Morgunblaðið - 26.01.2000, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000 1 3
FRÉTTIR
Námsgagnastofnun og Almannavarnir ríkisins
gefa út Jarðskjálftakver fyrir grunnskóla
Nemendur fræddir
um jarðskjálfta
Morgunblaðið/Kristinn
Sólveig Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri Almannavarna ríkisins, og
Sólveig Pétursdóttir, dómsmálaráðherra, skoða Jarðskjálftakverið.
SÓLVEIG Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra afhenti í gær Halldóri Sig-
urðssyni, skólastjóra grunnskólans í
Þorlákshöfn, fyrsta eintakið af Jarð-
skjálftakveri, ætluðu stjórnendum og
starfsfólki leikskóla og grunnskóla.
Jarðskjálftakverið er gefið út af
Námsgagnastofnun í samvinnu við
Almannavamir ríkisins og var unnið í
samráði við væntanlega notendur
þess, kennara og skólastjómendur,
þeirra. Kverið skiptist í fjóra hluta og
er fjallað um forvamir, viðbrögð við
jarðskjálftum, endurreisn skólastarfs
og sálræn áhrif áfalla á böm.
I ræðu sinni, við afhendingu kvers-
ins, þakkaði dómsmálaráðhema
aðstandendum þess og sagðist fullviss
um að það kæmi að gagni og myndi
efla vitund og þekkingu um þessi má-
lefni. Hún sagðist einnig vona að það
ætti eftir að skila sér beint til nem-
enda og auka öryggi í skólum þar sem
jarðskjálftahætta er fyrir hendi.
Mikilvægt að foreldrar
fylgist með fræðslunni
Sólveig Þorvaldsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Almannavama ríkis-
ins, segir kver þetta svar við greini-
legri eftirspum, en skólastjómendur
og kennarar hafi um árabil leitað til
þeirra eftir upplýsingum af þessu
tagi. Kverið geri starfsfólki skólanna
kleift að fræða nemendur um jarð-
skjálfta og efla forvamir svo að skaði
verði sem minnstur. Einnig er lögð
áhersla á mikilvægi þess að endur-
reisa eðlilegt skólastaif eins fljótt og
auðið er, eftir jarðskjálfta.
Sólveig segir mjög mikilvægt að
foreldrar fái að vita hvað bömunum
er kennt um þessi mál í skólanum svo
að samsvörun sé milli þess sem böm-
in heyra í skólanum og á heimilum
sínum. Gíert sé ráð fyrir því að bömin
verði send heim með bréf eða bækling
með upplýsingum og að foreldrar fái
að fylgjast nokkuð náið með fræðsl-
unni.
Júlíus Einarsson, sviðstjóri for-
vama hjá Almannvörnum ríkisins,
segir að reynt sé að gera það efni sem
ætlað sé bömum um þessi mál, að-
gengilegt þeim og áhugavert. Kenna
eigi bömunum hugtökin „krjúpa-
skýla-halda“ sem viðbrögð við jarð-
skjálfta og stefnt sé að því að semja
sönglag, leikrit og jafnvel teiknimynd
þar sem það sem þau læri verði undir-
strikað. Hann segir að efni kversins
verði fljótlega sett á heimasíðu Al-
mannavama ríkisins, www.avrik.is og
þannig verði það einnig aðgengilegt
foreldram.
Kverið kemur út í 5.000 eintökum
til að byrja með og verður því fyrst í
stað dreift til skóla á Suður-, Suðvest-
ur- og Norðausturlandi.
Arthur Irving Jr., einn aðaleigenda Irving Oil
Engin bensín- eða
dísilsala fyrirhuguð
ARTHUR Irving Jr., einn af aðal-
eigendum Irving Oil í Kanada, segir
að fyrirtækið hafi ekki í hyggju að
hefja sölu á bensíni eða dísilolíu hér á
landi.
Irving kvaðst í samtali við Morg-
unblaðið í gær ekki sjá nein við-
skiptatækifæri á þessu sviði. Hann
segir að fyrirtækið hafi skoðað
markaðinn hér á landi í þaula fyrir
u.þ.b. fimm áram en horfið frá því að
hefja viðskipti hér. Ekkert hafi i
raun breyst á þessum tíma.
Robert Wilkin, yfirmaður útflutn-
ingsdeildar smurolíu hjá Irving Oil
olíufélaginu í Kanada, segir að for-
svarsmenn Austness hafi komið að
máli við fyrirtækið um innflutning á
smurolíu til íslands og í gangi séu
viðræður um að Austnes taki að sér
umboð fyrir framleiðsluvörar Irving
Oil á íslandi. Er þar um að ræða
smurolíur fyrir bíla og aðrar skyldar
vörar. I desember sl. hefði náðst
samkomulag um að Austnes keypti
tiltekið magn af snmrolíu. „Sam-
skiptin era rétt að hefjast og við von-
um að viðskiptin vaxi og að ísland
verði góður markaður fyrir Irving
Oil og fyrirtæki Sigurðar Eiríksson-
ar njóti góðs af,“ segir Wilkin.
Kristinn Björnsson, forstjóri
Skeljungs, segir að það séu engin
nýmæli, að bjóða til sölu hér á landi
olíu frá erlendu olíufélagi. Hér sé,
svo dæmi séu tekin, verið að dreifa
olíu frá Mobil, Castrol, Penzoil án
þess að þessi fyrirtæki selji hér
bensín eða dísilolíu.
