Morgunblaðið - 26.01.2000, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þingmenn Samfylkingarinnar efndu til funda í Reykjaneskjördæmi
Góðærið heimsækir
heimilin í misjöfnum mæli
Morgunblaðið/Kristinn
Þórunn Sveinbjarnardóttir og Guðmundur Árni Stefánsson alþingis-
menn ræðast við á fundi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði á föstudag.
Fólk
Jóhann Páll
ráðinn til
Geneologia
Islandorum
• Jóhann Páll Valdimarsson, fyrr-
verandi framkvæmdastjóri For-
lagsins og forstöðumaður sölu- og
markaðssviðs
Máls og menn-
ingar, hefur verið
ráðinn fram-
kvæmdastjóri
Genealogia Is-
landorum hf. -
Gen.is, sem
stofnað var á síð-
asta ári og hygg-
ur á um-
fangsmikla bókaútgáfu auk þess að
reka ættfræðigagnagrunn til vís-
indarannsókna og sögulegan upp-
lýsingagrunn á Netinu.
Jafnframt því að veita Gen.is for-
stöðu mun Jóhann Páll gegna starfi
útgáfustjóra dótturfyrirtækis Gen.is
sem annast á útgáfu fagur-
bókmennta og og annarra bóka fyrir
almennan markað. Hefur þegar ver-
ið gengið frá samningum um útgáfu
verka eftir ýmsa þekkta rithöfunda
þjóðarinnar. Þá hefur Egill Jó-
hannsson verið ráðinn sölu- og
markaðsstjóri Gen.is.
Gen.is var stofnað í maí 1999 en sl.
haust var formi þess breytt úr ehf. í
hf. þegar nýir fjárfestar komu að
rekstrinum. Gengið var þá frá kaup-
um og yfirtöku á tveimur eldri
einkahlutafélögum, Bókaútgáfunni
Byggðum og búum ehf. og Ættfræð-
istofu Þorsteins Jónssonar. Hluta-
fjárútboði í hinu nýja félagi lauk í
desember sl.
ÞINGMENN Samfylkingarinnar á
Reykjanesi héldu níu fundi í kjör-
dæminu í síðustu viku undir yfir-
skriftinni „Til móts við nýja tíma“ og
var sá síðasti haldinn í Hafnarfirði á
fostudagskvöld. Þar var m.a. rætt
um komandi stofnfund Samfylking-
arinnar í mars eða apríl nk. og þau
málefni sem Samfylkingin þyrfti að
einbeita sér að. Ríkisstjórnin var
einnig harðlega gagnrýnd af fundar-
mönnum og hömruðu þeir á því að
hið svokallaða góðæri hefði ekki náð
til allra þegna þjóðfélagsins.
Ása Richardsdóttir, formaður
kjördæmafélags Samfylkingarinnar
í Reykjaneskjördæmi, hóf fundinn á
föstudag og lagði áherslu á mikil-
vægi þess að byggja upp öflugt starf
hreyfingarinnar í kjördæminu. Benti
hún á að kjördæmið væri samansett
úr misstórum en sterkum bæjarfé-
lögum sem væru orðin verðugur
keppinautur við höfuðborgina um
fólk, þjónustu, menningarstofnanir
og menningarlega afþreyingu.
Rannveig Guðmundsdóttir alþing-
ismaður gerði góðærið m.a. að um-
talsefni og sagði að valdhafar lands-
ins hefðu ekki tryggt að góðærið
færi til fjöldans. „Meðan valdhafarn-
ir tala um hvað allt sé gott þá er hér
til staðar bakhlið á góðærinu. Áður
óþekkt skuggahlið stækkar, svo sem
áreiti, ofbeldi, öryggisleysi, van-
metakennd, vímuefnaneysla, sjálf-
svíg og sorg. Velsæld og góðæri
heimsækja heimilin í þessu landi í
misjöfnum mæli,“ sagði hún.
Þórunn Sveinbjamardóttir al-
þingismaður minntist m.a. á hve
fundir þeir sem hún hefði verið á í
síðustu viku hefðu verið góðir en um
leið ólíldr. „Það hefur raunar verið
athyglisvert hversu ólíkir þessir
fundir hafa verið. Á sumum fundum
kemur fólk upp og lýsir yfir sam-
stöðu sinni með Austfirðingum
vegna álversins og virkjar.afram-
kvæmda en á öðrum fundum kemur
fólk upp í pontu og lýsir þungum
áhyggjum sínum af umhverfismál-
unum og af stefnu okkar hreyfingar í
þeim.“ Þórunn benti á í sambandi við
þetta að umhverfismálin væru
grundvallarmál framtíðarinnar. „Ég
held að það sé einungis gott til þess
að vita að breiddin í Samfýlkingunni
skuli vera með þeim hætti sem raun
ber vitni vegna þess að við ætlum að
starfa saman í einni stórri hreyfingu
og líma hana vel saman. En það þýð-
ir líka að við þurfum að vinna heima-
vinnuna okkar. Við þurfum að vinna
heimavinnuna okkur í umhverfis-
málunum og við þurfum reyndar líka
að vinna heimavinnuna okkar í mjög
mörgum öðrum málaflokkum. Áð-
eins þannig verðum við betri. Aðeins
þannig getum við boðið þessari þjóð
upp á stefnu sem hún á skilið að fá.
