Morgunblaðið - 26.01.2000, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Samningum um kaup á skrúfubúnaði í Hríseyjarferju rift
Ferjan afhent í vor
SAMNINGUM um kaup á skrúfu-
búnaði í nýja Hríseyjarferju hefur
verið rift, en hinum danska fram-
leiðanda skrúfubúnaðarins hafði
verið gefinn lokafrestur til síðasta
föstudags, 21. janúar, til að skila
búnaðinum af sér í umsömdu
ástandi. Það tókst ekki og því greip
Stáltak, sem er verktaki við smíði
Hríseyjarferjunnar Sævars að
höfðu samráði við verkkaupann,
Vegagerðina til þess ráðs að rifta
samningum.
Upphaflega átti að afhenda hina
nýju Hríseyjarferju um miðjan júlí
á síðasta ári, en síðan hefur ýmislegt
orðið til þessa að tefja afhendingu,
einkum þó vandamál sem upp hafa
komið í skrúfubúnaði skipsins. Nú
liggur fyrir að útvega nýjan skrúfu-
búnað og þá á eftir að setja hann í
skipið en það mun taka nokkra mán-
uði. Stáltak og Vegagerðin hafa því
tekið upp viðræður um breytingu á
verksamningi í samræmi við þessar
breyttu forsendur og mun þeim
væntanlega ljúka innan skamms.
Fyrirsjáanlegt er þvi að nýja Hrís-
eyjarferjan Sævar mun ekíd hefja
áætlunarsiglingar milli lands og eyj-
ar fyrr en á vormánuðum.
Skiptir mestu að
búnaðurinn sé í lagi
„Ég held að Hríseyingar séu
hættir að vera pirraðir yfir töfum á
afhendingu nýju ferjunnar, við tök-
um þessu bara með stóískri ró,“
sagði Pétur Bolli Jóhannesson,
sveitarstjóri í Hrísey. „Það er meira
um vert að búnaðurinn í ferjunni sé í
lagi og hún sé örugg. Við erum því
sáttir við þessa niðurstöðu." Upp-
haflega átti að taka ferjuna í notkun
skömmu áður en Hríseyingar héldu
svonefnda Fjölskylduhátíð fullveld-
isins í Hrísey, um miðjan júlí á síð-
asta ári. „Fyrst ekki náðist að taka
ferjuna í notkun um háanna ferða-
mannatímann í fyrrasumar, skipti
ekki sköpum hvenær nákvæmlega
hún kæmi, en það verður gaman að
hafa hana hér í siglingum næsta
sumar,“ sagði Pétur Bolli.
Nær 50 ára gamall heijeppi gerður upp í Ólafsfírði
Morgunblaðið/Kristján
Gunnar Þór Magnússon spjallar við Baldur Jónsson, sem hér prófar Willy’s-jeppann.
Fínn for-
stjórabíll
GUNNAR Þór Magnússon út-
gerðarmaður í Ólafsfirði hefur
fengið þá Baldur Jónsson og Sig-
urstein Magnússon á Múlatindi til
að gera upp fyrir sig forláta Wil-
ly’s-jeppa, árgerð 1942. Þeir félag-
ar grfpa í verkið þegar lítið er að
gera á verkstæðinu og nota einnig
til þess frítíma sinn. „Þetta er
gamall herjeppi. Hann var siðast í
eigu Gro Harlem Brundtland fyrr-
verandi forsætisráðherra Noregs.
Ég held hún hafi notað hann til að
fara í fjallakofann sinn,“ sagði
Gunnar Þór.
„Þetta verður fínn for-
stjórabíll," sagði Baldur, en hann
vildi ekki spá fyrir um hvenær
billinn yrði tilbúinn. Það kæmi þó
að því einn góðan veðurdag. „Það
verður fínt að fara á jcppanum til
kirkju," sagði Gunnar Þór, „og
líka í hesthúsið.” Hann sagðist
ekki vera neinn sérstakur jeppa-
karl, en þó lengst af átt jeppa.
Meira samt af nauðsyn, en ein-
hverri sérstakri dellu og hann
hefði ekki nýtt jeppana til fjalla-
ferða.
www.creatine.is
Siireíiuisyörur
Karin Herzog
Vita-A-Kombi olía
Akureyrarbær auglýsir
Tillaga um breytingu
á Aöalskipulagi Akureyrar 1998-2018,
athafnasvæði á Gleráreyrum.
Með vísan til greinar 6.2.2 í skipulagsreglugerð leggur
bæjarstjórn Akureyrar til að Aðalskipulagi Akureyrar 1998-
2018 verði breytt á þann veg að hluti athafnasvæðis á Gler-
áreyrum, sem áður var verksmiðjusvæði Sambandsins vest-
an Glerárgötu, verði svæði fyrir verslun og þjónustu. Einnig
er svæðið stækkað þannig að verslunar- og þjónustusvæðið
nær að götustæði Glerárgötu og Þórunnarstrætis þar sem
áður var óbyggt svæði, almennt útivistarsvæði. Gert er ráð
fyrir götu í gatnakerfi bæjarins um svæðið milli Þórunnar-
strætis og Borgarbrautar. Breytingin er gerð vegna áforma
um byggingu verslunarmiðstöðvar á svæðinu.
