Morgunblaðið - 04.01.2000, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
2. TBL. 88. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuters
Kosið til þmgs í Kroatíu
Zagreb, Sarajevo. AP, Reuters.
FYRSTU tölur úr þingkosningum
sem fram fóru í Króatíu í gær
bentu eindregið til þess að stjómar-
andstaða vinstriflokka hefði hlotið
meirhluta atkvæða. Lýstu forystu-
menn flokkanna ánægju með tíð-
indin sem gáfu tilefni til að ætla að
kosningabandalag tveggja stærstu
flokkanna á vinstri vængnum hefði
hlotið á bilinu 50-60% atkvæða.
Talið er að allt að 70% um 4,2
milljóna kjósenda hafi greitt at-
kvæði í kosningunum, sem eru þær
fyrstu sem haldnar eru í landinu frá
því að forseti Króatíu, Franjo
Tudjman, lést í desember síðast-
liðnum. Ef heldur fram sem horfii-
og stjórnarandstaðan vinnur sigur,
eru taldar vera auknar líkur á því
að haldið verði áfram umbótum í
landinu í átt til aukins lýðræðis og
vaxandi samskipta við önnur
Evrópuríki.
A myndinni má sjá röð af Króöt-
um búsettum í Bosníu-Herzegóvínu
fyrir utan kjörstað í höfuðborg
Bosníu, Sarajevo, í gær.
Vladimir Pútín gerir breytingar
á starfsliði forsetaembættisins
Dóttur Jeltsíns
vikið frá störfum
Moskva. AP, AFP.
VLADIMIR Pútín,
starfandi forseti Rúss-
lands, vék í gær nokkr-
um fyrrverandi aðstoð-
armönnum Jeltsíns,
fráfarandi forseta, úi-
stai-fi og gerði aðrar
breytingar á starfsliði
embættisins. Meðal
þeirra sem misstu störf
sín voru Tatyana
Dyachenko, dóttir Jelts-
íns og ímyndarhönnuð-
ur forsetans fyrrver-
andi. Breytingarnar eru
taldar munu verða til að
auka enn vinsældir Pút-
íns í Rússlandi en fjöl-
skylda Jeltsíns hefur
bakað sér óvinsældir í
landinu vegna spillingarmála.
Tatyana Dyachenko hefur lítið
komið fram opinberlega en er sögð
hafa verið nánasti aðstoðarmaður
föður síns og haft mikil áhrif á stefnu
forsetans í einstökum málum. Kunn-
ugir hafa einnig haldið því fram að
hún hafi alfarið stýrt aðgangi manna
að forsetanum. Hún hefur meðal
annars legið undir grun um að hafa
tekið við mútum af svissnesku verk-
takaíýrirtæki sem annaðist bygging-
arframkvæmdir fyrir rússnesk
stjórnvöld.
Pútín vék einnig úr starfi Dimitry
Yakushin, fjölmiðlafull-
trúa forsetans, en hann
var ráðinn aftur af
starfsmannastjóra for-
setaembættisins, Alex-
ander Voloshin, sem að-
stoðarmaður hans.
Samkvæmt sérstöku
samkomulagi sem Jelts-
ín gerði við Pútín þegar
hann lét af embætti for-
seta á gamlársdag, nýt-
ur Jeltsín friðhelgi og er
ekki hægt að sækja
hann til saka.
Kosningum
hugsanlega flýtt
Stj órnarskrárdóm-
stóll Rússlands álítur að
forsetakosningar gætu hugsanlega
farið fram í landinu fyrr en nefnt
hefur verið, þ.e. 26. mars næstkom-
andi. Aðaldómari réttarins, Marat
Baglai, sagði í samtali við frétta-
mann Interfax-fréttastofunnar að
heimilt væri að efna til forsetakosn-
inga hvenær sem er á næstu þremur
mánuðum. Samkvæmt rússnesku
stjórnarskránni verður að efna til
kosninga eigi síðar en þremur mán-
uðum eftir að kjörinn forseti lætur af
embætti.
■ Afsögn/26
Tatyana
Dyachenko
Ráðist á sendiráð
Rússa í Líbanon
Þyngdar refsingar
og 100 ára nýburi
Napúlí, Brusscl, Kaupmannahöfn. Reuters.
ÞÓTT lítið hafi borið á vandamál-
um í heiminum vegna hins svokall-
aða 2000-vanda, hafa borist fregn-
ir um nokkrar minni háttar bilanir.
Á Italíu olli bilun í tölvukerfi því
að fangelsisdvöl sumra fanga
lengdist um eina öld við ár-
þúsundaskiptin. Bilunin varð einn-
ig þess valdandi að aðrir dómar
voru styttir um 100 ár.
I Danmörku kom upp vandamál
þegar fyrsta barn ársins var skráð
í tölvu spítala í Kaupmannahöfn.
„Þegar hjúkrunarkonan reyndi
að skrá fæðingardag barnsins
gekk tölvan alveg af göflunum og
skráði fæðingarár barnsins sem
1900,“ sagði Jette Kristiansen,
móðir barnsins.
