Morgunblaðið - 04.01.2000, Side 52
MORGUNBLAÐIÐ
52 ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000
V^1" ..■■■.... 1 —.........
ATVINNUAUGLÝSINGA
SVÆÐISSKRIFSTO FA MÁLEFNA
FATLAÐRA - REYKJAVÍK
Atvinna með liðveislu
Staða starfsmanns við atvinnu með liðveislu
er laustil umsóknar nú þegar. Atvinna með
liðveislu er tilraunaverkefni til tveggja ára á
vegum Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í
Reykjavík og byggir á hugmyndafræði
„Supported employment" þar sem fötluðum
er hjálpað til starfa á almennum vinnumarkaði
með stuðningi. Starfið byggist meðal annars
á eftirfarandi þáttum:
1. Atvinnuleit.
2. Þátttaka og þjálfun á almennum vinnu-
markaði.
3. Einstaklingsbundin úrræði.
4. Langtímastuðningur við þjónustuþega.
Þroskaþjálfamenntun eða önnur uppeldisfræði-
leg menntun æskileg. Umsækjandi þarf að eiga
auðvelt með samskipti og eiga frumkvæði að
móta og takast á við krefjandi starf. Þekking
á almennum vinnumarkaði er æskileg.
Starfshlutfall 75—100%. Starfið er veitttil árs-
loka ársins 2000.
,
Upplýsingar um starfið veitir Arni Már Björns-
son, forstöðumaður Atvinnu með liðveislu,
í síma 551 5941 eða 896 3729.
Forstöðumaður
þjónustukjarna
Á Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík
er laust starf forstöðumanns við þjónustu-
kjarna.
f \ Reykjavík eru nokkrir þjónustukjarnar.
í þjónustukjörnunum búa fatlaðir einstaklingar
í sjálfstæðri búsetu og með einstaklings-
bundna þjónustu.
Forstöðumanni gefst kostur á að taka þátt í
spennandi þróunarverkefni m.a. í samvinnu
við Miðgarð, fjölskylduþjónustuna í Grafar-
vogi.
Leitað er eftir þroskaþjálfum eða fólki með
menntun á sviði uppeldismála og/eða reynslu
af starfi með fötluðum.
Lipurð í mannlegum samskiptum og reynsla
af stjórnunarstörfum æskileg.
Um er að ræða 100% stöðu en einnig kemur
til greina að tveir aðilar skipti með sér starfinu.
Upplýsingar um starfið gefur Lone Jensen á
Svæðisskrifstofu Reykjavíkur í síma 533 1388.
Stuðningsfulltrúar
Óskum eftir körlum og konum í vaktavinnu
á sambýlum, við umönnun fatlaðra. Um er að
ræða heilar stöður og hlutastörf. Auglýst er
eftir fólki til lengri tíma og í afleysingar.
Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu af
störfum með fötluðum.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Steinunn
Guðmundsdóttir í síma 533 1388.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum ríkisstarfsmanna.
Umsóknarfrestur er til 18. jan. 2000. Umsóknir ásamt upplýsingum
um menntun og fyrri störf berist til Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra,
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, á eyðublöðum sem þar fást.
Laust starf
Laus er til umsóknar staða yfirtollvarðar í toll-
gæslunni í Hafnarfirði. Skipað verður í stöðuna
frá og með 1. febrúar 2000 til 5 ára sbr. 23. gr.
starfsmannalaga nr. 70/1996. Umsækjendur
skulu hafa lokið prófi frá Tollskóla íslands, sbr.
33. gr. tollálaga nr. 55/1987. Laun eru skv.
samningi Stéttarfélagstollvarða og fjármála-
ráðherra f.h. ríkisins frá 1. september 1997.
Umsóknarfrestur ertil 17. janúar 2000 nk. Um-
sóknir skal senda til sýslumannsins í Hafnarfirði
sem veitir nánari upplýsingar um stöðuna.
Hafnarfirði 30. desember 1999.
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði.
Vv iHifajri
-nýstön!
-MTOÓLKttSOT-
Vegna aukinna umsvifa, m.a. vegna opnunar nýrra verslana,
viljum við gjarnan ráða fleiri starfsmenn.
Um er að ræða margvisleg störí við áfyllingar og önnur tilfallandi verslunarstörf,
sem kalla á ábyrgð, ótvíræðan dugnað, jákvætt viðmót og reglusemi.
Vaktavinna, kvöldvinna.
Við leitum að: Duglegu, reyklausu og lífsglöðu fólki.
Við bjóðum: Góðan og kraftmikinn starfsanda og góð laun ásamt góðum
möguleikum á aukinni ábyrgð og betri kjörum fyrir gott fólk.
Þeir sem ánuga hafa, eru vinsamlega beðnir að fylla út umsóknareyðublöð
sem fást í öllum 10-11 verslunum.
Athugið, fyrirspumum er ekki svarað í síma.
Farið verður með allar upplýsingar sem algjört trúnaðarmál.
10-11 er ungt og framsækið fyrirtæki f örum vexti. Pað rekur nú 17 verslanir
á hófuðborgarsvæðinu og mun þeim fjölga enn á næstunni.
yelgengni sfna þakkar fyrirtækið m.a. starfsfólki sínu.
Áhersla er því ætíð lögð á, að gott fólk veljist til starfa.
