Morgunblaðið - 26.01.2000, Side 10

Morgunblaðið - 26.01.2000, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR VMSÍ og Flóabandalagið leggja fram kröfugerð í komandi kjaraviðræðum VMSÍ vill að laun hækki um 15.000 kr. á ári Verkamannasambandið lagði í gær fram kröfugerð í komandi kjaraviðræðum þar sem gert er ráð fyrir að laun hækki árlega um 15.000 kr. og lágmarkslaun verði í lok samningstímans 110 þúsund kr. Flóabanda- lagið krefst þess hins vegar að laun hækki um 5% á ári og lágmarkslaun verði 91 þús- und í lok samningstímans. Framkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins segir kröfur VMSÍ algerlega óraunhæfar. SEGJA má að kjaraviðræður séu komnar í fullan gang eft- ir að félög Verkamanna- sambandsins lögðu í gær fram kröfugerð. Félögin á höfuðborg- arsvæðinu fara fram sér og er kröfu- gerð þeirra heldur lægri en kröfugerð VMSI. Báðir hópamir eru hins vegar að fara fram á verulegar kjarabætur og segja fulltrúar þeirra að verkafólk hafi ekki fengið sömu hækkanir og aðrir. Verkafólk muni ekki eitt og sér halda niðri verðbólgu. Formaður Verkamannasambandsins orðar þetta með þeim hætti að nú sé komið að öðrum að ausa úr þjóðarskútunni. Verkamannasambandið lagði fram kröfugerð á fundi með forystumönn- um Samtaka atvinnulífsins fyrir há- degi í gær. Eftir fundinn boðaði VMSÍ blaðamannafund þar sem kröfugerðin var kynnt fyrir fjöhniðl- um. Krafa um krónutöluhækkun í kröfugerðinni eru lagðar til rót- tækar breytingar á taxtakerfi verka- fólks. I gildandi kjarasamningum VMSI eru margir taxtar fyrir þær fjölmörgu starfsgreinar sem verka- fólk starfar í. Þannig er sérstakur taxti fyrir þá sem vinna í fiskvinnslu, annar fyrir þá sem vinna á lyftara, enn annar fyrir byggingaverkamenn, fyrir þá sem vinna á bensínstöðvum o.s.frv. I kröfugerðinni er lögð fram tiflaga um einn almennan taxta fyrir allt verkafólk, en jafnframt er gerð tillaga um það hvemig hinar einstöku starfsstéttir verkamanna raðist í ein- staka launaflokka. Bjöm Grétar Sveinsson, formaður VMSÍ, segir að sú röðun sem lögð sé til feli ekki í sér veruleg frávik frá þeim samningi sem nú er að renna úr gildi. Hins vegar leggi VMSÍ mikla áherslu á starfsmenntamál og því séu lagðar fram kröfur sem feli í sér vem- legt átak í þeim efnum. Kröfugerðin geri ráð fyrir að starfsmenn sem hafi lokið námi á starfsmenntabraut fái það umbunað með því að færast upp launatöfluna. VMSI gerir kröfu um að stofnaður verði sérstakur fræðslusjóður sem vinnuveitendur greiði í 0,3% af heild- arlaunum. Tilgangur þessa sjóðs verði að stórbæta starfsmenntun í at- vinnulífinu. Verkamannasambandið gerir kröfu um að mánaðarlaun verka- manna hækki í upphafi hvers árs um 15.000 kr. Jafnframt er því lýst yfir að VMSÍ sé tilbúið til að gera samning til allt að þriggja ára. Gerð er krafa um að desemberuppbót verði 50.000 kr. og orlofsuppbót verði 15.000 kr. Tillaga er gerð um að oriofsdögum verði fjölgað í allt að 33 og taki mið af starfsaldri og lífaldri. Þess er jafn- framt krafist að réttur foreldra vegna veikinda