Morgunblaðið - 04.01.2000, Qupperneq 72
72 ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÁGÆTU Garð-
bæingar.
Eins og flestir hafa
eflaust tekið eftir hafa
kennarar Tónlistar-
skóla Garðabæjar mót-
mælt harðlega ráðn-
ingu í stöðu skólastjóra
skólans sem var af-
greidd á bæjarstjórn-
arfundi 16. desember
síðastliðinn. Þessi
ráðning hefur verið
.gagnrýnd harðlega þar
sem kennarar telja að
með ráðningunni hafi
bæjarstjóm ekki starf-
að samkvæmt reglu-
gerð um skólann né heldur viðhaft
vinnubrögð við ráðninguna sem fag-
leg geti talist.
Þar sem bæjarstjóm hefur alger-
lega hunsað allar okkar athuga-
semdir og ekki gefið okkur fullnægj-
andi skýringar á þessari ráðningu
tel ég réttast að upplýsa bæjarbúa
um hvernig háttvirtir bæjarstjóm-
arfulltrúar virðast hafa staðið að
málinu.
Eftirfarandi kemur fram í reglu-
gerð skólans: .....bæjarráð ræður
i-skólastjóra og aðra fasta starfsmenn
að fengnum tillögum skólanefndar."
Það er líka eðlilegt að skólanefnd
sé sá aðili sem metur umsækjendur
þar sem hún þekkir vel til innra
starfs skólans enda er þetta viðtekin
venja við tónlistarskóla.
Ingimundur Sigurpálsson bæjar-
stjóri tekur hins vegar upp á í þessu
tilfelli að skipa viðræðunefnd til að
fara yfir umsóknir og taka viðtöl við
umsækjendur. Með honum taka
sæti í nefndinni Gunnar Einarsson,
fulltrúi menningar- og fræðslusviðs
og Guðmundur Hall-
grímsson, formaður
skólanefndar.
Með því að skipa
sjálfan sig í þessa
nefnd og taka að sér
forsæti hennar brýtur
bæjarstjóri samkvæmt
áliti lögfræðings 11.
grein stjórnsýslulaga
og er í raun vanhæfur
sem fulltrúi stjórn-
valds að koma að mál-
inu á seinni stigum
þess.
Niðurstaða nefndar-
innar var sú að hver
nefndarmaður lagði til
einn umsækjenda. Bæjarstjóri lagði
til nafn þess umsækjenda sem síðar
var kjörinn í bæjarstjóm, formaður
skólanefndar lagði til Smára Ólason
yfirkennara og fulltrúi menningar-
og fræðslusviðs lagði til þriðja aðil-
ann.
Málinu var síðan vísað til skóla-
nefndar og fjallaði hún um málið
eins og reglur um skólann segja til
um og lagði í það mikla vinnu. Nið-
urstaða skólanefndar var sú að
Smári Ólason yfirkennari væri hæf-
astur umsækjenda. Kom það ekki á
óvart þar sem Smári er hámenntað-
ur og hefur starfað lengi sem yfir-
kennari við skólann. Hann hefur
ekki átt lítinn þátt í því að skóla-
starfið er talið sérstaklega fram-
sækið og vandað í alla staði. Þeir
sem þekkja til skólans vita að nem-
endur hans hafa flutt heilu óperurn-
ar íýrir fullu húsi og það tvisvar
undanfarin ár og staðið fyrir ýmsum
nýjungum í starfi. Nú síðast í vor
léku nemendur skólans t.d. inn á
geisladisk við góðan orðstír. Ekki
Mótmæli
Kennurum við skólann
blöskraði þessi vinnu-
brögð, segir Ólafur
Elíasson, og mótmæltu
þessari ráðningu.
má gleyma að við skólann starfar
öflug blásarasveit, strengjasveit
sem hefur verið tekið eftir á lands-
vísu, óvenju góð söngdeild svo og
góð píanódeild sem er stærsta deild
skólans.
Tillaga skólanefndar var ekki tek-
in til afgreiðslu í bæjarráði eins og
reglugerð skólans segir til um held-
ur var málinu vísað áfram til bæjar-
stjómar með þeim þrem nöfnum
sem vinnunefnd hafði lagt til. Kosið
var um þessa þrjá umsækjendur á
bæjarstjómarfundi hinn 16. desem-
ber og er ekki hægt að segja annað
en að vinnubrögð og niðurstaða hafi
verið furðuleg.
Allir bæjarstjómarfulltrúamir
kusu í leynilegri kosningu þann aðila
sem bæjarstjóri hafði mælt með og
það án nokkurrar umræðu. Álit
skólanefndar var rétt aðeins kynnt
en algerlega hunsað. Bæjarbúar
geta sjálfir leitt að því getum, hvort
hugsast geti að allt hafi verið ákveð-
ið íyrirfram með tilheyrandi hrossa-
kaupum.
