32 ♦ ÁKDIO + ÁDGIO
Vcstur Austur
♦ G85 ♦ D109
VG875 V ÁKD109
♦ 86 ♦ 954
*K984 *72
Suður A 7642 V 64 ♦ G732 *653
Þess vegna er betra að
trompa heima á fjórlitinn.
Svína svo strax laufi og
dúkka spaða. Nú getur
vömin ekkert gert þér:
Komi hjarta áfram
tromparðu heima og
aftrompar svo mótherjana
með AK í spaða og kemst
síðan inn á tígulgosa til að
svina aftur í laufi.
Árnað heilla
ÁRA afmæli. í dag,
sunnudaginn 19. des-
ember, verður níræð Guð-
munda Eiríksdóttir, dvalar-
heimilinu Höfða, Akranesi.
Hún tekur á móti gestum í
sal Verkalýðsfélags Akra-
ness, Kirkjubraut 40, frá kl.
15-17 á afmælisdaginn.
ÁRA afmæli. í dag,
sunnudaginn 19. des-
ember, verður sjötug Guðný
Anna Eyjólfsdóttir, Þing-
hólsbraut 82, Kópavogi.
Eiginmaður hennar er
Haukur Hannesson. Þau
dvelja nú á Kanaríeyjum.
p'/AÁRA afmæli. í dag,
tJvlsunnudaginn 19. des-
ember, verður fimmtugur
Jón Gunnlaugsson, svæðis-
sfjóri Vátryggi ngafélags
íslands á Akranesi,
Brekkubraut 17, Akranesi.
Eiginkona hans er Elín Ein-
arsdóttir. Þau eru að heim-
LJOÐABROT
JÓLASÁLMUR
Pæðing Jesú fögnum vjer,
fyi-nst ei getur eilíf náðin;
bróðir vor er hjá oss hjer;
hjálpar bjóðast guðleg ráðin.
Fjarlægan oss hann ei höldum,
heims þó lifði’ hann fyr á öldum.
Tímum skiftir eilífð eigi:
allt er þar á sama degi.
Hann sem guðdóms lífi lifir,
líf er tímans hafinn yfir;
fersk og ný hans fæðing er.
Fæðing Jesú fögnum vjer,
faðminn honum móti breiðum,
og í vorum hjörtum hjer
honum þekkan bústað reiðum.
Ef ei honum andinn fagnar,
útvortis ei hátíð gagnar.
Hann í anda’ ef hjá oss fæðist,
hátíð innra lífs þá glæðist.
Kærleiks skulum hátíð halda,
hún svo vari’ um aldir alda;
kærleikslíf því Krists líf er.
Brynjúlfur Jónsson.
Kvíða fyrir
ORÐABOKIN
Svonefndar ópersónu-
legar sagnir virðast
vefjast fyrir mörgum.
Einhvern tímann hefur
verið vikið að þessu efni
í pistlum mínum. Menn
kannast áreiðanlega við
þetta úr mæltu máli og
jafnvel rituðu líka.
Margir segja honum
vantar, honum langar,
svo að dæmi sé tekið, í
stað hins upprunalega:
hann vantar, hann vant-
ar e-ð, hann langar í
þetta eða hitt. Enn
munu nú ílestir tala
svo, en hitt hljómar
samt oft í mín eyru á
fömum vegi, jafnt hjá
fullorðnu fólki sem
börnum, og hvorki
bundið stað né stétt.
Ekki efa ég saiht, að
móðurmálskennarar
bendi á þennan rugling
milli þolfalls og þágu-
falls og vari við honum.
Menn tala í þessu sam-
bandi um þágufallssýki.
Vissulega er þessi rugl-
ingur allgamall í málinu
og hefur fest ótrúlega í
tali. Ég minntist þessa,
þegar ég fann hjá mér
miða, þar sem ég hafði
skrifað eftirfarandi úr
samtali, sem ég hlýddi á
í RÚV fyrir rúmu ári
(ekki síðan!). Þar var
þetta sagt: Manni kveið
fyrir vetrinum. Hér er
aftur ruglingur við per-
sónulega sögn. Ég hygg
velflestir segi enn: Ég
kvíði fyrir því, ég kveið
fyrir því, þ.e. noti nefni-
fall. Því miður bregður
svo of oft fyrir, að menn
noti hér þgf. og segir:
Honum kvíðir fyrir að-
gerðinni eða kveið fyrir
aðgerðinni. Hann kviðir
eða kveið fyrir aðgerð-
inni skyldu menn held-
ur segja.
- J.A.J
STJÖRIVUSPA
cflir Frances Ilrakc
BOGMAÐURINN
Afmælisbarn dagsins: Þú
hefur þörf fyrir að vera í
sviðsljósinu og gerir ýmislegt
til að vekja fólk til meðvit-
undar um það sem þér fínnst
skipta máli.