bama verði 14 dagar á óskertum launum. Hann er 7 dagar í dag og nær aðeins til dagvinnulauna. Þá er þess krafist að í kafla um fyrir- tækjaþátt samninga verði bætt við ákvæði sem tryggi beina aðkomu verkalýðsfélaga að gerð samninga. Verði ekki fallist á þetta er lagt til að ákvæði samninga um íyrirtækjaþátt falli út. Lífeyrisiðgjald verði hækkað Þá gerir Verkamannasambandið kröfu um að á samningstímanum hækki mótframlag vinnuveitenda í líf- eyrissjóð launafólks í 11,5%, en það er 6% í dag. Bjöm Grétar sagði að fram- lag vinnuveitenda í lífeyrissjóði opin- berra starfsmanna væri 11,5% í dag og engin rök væm fyrir því að hafa mun á lífeyrisréttindum launafólks eftir því hvort það starfaði hjá því op- inbera eða á almennum markaði. Þetta væri því eðlileg og sanngjöm krafa. í kröfugerðinni er lagt til að sett verði tryggingarákvæði í kjarasamn- inginn sem leiði til þess að samning- urinn opnist verði launaþróun hjá öðrum launahópum ólík þeim sem samningurinn kveður á um. Bjöm Grétar sagðist gera sér grein fyrir því að um þetta atriði yrði að nást víðtæk samstaða á vinnumarkaðinum, en VMSÍ legði mikla áherslu á að sam- bandið yrði að fá einhverjar trygging- ar fyrir því að verkafólk yrði ekki skil- ið eftir á meðan aðrir launahópar fæm fram úr því. Hann minnti á að verkafólk hefði ekki fengið neinar launahækkanir í rúmt ár. Á þessu eina ári hefði kaupmáttur verkafólks verið að dragast saman. Bjöm Grétar var spurður um hvað þessi kröfugerð fæli í sér miklar launahækkanir í prósentum talið. Hann svaraði því til að VMSÍ hefði ekki reiknað það út, en öðrum væri velkomið að gera það. Kröfugerðin væri lögð fram með hliðsjón af kaup- töxtum verkafólks, en því væri ekíd að neita að menn hefðu horft til þess sem aðrir hefðu verið að fá. Mánaðar- laun ráðherra og alþingismanna hefðu t.d. hækkað um 133 þúsund krónur á síðasta ári. „Ef einhveijir telja að með fram- lagningu þessara krafna sé verið að mgga bátnum, þá segjum við einfald- Morgunblaðið/Árni Sæberg Við upphaf fundar í gær heilsuðust Björn Grétar Sveinsson, formaður VMSÍ, og Finnur Geirsson, formaður SA. Kröfugerð Flóabandalagsins og VSMÍ Flóabandalagið ,, .VMSÍ (utan hofuðborgarsvæðisins) Árleg kauphækkun 5% kr. 15.000 Samningstími 12-36 mánuðir 12-36 mánuðir Lágmarkslaun í lok samningstímabils kr.91.000 kr. 110.000 Lífeyrisiðgjald atvinnurekenda 8% 11,5% Greiðsla atvinnurekenda í starfsmenntasjóð 0,25% 0,30% Orlofsuppbót Samsvari viku- launum i dagvinnu kr. 15.000 Desemberuppbót Samsvari 2 vikna launum í dagvinnu kr. 50.000. Veikindaréttur Aukist um 2 daga við hvert barn Aukist um 7 daga Tryggingarákvæði Samningar opnist semji aðrir um meira Samningar opnist semji aðrir um meira Skattamál Skattleysismörk hækki Fjölskyldumál Fæðingarorlofsréttur verði bættur lega að þeir sem hafa fyllt þennan bát skuli byija að ausa. Við ætlum ekki að ausa fyrir þá lengur. Aðrir verða að taka á sig ábyrgð á því sem átt hefur sér stað £ þjóðfélaginu. Eg vil minna á að fyrir 14 mánuð- um gengum við á fund