Morgunblaðið - 04.01.2000, Page 16
16 ÞRIÐ JUDAGUR 4. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Gunnlaugur Arnason
Benedikt Lárusson, sem nú er orðinn 75 ára, hefur haft þann sið í Qöldamörg ár að spila á harmonikku eftir
miðnætti á gamlárskvöld fyrir utan húsið sitt að Lágholti 1. Þangað kemur íjöldi manns og syngur saman. Haf-
steinn Sigurðsson mætir einnig með sína harmoikku og ná þeir félagar að skapa góða stemmningu og er mynd-
in tekin við það tækifæri.
Veðrið kom á óvart
við áramót í Stykkishólmi
ÞAÐ voru margir sem reiknuðu með
að áramótin yrðu með dauflegra
móti í Stykkishólmi að þessu sinni.
Ástæðan var sú að veðurfræðingar
voru búnir að spá roki og rigningu og
að best væri að halda sig innan dyra.
En æðri máttarvöld voru ekki sama
sinnis. Úr veðri rættist og á gamlárs-
kvöld birti til og gerði hið besta veð-
ur þegar nýtt ár gekk í garð. Fólk
fjölmennti út á götur með blys, tert-
ur og flugelda. Mikil ljósadýrð var
yfir bænum og töldu sumir sérfræð-
ingar að aldrei hafi verið skotið eins
miklu magni upp í loftið og um þessi
áramót.
Áramótin fóru friðsamlega fram
eins og vera ber. Dansleikur var
haldinn í félagsheimilinu þar sem
hljómsveitin Papar skemmti. Eitt
óhapp varð, þegar flugeldur fór í
gegnum rúðu á húsi við Lágholt og
kveikti í fötum. Sem betur fer náðu
íbúai' hússins að slökkva áður en eld-
urinn magnaðist og olli miklum
skemmdum.
Lionsklúbbarnir í Stykkishólmi
stóðu fyrir barnaballi sunnudaginn
2. janúar og komu þar saman börn og
foreldrar og dönsuðu í kringum jóla-
tréð og jólasveinar komu í heimsókn.
Nýliðið ár var Hólmurum gott og
hagstætt. Miklar framkvæmdir voru
á árinu og ekkert atvinnuleysi.
Stærstu framkvæmdir hjá bæjarfé-
laginu var stofnun hitaveitu og ný
sundlaug var tekin í notkun. Hólmar-
ai’ horfa björtum augum til ársins
2000.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Fastagestirnir skála fyrir góðu ári, með á myndinni er forstöðumaður íþróttahússins, Guðmundur.
Morgunblaðið/Margit Elva
Grímseyingar skemmtu sér saman í félagsheimilinu Múla yfir áramótin,
en brugðu sér út til að fylgjast með áramótabrennunni.
Grímseyingar skemmtu
sér saman um áramót
Morgunblaðið/Margit Elva.
Þrenn hjón, áhugafólk um matseld og gleðskap,
átti hugmyndina að sameiginlegri máltið Gríms-
eyinga á gamlárskvöld, en það eru þau Garðar
Olason og Áslaug Alfreðsdóttir, Sigfús Jóhannes-
son og Aðalheiður Sigurðardóttir og Sæmundur
Ólason og Guðrún Ásgrímsdóttir.
Grímsey. Morgun-
blaðið - Grímseying-
ar gerðu sér glaðan
dag um áramótin, en
á gamlárskvöld hitt-
ust íbúarnir, um 60
manns, í félags-
heimilinu Múla og
snæddu sanian hátíð-
arkvöldverð.
Þrenn hjón í eynni,
þau Garðar Ólason
og Áslaug AI-
freðsdóttir, Sigfús
Jóhannesson og Að-
alheiður Sigurðar-
dóttir og Sæmundur
Ólason og Guðrún Ás-
grímsdóttir, áttu
hugmyndina og sáu
um matseld, en
þetta er áhugafólk
hér í eynni um mat-
seld og gleðskap.
Boðið var upp á
humarsúpu í forrétt, kalkún, svína-
og lambakjöt í aðalrétt og ís í eftir-
mat og loks var boðið upp á kaffi,
konfekt og koníak. Síðar um kvöld-
ið var svo boðið upp á flögur og
fleira af slíku tagi, en einnig lagði
hvert heimili í eynni til eina köku á
hlaðborð og voru þeim gerð góð
skil er líða tók á kvöldið.