Og aðeins þannig getum við tekist á
við þær miklu breytingar sem þetta
samfélag er að ganga í gegnum."
Staðreyndir blasa
við í hverju horni
I máli Guðmundar Árna Stefáns-
sonar alþingismanns kom fram að
andrúmsloftið meðal fólks í kjör-
dæminu hefði breyst talsvert á um-
liðnum sex mánuðum eða frá síðustu
alþingiskosningum. Hann sagði að á
vinnustaðafundum í kosningabarátt-
unni hefðu orð Samfylkingarmanna
um að ekki væri allt sem sýndist í
efnahagslífinu fallið í grýttan jarð-
veg. Nú hins vegar, sagði hann, blasa
staðreyndirnar við í hverju horni.
Benti hann til að mynda á að verð-
bólgan væri upp á sex prósent og
sagði hann það reyna strax á pyngju
fólks. Þá sagði hann að ríkisstjómin
hefði aukið á „misrétti og launamun í
þessu samfélagi".
Fleiri en þingmenn tóku til máls á
þessum fundi og var í umræðunum
farið víða. Meðal annars var rætt um
það hvernig standa skyldi að kosn-
ingu formanns og varaformanns
Samfylkingarinnar á stofnfundinum
á næstu mánuðum og komu m.a.
fram hugmyndir um landskjör. Þótt
sú hugmynd yrði ekki útrædd lýstu
einstaka fundarmenn stuðningi sín-
um við hana.
Reynt að selja framhaldsskolanemum
fíkniefni með skipulögðum hætti
Hert eftirlit með
dansleikjum
Trúnaðarmaður hjá SVR segist aldrei hafa fundið fyrir
jafnmikilli gremju og reiði vegna launamála og nú
Krefjast þess að laun
vagnstj óra ver ði leiðr étt
Fulltrúar borgarinnar og vagnstjóra sátu á samningafundi í gær og
fyrradag. Vinstra megin við borðið silja fulltrúar vagnstjóra, Sigurbjörn
Halldórsson og Jónas Engilbertsson, hinum megin fulltrúar borgarinnar,
Birgir Björn Sigurjónsson (lengst til hægri), Grétar Jónasson og Hörður
Gíslason. Fjarverandi var Marías Sveinsson, sem er í nefnd vagnstjóra.
STEFÁN Benediktsson, aðstoðar-
skólameistari í Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti, kveðst líta það mjög alvar-
legum augum sem fram kom í Morg-
unblaðinu, að í ljós hefði komið við
rannsókn nýja e-töflumálsins svokall-
aða að reynt hefði verið að selja eitur-
lyfið á skóladansleikjum framhalds-
skólanna með skipulögðum hætti.
Hann sagði að unnt væri að koma í
veg fyrir að þetta ætti sér stað inni á
dansleikjunum og yrði allt eftirlit
hert verulega með sölu á miðum á
dansleikina þannig að skólayfirvöld
vissu hveijir væru á dansleikjunum.
Erfiðara væri að ráða við slík tilvik
Ljósastaur
ekinn niður
KARLMAÐUR hátt á þrítugs-
aldri var fluttur á slysadeild til
sýnatöku í fyrrinótt vegna
gruns lögreglunnar í Kópavogi
um ölvun við akstur.
Ökumaðurinn ók niður ljósa-
staur á Digranesvegi, sem
hafnaði alllangt frá stæði sínu
eftir höggið. Viðgerðarmaður
frá Orkuveitu Reykjavíkur var
strax kallaður á vettvang til að
sinna fyrstu viðgerð á staum-
um og viðgerðarflokkur endur-
reisti hann síðan í gær. Bifreið
mannsins var dregin í burtu
með kranabifreið, en maðurinn
sjálfur mun ekki hafa slasast.
Samkvæmt upplýsingum frá
Orkuveitu Reykjavíkur er
mjög algengt að Ijósastaurar
skemmist vegna ýmiss konar
óhappa í umferðinni.
kæmu þau upp íyrir utan þar sem
dansleikirnir væru haldnir og laga-
lega réðu skipuleggjendur ekki við
það.
Starfsfólk verði á varðbergi
Lái'us Bjarnason, rektor Mennta-
skólans við Hamrahlíð, segir að í Ijósi
umræðunnai' komi það sér ekki á
óvart að reynt hafi verið að selja
e-töflur á skóladansleikjum. Hann
segir að starfsfólk á vegum skólans á
skólaböllum sé sérstaklega beðið um
að vera á varðbergi gagnvart þessu
en lögsaga skólans sé fyrst og fremst
inni á stöðunum og við þá. Skólinn
geti ekki tekið að sér löggæslu á
stóru svæði fyrir utan staðina.