Tilbúinn tölvuvírus
Belgíska dagblaðið Libre Belg-
ique bjó til sinn eigin tölvuvírus til
að bæta upp skort á fréttum um
bilanir vegna 2000-vandans.
Frétt á forsíðu blaðsins í gær var
viljandi höfð ólæsileg, fyrir utan
að þar mátti lesa að tölvuvírus
hefði komist í umbrotskerfi blaðs-
ins um miðnætti.
Viðræður hafnar
Vestur-Virginíu. AP, AFP, Reuters.
SENDINEFNDIR á vegum ríkis-
stjórna ísraels og Sýrlands hófu í
gær formlegar friðarviðræður í
Bandaríkjunum samkvæmt ákvörð-
un Ehuds Baraks, forsætisráðherra
Israels, og Farouks al-Sharaa, utan-
ríkisráðherra Sýi'lands, í desember
síðastliðnum. Gert er ráð fyrír að við-
ræðumar muni standa í viku.
Bill Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, hitti í gær Barak og al-Sharaa,
bæði á einkafundunum og sameigin-
legum fundi með báðum. Farouk fer
fyrir samninganefnd Sýrlendinga í
íjaiveru Assads Sýrlandsforseta sem
á ekki heimangengt vegna veikinda.
Fundir samninganefndanna munu
verða í Vestur-Virginíufylki, um 112
kílómetra austur af höfuðborginni
Washington. Viðræðurnar munu
snúast um ágreiningsefni þjóðanna,
einkum Gólanhæðir, sem Israelar
unnu af Sýrlendingum árið 1967 en
hinir síðarnefndu gera enn tilkall til.
Talið er að Israelar séu reiðubúnir að
láta þær af hendi gegn tryggingum
um frið.
Fjölmiðlafulltrúi bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins, James Rubin,
sagði í gær að óraunhæft væri að
ætla að samkomulag næðist í vikunni.
I sama streng tók Albright og sagði
að líklegt væri að fleiri lotur þyrfti til
að friðarsamkomulag næðist.
Beirút, Grosní. AP, AFP, Reuters.
HERMENN og lögregla í Líbanon
skutu i gær til bana vopnaðan Pa-
lestínumann sem hafði varpað hand-
sprengjum að sendiráði Rússlands í
höfuðborginni Beirút. Bréf fannst
innan klæða á líki árásannannsins,
Ahmed Abou Kharoub, þar sem
stóð: „Ég fórnaði lífi mínu fyrir
Grosní.“ Sýnt þykir að maðurinn
hafi með árásinni viljað lýsa yfir
stuðningi við baráttu aðskilnaðar-
sinna gegn Rússum í héraðshöfuð-
borg Tsjetsjníu, Grosní.
Einn lögreglumaður lést í átökum
við manninn og fjórir særðust, þar á
meðal tveir óbreyttir borgarar. Tal-
ið er að árásarmaðurinn hafi verið
einn að verki.
Arásin átti sér stað í gærmorgun
að íslenskum tíma. Maðurinn rudd-
ist inn í byggingu sem stendur and-
spænis rússneska sendiráðinu og
varpaði þaðan handsprengjum úr
sprengjuvörpu í átt að sendiráðinu.
Upphófst skotbardagi eftir að
hermenn og lögregla komu á staðinn
og var að sögn vitna skipst á skotum
í um klukkutíma áður en árásarmað-
urinn var felldur. Hann hafði tekið
konu í gíslingu en hún slapp ómeidd
úr hremmingunum. Lögi-eglan gerði
upptæka sprengjuvörpu og rússn-
Aðskilnaðarsinn-
ar segjast hafa
endurheimt þorp
í Tsjetsjníu
eskan riffil, sem maðurinn notaði í
árásinni á sendiráðið.
Hægir á sókn Rússa?
Aðskilnaðarsinnar í Tsjetsjníu
sögðust í gær hafa endurheimt yfir-
ráð yfir þrem þorpum, sem Rússar
höfðu áður náð á sitt vald. Þorpin
eru Alkhan-Kala, Kulari og Alkhan-
Yurt og liggja þau skammt suður af
Grosní.
Aðskilnaðarsinnar segjast hafa
fellt 140-200 rússneska hermenn í
átökum um þorpin en rússnesk yfir-
völd hafa ekki viljað staðfesta fregn-
irnar.
Stórskotalið Rússa hélt í gær
áfram árásum á stöðvar aðskilnað-
arsinna í bæjum og þorpum í suður-
hluta Tsjetsjníu. Hörð átök halda
einnig áfram í Grosní, nú þegar 11
dagar eru liðnir frá upphafi sóknar
Rússa inn í borgina. Foringjar sér-
sveita rússneska hersins, sem fara
Bardagareða rússneskar stórskotaárásir
sfc Þorp sögð endurheimt af tsjetsjneskum
uppreisnarmönnum
fyrir innrásarliði Rússa í borginni,
segjast hafa orðið fyi'ir miklu mann-
falli í bardögum undanfarna daga.
Þeir kvarta undan því að þeir fái
ekki nægan stuðning frá stórskota-
liði til að geta haldið sókninni áfram.
MORGUNBLAÐIÐ 4. JANÚAR 2000