Kennumm við skólann blöskruðu
þessi vinnubrögð _ og mótmæltu
þessari ráðningu. I kjölfar þeirra
mótmæla funduðu fulltrúar þeirra
með bæjarráði og kröfðu þeir bæj-
arráðsmenn hvern og einn skýringa
á því hvernig þeir hefðu getað geng-
ið fram hjá hæfasta umsækjandan-
um samkvæmt mati skólanefndar.
Þær skýringar sem kennarar fengu
vora vægast sagt ófullnægjandi en
nokkrir bæjarstjómarmenn gátu
ekki leynt því að Smári Ólason hefði
farið í taugarnar á þeim í gegnum
tíðina. Þegar gengið var á eftir
ástæðum þeirrar óvildar kom ekki
annað í Ijós en að Smári Ólason
hafði starfað í eitt ár (þ.e. 1994-95)
af þeim fimmtán sem hann hefur
starfað sem yfirkennari við skólann
sem orgelleikari í kirkju á höfuð-
borgarsvæðinu á meðan hann var í
fullri stöðu sem yfirkennari.
Sögðu bæjarstjórnendur að þetta
hefði ekki verið viðunandi. Þetta
þótti kennuram einkennilegt þar
sem margir starfsmenn skólans era
annars staðar í fullu stai-fi t.d. í Sin-
fóníuhljómsveitinni eða hafa auka-
tekjur á öðram vettvangi. Undirrit-
aður veit heldur ekki betur en að
umsækjandinn sem ráðinn var hafi
t.d. starfað sem undirleikari á ýms-
um vettvangi og það á meðan hann
var í fullu starfi sem skólastjóri við
tónlistarskóla á landsbyggðinni.
Að þessu undanskildu var kenn-
uram einnig gefin sú skýring að
meðmæli umsækjandans sem var
ráðinn hefðu verið svo góð að þau
hefðu réttlætt að gengið hefði verið
fram hjá Smára Ólasyni.
En nú kemur rúsínan í pylsuend-
anum.
Nú hefur það komið í ljós að með-
mæli og önnur fylgiskjöl sem Smári
Ólason sendi með umsókn sinni vora
ekki send til þeirra sem um málið
fjölluðu og lágu ekki frammi á neinu
stigi umfjöllunar um málið heldur
„gleymdust“ þau ásamt öðram fylgi-
gögnum í tösku inni á skrifstofu
menningarfulltrúans. Hvernig það
gat átt sér stað vil ég ekki vera með
neinar getgátur um, en það er nú
orðið ljóst að með þessu klúðri er
búið að brjóta stjórnsýslulög um
samræmi og jafnræði við úrlausn
mála og gera ráðninguna ólögiega.
En hvernig hefur bæjarstjórn
bragðist við? Hefur hún gefið
nokkrar skýringar á starfsemi sinni
eða reynt að svara ásökunum um
misbeitingu valds og pólitísk hrossa-
kaup? Nú hafa starfsmenn tónlistar-
skólans mótmælt ráðningunni allir
sem einn. Skiptir það bæjarstjórn
engu máli? Einnig hafa um 90% for-
ráðamanna barna og fullveðja nem-
endur í skólanum skrifað undir mót-
mæli gegn ráðningunni. Hefur álit
þeirra sem skólinn þjónar ekkert að
segja? Skólanefnd skólans hefur
ályktað um málið þar sem hún mót-
mælir harðlega meðferð þess og vís-
ar til að um sé að ræða „afleit vinnu-
brögð í opinberri stjórnsýslu. Ingi-
mundur Sigurpálsson bæjarstjóri.
Það bíða allir mjög spenntir eftir
viðunandi skýringum.
P.S. Ég vil að lokum einnig leið-
rétta þann misskilning sem bæjar-
stjórnarfulltrúar hafa haldið fram í
þessari umræðu; að það sé ekki eðli-
legt að kennai' velji sjálfir sína yfir-
menn. Kennarar hafa alls ekki farið
fram á það heldur hafa þeir einungis
farið fram á að yfirmaður þeirra sé
valinn samkvæmt mati skólanefndar
um hæfasta umsækjandann og að
heiðarlega sé staðið að stjórnsýslu.
Það er rétt að taka það fram að
kennarar hafa lagt sig fram um að
standa málefnalega að þessum mót-
mælum og hafa beint þeim eingöngu
gegn bæjarstjóm en ekki gegn
þeirri persónu sem hlaut ráðning-
una.
Höfundur er píanóleikari og kennir
við Tónlistarskóla Garðabæjar.
Opið bréf til Garðbæinga
Ólafur Elíasson
Óskar landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs
með þökk fyrir viðskiptin og viðtökur á nýliðnu ári
Útsalan hefst
6. januar a Akureyri
Faxafeni 8 sími: 533 1555