Morgunblaðið - 26.01.2000, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000 19
VIÐSKIPTI
Samherji kaupir 31,3% hlut í Hraðfrystistöð Þórshafnar
Samherji áfram
undir kvótaþakinu
ÞORSTEINN Már Baldvinsson,
forstjóri Samherja, telur að félagið
sé ekki að nálgast kvótaþakið svo-
nefnda þrátt fyrir kaup á 31,3% í
Hraðfrystistöð Þórshafnar í gær.
Samherji kaupir 14,3% hlut í HÞ af
Landsbankanum-Fjárfestingu hf. og
17% af Þórshafnarhreppi og er um
langstærsta hlut í félaginu að ræða
en hlutaféð skiptist á um 200 hlut-
hafa sem eiga flestir lítinn hlut.
Þorsteinn Már segir að Samherja-
menn hafi lengi velt því fyrir sér að
gott væri að vera með hlutdeild í
mjölverksmiðju á öðru homi lands-
ins en á Reykjanesi enda hafi veru-
legu fiskmagni verið landað annars
staðar. Þegar þeim hefði staðið til
boða að kaupa hlut í HÞ og þeir verið
hvattir til þess af mönnum á Þórs-
höfn hefðu þeir farið að skoða málið
nánar. Samkomulag hefði síðan
náðst í fyrrinótt en skrifað var undir
samninga eftir hádegið í gær.
Fækka um eitt skip
HÞ á frystitogarann Stakfell ÞH
en hlutdeildarfélagið Skálar ehf.
rekur tog- og nótaveiðiskipin Júpíter
og Neptúnus. Félagið er síðan með
mjölvinnslu, frystingu á uppsjávar-
fiski og bolfiskafurðum og í kúfisk-
verkefni. Þorsteinn Már segir að
ekki séu miklar breytingar fyrirhug-
aðar en áréttar að gengið hafi verið
frá samkomulaginu í gær með fyrir-
vara um samþykki stjórnar Sam-
herja. Hann segir að að fækka þurfi
um eitt skip í rekstri fyrirtækisins.
Skipastóllinn sé þannig saman sett-
ur að ekki hafi gengið vel að koma
með síld að landi þannig að vinna
mætti hana til manneldis en með
skipum Samherja sé hægt að koma
því við. Áður en gengið var frá samn-
ingum landaði Þorsteinn EA, skip
Samherja, rúmlega 1.000 tonnum af
loðnu á Þórshöfn og fóru um 130
tonn í frystingu.
Nýir möguleikar
Jóhann B. Jónsson, framkvæmda-
stjóri HÞ, segir að með því að fá inn í
reksturinn mjög sterkt félag, sem sé
í svipaðri starfsemi og HÞ, þýði
væntanlega meira flæði hjá fyrir-
tækinu á þessum tegundum.
Að sögn Jóhanns eru ekki fyrir-
hugaðar neinar stórar breytingar,
„en þegar horft er á stóra heild skap-
ast kannski möguleiki til að nýta
skip betur og samnýta hluti.“
Hann segir að þetta styrki rekst-
urinn og mannabreytingar séu ekki
fyrirhugaðar. „Það getur vel verið að
ákvörðun þess efnis komi fram síðar
en við erum ekki komnir svona langt.
Það eina sem hefur gerst er að búið
er að kaupa þessi hlutabréf."
Styrkur fyrir alla
Henrý Már Ásgrímsson, oddviti
sveitarfélagsins á Þórshöfn, segir að
hreppurinn hafi átt hlut í HÞ frá
stofnun íyrirtækisins í byrjun átt-
unda áratugarins og á tímabili verið
langstærsti hluthafinn. „í gegnum
tíðina hefur þetta verið gert til að
tryggja hér atvinnu. Sveitarfélagið
hefur oftar en einu sinni komið inn
með stuðning og styrk og varð stöð-
ugt stærri aðili í hlutafélaginu," seg-
h hann spurður um hlut hreppsins.
Henrý Már segir að tvær ástæður
liggi að baki sölunni. „Menn hafa trú
á að það sé fyrirtækinu styrkur með
aukinni samvinnu við Samherja og í
öðru lagi telja menn að ekki sé
ástæða til að sveitarfélögin bindi sig
við fyrirtæki, þegar þau geti staðið á
eigin fótum, og noti fjármagnið frek-
ar í aðra hluti.“
Nafnverð söluhlutar hreppsins
nam um 73 milljónum króna en sölu-
verðið var 212 milljónir og var nokk-
ur aðdragandi að sölunni. „Það hefur
verið nokkur samvinna áður milli
þessara fyrirtækja," segir Henrý
Már og bætir við að þegar Lands-
bankinn hafi byrjað að kaupa bréf í
fyrirtækinu í nóvember með aukið
samstarf einhverra fyrirtækja í huga
hafi hjólin farið að snúast. Þegar við-
ræður við Samherjamenn hafi byrj-
að skömmu fyrir jól hafi hreppurinn
komið inn í viðræðurnar. „Þeir sögðu
strax að þeir vildu fá það sem þeir
voru að kaupa, um 30%, og höfðu
ekki áhuga á minna enda vildu þeir
hafa eitthvað um málin að segja.“
Henrý Már segir að peningarnir,
sem hreppurinn fái út úr sölunni,
fari í að hagræða fjárhagsstöðu
sveitarfélagsins og styðja við at-
vinnuuppbyggingu eins og til dæmis
ný atvinnutækifæri. „Fjármunirnir
verða nýttir samfélaginu hérna til
hagsbóta," segir hann. „Kjarninn í
þessu er að forráðamenn fyrirtækis-
ins og við höfum trú á að þetta verði
styrkur þess. Það stendur til að
koma með meiri afla hér í gegn og
hugmyndin er að efla og styrkja
frystigetu, sérstaklega í uppsjávar-
afla, loðnu og sfld. Svona mætti lengi
telja.“
Landsbankinn-Fjárfesting hf.
eignaðist samtals 14,3% í HÞ í nóv-
ember sem leið og að sögn Davíðs
Björnssonar, forstöðumanns á fyrir-
tækjasviði Landsbankans, var mark-
aðsverðið þá frá 1,9 upp í um 2,5.