IÆTI - BARÓNSSTfG SELJAVEGI - GLÆSIBÆ ■ GRfMSBÆ » LAUGALÆK • LÁGMÚLA • ARNARBAKKA - SPORHÓM
LSBRAUT - LANGARIMA • ENGIHJALLA . HJALLABREKKU • SETBERGIHF • FIRDIHF • H0LTI HF • STYKKISH0LMI
s&Sh
Félagsstofnun stúdenta á og
rekur Sólgarð en rekur
Mánagarð samkvæmt samn-
ingi við Reykjavíkurborg.
Helstu markmið með starfinu
eru að börnin læri að virða
hvert annað, skoðanir, lang-
anirog þarfirhvers annars,
með þvl að hlusta, tjá sig,
framkvæma, sýna tillitsemi,
virða reglur og leysa deilur.
Félagsstofnun stúdenta er
sjálfseignastofnun með sjálf-
stæða fjárhagsábyrgð og rek-
ursex deildir. Aðhenni
standa stúdentar innan Há-
skóla íslands, HÍog mennta-
málaráðuneytið.
Starfsfólk
í leikskóla
Leitum að starfsfólki á leikskóla FS:
Leikskólastjóra á Mána-
garð. Reyndur leikskóla-
kennari ífullt starf.
Leikskólakennara á
Sólgarð, 80-100% starf.
Matráður á Sólgarð, 50%
starffrá kl. 8:30-12:30.
an
Upplýsingar veitir Eyrún María Rúnarsdóttir
hjá Atvinnumiðstöðinni ísíma 5 700 888.
atvinna@fs.is
Vinsamlegast sendið skriflega umsókn til Atvinnu-
miðstöðvarinnar, Stúdentaheimilinu v/Hringbraut, 101 R„
eða tölvupóst til atvinna@fs.is fyrir 11. janúar n.k.
■MR|
Fræðslumiðstöð
Reykjavíkur
Laus störf í grunn-
skólum Reykjavíkur
Kennarar
Engjaskóli, sími 510 1300.
Almenn kennsla í 4. bekk.
2/3 staða.
Upplýsingar gefa skólastjóri í síma 899 7845
og aðstoðarskólastjóri í síma 861 3542.
Laun skv. kjarasamningum Reykjavíkurborgar
við viðkomandi stéttarfélög.
• Fríkirkjuvegi 1 • ÍS-101 Reykjavík, • Sími: (+354) 535 5000
• Fax: (+354) 535 5050 • Netfang: fmr@rvk.is
Rekstrarstjóri
Laust er til umsóknar starf rekstrarstjóra við
Heiðarskóla i Leirársveit í Borgarfirði frá og
með 15. febrúar 2000.
Umsækjendur þurfa að hafa reynslu af bók-
haldi og reynsla af stjórnun er æskileg.
Umsóknir skulu vera skriflegar og hafa borist
rekstrarstjóra fyrir 15. janúar 2000.
Nánari uppl. veita Petrína Ottesen í s. 433 8920
og Sigurður Valgeirsson í s. 433 8968.
MENNTASKÓLINN
SUND
Starfsmaður í
mötuneyti
Forföll
Óskum nú þegar eftir starfsmanni í mötuneyti
starfsmanna Menntaskólans við Sund.
Starfið er laust vegna forfalla í 4—8 vikur.
Starfið felst í því að annast innkaup og taka
til kaffi og léttan hádegismat.
Vinnutími er frá kl. 8—16.
Nánari upplýsingar veita rektor og fjármála-
stjóri í síma 553 7300 og 553 3479.
Rektor.
MYLLUBAKKASKÓLI
Tölvukennari óskast
Tölvukennari óskastvið Myllubakkaskóla í
heila stöðu. í starfi hansfelst m.a. að kenna
23 stundir á viku auk umsjónar og eftirlits með
tölvustofu.
1. Kennt er á IMac tölvur og fjölverkakerfið
Claris Works 5.
2. Internetfræðsla.
3. Heimasíðugerð.
Allar frekari upplýsingar veitir skólastjóri
í síma 421 1450 eða 421 1884.
Elli- og hjúkrunarheimilið Grund
Starfsfólk óskast
Óskum eftir traustu og ábyggilegu fólki til
starfa við umönnun aldraðra. Um fjölbreytileg
störf er að ræða, morgun-, kvöld- og nætur-
vaktir og er starfshlutfall eftir samkomulagi.
Starfsfólk vantar í ræstingar, vinnutími frá kl.
8.00—16.00 virka daga.
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma
552 6222 frá kl. 8.30-12.30.
IÐIMSKÓLINIM í HAFNARFIRÐI,
Flatahrauni 12, 220 Hafnarfirði.
Sími 585 3600. Fax 585 3601.
Kennara vantar!
Kennara vantar á vorönn í eftirfarandi:
Rafmagnsgreinar um 34 kennslustundir á viku.
íslensku 13 kennslustundir á viku.
Ensku 12 kennslustundir á viku.
Laun samkvæmt kjarasamningum ríkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrir störf, berist undirrituðum fyrir
7. janúar nk.
Jóhannes Einarsson,
skólameistari.
Skóverslun við
Laugaveg
óskar eftir starfskrafti, ekki yngri en 25 ára.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl.
fyrir 8. janúar merktar: „Reyklaus — 9089".
Mosfellsbakarí
Óskum eftir að ráða hressa og stundvísa starfs-
krafta í afgreiðslu og fleira frá áramótum.
Upplýsingar gefnar í Mosfellsbakaríi, Urðar-
holti 2, sími 566 6145 og Sælkeragallerí-
inu, Grensásvegi 48, sími 588 5252.