Morgunblaðið - 19.12.1999, Qupperneq 60
60 SUNNUDAGUR 19. DESEMBER 1999
MORGUNBLAÐIÐ
r
HASKOLABIO
HASKOLABIO
Munið 2fyrir1 með
★★★ Mbl
a simple plan
Mögnuð mynd sem hlaut 2 Óskarsverðlaunatilnefningar,
m.a. Billy Bob Thornton sem besti karlleikari i aukahlutverki.
Sýnd kl. 5, 9 og 11.15. b.í.16
Hagatorgi, sími 530 1919
rwnocAnn
MasterCard \
www.haskotabio.is
3 MAfflBWWtl SAMWáBkt .SAVn—SAMBéðkt SAMWtMá
NÝn OG BETRA
FYRIR
990 PUNKTA
FERBU i BÍÓ
Alfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FRUMSYNING
SCHWARZENIiUUSR
END OF DAYS
Aldamótin nálgast. Undurbúðu þig undir
endalokin. Aðahlutverk Arnold
Scwharzenegger, Gabriel Byrne og Kevin Pollak.
Frábærlega fyndin svört kómedía um nokkra
seinheppna náunga sem þrá ekkert lieitar en að
verða ofurhetjur. Frábær leikarahópur ter á
kostum með Ben Stiller úr There's Something
About Mary í broddi fylkingar.
Sýnd kl. 5, 6.30, 9 og 11.30. B.i. 10.
Sýnd kl. 2.40, 5, 9 og 11.20. B.i. 10.
BMÍ
Sýnd kl. 3, 4.40 og 7 íslenskt tal.
Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11 enskt talamaGn'AL
W'W'Kl/2
„Snilld" HK Fókus
www.samfilm.is
Bók aldarinnar komin út
Vinsæl í sam-
kvæmum
MÉ i
Wmm
Morgunblaðið/Kristinn
Olafur Teitur Guðnason og Gísli Marteinn Baldursson.
ítorpmhtartiðAraldimar Sverrisson
Rúnar Júlíusson þykir mesti töffari aldarinnar.
BÓK aldarinnar! Það er ekki
lítil fullyrðing, ekki síst þeg-
ar hún er frá höfundunum
komin. Með hliðsjón af þvi hlýtur
þessi grein að skoðast sem bókaum-
fjöllun aldarinnar og er ekki laust
við að blaðamaður sé nokkuð upp
meðsérafþví.
En hvað er átt við með þessum
fullyrðingum á báða bóga? Jú, bók
sem fjallar um margt af því sem
stendur upp úr á öldinni sem er að
líða. Farið er yfir það í einu aðgengi-
legasta formi nútímamannsins; topp
tíu listum. Tíu mestu töffararnir, tíu
bestu ævisögurnar, tíu umdeildustu
stöðuveitingamar, tíu sinnum flest
það bitastæðasta á öldinni.
Höfundar bókarinnar eru alda-
vinir og skólabræður, Gísli Mar-
teinn Baldursson, fréttamaður hjá
Sjónvarpinu, og Ólafur Teitur
Guðnason, fréttamaður hjá Ríkis-
útvarpinu.
Hvernig kviknuði hugmyndin að
bókinni?
„Hvemig kvikna hugmyndir al-
rnennt?" svarar Ólafur Teitur sem
mættur er í viðtalið. „Tilefnið er
auðvitað aldamótin og að okkur
hafði lengi langað til að vinna saman
á þessum vettvangi. Bókin þróaðist
upp úr annarri hugmynd og er ekki
skrifuð að erlendri fyrirmynd. Enda
höfum við gert okkur það til gamans
að leita á Amazon eftir svipaðri bók
án árangurs. Það eru til bækur með
topp tíu listum, t.d. í íþróttum, en
þar er ekki stuðst við sérfræðinga-
mat og tölfræði.“
Hvernighafa viðtökumar verið?
„Þær hafa verið góðar. I bóka-
gagnrýni Morgunblaðsins var þetta
kallað erlend fréttamannasagn-
fræði og ég hlýt að taka því sem
hrósi,“ segir Ólafur Teitur glettnis-
lega. „Mér hefur verið sagt að bókin
sé gjaman höfð um hönd í sam-
kvæmum og þá sé vinsæl iðja að láta
gestina giska á hvaða nöfn séu á list-
unum. Það kom líka fram í gagnrýni
í DV að bókin yrði besta umræðu-
efni þessara jóla og ætti vísast eftir
að verða besta skemmtunin í fjöl-
skylduboðunum. Það var alltaf ætl-
unin og reyndum við að hafa listana
marga og fjölbreytilega þannig að
þeir höfðuðu til sem flestra aldurs-
hópa.“
Logi Bergmann er eini maðurinn
sem borgaði fyrir að komast á lista,
að því er fram kemur í bókinni, þótt
það væri svo sem tekið fram að hann
hefði engu síður fengið nógu marg-
ar tilnefningar til að ná þarsæti.
