Morgunblaðið - 26.01.2000, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hlýr janúar kveður landsmenn með kulda og trekki
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Himinn og haf utarlega á Eskifirði voru böðuð geislum morgunsólarinnar í gærmorgun en hætt er við að blíðan láti
undan fyrir norðlægum áttum, kulda og snjókomu um næstu helgi.
Snýst í norðanátt með frosti og
Rífandi
á
notuðum
bílum
BÍLAUMBOÐ eru nú að hefja
hefðbundnar janúarútsölur á
notuðum bílum. Mikil sala var í
fyrra á nýjum bílum og hefur
það skilað sér í því að umboðin
eiga meira af notuðum bílum.
Dagur Jónasson, sölustjóri
notaðra bíla hjá Toyota, segir
að þar hafí aldrei verið jafnmik-
ið til af notuðum bílum. í fyixa
seldi Toyota-umboðið rúmlega
3.000 nýja bfla og að sögn Dags
voru til 500 notaðir bílar þegar
útsalan hófst hjá þeim í gær.
„Það er búið að vera allt
bijálað hérna í dag. Ætli við
séum ekki búnir að selja um 70
bíla frá því klukkan níu í morg-
un. Þá biðu um 20 manns fyrir
utan dyrnar eftir að komast inn
og það hefur verið stöðug um-
ferð hér í allan dag. Það er
hægt að gera mjög góð kaup og
ýmis tilboð eru í gangi,“ sagði
Dagur seinnipartinn í gær í
samtali við Morgunblaðið.
Þórður Jónsson, sölustjóri
notaðra bfla hjá Brimborg,
sagði að nú stefni allt í sölumet í
janúarmánuði á notuðum bíl-
um. Salan hjá þeim hefði farið
mjög vel af stað, en Brimborg
hóf einnig útsölu á notuðum bfl-
um í gær.
Hann sagði að þeir væru með
svipað magn af notuðum bflum
og verið hefur undanfarin ár, ef
miðað er við hlutfall af sölu á
nýjum bflum. Salan á þeim hafi
aukist og því væri meira til af
notuðum bílum en áður. Hann
sagði að þeir væru mjög ánægð-
ir með útkomuna í gær hjá
Brimborg. Janúar væri yfirleitt
rólegur sölumánuður, þannig
að útsalan ætti að vega það
svolítið upp, og það hefði áhrif.
ÚTLIT er fyrir að tekið sé að
styttast í hiýindunum sem ríkt
hafa víða um land að undanförnu.
Spáð er kólnandi veðri næstu
daga, frosti á morgun og föstudag
og á laugardag er gert ráð fyrir
norðan roki og snjókomu nyrðra.
Veðurstofan spáir kólnandi
veðri í nótt. Spáð er slydduéljum
og snjókomu vestanlands á morg-
un og allt að fjögurra stiga frosti á
Norðurlandi en úrkomulausu.
Á föstudag er spáð er 15 til 20
metra vindi á sekúndu vestan til á
landinu en hægara verður á norð-
ur- og austurhluta landsins. Frost
verður allt að fimm stigum og
kaldast norðan til.
Á laugardag er síðan gert ráð
fyrir norðanátt og snjókomu norð-
an til en úrkomulítið verður sunn-
an til. Kalt verður áfram fram á
mánudag.
Janúarmánuður hefur verið hlýr
í Reykjavík en að meðaltali var í
janúar á árunum 1961 til 1990 0,5°
frost. Undanfarið hefur hiti verið
4-5 gráður og oft meira en Árni
Sigurðsson veðurfræðingur taldi
óvarlegt að spá nokkru strax um
snjókomu
meðaltal mánaðarins. Á heimasíðu
Veðurstofunnar sést að meðalhiti í
janúar í fyrra var 0,1 stig, 0,6 í
janúar 1998, ein gráða f janúar
1997, sem er 1,5 stigi yfir meðal-
hita. Þá var 2,2 stiga hiti að með-
altali í janúar árið 1996 og var hit-
inn þá 2,7 gráður yfir meðallagi.
