Morgunblaðið - 26.01.2000, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.01.2000, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI s Utgáfufyrirtækið Fróði hf. og bókaútgáfan Iðunn sameinast Sameinað fyrirtæki veltir tæpum milljarði EIGENDUR forlaganna Fróða hf. og Iðunnar hf. hafa samþykkt að ganga til sameiningar félaganna und- ir nafni Fróða hf., en bókaútgáfu verður áfram fram haldið undir nafni Iðunnar. „Markmiðið með þessu er fyrst og fremst að stækka fyrirtækið, breikka grundvöll þess og gera það öflugra til að takast á við framtíðina,“ sagði Magnús Hreggviðsson, stjómarfor- maður Fróða hf., á blaðamannafundi ígær. „Fróði hefur fyrst og fremst verið í tímaritaútgáfu og hefur gefið út níu tímarit í um 210-220 tölublöðum á ári. Við höfum gefið út um fimm til fimm- tán bækur árlega á svonefndum jóla- bókamarkaði. Styrkleiki okkar hefur því fyrst og fremst verið í tímaritaút- gáfu en síður í bókaútgáfu,“ sagði Magnús. Hann sagði að bókaútgáfan Iðunn hafi hins vegar um langa tíð verið þekkt fyrir faglega mjög öflugt bóka- forlag undir forystu Jóns Karlssonar. „Við höfum því ákveðið að sameina fyrirtækin sem mun gerast með þeim hætti að öll bókaútgáfu verður undir nafni Iðunnar hjá Fróða, og Jón Karlsson mun veita henni forstöðu. Áður var Fróða hf. skipt í tvö svið, svið rekstrar og fjármála annars veg- ar og útgáfusvið hins vegar. í hinu sameinaða fyrirtæki breyt- ist útgáfusviðið í tímaritaútgáfusvið, rekstrarsviðið verður áfram og bóka- útgáfusvið bætist við sem þriðja svið- ið, og mun Jón Karlsson verða fram- kvæmdastjóri hins síðastnefnda," sagði Magnús. Magnús sagði að búist væri við nokkrum samlegðaráhrifum af sam- einingunni. „Við munum með því geta náð fram aukinni hagkvæmni í rekstri. Það mun þá gefa okkur færi til að vera enn metnaðarfyllri í bóka- útgáfunni. Tímarit og bókaútgáfa styðja hvort annað. Við sjáum það víða um heim,“ sagði Magnús. Jón Karlsson, framkvæmdastjóri Iðunnar, sagði á blaðamannafundin- um að það sem ræki þá fyrst og fremst til þessarar sameiningar væru aukin sóknarfæri. „Hér býr að sjálf- sögðu mikill styrkur og viðskiptaleg geta, auk samlegðaráhrifa. Þetta gerir okkur fært að sækja fram og munum við gera það á öllum sviðum útgáíúnnar. Bókaútgáfa mun aukast verulega á þessu ári. Ýmislegu sem verið hefur í bígerð verður ýtt úr vör,“ segir Jón Karlsson. „Við reiknum með því að við sam- eininguna fari starfsmannafjöldi Fróða úr 90 í 120 manns, og fjöldi ársverka, því fjölmargir koma að verkum í fyrirtækjunum, verður ná- lægt 170. Við gerum ráð fyrir að velta hins sameinaða fyrirtækis verði tæp- ur einn milljarður króna,“ sagði Magnús. Magnús sagði að rétt væri að fram kæmi að Fróði hf. hafi verið í mikilli sókn á undanförnum árum á tíma- ritamarkaði. „Við höfum á ftmm ár- um fækkað titlum úr átján í níu, en Morgunblaöiö/Golli Jón Karlsson, framkvæmdastjóri Iðunnar, og Magnús Hreggviðsson, stjómarformaður Fróða, innsigla samning um sameiningu fyrirtækjanna. tvöfaldað veltuna." Jón Karlsson sagði að velta Iðunnar á undanförn- um árum hefði verið kringum 200 milljónir króna á ári, og hefði mark- aðshlutdeild fyrirtækisins verið í námundavið 15%. Stefnt á hlutabréfamarkað innan þriggja ára Magnús