Morgunblaðið - 26.01.2000, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Endurbætt flugstöð
í Eyjum opnuð
Vestmannaeyjum - Flugstöðin á
Vestmannaeyjaflugvelli var opnuð
formlega á föstudaginn eftir end-
urbætur og stækkun stöðvarinn-
ar.
Við athöfn sem haldin var í til-
efni af því að verkinu er lokið rakti
Þorgeir Pálsson flugmálastjóri
þær breytingar sem gerðar voru á
stöðinni.
í máli hans kom fram að 221
fermetra viðbygging var byggð
við stöðina svo grunnflötur henn-
ar er nú 810 fermetrar. Samhliða
viðbyggingunni var ráðist í miklar
breytingar á eldri hluta stöðvar-
innar, sem tekinn var i notkun fyr-
ir tuttugu árum. Lagfæringar og
breytingar voru gerðar á stöðinni
að utan en jafnframt voru allar
innréttingar endumýjaðar og
skipulagi breytt. Framkvæmdir
við breytingarnar stóðu yfir í tíu
mánuði og heildarkostnaður nam
á níunda tug milljóna.
Byggingarverktakarnir Steini
og Olli hf. voru aðalverktakar en
síðan kom fjöldi undirverktaka að
einstökum verkhlutum.
90 þúsund farþegar fóru
um völlinn í fyrra
Flugmálastjóri sagði að löngu
hefði verið orðið tímabært að ráð-
ast í breytingar á flugstöðinni í
Eyjum og gera hana rúmbetri, því
mikil umferð er um flugvöllinn og
eykst sífellt, en á síðasta ári fóru
um 90.000 farþegar um völlinn
sem er met í 54 ára sögu vallarins í
Vestmannaeyjum.
Breyting flugstöðvarinnar er
einn liðurinn í umfangsmiklum
endurbótum á flugvellinum sem
fram eiga að fara samkvæmt flug-
málaáætlun. Á síðasta ári voru
tekin í notkun ný og öflugri flug-
brautarljós á báðum brautum vall-
arins og á þessu ári á að leggja
nýtt slitlag á báðar brautir vallar-
ins og gera miklar endurbætur á
flugturni og búnaði hans. Árin
2001 og 2002 er svo ráðgert að
bæta enn frekar ljósabúnað fyrir
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Samgönguráðherra, flugmálastjóri og bæjarstjórinn í Eyjum
afhjúpa höggmyndina Steinflaugina eftir Orn Þorsteinsson.
aðflug á flugbrautum með upp-
setningu aðflugshallaljósa og leift-
urljósa á norður/suður-braut og
aðflugsljósa á austur/vestur
braut. Þá verða sett upp Ijósaskilti
með fjarlægðarmerkingum við
báðar brautir og akbrautarljós við
flughlað og flugskýli.
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra flutti ávarp og þakkaði
öllum sem að verkinu höfðu komið
fyrir vel unnin störf og sagði að
áfram yrði unnið að uppbyggingu
vallarins með öryggismál í fyrir-
rúmi.
Guðjón Hjörleifsson bæjar-
stjóri sagði í ávarpi sínu að hann
væri afar ánægður með hversu
glæsileg flugstöðin væri orðin.
Þakkaði hann flugmálastjóra sam-
starfið, Árna Johnsen, alþingis-
manni og flugráðsmanni, fyrir
sinn þátt í að koma verkinu í fram-
kvæmd og hönnuðum og verktök-
um fyrir góð störf. Að lokum af-
henti Guðjón síðan flugmálastjóm
stóra mynd af Vestmannaeyjum
að gjöf frá bæjarstjórn Vest-
mannaeyja og veitti flugmála-
stjóri henni viðtöku fyrir hönd
flugmálastjórnar.
Arni Johnsen alþingismaður
flutti síðan stutt ávarp og bað svo
bæjarstjóra, flugmálastjóra og
samgönguráðherra að afhjúpa
höggmyndina Steinflaugina eftir
Öm Þorsteinsson, en höggmyndin
er í miðri flugstöðvarbyggingunni.