Er það hlýjasti janúar frá árinu
1992.
Yfírlæknir heilsugæslustöðvarinnar í Árbæ sendir skjólstæðingum tilkynningu
Engar upplýsingar afhentar
án skriflegrar heimildar
GUNNAR Ingi Gunnarsson, yfir-
læknir á heilsugæslustöðinni í Árbæ,
hefur sent skjólstæðingum stöðvar-
innar tilkynningu um að þeir geti
treyst því, að upplýsingar úr sjúkra-
skrám verði ekki færðar í væntan-
legan gagnagrunn á heilbrigðissviði,
nema sérstök og skrifleg heimild
sjúklings eða forráðamanns liggi
fyi-ir. Stjórn Heilsugæslunnar í
Reykjavík hefur falið forstjóra
hennar að benda yfirlækninum á að
það sé ekki í hlutverki hans að fjalla
um þessi mál heldur sé það hlutverk
stjómar heilsugæslunnar að semja
við rekstrarleyfishafa ef og þegar
leitað verður eftir því.
Gunnar Ingi segist með þessu
ekki vera að taka afstöðu til gagna-
grunnsins sem slíks, heldur telur
hann það skyldu sína að verja þau
gögn sem sjúklingar hafa hingað til
getað treyst að yrðu varðveitt hjá
heilsugæslustöðinni. Segir hann að
svo kunni að fara að málið verði til
lykta leitt fyrir dómstólum.
í tilkynningunni segir að í heilsu-
gæslustöðinni hafi sú ófrávíkjanlega
regla ætíð gilt um varðveislu upp-
lýsinga úr sjúkraskrám, að úr þeim
séu hvorki veittar munnlegar né
skriflegar upplýsingar til þriðja að-
ila, án þess að fyrir liggi um það sér-
stök skrifleg heimild viðkomandi.
Þótti rétt að upplýsa
skjólstæðinga sína
„Þess vegna geta bæði núverandi
og væntanlegir skjólstæðingar
heilsugæslustöðvarinnar í Árbæ
treyst því, að í væntanlegan gagna-
grunn á heilbrigðissviði verða því
aðeins færðar upplýsingar úr
sjúkraskrám í okkar vörslu, að okk-
ur hafi borist um það sérstök og
skrifleg heimild sjúklings eða for-
ráðamanns, enda verði litið á heim-
ildina sem upplýst samþykki við-
komandi.
Engar upplýsingar verða því af-
hentar um látna skjólstæðinga okk-
ar, ellegar þá, sem búa við óskert
forræði, en geta ekki veitt okkur
samþykki sitt, sökum veikinda eða
fyrir aldurs sakir.“
Gunnar segir að sér hafi þótt rétt
að tilkynna skjólstæðingum með
hvaða hætti hann teldi sér skylt að
halda utan um þessi mál.
„Samkvæmt lögum og reglum er
það í höndum yfirlæknis að verja
þessi gögn. í yfirlýsingunni kemur
fþam sú skoðun mín hvernig skuli
höndla þessi gögn.“ Að sögn Gunn-
ars er hann með þessu ekki að mót-
mæla einu eða öðru fyrirfram varð-
andi væntanlega samninga á milli
sjúkrastofnana og rekstrarleyfis-
hafa á gagnagrunni á heilbrigðis-
sviði. Hann sé einungis að fjalla um
skyldur sínar og réttindi þeirra sem
hafa eignast upplýsingarnar í sam-
skiptum við læknana. Hann segist
taka afstöðu til samninganna þegar
þar að kemur. Á meðan enginn
samningur sé til, ríki ákveðin óvissa
og telur Gunnar rétt að fólk viti hver
staða þess er í dag.
