Morgunblaðið - 26.01.2000, Page 48
48 MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
ÍDAG
Safnaðarstarf
Fræðslusam-
, /
verur í Askirkju
Á MORGUN, fímmtudag, hefjast að
nýju eftir áramótahlé fræðslusam-
verur í Áskirkju. Verða þær, eins og
undanfarin ár, í safnaðarheimili
kirkjunnar hvert fimmtudagskvöld
kl. 20.30.
Nú, í upphafi ársins 2000 og til loka
marsmánaðar, verður fjallað um von-
ir og drauma tengda nýjum öldum og
ókomnum árþúsundum í sögu og
samtíð, bæði hrífandi vonir tengdar
þúsund ára ríki og ugg, sem tíðum
reyndist áleitinn, er stór tímamót
v nálguðust. Fjallað verður um vitnis-
burð ritningarinnar sem tengjast
hvoru tveggja, valdi kaflar úr Opin-
berun Jóhannesar lesnir og skýrðir
og einnig kaflar úr öðrum ritum
Biblíunnar. Meðal annars verður
kynnt hvernig þau rit voru lesin og
túlkuð þegar árið 1000 nálgaðist og
einnig nú á síðustu árum er árið 2000
færðist nær. Einnig verður frætt um
hugmyndaheim opinberunarrita síð-
gyðingdómsins og kaflar úr þeim
merku bókmenntum skýrðir. Enn-
fremur verða lesnir og hugleiddir
kaflar úr ritum Postulafeðranna, en
það eru kristnar bækur, sumar frá
sama tíma og rit Nýja testamentisins
og aðrar litlu yngri og voru raunar
sumar hverjar taldar til rita Nýja
testamentisins á fyrstu öldum krist-
indóms.
Kennslu annast Ámi Bergur Sig-
urbjömsson, sóknarprestur, og stýr-
ir hann jafnframt umræðum. Fjrsta
fræðslusamveran verður á morgun
kl. 20.30 og em allir velkomnir.
Mozart-kirkju-
sónötur í
Hallgrímskirkju
Á morgun, fimmtudag, em 244 ár
síðan Wolfgang Amadeus Mozart
fæddist. Við kyrrðarstund í Hall-
grímskirkju verða af því tilefni flutt-
ar fjórar kirkjusónötur eftir Mozart.
Kyrrðarstundin hefst klukkan 12. Sr.
Jón Dalbú Hróbjartsson flytur hug-
leiðingu og bæn. Eftir kyrrðarstund-
ina kl. 12.30 er boðið upp á léttar veit-
ingar í safnaðarsal kirkjunnar.
Kirkjusónötur samdi Mozart fyrir
tvær fiðluraddir, selló og orgel og
vom þær notaðar í helgihaldi í Salz-
burg á ámnum 1772-1780. Hver són-
ata er í einum þætti og var ætlað að
brúa bilið á milli ritningarlestranna í
messunni. Flytjendur em Laufey
Sigurðardóttir, fiðluleikari, Sigur-
laug Eðvaldsdóttir, fiðluleikari,
Bryndís Björgvinsdóttir, sellóleikari,
og Hörður Áskelsson, orgelleikari.
Allir em velkomnir til kyrrðarstund-
ar á afmælisdegi Mozarts, sem
endranær á fimmtudögum, og að
sjálfsögðu er enginn aðgangseyrir.
Kyrrðarstundir í
Grafarvogskirkju
UNDANFARIN ár hefúr verið
boðið upp á kyrrðarstundir í Grafar-
vogskirkju í hádeginu á miðvikudög-
um frá kl. 12-13.
Stundin hefst með þvi að organisti
kirkjunnar, Hörður Bragason, leikur
á orgelið. Síðan fer fram altaris-
ganga. Að henni lokinni er boðið upp
á léttan hádegisverð. Stundin er í
umsjón presta safnaðarins, þeirra
Vigfúsar Þórs Árnasonar, Sigurðar
Amarsonar og Önnu Sigríðar Páls-
dóttur.
Ekki þarf að geta þess að allir em
boðnir velkomnir til kyrrðarstundar
mitt í erli hversdagsins.
Opinberunarbók
Jóhannesar
f í KVÖLD kl. 20 heldur áfram
námskeið um Opinbémnarbók Jó-
hannesar í sjónvarpsstöðinni Omega
í beinni útsendingu. Námskeiðið er
alls 16 kvöld. Leiðbeinandi er dr.
Steinþór Þórðarson. Efni kvöldsins
er Jesús Kristur, guðhetja og eilífð-
arfaðir.