Að loknum ávörpunum fluttu
Litlir lærisveinar, barnakór
Landakirkju, nokkur lög en að því
loknu flutti Ársæll Sveinsson
ávarp fyrir hönd Steina og Olla.
Þakkaði hann flugmálastjórn
samstarfið og færði síðan Jóhanni
Guðmundssyni flugvallarstjóra
blómvönd sem þakklætisvott fyrir
gott samstarf.
Morgunblaði4/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Fjölskyldan á Efra-Hvoli í Pálsstofu frá vinstri: Ragnheiður Ósk Guð-
mundsdðttir, Páll Björgvin Guðmundsson, Bergsteinn Pálsson, Helga
Pálsdóttir, Ingunn Ósk Sigurðardóttir, ekkja Páls Björgvinssonar,
Ragnheiður Pálsdóttir og Magnús Ragnar Þórisson.
Pálsstofa opnuð
á Hvolsvelli
Hvolsvelli - Nú hefur verið opnuð í
Félagsheimilinu Hvoli á Hvolsvelli
svokölluð Pálsstofa, til heiðurs Páli
Björgvinssyni frá Efra-Hvoli, fyrr-
verandi oddvita í Hvolhreppi.
Páll lést árið 1967 en hann var
fæddur árið 1898 og sinnti hann
margvíslegum málefnum og nefnd-
arstörfum fyrir Hvolhrepp. Hann
var lengi sýsluskrifari og sýslufull-
trúi en faðir hans Björgvin Vigfús-
son var sýslumaður Rangæinga.
Páll var oddviti Hvolhrepps frá
1949 til dauðadags.
Páll var helsti hvatamaður að
byggingu félagsheimilisins Hvols
og formaður byggingamefndar
þess frá 1953 og þar til húsið var
vígt þann 20. ágúst 1960 á afmælis-
degi Páls. Bygging félagsheimilis-
ins var mikið þrekvirki á sínum
ti'ma fyrir fámennan hrepp. Húsið
var byggt af slíkri framsýni að enn
þann dag í dag er það nógu stórt
fyrir þá starfsemi sem þar fer fram.
Sýningar settar upp
í framtíðinni
í Pálsstofu verða í framtíðinni
settar upp ljósmyndir og listaverk
sem tengjast m.a. sögu hreppsins
og sýslunnar. í anddyri hefur verið
komið upp sýningarkassa sem hef-
ur að geyma muni frá Páli, skjöl
sem hann ritaði, skeyti og ýmislegt
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Ingunn Ósk Sigurðardóttir,
ekkja Páls Björgvinssonar,
við mynd af manni sínum.
sem tengist störfum Páls. Þar er
einnig hægt að hlusta á brot úr
vígsluræðu Páls frá því húsið var
vígt.
Ekkja Páls, Ingunn Ósk Sigurð-
ardóttir og fiölskylda færðu félags-
heimilinu við opnunina 100.000 kr.
að gjöf til listaverkakaupa fyrir
Pálsstofu.
Janúartilboð
á stálvöskum
Tilboðsverö 14.360,-
Tilboðsverð 6.321,-
Tilboðsverð 8.818,-
Tilboðsverð 4.343,-
I i MIKIÐ ÚRVAL
Ármúla 21, 533 2020.
&íjA
Vinsæl endurhæfíng á Heilsustofnuninni í Hveragerði
Margir koma aftur o g aftur
Hveragerði - Á Heilsustofnun
Náttúrulækningafélags íslands,
HNLFÍ, í Hveragerði, er boðið
uppá fjölbreytta meðferð. Þar geta
flestir fundið eitthvað við sitt hæfi
allt frá endurhæfingu til aðstoðar
við megrun eða það að hætta að
reykja. Mikið er um það að gestir
HNLFÍ komi aftur og aftur og má
þannig sjá að fólk fær mikið út úr
dvölinni á Heilsustofnun.