„Já, hann á reyndar enn eftir að
greiða okkur,“ segir Ólafur Teitur
og kímir. „En við gætum gefið út
aðra bók síðar meir þannig að hann
borgar," bætir hann við viss í sinni
sök.
Annars væri hægt að segja að inn
í síðustu bók hefðu slæðst meinleg-
ar villur, að nokkrum hefði verið of-
aukið, spyr blaðamaður.
„Nei, það myndum við aldrei
gera,“ svarar Ólafur Teitur og kink-
ar kolli prakkaralega.
Að öllu gamni slepptu hver var
hvatinn að bókinni?
„Við vildum gera öldinni skil á
sannferðugan hátt,“ svarar Ólafur
Teitur. „Við veltum þessu vandlega
íyrir okkur, leituðum ráða hjá um
200 manns og settum flest það í bók-
ina sem okkur þótti einhverjum tíð-
indum sæta; ég held því fram að það
vanti ekki marga af markverðustu
viðburðunum, hvorki um menn né
málefni.
Að mínum dómi hefði raunar
verið frábært ef til væru viðlíka rit
um sautjándu eða átjándu öld. Ef
einhver hefði á þeim tíma tekið sam-
an, eftir viðræður við samtímamenn
sína, lista yfir menn, málefni og af-
rek. Það hefði gefið ansi góða mynd
af sögu þeirrar aldar - og skemmti-
lega.
Eftir 300 ár verður fljótlegt að
renna yfir tuttugustu öldina og átta
sig á henni. Það kom mér á óvart að
ýmsar af þeim upplýsingum sem
koma fram í bókinni lágu ekki fyrir;
eins og hverjir væru þyngstu dómar
aldarinnar. Eg tók tvo daga í að
fletta í gegn hæstaréttardómum til
að grafa upp þær upplýsingar því
listi yfir það lá hvergi fyrir. Eg gæti
nefnt fleiri slík dæmi.“
Hvað tók þetta langan tíma?
„Við byrjuðum að garfa í þessu
íyrr á árinu og settum mestan kraft
í vinnuna í sumar og haust, þá fóru
allar frístundir í þetta.“
Þið eruð ekkert hræddii• við að
tula um aldamót þegar sumir eru á
því aðþau verði ekki fyrr en á næsta
ári?
„Við látum það liggja á milli hluta.
Eg get svo sem tekið undir rökin en
það er gaman að halda upp á svona
fallega tölu. Það gæti svo sem komið
töffari fram á sjónarsviðið á næsta
ári sem myndi slá út Rúnar Júl., en
ég efast um það.“
Gerðuð þið einhverja lista sem
komust ekki í bókina?
„Við felldum nokkra lista út, t.d.
sjálfhverfustu Islendingana. Við
ákváðum að neikvæðir listar ættu
ekki heima í bókinni. Samt var þetta
það fyrsta sem við vorum spurðir
um eftir á; margir vildu sjá skot á
náungann."
Það kom mér svo sem ekki á óvart
að Megas yrði í fyrsta sæti yiir
bestu dægurlagatextahöfunda ald-
arinnar.
„Það var auðveldasta fyrsta sæt-
ið,“ tekur Ólafur Teitur undir.
„Þetta var samhljóma dómur allra
sem við leituðum til. I flestu öðru
voru fjölmargir nefndir og urðum
við að velja úr þeim; það var oft erf-
itt en við tökum það fram þegar í
inngangi bókarinnar að þetta sé
djarft og hæpið. Við erum ekki að
fella neinn stóra dóm.“
Þið eruð svo vogaðir að taka sein-
heppni fyrir iíka í bókinni.
„Já, raunar er seinheppnasti
maður aldarinnar líklega búsettur í
Japan. Hann lenti í báðum kjarn-
orkusprengingunum. Hann komst
af í Hiroshima við illan leik og flúði
til ættingja sinna í Nagasaki. Það
var eins og bandaríski herinn væri
að elta þennan mann.“
Eftir að hafa hugsað hlýtt til
þessa ólánsama Japana kemur að
því að mæla ljósmyndara mót við
höfunda bókarinnar og er eftir
nokkra yfirvegun ákveðið að Safna-
húsið við Hverfisgötu verði vett-
vangur ljósmyndarinnar enda er
það glæsilegasta húsbygging ald-
arinnar ef marka má innihald Bókar
aldarinnar. „Sem betur fer marði
það Húsavíkurkirkju," segir Ólafur
Teitur að skilnaði.
Eftir nokkurn vandræðagang
vegna skammdegisins er myndin á
endanum tekin í sjálfu Morgun-
blaðshúsinu og verður að segjast
eins og er að sófarnir sem höfund-
arnir sitja í eru afar glæsilegir.