Nafnverð hlutarins, sem Lands-
bankinn-Fjárfesting hf. seldi í gær
nam um 62 milljónum króna, en í
gær var gengið á hlutabréfum í HÞ
3,15 á Verðbréfaþingi íslands. Davíð
segir að ástæðan fyrir kaupum á
bréfunum í nóvember hafi fyrst og
fremst verið hagnaðarvon. „Okkur
þótti bréfin mjög lágt verðmetin á
markaði og sáum hreinlega hagnað-
artækifæri fólgin í því að eignast
þarna dijúgan hlut og selja aftur á
hærra verði.“
Að sögn Davíðs gekk salan fyrr
fyrir sig en gert var ráð fyrir. „Eins
og reglur gera ráð fyrir tilkynntum
við að við ættum þennan eignarhlut
og í kjölfarið bárust fyrirspurnir frá
ýmsum sem sýndu áhuga á bréfun-
um. Samherjamenn sýndu hug í
verki og luku málinu. Við áttum al-
veg eins von á að eiga þessi bréf í
mun lengri tíma en við áttum þau en
ekki eru liðnir þrír mánuðir frá því
við byrjuðum að kaupa bréf í félag-
inu.“
Páskaævíntýri
Heimsferða
Fyrstu
Með því að
boka strax getur
þu tiyggt þer allt að
sætin
um páskana með séraFslætti.
,#V
kr. aFsl
Fyrir Fjölskylduna.
Páskamir eru einn vinsælasti feröatími ársins enda ekki aö undra, komiö
frábært veður í Evrópu og gott tækifæri til aö nota frídagana og fá
tilbreytingu eftir langan vetur. Heimsferöir bjóöa þér nú glæsilegt úrval
spennandi páskaferöa, hvort sem þú kýst aö dveljast á yndislegri sólar-
strönd á Costa del Sol, Kanarí eöa Benidorm, eöa kanna heims-
borgirnar London og París. Og allsstaöar nýtur þú traustrar
þjónustu fararstjóra Heimsferða.
R?* -
14. apríl - 10 nætur
Beint leiguflug þann 14. apríl
til þessa vinsælasta áfanga-
staðar viö Miðjaröarhafið. Hér
nýtirþú páskadagana til
fullnustu og getur valið um
urval góðra hótela á ströndinni.
Verð frá
46.555,- kr.
M.v. hjón meö 2 börn, Santa Clara,
íbúö meö 1 svefnh., 10 nætur.
54.900,- kr.
M.v. 2 í studio, Timor Sol, 10 nætur.
Verödæmi eru meö afslætti.
Benidorm
13. apríl — 12 nætur
Beint leiguflug þann 13. apríl
til Benidorm. Hér getur þú valið
um úrval gististaöa, góð íbúða-
hótel með allri þjónustu eða
íbúðir við strandgötunna og þú
nýtur þjónustu fararstjóra
Heimsferða ailan tímann.
Verð frá
29.555,- kr.
M.v. hjón meö 2 böm, fiugsæti fram
og til baka, 13. april, 12 nætur.
46.455,- kr.
M.v. hjón meö 2 böm, El Faro, íbúö
meö 1 svefnh., 12 nætur.
54.990,- kr.
M.v. 2 í íbúö meö 1 svefnherbergi,
El Faro, 12 nætur.
Verödeemi eru með afslætti.
í A
Kanari
16. apríl — 14 nætur
Beint leiguflug til Kanarí, 9. og
16. apríl, þú finnur hvergi betra
veður um páskana. Hér er
frábært veöur á þessum
árstima, um 28 stiga hiti yfir
daginn og góður hiti á kvöldin.
Úrval gististaöa á ensku
ströndinni og spennandi
kynnisferðir með fararstjórum
Heimsferöa.
Verð frá
63.455,- kr.
M.v. hjón meö 2 börn, Tanife, 2 vikur,
16. apríl.
79.290,- kr.
M.v. 2 í íbúö, 2 víkur, Tanife, 16. aprfl.
68.990,- kr.
M.v. 2 i herbergi, Hotel Paralell,
12 nætur meö morgunmat, 31.mars.
London
14. apríl — 10 nætur
Einstakt tækifæri til að fljúga
til London á frábæru verði og
njóta páskanna í þessari heims-
borg. Við bjóðum gott úrval
góðra hótela í hjarta London og
nú býðst þeim sem vilja frábær
valkostur, London og París í
einni ferð, en það tekur aðeins
3 tíma að fara með Eurostar
hraðlestinni á milii.
Verð frá
14.200, - kr.
Flugsæti fyrir manninn.
Flugvallarskattar kr. 3.790 bætast viö.
49.200, - kr.
M.v. 2 i herbergi. Roland House,
Kensington, 10 nætur meö morgunmat,
14. april. Skattar kr. 3.790 bætast við.
Austurstræti 17 • 101 Reykjavík • Sími 595 1000 • Fax 595 1001 • www.heimsferdir.is