rikisstjómar- innar, atvinnurekendasamtakanna beggja sem þá vom til og launanefnd- ar sveitarfélaganna og bentum þeim á þau rauðu ljós sem væm að kvikna í efnahagslífinu. Þeir viðurkenndu að það blikkuðu viðvömnarljós, en þeir gerðu ekki neitt til að reyna að hafa áhrif á efnahagsþróunina," sagði Bjöm Grétar. Sigurður Ingvarsson, forseti Al- þýðusambands Austurlands, sagði að hugmyndafræðin á bak við síðustu samninga hefði verið að skapa að- stæður fyrir atvinnulífið í þijú ár svo að bæta mætti kaupmátt verkafólks vemlega á því samningstímabili sem við tæki. Á þetta vildu menn láta reyna nú. Hugmyndin hefði ekki ver- ið sú að láta verkafólk sitja eftir á meðan öll önnur laun hækkuðu. Aðgerðir heQast 10. mars Samkvæmt kröfugerðinni verða byrjunarlaun verkafólks 80 þúsund krónur í upphafi samnings, en þau em um 67 þúsund í dag. Ef samið verður til þriggja ára gerir kröfu- gerðin ráð fyrir að byijunarlaun verði orðin 110 þúsund kr. á mánuði í lok samningstímabilsins. Samkvæmt upplýsingum frá Kjararannsóknar- nefnd vora meðallaun verkafólks fyr- ir dagvinnu á öðmm ársfjórðungi 1999 105 þúsund kr. á mánuði. Engar beinar launahækkanir hafi komið til á taxtalaun síðan þá. Á formannafundi Verkamanna- sambandsins í fyrradag var gerð sér- stök samþykkt þar sem samninga- nefiid VMSÍ var falið að stofna aðgerðarhóp til að stjóma aðgerðum ef til átaka komi vegna kjarasamn- inga. I samþykktinni segir að gengið sé út frá því að aðgerðir heíjist eigi síðar en 10. mars hafi samningar ekki tekist. Bjöm Grétar var spurður hvort þetta þýddi að tillaga um verk- fallsboðun yrði borin undir félags- menn strax 10. mars. Hann svaraði því til að undirbúningur að aðgerðum hæfist eigi síðar en 10. mars. Flóabandalagið krefst 5% launahækkunar Félög verkafólks í Reykjavík, Hafnarfirði og Keflavík standa ekki að kröfugerð Verkamannasam- bandsins, en þau ákváðu í haust að standa saman að eigin kröfugerð. Fé- lögin, sem kölluð hafa verið Flóa- bandalagið, kynntu vinnuveitendum kröfugerð sína eftir hádegið í gær. í kröfugerð Flóabandalagsins seg- ir að bandalagið vilji leggja sérstaka áherslu á að hækka lægstu laun. Al- menna hækkunin verði ákveðin þann- ig að hún samrýmist markmiðum um minnkandi launamun og stöðugleika. Krafa er gerð um að almenn laun hækki um 5% á ári, en jafnframt er gerð krafa um að lágmarkslaun hækki á samningstímabilinu úr 60 þúsund kr. á mánuði í 91 þúsund. For- ystumenn Flóabandalagsins segja að kröfugerðin kosti atvinnulífið 7,5% hækkun á ári. Sérstakur kafli er um verðlag í kröfugerð Flóabandalagsins. Þar segir að Flóabandalagið sé tilbúið að leggja sitt af mörkum ef tryggt þykir að framlagið leiði til lækkunar verð- bólgu. Reynsla þriggja síðustu ára sanni hins vegar að framlag almenns verkafólks, eitt og sér, haldi ekki verðbólgu niðri. Framlag án þátttöku annarra hópa launafólks hafi fyrst og fremst þau áhrif að laun almenns verkafólks lækki hlutfallslega miðað við aðra hópa. „Hóflegar launahækk- anir f umhverfi þar sem aðrir hópar em fyrirfram ákveðnir í að sækja meira en