Hreggviðsson sagði að sameiningin yrði framkvæmd með þeim hætti að Fróði hf. hefði keypt 49% hlutafjár í Iðunni hf„ af fjöl- skyldu Valdimars heitins Jóhanns- sonar stofnanda Iðunnar, og síðan færi af stað samrunaferli sem endaði á sameiningu félaganna. Hann sagði kaupverð hlutarins í Iðunni vera trúnaðarmál. Magnús sagði aðspurður á fundin- um að eignarhlutföfl Iðunnar-arms- ins og Fróða-armsins í hinu samein- aða félagi hefðu ekki verið ákveðin, en endanlegt stöðumat fyrirtækj- anna lægi ekki fyrir. Þau atriði myndu skýrast síðar í samrunaferl- inu. Magnús Hreggviðsson sagði að lokum að fyrir einu og hálfu ári hefðu nokkrum stofnanafjárfestum, undir forystu Eignarhaldsfélagsins Alþýð- ubankans, verið seld rúm 20% í Fróða hf. með hlutafjáraukningu. „Þá var ákveðið með samkomulagi milli aðiia að stefnt skyldi að ski’án- ingu Fróða hf. á hlutabréfamarkaði. Við gerum ráð fyrir því að það gerist innan þriggja ára,“ sagði Magnús. Akvæði verklagsreglna um viðskipti starfsmanna með óskráð bréf Islandsbanki veitti undanþágur Franskt félag að kaupa móðurfélag Strengs hf. STJÓRNENDUR íslandsbanka hafa veitt undanþágur frá ákvæðum verklagsreglna bankans vegna kaupa starfsmanna á óskráðum bréf- um í félögum, ef sýnt þykir að við- komandi félag er á leiðinni að sækja um skráningu fyrir bréf sín á mark- aði, að sögn Tryggva Pálssonar, framkvæmdastjóra Islandsbanka F&M. Hann segir að vandlega hafi verið gengið úr skugga um, í hverju tilviki, að ekki gæti verið um hags- munaárekstra að ræða. Fjárhæðirn- ar hafi einnig verið litlar. Tryggvi vill hins vegar ekki tjá sig um einstakar undanþágur sem veittar hafa verið eða upplýsa hvaða bréf starfsmenn hafi verið leyft að eiga viðskipti með. Verklagsreglur þær sem gilda inn- an íslandsbanka taka til starfs- manna bankans sem koma nálægt viðskiptum með verðbréf. Inn í þeim, eins og í reglum fleiri verðbréfafyrir- tækja, er ákvæði um að starfsmönn- um þeim sem reglumar ná til sé óheimilt að eiga viðskipti með önnur verðbréf en þau sem skráð eru á skipulegum verðbréfamarkaði. „Þessar verklagsreglur eru lítið frábrugðnar öðrum reglum, að því leyti að alltaf koma upp vafatilvik sem leggja verður mat á. Beiðnir um undanþágur eru metn- ar í hvert og eitt skipti, og afstaða tekin til þess hvort um hagsmuna- árekstra geti verið að ræða, fari við- skiptin fram. Sé hætta á slíku era að sjálfsögðu engar undanþágur veitt- ar. Mesta hættan er vitaskuld þegar bankinn annast útboð á þeim bréfum sem starfsmaður kaupir, en við höf- um ekki heimilað kaup í þeim tilvik- um,“ segir Tryggvi. Hann segir að íslandsbanki hafi hvatt til þess að reglurnar yrðu end- urskoðaðar varðandi þessi viðskipti og fleiri atriði og væri nú beðið eftir niðurstöðu starfshóps fyrirtækja í verðbréfaþjónustu, sem hefur ramma að verklagsreglum til endur- skoðunar. Stefán Pálsson, bankastjóri Bún- aðarbanka íslands, segir að bankinn geti ekki upplýst söluverð á hluta- bréfum í DeCode Genetics Inc., móð- urfyrirtækis Islenskrar erfðagrein- ingar, sem bankinn hefur selt til starfsmanna sinna og viðskiptavina. „Þetta era trúnaðarapplýsingar sem alls ekki á að gefa upp. Þessi bréf vora seld á ýmsum tíma á því gengi sem gilti þá. Við megum ekki upplýsa þetta vegna viðskiptaleynd- ar sem hvílir á viðskiptum einstakra manna og verði einstakra viðskipta," segir Stefán. Gildandi lagaheimildir mjög veikar í Morgunblaðinu í gær var haft eftir Bjarna Armannssyni, forstjóra Fjárfesingarbanka atvinnulífsins, að bankinn hefði leitað til Fjármálaeft- irlits og óskað eftir samþykki við verklagsreglum sem heimiluðu starfsmönnum fjármálafyrirtækja að fjárfesta í óskráðum hlutabréfum. