Morgunblaðið - 26.01.2000, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Allt að helmingslækk-
Ríkið sýknað af skaða-
bótakröfu apótekara
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
hefur sýknað íslenska ríkið af kröf-
um Jóns Bjömssonar, um að fá
greiddar skaðabætur og endurheimt
lyfsölusjóðsgjald sem hann greiddi
árin 1989 til 1994. Stefnanda var að
auki gert að greiða ríkinu 150.000
krónur í málskostnað.
Stefnandi rak lyfjaverslanirnar
Akraness apótek árin 1986 til 1993
og Kópavogs apótek árin 1994 til
1997 og krafðist endurgreiðslu á lyf-
sölusjóðsgjaldi því sem honum var
gert að greiða til lyfsölusjóðs árin
1989 til 1994, samtals um 750.000
krónur, auk dráttarvaxta.
Taldi lögin bijóta í bága
við stjórnarskrána
Stefnandi byggði kröfu sína á því
að lyfsölusjóðsgjaldið sé skattur, í
merkingu stjórnarskrárinnar, en við
gjaldtökuna hafi hins vegar ekki leg-
ið fyrir fullnægjandi skattlagningar-
heimild. Skaðabótakrafan er byggð á
því að stefnandi hafi orðið fyrir tjóni
vegna þess að lög voru sett sem
brjóta í bága við stjómarskrá og
gera honum að greiða gjald til lyf-
sölusjóðs án fullnægjandi lagaheim-
ildar.
I vörn ríkisins var á því byggt að
lyfsölusjóðsgjaldið hafi verið inn-
heimt á gmndvelli lagaskyldu og að
gjaldtakan hafi í alla staði verið lög-
mæt. Einnig var skaðabótakröfunni
hafnað og því mótmælt sem röngu og
ósönnuðu að stefnandi hafi orðið fyr-
ir tjóni.
WAP-fjarskiptaþjónusta íslandssíma
Ný þjónusta
á Islandi
Islandssími stendur
fyrir ráðstefnu á
Hótel Loftleiðum í
dag og hefst hún klukkan
tólf á hádegi. Á ráðstefn-
unni verður fjallað um
WAP-þjónustu Islands-
síma. Sigurður Ingi Jóns-
son er yfirmaður við-
skiptamótunarsviðs
Íslandssíma. Hann var
spurður hvað WAP-þjón-
usta væri.
„WAP-þjónusta er í
raun aðgengi úr GSM-
síma að vefsíðum í sinni
einföldustu mynd. En
það má líka tengjast við-
skiptakerfum fyrirtækja í
gegnum WAP-gátt. Með
WAP-síma er t.d. hægt
að fara inn á Netið og
lesa þar tölvupóstinn
sinn, hægt er að fara í bankann,
framkvæma þar millifærslur og
skoða stöðu reikninga og loks er
hægt að gera flóknari hluti eins
og t.d.að tengjast með WAP-
gátt birgðabókhaldi, sölukerfi
og jafnvel stjórnkerfi fyrir-
tækja.“
- Er þetta alveg ný þjónusta?
„Já, þetta er alveg ný þjón-
usta og Islandssími er eina fyr-
irtækið á landinu sem getur
boðið stafræna tengingu alla
leið frá WAP-síma og til þjón-
ustuveitu (netþjónusta eða
banki sem viðkomandi notar).“
- Hvað kemur fram á þessari
ráðstefnu?
,Á- ráðstefnunni kemur fram
hvað hægt er að gera með
WAP-þjónustunni. Af því að
þetta er ný tækni er vert að
kynna fyrir notendum hvaða
möguleikar eru í boði. Ráðstefn-
an sjálf er einkum ætluð stjórn-
endum, millistjórnendum og for-
ráðamönnum fyrirtækja sem
vilja bjóða eða nýta þessa þjón-
ustu.“
-Er hægt að tengja WAP-
þjónustu við hvaða GSM-síma
sem er?
„Nei, það þurfa að vera GSM-
símar sem styðja WAP, sem er
samskiptastaðall sem heitir
fullu nafni Wireless Application
Protocoll."
- Er þessi þjónusta algeng er-
lendis?