Lárus segir að starfsfólkið eigi að
þekkja til þessara mála og haldnar
hafi verið kynningar til þess að hjálpa
því að bera kennsl á fíkniefni. Hann
segir að ekki hafi komið upp staðfest
tilvik af þessu tagi í sambandi við
dansleiki á vegum Menntaskólans í
Hamrahlíð en miðað við umræðuna
geti enginn talið sig óhultan hvað
þettavarðar.
Sara Bjarney Jónsdóttir, formaður
nemendafélags Fjölbrautaskólans í
Breiðholti, segir að það komi sér mik-
ið á óvart að e-töflum hafi verið dreift
með skipulegum hætti fyrir utan
skólaböll framhaldsskólanna. Hún
kveðst 'aldrei hafa heyrt um að þetta
hafi gerst. Þó hafi hún orðið vör við
ummerki um fíkniefnaneyslu eftir
skólaböll. Hún segir að nemendur í
skólanum og kennarar annist gæslu á
skólaböllum og hugsanlega þyrfti
fleiri kennara í gæsluliðið og hugsan-
lega einhveija utanaðkomandi aðila
vegna þess að nemendur hefðu í raun
meiri hug á því að skemmta sér held-
ur en að halda uppi strangri gæslu.
„ÉG hef starfað hjá þessu fyrirtæki í
yfir 20 ár og þar af fjögur ár sem
trúnaðarmaður og ég hef aldrei áður
fundið fyrir jafnmikilli gremju og
reiði vegna kjaramála og nú. Menn
eru hreinlega að springa,“ segir Sig-
urbjöm Halldórsson, einn trúnaðar-
manna vagnstjóra hjá SVR, en við-
ræður standa nú yfir milli
borgarinnar og vagnstjóra um launa-
kjör.
„Það sem við emm að fást við núna
er langvarandi uppsafnaður vandi.
Ég varaði við því í fyrravor að það
yrði erfitt að fá vagnstjóra til starfa
ef laun þeirra yrðu ekki bætt. Stjórn-
endur fyrirtækisins mótmæltu því í
fjölmiðlum og sögðu að það væri nóg
til af fólki. Staðreyndin er hins vegar
sú að í allt fyrrasumar var fyrirtækið
undirmannað og menn keyrðu tvöf-
alt dag eftir dag. Slíkt ástand gengur
ekki til lengdar. Ástandið hefur lítið
skánað í vetur. Það er alltaf verið að
ráða inn nýja menn og mikil hreyfing
er á starfsfólki því margir hafa hætt
störfum. Staðan er þannig núna að
það fást ekki menn til að sinna þessu
starfi. Ástæðan er sú að launin eru
svo lág,“ sagði Sigurbjöm.
Sigurbjöm sagði að óánægja
vagnstjóra með kjörin hefði leitt til
þess að viðræður við Reykjavíkur-
borg um bætt kjör hefðu hafist í
ágúst á síðasta ári, en þá hefði
óánægjan verið slík að menn ætluðu
að fara í beinar aðgerðir til að þvinga
fram leiðréttingar. Trúnaðarmenn
hefðu hins vegar beitt sér fyrir því að
menn biðu með aðgerðir í von um
leiðréttingar af hálfu borgarinnar.
Ekkert hefði hins vegar komið út úr
þessum viðræðum og trúnaðarmenn
sættu því núna gagnrýni frá félögum
sínum. Um áramót hefði borgin tekið
í gagnið nýtt launakerfi og sumar
stéttir borgarstarfsmanna hefðu þar
fengið sanngjarna leiðréttingu. Um
fimm milljónum hefði hins vegar ver-
ið hent í um 200 vagnstjóra og það
sæi hver maður að slík upphæð dygði
skammt á ársgrundvelli.
Aðgerðahópur vagnstjóra
krefst tafarlausra aðgerða
Sigurbjöm var spurður hvort ekki
væri eðlilegt að taka á óánægju
vagnstjóra í næstu samningum, sem
rynnu út í lok þessa árs en hann
svaraði því til að í því fælist engin
lausn. Vagnstjórar hefðu verið skild-
ir eftir á þessu samningstímabili og
þeir þyrftu að fá leiðréttingu strax
áður en þessi kjarasamningur rynni
út. Ef málin væm látin bíða fram að
næstu kjarasamningum myndi ekk-
ert annað gerast en að launabil milli
vagnstjóra og annarra myndi enn
aukast.
Trúnaðarmenn vagnstjóra áttu
annan fund með samningamönnum
borgarinnar í gær. Sigurbjörn sagði
eftir fundinn að hann hefði ekki skil-
að þeim árangri sem vagnstjórar
hefðu vonast eftir. Borgin hefði boðið
upp á breytt vaktakerfi en vagn-
stjórar vildu fá hærri laun áður en
breytingar yrðu gerðar á vaktakerfi.
Aðgerðahópur vagnstjóra hefði nú til
athugunar að fara nú þegar út í bein-
ar aðgerðir. Sigurbjörn sagðist ekki
geta útilokað að til þeirra yrði gripið
strax í dag. Segja mætti að aðgerða-
hópurinn hefði tekið málið úr hönd-
um trúnaðarmanna, en það endur-
speglaði vel gremju vagnstjóra yfir
þróun mála.