Hrútur - (21. mars -19. apríl) Leitaðu leiða til að auka tekj- urnar og ef kominn er tími til að þú fáir kauphækkun skaltu fara fram á hana. Vertu svo vakandi fýrir nýjum tækifærum.
Naut (20. apríl - 20. maí) Þú ert traustur sem bjarg enda vita þeir það sem þekkja þig og hafa notið stuðnings þíns í erfiðleikum sínum. Haltu áfram á sömu braut.
Tvíburar ± (21. maí - 20. júní) WA Viðkvæmt mál ber á góma og þótt þér sé mikil raun að ræða álit þitt á því verðurðu að gera það. Afgreiddu málið strax og á heiðariegan hátt.
Krabbi (21. júní - 22. júli) Þú færð hverja hugmyndina á fætur annarri svo hvernig væri að framkvæma eina þeirra og kalla í félagana og eiga með þeim stund í anda jólanna.
Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þegar hver höndin er upp á móti annarri er nauðsynlegt að komast að málamiðlun sem allir geta sætt sig við og fá aðstoð hlutlauss aðila ef ekki vill betur.
Meyja (23. ágúst - 22. september) <D(L Þú getur komið ýmsu í verk ef þú bara hefur áhuga á því. Ræddu hugmyndir þínar við fólk sem er í sömu sporum því betur sjá augu en auga.
v°s m (23. sept. - 22. október) 4U Vertu ekki of ráðríkur því betra er að halda friðinn. Taktu meira tillit til annarra og gerðu þér grein fyrir að þarfir mannanna eru mismunandi.
Sþorðdreki (23. okt. - 21. nóvember) Þótt það sé freistandi að láta aðra sjá um hlutina fyrir sig skaltu gera þér grein fyrir að það gerir þér ekki gott ef til lengri tíma er litið.
Bogmaður m ^ (22. nóv. - 21. desember) Mtjy Gakktu ekki svo fram af þér að þú leggir heilsuna að veði þvi ekkert er þess virði. Þú verður að gefa þér tíma til þess að rækta iíkama og sál.
Steingeit (22. des. -19. janúar) Notaðu daginn til að dekra við sjálfan þig því þú verður að endurnýja orkuna. Lestu góða bók og láttu ekkert verða til þess að trufla þig.
Vatnsberi (20. janúar -18. febrúar) fcjk Margt má læra af reynslu ann- aira svo hlustaðu á það sem fólk vill miðia til þín og vittu hvort þú getir ekki notfært þér það í því máli sem þú vinnur að.
Fiskar ^ (19. febrúar - 20. mars) >%»> Gerðu það sem þú þarft að gera í dag en leggðu áherslu á friðsælt andrúmsloft því þá gengur allt betur. Gefðu þér tíma til að rækta sál þína.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi eru
ekki byggðar á traustum grunni
vísindalegra staðreynda.
STEINASLIPITROMLUR
OPIÐ í DAG FRÁ KL. 12.00 TIL 18.00
^Óðinsgötu 7 mmmmsw 562 84438
Gjafabmr neiisudfehans
MiiffHiiiinfMnRiiTjnnm
yr Kínverjar hafa löngum verið þekktir fyrir langlífi og heilbrigðan lifnaðarhátt. ’r
i gegnum árþúsundir hafa þeir þráað mjög fullkomnar aðferðir til eflingar likama og heilsu.
Kfnvorsh leikflmi • KfnversKt liaft • líinvetshi nudd • ifínversk nðlastunga
Juftamaðfnrð • U.C.UI. loirvafníngar ■ Eurotuavo • Snyrtistofa • Undirfat
Bj afavara • LiOsaKnrt • infrarBð sauna • 6-5 ilmnlfumeðfcrð
Við bjóðum fyrirtækjum upp ó skemmtiiega jólapakka til storfsmanna,
til dæmis Kínverskt bað, nudd og nálostungu.
Vinsælustu jólagjafirnar hiá Heilsudrekanum eru gjafakort í líkamsmeðferð
sem felst í dásamlegu dekri sem endurnærir líkama og sál.
(niilniiinm lil OGUfl lielltfiflúls.
KinvcfsK heilsulind
Ármúla I7a • Simi 553 8282
Jólagjöfin í ár
Mjúkir inniskór
Kr. 1.790
St. 25-30
Kr. 1.790
St. 24-32
Kr. 1.790 St. 24-33
Kr. 1.990
St. 33-42
r
SKÓVERSLUN
KÓPAVDGS
HflHHRABORG 3 • SÍMI 554 1754
mmmmmmmmmm
VivAÍbi
MNtSI RA UtLLA VIA l'KI Nl_l l'AI •
Verð kr. 4.990.
EURO SKO
Kringlunni 8-12 ❖ sími 568 6211
RR SKÓR
Skemmuvegi 32 * sími 557 5777
SKÓHÖLLIIU
Bæjarhrauni 16 sími 555 4420