Þetta er í fyrsta skipti sem
Grímseyingar efna til hátíðar af
þessu tagi á gamlárskvöld og var
það gert í tilefni af árþúsundamót-
um. Kveikt var í veglegri ára-
mótabrennu kl. 20 um kvöldið, en
söfnun í hana stendur yfir nánast
allt árið svo um áramót er vana-
lega kominn hinn myndarlegasti
bálköstur. Um miðnætti fór fólk
svo aftur út og nú til að skjóta upp
flugeldum og var mikið um dýrðir.
Veðrið lék við Grímseyinga sem
sáu vel til lands, þannig sást í ára-
mótabrennu Siglfirðinga og flu-
geldaskot sáust einnig þaðan, svo
og frá Ólafsfirði og Húsavík.
Eftir miðnætti var dansað í fé-
lagsheimilinu fram undir morgun
og fór skemmtunin friðsamlega
fram, en Grímseyingar eru á því að
þessi áramót hafí verið eftir-
minnileg og góð.
Skálað
í heita
pottinum
Þórshöfn - Þegar líður að ára-
mótum er sjálfsagt að gera sér
dagamun og lita hversdagsleikann
en það gerðu einmitt morgunhressir
félagar og fastagestir í sundlaug-
inni á Þórshöfn. í tæp tíu ár hefur
ákveðinn hópur fólks mætt í morg-
unsund fyrir klukkan sjö á morgn-
ana, fyrst, í gömlu sundlauginni, sem
aðeins var opin á sumrin en nú í
nýja íþróttahúsinu þar sem sund-
laugin er opin allan ársins hring.
Fyrir þetta morgunglaða fólk er
íþróttahúsið og sundlaugin sann-
kölluð himnasending og þennan sfð-
asta dag ársins sem opið var í morg-
unsund mætti kjarninn eins og
venjulega um sjöleytið. Þegar í pott-
ana var komið eftir sundsprettinn
bauð húsvörður íþróttahússins upp
á franskt eðalhvítvín frá vínbúgarði
systur sinnar í Frakklandi.
Tæpt ár er siðan nýja íþróttahús-
ið var tekið í notkun og íbúar hér
hafa á þeim tíma nýtt það vel. Marg-
ir munu vera sammála aðkomu-
manni sem lét svo uni mælt að bygg-
ing svona íþrótta- og tómstundahúss
sé ein sú besta byggðastefna sem
hægt er að reka og eins og lítill
Þórshafnardrengur sagði: „Þetta er
vinsælasta húsið f bænum."
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
íbúðarhúsið Kirkjuhvoll í Þykkvabæ er illa farið eftir bruna á nýársnótt, ef ekki ónýtt.
Húsbruni á nýársnótt í Þykkvabæ
ALLT innbú eyðilagðist og íbúðar-
húsið Kirkjuhvoll stórskemmdist í
bruna á nýársnótt í Þykkvabæ, en
Brunavarnir Rangárvallasýslu
fengu tilkynningu um eldsvoðann
rétt fyrir kl. þrjú um nóttina. Að
sögn Böðvars Bjamasonar slökkvi-
stjóra gekk vonum framar að manna
slökkvibílana, en aðeins einn maður
er á vakt þessa nótt að jafnaði.
„GSM-kerfið var mjög þungt og það
tók okkur 30-40 mínútur að komast
á staðinn, en um 30 kílómetrar eru
frá Hvolsvelli til Þykkvabæjar og
flughált alla leiðina, þannig að að-
stæður voru ekki sem bestar. Næst-
um alla leiðina niður eftir stóðum við
í þeirri trú að fólk væri inni í húsinu,
en það reyndist síðan ekki vera og
var léttirinn mikill þegar það lá fyrir.
Ágætlega gekk að ráða niðurlögum
eldsins sem var að mestu staðbund-
inn við forstofu hússins en miklar
reyk- og sótskemmdir eru um allt
hús og gífurlegur hiti virðist hafa
myndast inni í húsinu, áður en rúður
sprungu," sagði Böðvar, en upptök
eldsins eru ókunn. í húsinu bjó ein-
stæð kona sem er kennari í Grunn-
skóla Þykkvabæjar, en hreppurinn á
húsið sem hefur verið nýtt sem
kennarabústaður undanfarin ár.