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjár- málaeftirlitsins, staðfestir að FBA hafi leitað til stofnunarinnar. „Við höfnuðum þessari málaleitan á þeim grandvelli að verklagsreglumar væra til endurskoðunar hjá samtök- um verðbréfafyrirtækja. Slík rýmk- ún reglnanna, sem farið var fram á, snýr að markaðinum í heild og því vildum við bíða niðurstaðna þeirrar endurskoðunar áður en þetta yrði heimilað," segir Páll Gunnar. Legg- ur hann áherslu á það að Fjármála- eftirlitið útiloki alls ekki að þetta verði heimilað síðar, en hagsmunir markaðsins og viðskiptamanna séu nú verndaðir með öðram hætti. Að sögn Páls Gunnars er stutt síð- an Fjármálaeftirlitið fékk vitneskju um að starfsmönnum Landsbréfa hefðu verið veittar undanþágur frá verklagsreglum. „Líkt og með Bún- aðarbankann höfum við leitað eftir skýringum frá Landsbréfum," segir hann og bætir við að stofnunin sé nú með í athugun framkvæmd verklags- reglna hjá þeim fyrirtækjum sem hafi verið til umfjöllunar í fjölmiðlum að undanfömu. Jafnframt sé verið að skoða hvernig best sé að taka á þeim málum sem upp hafa komið. Varðandi viðurlög sem Fjármála- eftirlitið getur beitt fyrirtækin í verðbréfaþjónustu, beiti þau ekki ákvæðum verklagsreglna, ségir Páll Gunnar að ekki sé í lögum kveðið á um sérstök úrræði fyrir Fjármála- eftirlit í þessum málum. „Hinum al- mennu eftirlitsheimildum er vita- skuld unnt að beita, eins og því að gera athugasemdir og krefjast úr- bóta. Ég efast hins vegar um að dag- sektarúrræði eigi við í þessum tilvik- um, enda era gildandi lagaheimildir til þess mjög veikar. Framvarpið, sem nú liggur fyrir Alþingi, um breytingu á lagaákvæðum um fjár- málaeftirlit, mun litlu breyta í þeim efnum,“ segir hann ennfremur. Bankaráð Búnaðarbankans tekur kaupin til skoðunar Pálmi Jónsson, formaður banka- ráðs Búnaðarbanka Islands hf„ segir í samtali við Morgunblaðið að málið er varðar undanþágur þær sem starfsmenn Búnaðarbankans fengu til kaupa á óskráðum hlutabréfum í félögum, verði tekið fyrir á næsta fundi bankaráðs Búnaðarbankans. „Þetta mál verður rætt á næsta fundi bankaráðs,“ segir Pálmi. Ekki á dagskrá bankaráðs Landsbanka íslands Helgi S. Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbanka Islands hf„ segir að málið, er varði undanþágur starfsmanna Landsbréfa til hluta- bréfakaupa, hafi ekki verið sett á dagskrá næsta fundar í bankaráði Landsbankans. „Það mál er ekki á dagskrá. Það hefur ekkert komið upp milli mín og bankastjóra Landsbankans, sem undirbúum dagskrá funda banka- ráðs, um að þetta verði á dagskrá," segir Helgi. INTEGRA, franskt félag sem rekur verslunarvefi á Netinu, hefur lagt fram kauptilboð í öll hlutabréf norska fyrirtækisins Infostream, sem m.a. á íslenska hugbúnaðarfyrir- tækið Streng hf. Segist Integra þeg- ar hafa tryggt sér yftr helming