Morgunblaðið - 04.01.2000, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000
MORGUN BLAÐIÐ
FRÉTTIR
Valgerður Sverrisdóttir tekur við sem iðnaðar- og viðskiptaráðherra
Meðal fyrstu verkefna
verður að skipa stjórn
Byggðastofnunar
„ÞETTA hefur verið mjög við-
burðaríkur og ánægjulegur dagur,“
sagði Valgerður Sverrisdóttir,
nýskipaður iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra í samtali við Morgunblaðið
í gær um fyrsta dag sinn í ráðherra-
embætti. Forseti Islands veitti
Finni Ingólfssyni lausn frá embætti
iðnaðar- og viðskiptaráðherra og
skipaði Valgerði í hans stað á fundi
ríkisráðs á Bessastöðum á gamlárs-
dag. Síðar um daginn afhenti Finn-
ur svo Valgerði lykla að ráðuneyt-
inu á skrifstofu ráðherra.
Fór yfir stöðu mála
með embættismönnum
Valgerður sagðist hafa sannfærst
um það enn frekar en áður á fyrsta
vinnudegi sínum í ráðuneytinu í
gær, að takast þyrfti á við stór mál í
ráðuneytinu. Fór hún yfir stöðu
mála með embættismönnum ráðu-
neytisins í gærdag.
Byggðastofnun var færð frá for-
sætisráðuneytinu undir iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytið um áramótin.
Valgerður sagði að þar væri um
stór verkefni að ræða á næstunni og
kæmi nú í hennar hlut að skipa nýja
stjórn yfir stofnuninni, sem væri
eitt af brýnum verkefnum sem biði
hennar í ráðuneytinu.
Tímaáætlun Norsk Hydro og
stjórnvalda hefur raskast
Samkvæmt tímaáætlun ríkis-
stjórnarinnar, Landsvirkjunar og
Norsk Hydro um samningsgerð
vegna byggingar fyrsta áfanga ál-
vers við Reyðarfjörð áttu drög að
yfirlitssamningi og aðrir helstu
samningar, svo sem hluthafasamn-
ingur, samningur um rafmagns-
verð, sölu- og markaðssamningur
og heimild til stækkunar, að liggja
fyrir í síðasta lagi 31. desember síð-
astliðnum
Aðspurð um stöðu málsins sagði
Valgerður ljóst að tímaáætlunin
hefði ekki alveg staðist eins og ráð
var fyrir gert í tímáætlun sem und-
irrituð var í sumar.
„Það er samt langt frá því að mál-
ið sé í nokkru uppnámi. Það þarf að
fylgja því vel eftir og við höfum ver-
ið að fara yfir hvað það er sem er
brýnast núna. Mér sýnist að málið
sé í alveg bærilegum farvegi,“ sagði
Valgerður Sverrisdóttir.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Finnur Ingólfsson, nýskipaður seðlabankastjóri, afhenti Valgerði
Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, lykla að ráðuneytinu.
Finnur Ingólfsson,
nýskipaður seðlabankaslj óri
Spennandi og
ögrandi verkefni
„ÞETTA er spennandi og ögr-
andi verkefni að takast á við,“
sagði Finnur Ingólfsson í samtali
við Morgunblaðið eftir að hann
hafði tekið við skipunarbréfi í
embætti seðlabankastjóra. Finn-
ur fékk formlega lausn frá emb-
ætti iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra á ríkisráðsfundi á
gamlársdag.
Ekki rétt að auglýsa
seðlabankastjórastöður
„Þau verkefni sem ég hef haft
mest gaman af að fást við, þann
tíma sem ég hef verið viðskipta-
og iðnaðarráðherra, eru verkefni
sem snúa að íslenskum
fjármagnsmarkaði. Þær breyt-
ingar sem ég hef beitt mér þar
fyrir, s.s. formbreyting ríkisvið-
skiptabankanna, einkavæðing
þeirra og breytingar á Verð-
bréfaþinginu, tel ég að marki
merkileg spor í þróun fram á veg
á íslenskum fjármagnsmarkaði.
Nú gefst mér tækifæri að ein-
hverju leyti til að fylgja því eftir í
nýju starfi," sagði Finnur.
Aðspurður um þá gagnrýni
sem komið hefur fram á skipun
hans og fyrirkomulag við ráðn-
ingu í embættið með opinberri
auglýsingu, sagðist Finnur geta
tekið undir ýmislegt af því sem
fram hefur komið, varðandi
auglýsingu embættisins. „Eg er
þeirrar skoðunar að það eigi ekki
að auglýsa störf eins og þessi.
Lögin gera hins vegar ráð fyrir
að það sé gert og því þurfa menn
að uppfylla þá lagaskyldu. Það
hefur verið pólitískt samkomulag
á milli allra stjórnmálaflokka á
Islandi um að standa að þessu
eins og gert hefur verið. Mér
finnst vænt um að skipun mín
sem einstaklings, geta mín,
menntun og hæfni til að taka
starfið að mér er ekki dregin í
efa;
Eg tek hins vegar ekki undir
þá gagnrýni að bankastjórarnir
eigi ekki að vera fleiri en einn.
