Morgunblaðið - 04.01.2000, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Amazon.com vinsæl-
asta netverslunin
Associated Press
Samkvæmt könnun sem Ernst & Young gerði á meðal notenda Netsins virð-
ist sem netverslanir hafi ekki verið í stakk búnar til að mæta þeirri auknu
eftirspurn sem varð fyrir jólin.
Toys’r’us
valda mestum
vonbrigðum
NETVERSLUNIN Amazon.com
var vinsælust á meðal þeirra sem
versluðu fyrir jólin 1999 á Netinu en
leikfangarisinn Toys’r’us olli mestum
vonbrigðum vegna lélegra afhend-
inga. Þetta kemur fram í bandarískri
könnun sem birt var um helgina á
fréttavef CNN.
Bandaríska endurskoðunar- og
ráðgjafarfyrirtækið Emst & Young
gerði könnun á meðal 1.283 notenda
Netsins. Niðurstöður könnunarinnar
virðast renna stoðum undir þær
áhyggjur þeirra sem að netverslun-
um standa, að þær hafi ekki verið í
stakk búnar til að mæta þeirri auknu
eftirspum sem varð fyrir jólin.
Langstærstur hluti svarenda, eða
87%, sagðist hafa verslað meira á
Netinu fyrir þessi jól en þeir gerðu
fyrir síðustu jól. Þar af sögðust 17%
hafa aukið Netviðskipti sín umtals-
vert, eða um 50 til 75% eða meira.
14% sögðust hafa aukið þau um 100
til 200% eða meira.
Það sem mest var keypt á Netinu
fyrir jólin var allskyns ferðaþjónusta,
s.s. flug, hótel og bílaleiga, en um
47,5% svarenda keyptu sér slíka
þjónustu. Þá keyptu 38,2% bækur í
gegnum Netið og 36,6% keyptu
tölvu- og hugbúnað.
Af gjafavörum skipuðu blóm, raf-
tæki og bækur þrjú efstu sætin hvað
vinsældirvarðar.
Amazon-vefurinn vinsælastur
Amazon var besta netverslunin að
mati þátttakenda í könnuninni auk
þess að vera sú sem mest var notuð.
32% svarenda sögðu Amazon vera
þann vef sem væri í mestu uppáhaldi
hjá þeim, einkum vegna þess að þar
væri að finna gott vöruúrval, gott
verð og vefurinn væri auðveldur í
notkun.
I öðru sæti yfir bestu netverslun-
ina, en með aðeins 6% svarenda að
baki, varð eBay Inc. uppboðsvefurinn
og þar á eftir fylgdu netverslanimar
Buy.com, eToys og Bames&Noble.-
com með 5% fylgi hver um sig.
Amazon reyndist einnig vera mest
notaði vefurinn, en 42,1% svarenda
notuðu hann og eyddu þar að meðal-
tali 128 dollumm eða rúmum 9.000 ís-
lenskum krónum. Næstmesta notk-
unin, eða 20,3%, var á eToys-vefnum
og þar var að meðaltali eytt svipaðri
upphæð, 127 dollurum. Toys’r’us
lenti í þriðja sæti hvað notkun snertir
og þar eyddu svarendur að meðaltali
134 dollurum eða tæpum tíu þúsund
krónum.
Vöruskortur og afhendingar-
vandamál
Þegar spurt var um hvaða net-
verslun hefði valdið mestum von-
brigðum, nefndu flestir, eða 13%,
toysms.com. Þar af kvörtuðu 29% yf-
ir vöraskorti og 21% yfir afhending-
arvandamálum. 18% sögðu vefinn of
hægvirkan.
Næstmestu vonbrigðin urðu með
vefina Best Buy, Buy.com, eToys og
Wal-Mart en 3% svarenda nefndu
hvern þeirra um sig.
Athygli vekur að sumar net-
verslananna era bæði nefndar sem
þær bestu og verstu en sem dæmi má
nefna að vefurinn Buy.com fékk háa
einkunn svarenda fyrir verð og vöra-
úrval. Hins vegar var kvartað undan
vöraskorti, afhendingarvandamál-
um, tæknilegum vandamálum, mikl-
um flutningskostnaði, lélegri þjón-
ustu og að vefurinn væri of þungur og
flókinn í notkun.
Á síðastliðnum 12 mánuðum
keyptu þátttakendur í könnuninni
fyrir um 1.225 dollara á Netinu að
meðaltali, sem samsvarar um 90 þús-
und íslenskum krónum. Helmingur-
inn taldi jafnframt að netviðskipti
þeirra ættu eftir að aukast á næstu 12
mánuðum en 41% töldu að viðskipti
þeirra á Netinu yrðu svipuð og áður.
Þátttakendur í könnuninni vora að
meðaltali 40,5 ára, meðaltekjur heim-
ila þeirra reyndust um 68.500 dollar-
ar á ári eða 5 milljónir íslenskra
króna. 44% voru karlmenn, 55% kon-
ur og 77% í hjónabandi.