aðrir, stangast á við fyrsta markmið Flóabandalagsins um að draga úr auknum launamun síðustu ára. Almennt verkafólk er ekki tilbúið til að viðhalda þessari þróun og krefst þess vegna tryggingarákvæða," segir í kröfugerðinni. f kröfugerð Flóabandalagsins er einnig gerð krafa um greiðslur fyrir- tækja f starfsmenntasjóð. Krafa bandalagsins er þó örlítið lægri en krafa félaga þeirra í Verkamanna- sambandinu. Sama á við kröfugerð Flóabandalagsins í lífeyrismálum, en þar er farið fram á að lífeyrisiðgjald vinnuveitenda hækki um 2% í sér- eignasjóð starfsmanna gegn jafn háu iðgjaldi launamanna. Þetta er sams- konar krafa og VR náði fram í samn- ingum við Samtök atvinnulífsins um helgina. VMSÍ krefst þess hins vegar að atvinnurekendur hækki sitt fram- lagúr6%í 11,5%. Krafa Flóabandalagsins um des- ember- og orlofsuppbót er orðuð með öðmm hætti en hjá Verkamannasam- bandinu, en bandalagið miðar við lægstu dagvinnulaun frekar en fasta krónutölu. Ennfremur gerir Flóa- bandalagið kröfu um að réttur til að vera heima hjá veiku baiTii verði auk- inn. Flóabandalagið gerir sérstaka kröfu um að réttur til töku fæðingar- og foreldraorlofs verði bættur. Þá er þess krafist að skattleysismörk verði hækkuð í samræmi við hækkun launa og að dregið verði úr jaðaráhrifum í skattkerfinu vegna tekjutengingar barnabóta. Vinnuveitendur hafna, algerlega kröfum VMSI Ain Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að kröfur VMSÍ væm algerlega óraunhæfar og engin leið væri að tillögur á þessum gmnni leiddu til niðurstöðu. Kröfur Flóabandalagsins væm hins vegar allt annars eðlis. „Ég ber þær kröfur sem að okkur er beint við þau markmið sem við höf- um sett okkur, en markmiðin byggja á mati okkar á því sem fyrirtækin geta borið. Kröfur Flóabandalagsins rúmast ekki innan þess ramma sem við höfum sett okkur, en engu að síð- ur munum við halda áfram viðræðum um kröfumar. Það er boðaður fundur á föstudag sem ég geri ráð fyrir að verði upphafið að lengra ferli,“ sagði Ari. Ari sagði að lágmarkslaun hefðu verið hækkuð mjög mikið í síðustu samningum eða úr 50 þúsund kr. á mánuði í 70 þúsund. Vinnuveitendur vildu reyna að halda áfram að hækka lágmarkslaun, en það væri þeirra mat að svigrúmið til þess væri minna nú en fyrir þremur ámm. Hann sagði einnig mikilvægt að í umræðu um lágmarkslaun væri miðað við launa- fólk sem skilaði fullri 40 tíma vinnu- viku. Ari sagði að vinnuveitendur hefðu áhuga á að efla starfsmenntun hér á landi, en þeir teldu að sú aðferð sem stéttarfélögin væm að leggja til í kröfugerðum sínum væri ekki heppi- leg. Fyrirtækin vildu hafa meira um það að segja hvemig þessum fjár- munum væri varið og það væri þeirra mat að fast, ótímabundið framlag í starfsmenntasjóð væri ekki heppilegt fyrirkomulag. Ari sagði að almennt mætti segja um kröfugerðir stéttarfélaganna að það flækti nokkuð stöðuna hvað kröf- umar væm innbyrðis óhkar, en þetta væri sú staða sem blasti við vinnuveit- endum og þeir yrðu bara að vinna úr henni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.