Reynslan annarsstaðar sýnir að
það er ekki skynsamlegt að stór-
ar efnahagspólitískar ákvarðanir,
eins og teknar eru öllum stund-
um í Seðlabankanum, séu teknar
af einum manni,“ sagði Finnur.
Þjónusta númer eitt!
Til sölu MMC Pajero 3500
Árg. ‘96, nýskráður 22.09.1995.
5 dyra, bensín, sjálfskiptur,
breyttur á 35“ dekkjum. Ekinn
78.000 km. Ásett verð
kr. 2.600.000. Skipti á ódýrari.
Nánari upplýsingar hjá Bíla-
þingi Heklu í síma 569 5500.
Opnunartími: Mánud. - föstud. kl. 9-I8
laugardagar kl. I2-I6
BÍLAÞINGAEKLU
Nifiyicr oirt f no'tuZvryi tílviyi/
Laugavegi 174,105 Reykjavfk, simi 569-5500
wwvv.bilathing.is | www.bilathing.is • www.bilathing.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ráðherraskipti fóru fram á ríkisráðsfundi á Bessastöðum 31. desember þegar Valgerður Sverrisdóttir tók
sæti í ríkisstjórninni í stað Finns Ingólfssonar. Á fundinum staðfesti forseti íslands einnig nokkur lög
sem Alþingi samþykkti fyrir jól.
Fyrsti kvenprófessorinn
skipaður við lagadeild HI
RAGNHEIÐUR
Bragadóttir dósent
var skipuð í starf pró-
fessors við lagadeild
Háskóla íslands 1.
janúar sl. Hún er þar
með fyrsta konan sem
gegnir því starfi í 90
ára sögu deildarinn-
ar.
Ragnheiður lauk
stúdentsprófi árið
1976 frá Menntaskól-
anum í Reykjavík og
embættisprófl í lög-
fræði frá Háskóla ís-
lands árið 1982. Að
því loknu stundaði
hún framhaldsnám
við Háskólann í
Kaupmannahöfn og
lagði þar cinkum
stund á refsirétt, afbrotafræði og
refsipólitík.
Hún hóf störf við lagadeild HÍ
árið 1984 og varð dósent í ágúst
1995. Ragnheiður hefur í rann-
sóknum sínum og kennslu einkum
fengist við íslenskan refsirétt,
umhverfisrefsirétt og ofbeldisbrot
frá sjónarhóli kvennaréttar. Rit-
störf hennar eru talsvert mikil að
vöxtum og eru flest á
sviði fslensks refsi-
réttar, segir í frétta-
tilkynningu frá laga-
deild HÍ.
Ragnheiður sagði í
samtali við Morgun-
blaðið að sér þætti
ráðningin mjög
ánægjuleg. „Bæði
fyrir mig pers-
ónulega og eins tel ég
að þetta hafi þýðingu
fyrir konur almennt.
Ráðning kvenna í
störf sem eingöngu
karlmenn hafa sinnt
er skref í þá átt að að
auka jafnrétti kvenna
í reynd, sem er mjög
mikilvægt. En hvað
mín daglegu störf
varðar breytir þetta ekki miklu.
Ég hef stundað kennslu og rann-
sóknir við lagadeildina í 16 ár og
held því áfram eins og hingað til.“
Hún segir að ein kona hafi
kennt við lagadcildina fyrir 16 ár-
um þegar hún hóf þar störf, en
það var Guðrún Erlendsdóttir sem
þá var dósent. Hún varð hæsta-
réttardómari tveimur árum síðar
og siðan þá hefur Ragnheiður
verið eina konan í fullu starfi við
lagadeildina.
„Lögfræðin var nokkuð lengi
það scm kalla má karlagrein.
Lengst af voru það fyrst og
fremst verið karlmenn sem lögðu
stund á lögfræði og þar af leið-
andi hafa aðallega verið karlmenn
í þeim störfum sem gera kröfur til
þessarar menntunar. En ef við lít-
um nú á þá stúdenta sem stunda
nám við lagadeildina núna, er
ljóst að þar hefur orðið breyting á
þar sem um helmingur stúdenta
við lagadeildina núna eru konur.
Annað sem nefna má er að
gerðar hafa verið talsverðar
breytingar á laganáminu á undan-
fórnum árum. Einn þáttur í þeim
breytingum er að námið á fjórða
og fimmta ári er orðið algerlega
valfrjálst. Nú er boðið upp á mik-
inn fjölda kjörgreina og leitað
hefur verið meira til lögfræðinga
úti í þjóðfélaginu til að sinna
þeirri kcnnslu með okkur. I þcim
hópi eru margar efnilegar konur.
Þannig að ég tel að konum eigi
eftir að fjölga mikið í kennaraliði
deildarinnar á næstu árum,“ segn-
Ragnheiður.
Ragnheiður
Bragadóttir