„Þjónustan er að ryðja sér til
rúms í tæknivæddum löndum,
hún er alveg ný og íslendingar
eru í raun samferða þar þeim
þjóðum sem eru fremstar í
flokki að bjóða þessa þjónustu -
það er ekki eins og við séum
langt á eftir að bjóða hana.“
-Er dýrt að koma þjónust-
unni á?
„Að setja upp WAP-gátt er
dýrt en Islandssími er að setja
upp WAP-gátt sem hann veitir
síðan aðgang að. Fyrirtæki geta
fengið aðgang að WAP-gátt ís-
landssíma og ætla má að helsti
kostnaðurinn liggi í að laga
vefsíður eða önnur kerfi að
WAP-tæku formi. Gagnvart not-
endum er enginn ______________
aukakostnaður um-
fram GSM-símtal.“
- Býstu við að fleiri
fyrirtæki muni bjóða
uppá þessa þjónustu?
„Já, ég á von á því “““^-
að fjöldi fyrirtækja, öll helstu
fyrirtæki landsins komi til með
að nýta sér þessa tækni. Helstu
bankar lándsins eru þegar farn-
ir að bjóða aðgang að heima-
bönkum gegnum WAP-gátt og
mbl.is og strik.is bjóða þegar
upp á aðgang um WAP-gátt.“
- En hvaða f yrirtæki hér
gæti boðið upp á aðgang að-
Sigurður Ingi Jónsson
► Sigurður Ingi Jónsson fædd-
ist 11.12. 1959 í Reykjavík.
Hann tók stúdentspróf frá
Menntaskólanum við Hamra-
hlíð 1981. Hann hefur lokið
prófi í markaðssetningu og
stjórnun frá Macquarie Uni-
versity Sydney og starfar nú
sem yfirmaður viðskiptamótun-
ar hjá Islandssíma. Sigurður
var tíu ár í Ástralíu við störf
hjá fjármála- og tryggingafyr-
irtæki og hefur auk þess sinnt
ýmsum störfum hérlendis.
Kona Sigurðar er Inga B.
Árnadóttir tannlæknir og eiga
þau samtals fjögur börn.
WAP-gátt einnig?
„Það væri helst að nefna
Landssíma íslands en hann er
ekki kominn með þess þjónustu
ennþá.“
-Býstu við harðrí sam-
keppni?
„Já, það geri ég. Það verður
alltaf hörð samkeppni um nýja
og góða hluti en þá ríður bagga-
muninn að geta boðið upp á
bestu lausnina."
- Eru margar aðferðir til þess
að bjóða upp á þessa þjónustu?
„Það eru fleiri en eitt fyrir-
tæki sem bjóða upp á WAP-
gáttir. Islandssími er með Er-
icsson-gátt en einnig er hægt að
fá gáttir hjá Nokia og Phon-
e.com. Misjafnt er hvernig gátt-
irnar verka tæknilega en gagn-
vart notandanum lítur þetta allt
eins út - gagnið sem hann hefur
af þjónustunni er allt það
sama.“
-Hverjir tala á ráðstefnu Is-
landssíma á Hótel Loftleiðum?
„Fyrirlesarar eru sex, þar af
eru fjórir íslenskir. Hinir er-
lendu fyrirlesarar koma að utan,
annar frá Ericsson og heitir sá
Bo Birk, hann er sérfræðingur í
WAP-lausnum í fyrirtækja-
rekstri, og á vegum Flugleiða
kemur hinn, Douglas Turner,
hann er framkvæmdastjóri hjá
Relevance. Hann er með fyrir-
lestur um Real time marketing.
_______ Islensku fyrirlesar-
arnir eru Jóhann
Kristjánsson frá Is-
landsbanka - hans
fyrirlestur heitir;
Bankinn í vasanum,
Hjalti Þórarinsson frá
Dimon-hugbúnaðarhúsi nefnir
sinn fyrirlestur Heimasíður yfir
á WAP, Ingvar Hjálmarsson, yf-
irmaður netdeildar Morgun-
blaðsins, talar um fjölmiðla í
fjarskiptum og Kjartan Pierre
Émilsson frá OZ.com talar um
iPulse og WAP. Fundarstjóri er
Eyþór Arnalds, framkvæmda-
stjóri Islandssíma."
Fjöldi ffyrir-
tækja mun
nýta WAP-
þjónustu