Einn af þeim sem kemur á hverju
ári er Eiríkur Vernharðsson og
reynir hann að ná fjögurra vikna
dvöl í hvert sinn. Eiríkur, sem er
trésmiður að mennt, greindist með
MS-sjúkdóminn árið 1995 og hefur
framvinda sjúkdómsins verið hröð.
Hann er mjög ánægður með dvöl
sína á HNLFI.
„Ég fæ heilmikla meðferð meðan
ég er hér og meðal annars hitti ég
núna kínverskan nálastungulækni
sem vonandi hefur eitthvað getað
hjálpað." Eiríkur var í sjúkraþjálf-
un meðan hann spjallaði við frétta-
ritara og barst talið þá að öðrum
endurhæfingarstofnunum landsins.
Ríkið tekur ekki
þátt í kostnaði
„Ég verð að minnast á það órétt-
læti sem er í gangi varðandi þá staði
sem sinna endurhæfingu. Annars
staðar greiðir ríkið fyrir dvöl okkar
sem þurfum á endurhæfingu að
halda en hér tekur ríkið engan þátt
og verðum við sjálf að borga. Það
"“XSSr
Morgunblaðið/Aidís Hafsteinsdóttir
Eiríkur Vernharðsson í endurhæfingu: Hugaþarf að óréttlætinu.
gerir það að verkum að allir borga
það sama hvort sem um er að ræða
fólk eins og mig sem þarf mjög á
endurhæfingu að halda eða fólk sem
eingöngu kemur hingað til afslöpp-
unar eða hvíldar. Það þyrfti að huga
að þessu óréttlæti því biðlistinn á
endurhæfingarstofnanirnar sem
eru ókeypis er mjög langur en hér
kemst maður inn án mikillar biðar.
Fólk hefur ekki val nema það hafi
efni á því að greiða fyrir dvöl sína
og margir setja það fyrir sig og fá
því ekki þá endurhæfingu sem
nauðsynleg er.“ Að lokinni dvölinni
á HNLFÍ sest Eiríkur á skólabekk,
en hann lýkur í vor þriggja anna
námi hjá Hringsjá - starfsþjálfun
fatlaðra. Þar eru fatlaðir búnir und-
ir störf á vinnumarkaði eða fram-
haldsnám. Hvert framhaldið verður
hjá Eiríki mun ráðast af líkamlegu
ástandi hans. En að einu er hægt að
ganga vísu sagði Eiríkur að lokum
og það er að hann mun koma aftur á
Heilsustofnun.
Samfylkingin
stofnuð í
Reykjanesbæ
AÐALFUNDUR Bæjarmála-
félags jafnaðar- og félags-
hyggjufólks í Reykjanesbæ var
haldinn 20. janúar sl. á Víkinni,
Hafnargötu 80 í Reykjanesbæ.
Á fundinum, sem var fjölmenn-
ur, var samhljóða samþykkt að
breyta nafni félagsins í Sam-
fylkingin í Reykjanesbæ, segir í
fréttatilkynningu.
Formaður var kjörinn Bjöm
Herbert Guðbjömsson, fráfar-
andi formaður bæjarmálafé-
lagsins. Aðrir í stjóm vom
kjömir Brynjar Harðarson,
Sveindís Valdimarsdóttir,
Theodór Magnússon og Vil-
hjálmur Skarphéðinsson. Vara-
menn vom kjömir Eysteinn
Eyjólfsson og Ragnar Hall-
dórsson.
Að loknum aðalfundinum hélt
samfylkingin á Reykjanesi fund
undir kjörorðinu „til móts við
nýja tíma“. Guðmundur Ámi
Stefánsson þingmaður flutti
ávarp og Eysteinn Eyjólfsson
úr stjóm félagsins greindi frá
störfum þess. A fundinum gafst
samfylkingarfólki í Reykjanes-
bæ tækifæri til að koma skoð-
unum sínum á framfæri og
ræða málefni, áherslur og
starfshætti Samfylkingarinnar.
Tóku margir til máls á þessum
fjömga fundi, m.a. Sigríður Jó-
hannesdóttir þingmaður.