V/6
Þú getur valið
námsgreinar
eftir þörfum
OLDUNGADEILD
MENNTASKÓLANS VIÐ HAMRAHLÍÐ
Er ekki kominn tími til að hefja nýtt nám,
rifja upp eða bæta við fyrra nám?
Það getur þú gert hjá reyndum kennurum Menntaskólans við Hamrahlíð.
(MH er hægt að auka við þekkingu sína á mörgum sviðum án þess endilega að stefna að
stúdentsprófi. Við skólann eru nú 6 brautir: Félagsfræði- (félags- og sálfræðilína), nýmála-,
náttúrufræði-, eðlisfræði-, tónlistar- (í samvinnu við tónlistarskóla) og listdansbraut
(í samvinnu við listdansskóla).
í boði er
fjölbreytt
nám
Tungumál
opna nýja
heima
Islenskt mál, málfræði, bókmenntir og bókmenntasaga að fornu og nýju, eðlisfræði,
efnafræði, jarðfræði, líffræði, stærðfræði, tölvufræði, félagsfræði, hagfræði, lögfræði,
sálfræði, stjórnmálafræði, uppeldisfræði, (slandssaga, mannkynssaga (listasaga endur-
reisnartímans, fornaldarsaga Grikkja og Rómverja, trúarbragðasaga), heimspeki, leiklist
og myndlist.
Viltu kynnast framandi tungumálum? Þarftu að nota tungumál í starfi?
Viltu læra að koma skoðunum þínum skipulega á framfæri í rituðu eða töluðu máli?
(öldungadeildinni verða eftirtalin tungumál kennd á næstu önn:
Danska, enska, esperantó, franska, íslenska, (talska, japanska, kínverska, norska, spænska,
sænska og þýska.
Er þetta eitthvað fyrir þig?
Nemendur velja námsgreinar og fá afhenta
stundatöflu vorannar gegn greiðslu kennslugjalds
sem hér segir:
Grunngjald 10.000 kr. auk þess fyrir hverja náms-
einingu 800 kr.
T.d. fýrir:
Einn tveggja eininga áfanga
10.000 + 2 x 800=11.600 kr.
Tvo þriggja eininga áfanga
10.000 + 6 x 800= 14.800 kr. o.s.frv.
Að auki er þjónustugjald NFÖMH 200 kr.
Innritun fyrir vorönn 2000
fer fram 5-7. janúar kl. 15-19
Námsráðgjafar verða nemendum til aðstoðar,
ennfremur verða deildarstjórar til viðtals fimmtudaginn
6. janúar kl. kl. 16-18.
Stundatöflu, bókalista og ýmsar hagnýtar upplýsingar
má finna á heimasíðu skólans á slóðinni:
http://www.mh.is
—Nýjungl
I febrúar og mars á næsta ári verða haldin tómstunda-
námskeið fýrir almenning. Saga Mexíkó, tölvunámskeið
og enskur framburður er meðal þess sem boðið verður
upp á. Nánar auglýst síðar.
t
Samstarf B&O og Benetton
Þekkt vöru-
merki geta stutt
hvort annað
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
ÞAÐ sem í upphafi var sala Bang &
Olufsen-hljómflutningstækja í Ben-
etton-búðir hefur þróast út í hug-
mynda- og markaðssamstarf þessara
tveggja fyrirtækja. Bæði fyrirtækin
álíta að samstarfið styrki þeirra eig-
in ímynd og gefi þeim færi á nýjum
viðskiptahópum. Það er Francesco
Ciccolella, framkvæmdastjóri Story-
Lab hjá B&O, sem hefur þróað sam-
bandið við fatakeðjuna heimsfrægu,
sem rekur verslanir um allan heim.
B&O hafði hug á að selja hljóm-
flutningskerfið BeoSound 9000 í
Benetton-búðimar. Kerfið, sem kom
á markaðinn 1996, er veggsamstæða
geislaspilara, útvarps og innbyggðra
hátalara. í tækinu er pláss fyrir sex
sýnilega geisladiska, sem hægt er að
spila hvern eftir annan eða í tilvilj-
anakenndri röð og felur í sér mögu-
leika á tólf tíma stöðugum hljómlist-
arflutningi.
Útlit BeoSound 9000 þykir einkar
glæsilegt og því viðeigandi rammi
um geisladiska, sem Benetton hefur
hafið framleiðslu á. Um er að ræða
safndiska, sem spilaðir era í búðun-
um og einnig seldir þar, ásamt fatn-
aði, sem gert hefur Benetton að
heimsfrægu vöramerki og Benetton-
fjölskylduna eina af auðugustu fjöl-
skyldum Evrópu.
Benetton rekur þrjár verslunar-
keðjur, þar sem sú elsta og upprana-
lega heitir Benetton, önnur Sisley og
hin þriðja Playlife. Með geisladis-
kunum er ekki aðeins verið að selja
tónlist, heldur einnig að búa til við-
eigandi hljóðumhverfi fyrir hverja
keðju. Tónlistin verður ekki hin
sama í þessum þremur keðjum, þar
sem hver þeirra hefur sín einkenni.