Nánari ákvæði og skilmálar verða skilgreindir í deiliskipulagi
svæðisins.
Uppdráttur, er sýnir tillöguna ásamt skýringarmyndum og
greinargerð, liggur frammi almenningi til sýnis í upplýsinga-
anddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9,1. hæð, næstu 6 vikur
frá birtingu þessarar auglýsingar, þ.e. til miðvikudagsins 8.
mars 2000, þannig að þeir sem þess óska geti kynnt sér til-
löguna og gert við hana athugasemdir. Athugasemdafrestur
ertil kl. 16.00 miðvikudaginn 8. mars 2000. Athugasemdum
skal skila til Skipulagsdeildar Akureyrarbæjar. Þeir, sem ekki
gera athugasemdir innan tilgreinds frests, teljast samþykkir
tiilögunni. Tillöguna má einnig kynna sér á heimasíðu Akur-
eyrarbæjar: http://www.akurevri.is/.
Skipulagsstjóri Akureyrar.
Morgunblaðið/Kriatján
Þessa dagana er verið að sefja dekkin utan á stálþilið sem rekið var nið-
ur við lengingu Norðurgarðsins í Dalvíkurbyggð en frekari fram-
kvæmdum þar verður svo frestað til vors.
N orðurgarðurinn
á Dalvík lengdur
NORÐURGARÐURINN á Dalvík
hefúr verið lengdur um 63 metra en
framkvæmdir hafa staðið yfir frá sl.
hausti. Vinna við niðurrekstur stál-
þilsins hófst í október í haust en til
viðbótar er lokið við að steypa kant-
inn ofan á þilið og þessa dagana verið
að setja dekkin utan á þilið.
Að sögn Eggerts Bollasonar hafn-
arstjóra Hafnasamlags Eyjafjarðar
verður framkvæmdum nú frestað en
stefnt að því að steypa þekjuna næsta
vor og verður sú framkvæmd boðin út
sérstaklega. Við þessa framkvæmd er
Norðurgarðinn orðinn rétt rúmir 200
metrar að lengd en dýpt við þilið er
6-7 metrar. Eggert sagði að um mikla
búbót væri að ræða. „Við fáum þama
togarapláss til viðbótar og eigum því
mun auðveldara með að athafna okk-
ur gagnvart flutningaskipunum."
Verktaki við lengingu Norður-
garðsins er Guðlaugur Einarsson í
Hafnarfirði en hann átti lægsta tilboð
í verkið. Kostnaðaráætlunin hljóðaði
upp á rúmar 23 milljónir króna en
Guðlaugur bauð rúmar 26 milljónir
króna í verkið, að sögn Eggerts, eða
um 113% af kostnaðaráætlun. Vegna
aukaverka og ýmissa annarra ástæð-
na sagði Eggert að kostnaður við yfir-
standandi framkvæmdir yrði um 40
miHjónir króna.
Næsta framkvæmd á vegum
Hafnasamlags Eyjafjarðar er viðgerð
á Norðurgarðinum í Ólafsfirði nú í
vor en miklar skemmdir urðu á garð-
inum í óveðri fyrir réttu ári.
------»-♦-*------
Landssíminn
eignast meiri-
hluta í Nett
LANDSSÍMINN hefur keypt rúm-
an meirihluta í fyrirtækinu Nett ehf.
sem er netþjónustuaðili á Akureyri.
Fyrirtækið hefur starfað frá árinu
1996 og þar vinna um 5 manns.
Guðmundur Jóhannsson þjón-
ustustjóri Landssímans á Norður-
landi eystra sagði að í kjölfar þess-
ara kaupa á Nett yrði stefnt að því að
efla starfsemi fyrirtækisins, auka
umsvif þess og fjölga starfsfólki. Lið-
ur í því er að ganga frá samningi við
Nett um sölu á fjarskiptalausnum
Landssímans á Norðurlandi, til fyr-
irtækja, stofnana og einstaklinga.
Morgunblaðið /Kristján
Ný Guðrún Helga
til Akureyrar
NÝR bátur af gerðinni Cleopatra
28 kom til Akureyrar fyrir
skemmstu, en hann er í eigu
Helga Bergþórssonar og heitir
Guðrún Helga E A 85.
Báturinn er frá bátasmiðjunni
Trefjum í Hafnarfirði og kemur í
stað eldri báts með sama nafni.
Hann mælist 6 tonn og er í
þorskaflahámarkinu. Ganghraði
er 26 mflur. I lest er rými fyrir 10
fiskikör, en báturinn er útbúinn til
línu- og handfæraveiða. Vélin er
af gerðinni Yanmar, í brú eru full-
komin tæki til siglinga og fiskileit-
ar af gerðinni Furuno frá Brim-
rúnu og búnaður til línuveiða er
frá Elektra.