Morgunblaðið - 19.12.1999, Page 60

Morgunblaðið - 19.12.1999, Page 60
60 SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ r HASKOLABIO HASKOLABIO Munið 2fyrir1 með ★★★ Mbl a simple plan Mögnuð mynd sem hlaut 2 Óskarsverðlaunatilnefningar, m.a. Billy Bob Thornton sem besti karlleikari i aukahlutverki. Sýnd kl. 5, 9 og 11.15. b.í.16 Hagatorgi, sími 530 1919 rwnocAnn MasterCard \ www.haskotabio.is 3 MAfflBWWtl SAMWáBkt .SAVn—SAMBéðkt SAMWtMá NÝn OG BETRA FYRIR 990 PUNKTA FERBU i BÍÓ Alfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905 FRUMSYNING SCHWARZENIiUUSR END OF DAYS Aldamótin nálgast. Undurbúðu þig undir endalokin. Aðahlutverk Arnold Scwharzenegger, Gabriel Byrne og Kevin Pollak. Frábærlega fyndin svört kómedía um nokkra seinheppna náunga sem þrá ekkert lieitar en að verða ofurhetjur. Frábær leikarahópur ter á kostum með Ben Stiller úr There's Something About Mary í broddi fylkingar. Sýnd kl. 5, 6.30, 9 og 11.30. B.i. 10. Sýnd kl. 2.40, 5, 9 og 11.20. B.i. 10. BMÍ Sýnd kl. 3, 4.40 og 7 íslenskt tal. Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11 enskt talamaGn'AL W'W'Kl/2 „Snilld" HK Fókus www.samfilm.is Bók aldarinnar komin út Vinsæl í sam- kvæmum MÉ i Wmm Morgunblaðið/Kristinn Olafur Teitur Guðnason og Gísli Marteinn Baldursson. ítorpmhtartiðAraldimar Sverrisson Rúnar Júlíusson þykir mesti töffari aldarinnar. BÓK aldarinnar! Það er ekki lítil fullyrðing, ekki síst þeg- ar hún er frá höfundunum komin. Með hliðsjón af þvi hlýtur þessi grein að skoðast sem bókaum- fjöllun aldarinnar og er ekki laust við að blaðamaður sé nokkuð upp meðsérafþví. En hvað er átt við með þessum fullyrðingum á báða bóga? Jú, bók sem fjallar um margt af því sem stendur upp úr á öldinni sem er að líða. Farið er yfir það í einu aðgengi- legasta formi nútímamannsins; topp tíu listum. Tíu mestu töffararnir, tíu bestu ævisögurnar, tíu umdeildustu stöðuveitingamar, tíu sinnum flest það bitastæðasta á öldinni. Höfundar bókarinnar eru alda- vinir og skólabræður, Gísli Mar- teinn Baldursson, fréttamaður hjá Sjónvarpinu, og Ólafur Teitur Guðnason, fréttamaður hjá Ríkis- útvarpinu. Hvernig kviknuði hugmyndin að bókinni? „Hvemig kvikna hugmyndir al- rnennt?" svarar Ólafur Teitur sem mættur er í viðtalið. „Tilefnið er auðvitað aldamótin og að okkur hafði lengi langað til að vinna saman á þessum vettvangi. Bókin þróaðist upp úr annarri hugmynd og er ekki skrifuð að erlendri fyrirmynd. Enda höfum við gert okkur það til gamans að leita á Amazon eftir svipaðri bók án árangurs. Það eru til bækur með topp tíu listum, t.d. í íþróttum, en þar er ekki stuðst við sérfræðinga- mat og tölfræði.“ Hvernighafa viðtökumar verið? „Þær hafa verið góðar. I bóka- gagnrýni Morgunblaðsins var þetta kallað erlend fréttamannasagn- fræði og ég hlýt að taka því sem hrósi,“ segir Ólafur Teitur glettnis- lega. „Mér hefur verið sagt að bókin sé gjaman höfð um hönd í sam- kvæmum og þá sé vinsæl iðja að láta gestina giska á hvaða nöfn séu á list- unum. Það kom líka fram í gagnrýni í DV að bókin yrði besta umræðu- efni þessara jóla og ætti vísast eftir að verða besta skemmtunin í fjöl- skylduboðunum. Það var alltaf ætl- unin og reyndum við að hafa listana marga og fjölbreytilega þannig að þeir höfðuðu til sem flestra aldurs- hópa.