Morgunblaðið - 04.01.2000, Page 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ploygMniitetriíí
BÓKASALA 1.-24. des.
Röð Var Titill/ Háfundur/ Útgefandi_______________________
1 Harry Potter og viskusteinninn/ Joanna Rowling/ Bjartur
2 Slóð fiðrildanna/ Ólafur Jóhann Ólafsson/ Vaka-Helgafell
3 Útkall í Atlantshafi á jólanótt/ Óttar Sveinsson/ íslenska bókaútgáfan
4 Vandamál Berts/ Sören Olsson og Anders Jacobsson/ Skjaldborg
5 Einar Benediktsson-ll/ Guðjón Friðriksson/ Iðunn
6 Sagan af bláa hnettinum/ Andri Snær Magnason og Áslaug Jónsdóttir/ Mál og menning
7 Jónas Hallgrímsson/ Páll Valsson/ Mál og menning
8 Ólafur landlæknir/ Vilhelm G. Kristinsson/ Vaka-Helgafeil
9 Bretarnir koma/ Þór Whitehead/ Vaka-Helgafell
10 Steingrímur Hermannsson-ll/ Dagur B. Eggertsson/Vaka-Helgafell
Einstakir flokkar: ÍSLENSK OG ÞÝPP SKÁLDVERK
1 Slóð fiðrildanna/ Ólafur Jóhann Ólafsson/ Vaka-Helgafell
2 Kular af degi/ Kristín Matja Baldursdóttir/ Mál og menning
3 Þú ert mín/ Mary Higgins Glark/ Skjaldborg
4 Örvænting/ Stephen King/ Fróði
5 Stúlka með fingur/ Þórunn Valdimarsdóttir/ Forlagið
6 Spegilmynd/ Danielle Steel/ Setberg
7 Feigðardraumar/ Sidney Sheldon/ Skjaldborg
8 Afródíta/ Isabel Allende/ Mál og menning
9 Vetrarferðin/ Ólafur Gunnarsson/ Forlagið
10 Hlaðhamar/ Björn Th. Björnsson/ Mál og menning
ÍSLENSK QG ÞÝDD LJÓÐ
1 Úr landsuðri og fleiri kvæði/ Jón Helgason/ Mál og menning
2 Hugástir/ Steinunn Sigurðardóttir/ Mál og menning
3 Ljóð Tómasar Guðmundssonar// Mál og menning
4 Skagfirsk skemmtiljóð III/ Bjarni Stefán Konráðsson safnaði/ Hólar
5 Sálmabók íslensku þjóðkirkjunnar/Róbert A. Ottósson valdi/ Skálholt
6 Gullregn úr ástarljóðum íslenskra kvenna/ Gylfi Gröndal valdi/ Forlagið
7 Spámaðurinn/ Kahlil Gibran/ Muninn
8 Periur úr Ijóðum íslenskra kvenna/ Silja Aðalsteinsdóttir valdi/ Hörpuútgáfan
9 Meðan þú vaktir/ Þorsteinn frá Hamri/ Iðunn
10 Gullregn úr Ijóðum Þórarins Eldjárns/ / Forlagið
ÍSLENSKAR OG ÞÝDDAR BARNA- OG UNGLINGABÆKUR
1 Harry Potter og viskusteinninn/ Joanna Rowling/ Bjartur
2 Vandamál Berts/ Sören Olsson og Anders Jacobsson/ Skjaldborg
3 Sagan af bláa hnettinum/ Andri Snær Magnason og Áslaug Jónsdóttir/ Mál og menning
4 Eva og Adam-Með hjartað í buxunum/ Máns Gahrton og Johan Unenge/ Æskan
5 Rauðu augun/ Helgi Jónsson og Hörður Helgason/ Tindur
6 HandaGÚndavél og ekkert minnal/ Guðrún Helgad. og Freydís Kristjánsd/ Vaka-Helgafell
7 Við enda regnbogans/ Helga Möller og Ólafur Pétursson/ Fróði
8 Grýlusaga/GunnarKarlsson/Skrípó
9 Tarzan og Kala/ Walt Disney/ Vaka-Helgafell