hluta- bréfanna í Infostream en stjóm norska fyrirtækisins hefur mælt með því að tilboði Integra verði tekið. Sameinað fyrirtækið yrði stærsta fyrirtæki sinnar tegundai- í Evrópu, að því er fram kemur á fréttavef Morgunblaðsins. Gengi bréfa norska netfyrirtækis- ins Infostream, móðurfélags íslenska hugbúnaðarfyrirtækisins Strengs hf„ hækkaði um 60% á norskum verðbréfamarkaði í gær en þá var opnað á ný fyrir viðskipti með bréf félagsins eftir að tilkynnt var um kauptilboð franska fyrirtækisins Int- egra í Infostream. Haukur Garðarsson, fram- kvæmdastjóri Strengs, segir að þar á bæ líti menn þessa þróun mála mjög jákvæðum augum og ljóst sé að sam- rani fyrirtækjanna ætti að auka möguleika Strengs á að koma fram- leiðsluvöram sínum á markað. Um er að ræða jákvæða yfirtöku og hefur franska fyrirtækið þegar tryggt sér kaup á meirihluta hluta- bréfanna auk þess sem stjóm Info- stream hefur samhljóða mælt með að tilboðinu verði tekið. Tilboðið felur í sér að franska fyrirtækið býður í raun 28 norskar krónur í hvern hlut í Infostream. Þegar lokað var fyrir viðskipti með bréf Infostream á norska verðbréfamarkaðnum á föstudag var gengi bréfanna rúmlega 16. Opnað var fyrir viðskiptin aftur í gærmorgun og var gengið um hádeg- ið 25,80 og hafði hækkað um 60%. Mikil viðskipti vora einnig með bréf- in, eða rúmlega 5 milljónir hluta sem þýðir að viðskiptin hafa numið um 1,5 milljörðum króna. Haukur Garðarsson segir að ýmis hugbúnaður sem Strengur býður eigi erindi á þennan markað og því geti þessi samrani falið í sér ný tækifæri. Integra hefur sérhæft sig í fram- leiðslu á búnaði til viðskipta á Netinu og rekur slíkar netsíður fyrir önnur fyrirtæki. Infostream er netfyrir- tæki sem sérhæfir sig í lausnum fyrir fyrirtæki, einkum í orkugeiranum og banka- og fjármálastarfsemi. Integra ætlar að fjármagna kaup- in með því að gefa út 1,3 milljónir hluta og greiða 53 milljónir evra, eða sem svarar til tæplega 3,9 milljarða króna. Býður fyrirtækið einn hlut og 326,77 norskar krónur fyrfr 59 hluti í Infostream. Fallist allir hluthafar In- fostream á tilboðið myndu þeir ráða 17,3% hlut í Integra. Stefnt er að því að ljúka samning- um um kaupin á öðrum ársfjórðungi þessa árs, en þau era háð ýmsum skilyrðum, svo sem ítarlegri endur- skoðun. Integra sérhæftr sig í að setja upp og viðhalda vefjum þar sem stunda má viðskipti á Netinu. Sameiginleg velta beggja fyrirtækjanna nam 40 milljónum evra á síðasta ári eða um 2,9 milljörðum króna. Samtals vinna 550 manns hjá fyrirtækjunum tveim- ur, 320 hjá Integra og 230 hjá Info- stream. Norsk Hydro kaupir Wells Aluminium Ósló. AFP. NORSK Hydro hefur skrifað undir samning um kaup á bandaríska álframleiðandanum Wells Aluminium Corporation. Aðilar sem tengjast fyr- irtækinu hafa sagt að Norsk Hydro muni greiða allt að 14,5 milljarða króna fyrir fyrirtækið, auk þess að yf- irtaka skuldir upp á 7,6 milljarða. Samkvæmt fregnum frá Norsk Hydro munu kaupin á Wells auka framleiðslu fyrirtækisins á áli í Bandaríkjunum um 75.000 tonn á ári, og verður framleiðslan eftir það um 110.000 tonn. Þetta mun gera Norsk Hydro að fjórða stærsta fyrirtækinu sem framleiðir ál fyrir Bandaríkja- markað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.