Bústaðakirkja. Félagsstarf aldr-
"*^aðra í dag kl. 13.30.
Dómkirkjan. Samvera fyrir mæð-
ur með ung böm kl. 10.30-12 í safnað-
arheimilinu. Hádegisbænir kl. 12.10.
Orgelleikur á undan. Léttur máls-
verður á eftir.
Grensáskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10-12. Allar mæður velkomnar
með lítil böm sín. Samvemstund
eldri borgara kl. 14-16. Biblíulestur,
samvemstund, kaffiveitingar. TTT-
starf fyrir 10-12 ára böm kl. 17.
Unglingastarf kl. 19.30.
Hallgrímskirkja. Opið hús fyrir
foreldra ungra bama kl. 10-12. Bi-
blíulestur kl. 20 í umsjá Jóns D.
Hróbjartssonar. Náttsöngur kl. 21.
Háteigskirkja. Kvöldbænir og fyr-
irbænir kl. 18.
Langholtskirkja. Starf eldri borg-
ara í dag kl. 13-17. Spil, lestur, handa-
vinna. Kaffi og meðlæti kl. 15. Djákni
flytur hugvekju. Söngstund undir
stjóm Jóns Stefánssonar organista.
Bænagjörð kl. 18.
Laugameskirkja. Morgunbænir
kl. 6.45. Kirkjuprakkarar ld. 14.30.
Starf fyrir 6-9 ára böm. TTT kl. 16.
Starf fyrir 10-12 ára böm. Ferming-
artími kl. 19.15. Unglingakvöld kl. 20
í samvinnu við Laugameskirkju,
Þróttheima og Blómaval. Gospel-
kvöld í Hátúni 10 í samvinnu við
Laugameskirkju og ÖBÍ.
Neskirkja. Foreldramorgunn kl.
10-12. Sr. Öm Bárður Jónsson ræðir
um uppeldi og hlutverk foreldra.
Bænamessa kl. 18.05. Sr. Frank M.
Halldórsson.
Selljarnaraeskirkja. Kyrrðar-
stund kl. 12. Söngur, altarisganga,
fyrirbænir. Léttur hádegisverður í
safnaðarheimilinu. Starf fyrir 11-12
ára böm kl. 17-18.15.
Árbæjarkirkja. Félagsstarf aldr-
aðra. Opið hús í dag kl. 13.30-16.
Handavinna og spil. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 16. Bænarefnum er hægt
að koma til presta safnaðarins.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund
kl. 12.10. Tónlist, altarisganga, fyrir-
bænir. Léttur málsverður í safnaðar-
heimilinu á eftir. Kirkjuprakkarar,
starf fyrir 7-9 ára böm, kl. 16.
Digraneskirkja. Unglingastarf á
vegum KFUM & K og Digranes-
kirkju kl. 20.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund í
Gerðubergi á fimmtudögum kl. 10.30.
Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund í
hádegi kl. 12. Altarisganga og fyrir-
bænir. Léttur hádegisverður.
KFUM fyrir drengi 9-12 ára kl.
17.30-18.30. Æskulýðsstarf fyrir
unglinga kl. 20-22 í Engjaskóla.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar
kl. 10-12. Starf fyrir 10-12 ára kl. 17.
Kópavogskirkja. Starf með 8-9 ára
bömum í dag kl. 16.45-17.45 í safnað-
arheimilinu Borgum. Starf á sama
stað með 10-12 ára (TTT) kl. 17.45-
18.45.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bæna-
stund í dag kl. 18. Beðið fyrir sjúkum,
allir velkomnir. Léttur kvöldverður
að stund lokinni. Tekið á móti fyrir-
bænaefnum í kirkjunni og í síma 567-
0110.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyrir
eldri borgara kl. 14-16.30. Helgi-
stund, spil og kaffí.
Vídalínskirkja. Foreldramorgunn
kl. 10-12.
Ilafnarfjarðarkirkja. Kyrrðar-
stund kl. 12. Hugleiðing, altaris-
ganga, fyrirbænir, léttur málsverður
á eftir í Ljósbroti, Strandbergi, kl. 13.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð
kl. 12. Kyrrðar- og bænastund í
kirkjunni kl. 12.10. Samvera í
Kirkjulundi kl. 12.25. Súpa, salat og
brauð á vægu verði. Allir aldurshóp-
ar. Alfa-námskeið hefst í Kirkjulundi
kl. 19 og lýkur í kirkjunni um kl. 22.
Þorlákskirkja. Mömmumorgnar á
miðvikudögum kl. 10. Sóknarprestur.