10 Kleinur og karrí/ Kristin Steinsdóttir/ Vaka-Helgafell
ALMENNT EFNI OG HANDBÆKUR
1 Útkall í Atlantshafi á jólanótt/ Óttar Sveinsson/ íslenska bókaútgáfan
2 Bretarnir koma/ Þór Whitehead/ Vaka-Helgafell
3 Leggðu rækt við sjálfan þig/ Anna Valdimarsdóttir/ Forlagið
4 Bók aldarinnar/ Gísli Marteinn Baldursson og Ólafur Teitur Guðnason/ Nýja bókafélagið
5 Ljósið yfir landinu/ Ómar Ragnarsson/ Fróði
6 Rauðu djöflarnir/ Agnar Freyr Helgason og Guðjón Ingi Eiríksson/ Hólar
7 Já, ráðherra-Gamansögur../ Ritstj. Guðjón Ingi Eiriksson og Jón Hjaltason/ Hólar
8 Fólk á fjölium/ Ari Trausti Guðmundsson og Pétur Þorleifsson/ Ormstunga
9 Veðurdagar/ Unnur Ólafsdóttir og Þórarinn Eldjárn/ Vaka-Helgafell
10 Líkami fyrir lífið/ Bill Phillips og Michael D’Orso/ Hvítt og svart
ÆVISÖGUR OG ENDURMINNINGAR
1 Einar Benediktsson-ll/ Guðjón Friðriksson/ Iðunn
2 Jónas Hallgrímsson/ Páll Valsson/ Mál og menning
3 Ólafur landlæknir/ Vilhelm G. Kristinsson/ Vaka-Helgafell
4 Steingrímur Hermannsson-ll/ Dagur B. Eggertsson/ Vaka-Helgafell
5 Glott í golukaldann/ Hákon Aðalsteinsson/ Hörpuútgáfan
6 Sviptingar á sjávarslóð/ Höskuldur Skarphéðinsson/ Mál og menning
7 Á hælum löggunnar-Sveinn Þormóðss./ ReynirTraustas./ islenska bókaútgáfan
8 Af föngum og frjálsum mönnum/ Jón Bjarman/ Hólar
9 Á lífsins leið-ll/ Þjóðþekktar konur og menn segja frá/ Stoð og styrkur
10 Lífsgleði viii-Minningar og frásagnir/ Þórir S. Guðbergsson/ Hörpuútgáfan
Bókabúðir sem tóku þátt í könnuninni_____________________________________
Höfuðborgarsvæðið:
Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi
Bókabúð Máls og menningar, Slðumúla
Bókabúðin Hlemmi, Bókabúðin Mjódd
Bóksala stúdenta, Hringbraut
Bónus, Holtagörðum, Bónus, Laugavegi
Eymundsson, Kringlunni
Griffill, Skeifunni
Hagkaup, Kringlunni, Hagkaup, Skeifunni
Pennínn-Eymundsson, Austurstræti
Penninn, Kringlunni
Samantekt Félagsvlsindastofnunar á sölu bóka 1.-24. des. 1999. Unniö fyrir Morgunblaðlð,
Félag Islenskra bókaútgefenda og Félag bóka- og ritfangaverslana. Ekki eru taldar með þær
bækur sem seldar hafa veriö á mörkuðum ýmiss konar á þessu tlmablll, né kennslubækur.
Bókabúðin Hamraborg, Kópavogi
Bónus, Kópavogi, Hagkaup, Smáratorgi
Penninn-Eymundsson, Hafnarfirði
Utan höfuðborgarsvæðisins:
Bókabúð Keflavíkur, Keflavík
Hagkaup, Njarðvík
Kaupfélag Vestur-Húnvetninga, Hvammstanga
Bókval, Akureyri, Hagkaup, Akureyri
Kaupfélag Héraðsbúa, Egilsstöðum
KÁ, Selfossi
Reuters
Mörgæsir í snjó
MYNDHÖGGVARINN Egon
Comploi leggur lokahönd á snjó-
skúlptúr sinn af mörgæsafjöl-
skyldu í bænum Selva di Val
Gardena á Italíu á dögunum.