Stjórnar heilsugæslunnar
að semja
Yaldimar K. Jónsson, formaður
stjómar Heilsugæslunnar í Reykja-
vík, tjáði Morgunblaðinu í gær að
bréf hefði borist frá Gunnari Inga á
stjórnarfund í gær þar sem hann til-
kynnti um bréfið til skjólstæðinga
sinna. Valdimar sagði Gunnar hafa
hlaupið á sig í þessu efni, það væri
stjórnarinnar að semja um hugsan-
legan aðgang rekstrarleyfishafa að
gögnum frá heilsugæslunni. Sagði
Valdimar að Guðmundi Einarssyni,
forstjóra Heilsugæslunnar í Reykja-
vík, hefði verið falið að skýra yfir-
lækninum frá þessari afstöðu stjórn-
arinnar. Valdimar upplýsti
ennfremur að stjórnin hefði óskað
eftir lögfræðiáliti á réttmæti þess
hvort afhenda megi gögn í gagna-
grunninn og býst hann við að það álit
liggi fyrir innan skamms.
Dæmdir í
fangelsi
fyrir rán í
söluturnum
FJÓRIR menn um tvítugt voru
dæmdir í fangelsi í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær fyrir að hafa stað-
ið saman að ráni í söluturni í Ofan-
leiti 14 í Reykjavík í júlí í sumar sem
leið.
Þá voru tveir mannanna dæmdir
fyrir enn annað rán hálfum mánuði
fyrr í sölutumi við Óðinstorg.
Sá sem þyngstan dóminn hlaut var
dæmdur í 20 mánaða fangelsi, þar af
17 mánuði skilorðsbundið. Félagi
hans var dæmdur í 10 mánaða fang-
elsi, þar af 8 mánuði skilorðsbundið.
Þeir sem tóku þátt í seinna ráninu
með þeim voru dæmdir í 4 og 8 mán-
aða fangelsi. Sá sem stystan fangels-
isdóminn hlaut fékk allan dóminn á
skilorði en hann var ekill í seinna
ráninu og kom ekki við sögu í því
fyrra. Sá sem hlaut 8 mánaða fang-
elsi þarf að sitja inni í tvo mánuði af
refsitímanum.
Samkvæmt ákæru ríkissaksókna
réðust piltarnir tveir í fyrra ráninu
inn í söluturninn þar sem annar
þeirra hrifsaði hafnaboltakylfu af af-
greiðslukonu, ýtti niður í gólfið og
hélt henni þar fastri á meðan hinn
tók 16 þúsund krónur úr peninga-
kassa og tóbak fyrir rúmar 7 þúsund
krónur.
í seinna ráninu réðust þrír pflt-
anna á verslunarstjóra söluturnsins
við Ofanleiti 14 og einn þeirra, sá
hinn sami og beitti ofbeldi gegn af-
reiðslukonunni í fyrra ráninu, sló til
hans með klaufhamri og hrifsaði af
honum skjalatösku með 40-60 þús-
und krónum í.
Borgarráð og nágrannasveitarfélög
Rætt verði um
rekstur sameigin-
legs slökkviliðs
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að ganga til viðræðna við bæjar-
stjómir Garðabæjar, Hafnar-
fjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæj-
ar, Seltjamarness og Bessa-
staðahrepps um rekstur
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðis-
ins. Tekið er fram að annars kon-
ar rekstrarform geti komið til
greina.
Tillagan gerir ráð fyrir að
stofnsamningur verði lagður fyrir
borgarráð til staðfestingar. Tekið
er fram að heimilt sé að leita til
sérfróðra aðila um mat á uppgjöri
lífeyrisskuldbindinga fyrir stofn-
un byggðasamlags og um verð-
mæti eigna sem byggðasamlagið
mun taka við frá Slökkviliði
Reykjavíkur og Slökkviliði Hafn-
arfjarðar. Samningum skal lokið
eigi síðar en 15. aprfl nk.