í fyrstu var aðeins ætlunin að
B&O seldi Benetton-hljómflutnings-
kerfið í búðirnar, en þar sem forráða-
mönnum fyrirtækjanna þótti ákveð-
inn samhljómur milli fyrirtækjanna
var ákveðið að um yrði að ræða
markaðssamstarf. Samstarf þekktra
vöramerkja verður æ algengara, þar
sem þá er lögð áhersla á að merkin
styðji á einhvern hátt hvort annað.
Þá er um að ræða ólíkar vörur, sem
ekki keppa hvor við aðra heldur falla
að þeirri ímynd, sem álitið er að
merkin hafi í hugum neytenda.
Hvað Benetton og B&O varðar
álíta forráðamennimir að bæði
merkin feli í sér gæði, sem höfðað
geti til viðskiptavina beggja. B&O sá
um leið leik á borði að ná til yngri við-
skiptavina en annars kaupa vörur
fyrirtækisins, auk þess sem út-
breiðsla Benetton er mikil og veitii-
einstakt tækifæri til að koma B&O á
framfæri um allan heim. Fyrir Ben-
etton getur hágæðaímynd B&O ver-
ið áhugaverð, en Benetton leggur
áherslu á ódýr en góð föt úr vönduð-
um efnum.
B&O hefur undanfama mánuði
rekið auglýsingaherferð um allan
heim undir slagorðinu „A Life Less
Ordinary“, sem þýða mætti „Ekkert
venjulegt líf‘. Ciccolella hefur hann-
að herferðina og samstarfið við Ben-
etton álítur hann falla vel að þessari
herferð. Hvoragt fyrirtækjanna hef-
ur látið uppi hvað Benetton greiði
fyrir hljómflutningskerfið eða hvaða
upphæðir samstarfið feli í sér. Sök-
um sterkrar stöðu Benetton og mik-
illar útbreiðslu má þó búast við að
B&O hafi séð ástæðu til að slá af
söluverðinu og sé kannski sá aðili,
sem hafi meira upp úr samstarfinu.
Lloyds TSB fær-
ir út kvíarnar
BRESKI bankinn Lloyds TSB
áformar nú að fara á Evrópumark-
að í gegnum Netið. Óstaðfestar
heimildir segja þetta lið í efla sam-
keppnishæfi bankans við keppina-
uta á borð við HSBC, Barclays and
NatWest.
Samkvæmt skýrslu sem birtist í
dagblaðinu Financial Times, stend-
ur til að Lloyds TSB setji á fót net-
banka fyrir alla Evrópu. Bankinn,
sem er sá fjórði stærsti á Bret-
landi, er hins vegar tregur til að
veita upplýsingar um málið. Að
sögn talsmanns bankans er enn
verið að þróa og prófa hugmyndina
jafnt sem kerfíð sjálft. Því vill
bankinn ekki gefa upp hvers konar
þjónusta verður í boði í þessu sam-
hengi eða hvenær og hvar verður
farið af stað með þessar nýjungar.
Evrópa kallar
Að mati fjölmargra breskra og
bandarískra banka hefur, með til-
komu eins gjaldmiðils í Evrópu,
skapast þar mjög áhugaverður
markaður. Lloyds TSB er einn
þessara banka og reynir nú ákaft
að finna leiðir til að nýta sér þenn-
an nýja markað. Bankinn þarf að
vaxa mikið til að geta haldið uppi
samkeppni við keppinauta á borð
við HSBC, Barclays and NatWest
en aðeins um 20% tekna bankans
eru vegna erlendra viðskipta - að-
allega á Nýja Sjálandi og Suður-
Ameríku.
Ekki er ljóst hvernig bankinn
hyggst taka á evrópskum bankaris-
um í löndum eins og Þýskalandi,
Frakklandi, Hollandi og á Spáni.
Endalok pundsins
BRETLAND hefur tapað barátt-
unni fyrir pundinu, og frá og með 1.
janúar verður pundið ekki lengur
notað. Ástæðan er sú að Bretar hafa
aðlagað sig að því kerfi sem við-
gengst í öðram löndum Evrópu-
sambandsins, en það er hins vegar
ekki breski gjaldmiðillinn sem orðið
hefur að víkja heldur þyngdareining-
in pund.
Framvegis verða kaupmenn að
venja sig á að vigta lausavöra í kíló-
um í stað punda sem hafa öldum
saman verið sú þyngdareining sem
notast hefur verið við í Bretlandi.
Kerfísbreytingin veldur hins veg-
ar mörgum áhyggjum og þeir sem
barist hafa fyrir því að halda gömlu
þyngdareiningunni segja að breyt-
ingin muni valda miklum glundroða.
Þá er talið að margir kaupmenn sem
haft hafa hálft ár til að undirbúa
breytinguna hafi ekki staðið sig sem
skyldi. Stórmarkaðir era þó flestir
taldir viðbúnir breytingunni, en
áætlað er að sex af hverjum tíu smá-
söluverslunum hafi ekki skipt yfir í
vogir sem mæla þyngd í kílóum.