“ Logi Bergmann er eini maðurinn sem borgaði fyrir að komast á lista, að því er fram kemur í bókinni, þótt það væri svo sem tekið fram að hann hefði engu síður fengið nógu marg- ar tilnefningar til að ná þarsæti. „Já, hann á reyndar enn eftir að greiða okkur,“ segir Ólafur Teitur og kímir. „En við gætum gefið út aðra bók síðar meir þannig að hann borgar," bætir hann við viss í sinni sök. Annars væri hægt að segja að inn í síðustu bók hefðu slæðst meinleg- ar villur, að nokkrum hefði verið of- aukið, spyr blaðamaður. „Nei, það myndum við aldrei gera,“ svarar Ólafur Teitur og kink- ar kolli prakkaralega. Að öllu gamni slepptu hver var hvatinn að bókinni? „Við vildum gera öldinni skil á sannferðugan hátt,“ svarar Ólafur Teitur. „Við veltum þessu vandlega íyrir okkur, leituðum ráða hjá um 200 manns og settum flest það í bók- ina sem okkur þótti einhverjum tíð- indum sæta; ég held því fram að það vanti ekki marga af markverðustu viðburðunum, hvorki um menn né málefni. Að mínum dómi hefði raunar verið frábært ef til væru viðlíka rit um sautjándu eða átjándu öld. Ef einhver hefði á þeim tíma tekið sam- an, eftir viðræður við samtímamenn sína, lista yfir menn, málefni og af- rek. Það hefði gefið ansi góða mynd af sögu þeirrar aldar - og skemmti- lega. Eftir 300 ár verður fljótlegt að renna yfir tuttugustu öldina og átta sig á henni. Það kom mér á óvart að ýmsar af þeim upplýsingum sem koma fram í bókinni lágu ekki fyrir; eins og hverjir væru þyngstu dómar aldarinnar. Eg tók tvo daga í að fletta í gegn hæstaréttardómum til að grafa upp þær upplýsingar því listi yfir það lá hvergi fyrir. Eg gæti nefnt fleiri slík dæmi.“ Hvað tók þetta langan tíma? „Við byrjuðum að garfa í þessu íyrr á árinu og settum mestan kraft í vinnuna í sumar og haust, þá fóru allar frístundir í þetta.“ Þið eruð ekkert hræddii• við að tula um aldamót þegar sumir eru á því aðþau verði ekki fyrr en á næsta ári? „Við látum það liggja á milli hluta. Eg get svo sem tekið undir rökin en það er gaman að halda upp á svona fallega tölu. Það gæti svo sem komið töffari fram á sjónarsviðið á næsta ári sem myndi slá út Rúnar Júl., en ég efast um það.“ Gerðuð þið einhverja lista sem komust ekki í bókina? „Við felldum nokkra lista út, t.d. sjálfhverfustu Islendingana. Við ákváðum að neikvæðir listar ættu ekki heima í bókinni. Samt var þetta það fyrsta sem við vorum spurðir um eftir á; margir vildu sjá skot á náungann." Það kom mér svo sem ekki á óvart að Megas yrði í fyrsta sæti yiir bestu dægurlagatextahöfunda ald- arinnar. „Það var auðveldasta fyrsta sæt- ið,“ tekur Ólafur Teitur undir. „Þetta var samhljóma dómur allra sem við leituðum til. I flestu öðru voru fjölmargir nefndir og urðum við að velja úr þeim; það var oft erf- itt en við tökum það fram þegar í inngangi bókarinnar að þetta sé djarft og hæpið. Við erum ekki að fella neinn stóra dóm.“ Þið eruð svo vogaðir að taka sein- heppni fyrir iíka í bókinni. „Já, raunar er seinheppnasti maður aldarinnar líklega búsettur í Japan. Hann lenti í báðum kjarn- orkusprengingunum. Hann komst af í Hiroshima við illan leik og flúði til ættingja sinna í Nagasaki. Það var eins og bandaríski herinn væri að elta þennan mann.“ Eftir að hafa hugsað hlýtt til þessa ólánsama Japana kemur að því að mæla ljósmyndara mót við höfunda bókarinnar og er eftir nokkra yfirvegun ákveðið að Safna- húsið við Hverfisgötu verði vett- vangur ljósmyndarinnar enda er það glæsilegasta húsbygging ald- arinnar ef marka má innihald Bókar aldarinnar. „Sem betur fer marði það Húsavíkurkirkju," segir Ólafur Teitur að skilnaði. Eftir nokkurn vandræðagang vegna skammdegisins er myndin á endanum tekin í sjálfu Morgun- blaðshúsinu og verður að segjast eins og er að sófarnir sem höfund- arnir sitja í eru afar glæsilegir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.