Verkið, sem unnið er í þrjá rúm-
metra af snjó, er gert í tilefni af
árlegri vetrarhátíð í bænum.
Miniiingarsjóður
Gunnars
Thoroddsens
Margrét
J. Pálma-
dóttir hlýt-
ur styrk
FRÚ Vala
Thoroddsen
afhenti Mar-
gréti J. Pálma-
dóttur kór-
stjóra styrk að
upphæð
250.000 kr. úr
Minningar-
sjóði Gunnars
Thoroddsens
29. desember
sl. fyrir framlag hennar til tón-
listarlífs í borginni. Úhlutað er
úr sjóðnum einu sinni á ári og
er þetta í fjórtánda sinn sem
veittur er styrkur úr sjóðnum
sem stofnaður var af hjónunum
Bentu og Valgarð Briem 29.
desember 1985. Þá voru liðin 75
ár frá fæðingu Gunnars.
Minningarsjóður Gunnars
Thoroddsens er í vörslu borg-
arstjórans í Reykjavík sem
ákveður úthlutun úr honum að
höfðu samráði við frú Völu
Thoroddsen. Tilgangur sjóðs-
ins er að veita styrk til einstak-
linga eða hópa, sem starfa á
sviði mannúðarmála, heilbrigð-
ismála eða menningarmála sem
Gunnar Thoroddsen lét sér-
staklega til sín taka sem borg-
arstjóri.
Margrét hlaut styrkinn
vegna framlags síns til tónlist-
arlífs í borginni og þótti úthlut-
unarnefnd hún hafa með frum-
kvæði sínu og krafti lagt
ómetanleg lóð á vogarskálar ís-
lenskrar tónlistar.
Margrót J.
Pálmadóttir
Afmælisflugeldar
TONLIST
S a I u r i n n
KAMMERTÓNLEIKAR
Beethoven: Sónata í A Op. 30,1;
Handel: Chaconne í G; Ysayé:
Sónata nr. 4 f.
einleiksfiðlu; Janacek: Fiðlusónata;
Ravel: Tzigane. Sif Tulinius, fiðla;
Steinunn Birna Ragnarsdóttir,
píanó. Sunnudaginn 3. janúar
kl. 20:30.
ÁRSAFMÆLI Salarins í Tónlist-
arhúsi Kópavogs rann upp sl.
sunnudagskvöld. í stuttu ávarpi
forstöðumanns kom m.a. fram að
haldnir hefðu verið 120 tónleikar, og
því augljóst að starfsemi tónlistar-
hússins nýja mun komin allvel á veg.
Vinsældir hússins hafa reyndar
orðið undirrituðum tilefni til að
harma að ekki skyldi hugsað í ögn
stærri sniðum á teikniborðsstigi, en
því verður ekki breytt. Þar með
hefði hljómburður væntanlega auk-
izt að sama skapi. Hvort ómtími sé
lengjanlegur frá því sem nú er, vita
aðrir betur. Kórsöngur kæmi t.a.m.
vafalítið betur út með hálfri til heilli
sekúndu í viðbót, þó að núverandi
heyrð virðist henta flestri kammer-
tónlist ágætlega, þ.á m. áhöfn
kvöldsins, fíðlu og píanói. Eitt er þó
eftir sem hlýtur að mega laga - lág-
vært loftræstirumið sem vart verð-
ur við á hljóðlátustu augnablikum.
Dagskráin var við hæfi skemmtileg
á þessum fyrstu tímamótum og
spannaði um tvær aldir. Hinar þrjár
sónötur Beethovens fyrir fiðlu og
píanó Op. 30, sem hann samdi
1801-2 og tileinkaði Alexander I
Rússlandskeisara, eru öndvegis-
dæmi um vínarklassíska „Hausmus-
ik“. M.ö.o. „heimilistónlist" - en að
vísu af kröfuharðari sortinni, sem
kemur manni til að undrast hvað
áhugamennska fyrri tíma gat verið
á háu stigi.
Þessi innblásna skemmtimúsík
hljómar núorðið mun oftar úr hljóm-
flutningstækjum en á tónleikum
sem von er, enda viðmiðunin að
sönnu geigvænleg, þó svo aðeins sé
minnzt á 20 ára gamla en funheita
hljóðritun Perlmans og Ashkenazys.