Tahð nauðsynlegt
að breyta lögum
um þjóðlendur
I KJOLFAR reynslu sem fengist
hefur með starfi Óbyggðanefndar
með nýjum lögum um þjóðlendur
hefur komið í Ijós að nauðsynlegt er
að gera nokkrar breytingar á lögum
um nefndina. Kemur þetta fram í
frétt frá forsætisráðuneytinu í gær
og segir að ríkisstjórnin hafi sam-
þykkt tillögu forsætisráðherra að
framvarp þessa efnis verði lagt fyrir
Alþingi að fengnu samþykki þing-
flokka stjórnarflokkanna.
Lögin um þjóðlendur og ákvörðun
marka eignarlanda, þjóðlendna og
afrétta vora samþykkt 1998 en með
þeim var eignarhald á hvers konar
landsréttindum og hlunnindum á
svæðum, sem ekki era háð einka-
eignarrétti, falið ríkinu. Óbyggða-
nefnd var falið að eiga framkvæði að
því að fara með skipulögðum hætti
yfir hvaða svæði það era og skera úr
um mörk þeirra og önnur réttindi
innan þjóðlendna. „Obyggðanefnd er
því ætlað að ráða til lykta álitaefn-
um, sem hafa bæði mikla almenna
þýðingu og varða mikilvæga hags-
muni einstaklinga og lögaðila. Gert
er ráð fyrir að nefndin starfi innan
ákveðins tímaramma og er stefnt að
því að hún ljúki störfum árið 2007.“
Óbyggðanefnd tók fyrsta land-
svæðið til meðferðar með tilkynn-
ingu 1. mars 1999 og hefur reynsla
sem fengist hefur á starfi nefndar-
innar leitt til þess að þörf þykir á því
að gera nokkrar breytingar á lögun-
um sem um nefndina gilda. Er það
einkum í því skyni að auðvelda land-
eigendum og öðram mögulegum
rétthöfum á svæðum sem nefndin
hefur til meðferðar að reka mál sín
fyrir nefndinni. Er þar annars vegar
um að ræða að leggja kostnað ann-
arra en ríkisins af hagsmunagæslu
fyrir óbyggðanefnd á ríkissjóð og
„hins vegar að breyta málsmeðferð
fyrir óbyggðanefnd á þann hátt, að
fjármálaráðuneyti er gert að lýsa
kröfum ríkisins um þjóðlendur á
þeim svæðum, sem nefndin ákveður
að taka til meðferðar, en landeigend-
ur og aðrir mögulegir rétthafar lýsi
ekki kröfum sínum fyrr en kröfugerð
ríkisins liggur fyrir,“ segir einnig í
frétt forsætisráðuneytisins.
Dómsmálaráðherra vill fá aðgang
að Stasi-skjölum í Þýskalandi
Eðlilegt að leita
eftir þessum
upplýsingum
SÓLYEIG Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra hefur óskað eftir því við
Halldór Asgrímsson utanríkisráð-
herra að hann kanni hvort íslending-
ar fái aðgang að skjölum leyniþjón-
ustu Austur-Þýskalands, Stasi, sem
gætu snert öryggishagsmuni lands-
ins.
„Ég fékk ábendingu um það í des-
ember síðastliðnum að Danir hefðu
farið þess á leit við þýsk stjómvöld að
fá aðgang að Stasi-skjölum, að því
leyti sem þau snerta öryggishags-
muni Dana,“ segir Sólveig Péturs-
dóttir í samtali við Morgunblaðið.
„Mér fannst því rétt að kannað yrði
hvort mögulegt væri fyrir íslensk
stjómvöld að fá aðgang að Stasi-
skjölum og skrifaði utanríkisráðherra
bréf þar sem óskað er eftir því að
hann feli sendiherra Islendinga í Ber-
lín að afla upplýsinga um mögulegan
aðgang að Stasi-skjölum, sem gætu
snert öryggishagsmuni landsins."
Sólveig segir að skjöl Stasi muni
vera geymd á fleirl en einum stað og
vafalaust gildi einhveijar takmarkan-
ir um aðgang að þeim. Því sé óskað
eftir upplýsingum um hvort og þá
hvemig aðgangur fáist að þeim og
einnig kannað hvemig önnur ríki og
þá sérstaklega hin Norðurlöndin, hafi
hagað sinni upplýsingaöflun.
Hún segir að á þessu stigi sé ein-
göngu verið að óska eftir upplýsing-
um og of snemmt sé að segja til um
framhald málsins að öðra leyti. Stað-
an verði metin þegar í Ijós komi hvaða
svör fáist, en ekki sé enn Ijóst hvenær
það verði.
Hún segist ekki hafa fengið neina
rökstudda vísbendingu um að Stasi
hafi verið með starfsemi hér.
„En ég tel eðlilegt að leita eftir
þessum upplýsingum og tel það vera
skyldu stjórnvalda að fylgjast með
þróun í þessum málum og afla upp-
lýsinga," segir Sólveig Pétursdóttir.
- ENN MEIRIVERÐLÆKKUN
Herraúlpa fyrir veturinn.
Litur: Svart.
Verð áður 5.940-
Franskar peysur.
Verð áður frá 4.680-
Tilboð á gallabuxum með
fellingum (vítt snið).
Aðeins 500- krónur.
Oryggisskór (5 gerðir).
Verð frá aðeins 2.595-
UTSOLUNNI LYKUR A LAUGARDAGINN
HÖFUM LÆKKAÐ VERÐIÐ
ENN FREKAR Á ÝMSUM VÖRUM.
0PIÐ VIRKA DAGA FRÁ 8-18 0G
LAUGARDAGINN 29/1 FRÁ 10-16
SENDUM EINNIG í PÓSTKRÖFU
Grandagarði 2, Rvík, sími 580 8500 og 800 6288