Sif Tulinius og Steinunn Birna
Ragnarsdóttir fluttu hér fyrstu són-
ötuna í settinu, nr. 6 af alls 10 fiðlu-
sónötum Beethovens. Leikur þeirra
var fallega samstilltur og áreynslu-
laus; kannski einum of hjá fiðlunni,
sem hefði mátt hafa sig aðeins meira
í frammi, ekki sízt í Adagióinu, enda
píanóið iðulega ívið of sterkt. Stein-
unn var með Beethoven-stflinn á
tæru í ýmist syngjandi eða hryns-
narpri mótun, kannski burtséð frá
stakri loftnótu í krefjandi þríólu-
hlaupum vinstri handar á litlum
styrk í útþáttum. Hándel er skrifað-
ur fyrir a.m.k. 3 sembalsjakonnum í
G-dúr, þ.e. með 62, 20 og 5 tilbrigð-
um. Steinunn lék að líkindum þá
stytztu, og með nærri því dúndrandi
bravúr, þrátt fyrir á köflum synd-
andi pedalnotkun, sem - með tilliti
til þess hvað öll hlaup og víravirki
voru sallaörugg - virtist með öllu
óþörf. Síðast fyrir hlé lék Sif ein og
óstudd nr. 4 úr 6 fiðlusónötum Ys-
ayés frá 1923, tileinkaða Fritz
Kreisler. Sónöturar eru meðal
helztu sveinsstykkja nútíma
atvinnufiðlara, enda hefur fátt verið
samið fyrir undirleikslausa fiðlu á
20. öld sem gerir meiri tæknikröfur.
Sif kaus að leika af yfírveguðu ör-
yggi með áherzlu á ljóðræna og
íhugula þáttinn, enda þótt tækniget-
an væri fráleitt eldfimara neistaflugi
til fyrirstöðu. Það fengu áheyrendur
betur að heyra eftir hlé, þegar stöll-
urnar léku Sónötu Janaceks fyrir
fiðlu og píanó frá heimsstyrjaldarár-
unum fyrri. Verkið er mikilla svipt-
inga; þrungið tilfinningu en afar vel
skrifað fyrir áhöfnina og víða sérk-
ennilegt, sérstaklega í lokaþætti,
þar sem fiðlan „gjammar fram í“
með sundurtættum vélbyssuhrinum.
Píanórithátturinn sindrar víða af
merlandi hrævareldi sem Steinunn
kom hvað fallegast til skila í arpegg-
íoum Ballöðunnar (II.). Þjóðlagaarf-
urinn frá Mæri birtist í fyrra stefi
Allegrettósins (III.), þar sem skipt-
ust á seiðandi alþýðudansmennt og
líðandi dulúð, og lokaþátturinn var
leikinn af hrífandi krafti. Síðust á
dagskrá var hin víðkunna kon-
sertrapsódía Tzigane eftir Maurice
Ravel frá 1924. Verkið mun samið
undir áhrifum frá ungverskri síg-
aunatónlist, er Ravel heyrði þar-
lendan fiðlara, Jelly d’Aranyi, snar-
stefja í heimahúsum vinar síns.
Stykkið er ein bravúra-svaðilför
frá upphafi til enda; hefst á knúsaðri
einleikskadenzu a la Paganini og
lýkur með mikilli flugeldasýningu á
stigauknum hraða. Vægt væri til
orða tekið að sópað hefði af samleik
þeirra Sifjar, er lögðu allt í sölurnar
með þvílíkum þrótti, að við lá að
hlustandinn hrykki úr sæti á niður-
lagshápunkti. Þetta var sannkallað-
ur samleikur á bræðslumarki, og þó
að píanóið hefði enn sem fyrr mátt
hemja sig ofurlítið í styrk á kraft-
mestu stöðum, var næsta ljóst, að
hnífsamtaka músísering tvíteymis-
ins þetta kvöld lofaði góðu um frek-
ara samstarf.
Ríkarður Ö. Pálsson