Landakirkja, Vestmannaeyjum.
Kl. 20 opið hús unglinga í KFUM &
K húsinu.
Akraneskirkja. Unglingakórinn.
Söngæfing í Safnaðarheimilinu Vina-
minni kl. 17.30.
Kletturinn, kristið samfélag.
Bænastund kl. 20. Allir velkomnir.
Hólaneskirkja, Skagaströnd. Kl.
12 bæn og súpa. Allir velkomnir.
KEFAS. Samverustund unga
fólksins kl. 20.30.
Fíladelfía. Súpa og brauð kl. 18.30.
Kennsla kl. 19.30. Krakkaklúbbur,
unglingafræðsla. Kennsla fyrir
enskumælandi og biblíulestur. Állir
hjartanlega velkomnir.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Til þín, kæri
lífgjafi minn
VELVAKANDA barst
eftirfarandi bréf frá
starfsfólki Blóðbankans:
„Starfsfólki Blóðbank-
ans barst þetta bréf frá
blóðþega. Okkur fannst
það viðeigandi að þjóðin
fengi að lesa það.“
Kannski höfum við sést,
kannski ekki./ Kannski
þekki ég þig, kannski
ekki./ En fyrir mér ertu
nafnlaus, þess vegna ég
líka./ Fyrir mér sé ég ekki
andlit þitt, þú ekki heldur
mitt./ Ég veit ekki kyn þitt
og þú ekki mitt./ Eg veit
ekki aldur þinn og þú ekki
minn./ Samt á ég líf mitt
þér að launa./ Þú hefur
bjargað mínu lífiy
Um hjarta mitt og æðar
mínar streymir nú blóð
þitt ásamt því litla sem eft-
ir var af mínu. Einkenni-
leg tilhugsun að um svo
náinn samruna geti verið
að ræða á milli einstakl-
inga sem ekki vita neitt
um hvort annað. Ég veit
ekkert um hver þín ástæða
er til blóðgjafar, hvort
þetta er vani hjá þér eða
eitt einstakt tilfelli. Hvort
heldur sem er þá vil ég að
þú vitir hvað þessi gjöf þín
skipti mig miklu máli.
Án þess hefðu börn mín
misst annað foreldri sitt,
maki minn orðið einstætt
foreldri og lík mitt í gröf.
Ekki hugsa að alltaf hefði
verið hægt að fá annað
blóð, þvi það er alls ekki
öruggt. Kannski hefði ekki
verið til nóg. Og kannski
ekki jafn gott og þitt.
Hvernig sem á málið er lit-
ið þá skipti þín blóðgjöf
svo miklu máli að hún gaf
mér líf og endurheimta
heilsu. Hvað er stærri
gjöf?
Ég vil þú vitir að þakk-
læti til þín verður ætíð í
huga mér svo lengi sem ég
lifi. Ég vildi að ég gæti
gert eitthvað álíka fyrir
þig í staðinn. En þar sem
ég veit ekki hver þú ert né
hvernig ég get nálgast þig
þá verð ég að láta þetta
litla bréf duga.
Hafðu eilífa þökk mina
og fjölskyldu minnar. Ég
bið guð að vernda þig og
þina og bið að þú haldir
heilbrigði þínu. Þú verður
ætíð í mínum bænum.
Blöðþegi sem gleymir
þér aldrei.
Þakkir fyrir grein
RAGNA hafði samband
við Velvakanda og langaði
að þakka fyrir frábæra
grein eftir Árna Snævarr
sem birtist í Morgunblað-
inu 20. janúar sl. og heitir:
Burt með dönskuna, upp
með frönskuna. Að hennar
mati er þetta löngu tima-
bær grein. Danskan ætti
að vera val í skólum, þar
sem hægt er að tala ensku
á Norðurlöndunum.
Tapad/fundió
Prjónavettlingur
týndist
PRJÓNAVETTLINGUR
með vestfirsku mynstri
týndist við Hamraborg í
Kópavogi eða vestast á
Álfhólsvegi í Kópavogi.
Vettlingurinn er ljósbrúnn
með tveimur bekkjum,
dökkbrúnum og hvítum.
Vettlingurinn týndist í síð-
ustu viku. Hann er eig-
andanum afar kær. Skilvís
finnandi er vinsamlegast
beðinn að hafa samband
við Jóhönnu í síma 554-
0044.
Hleðsluborvél
HLEÐSLUBORVÉL í
blárri plasttösku gleymd-
ist fyrir utan bíl í Hjálm-
holti í Reykjavík, sunnu-
dagskvöldið 23. janúar sl.
Þeir sem vita um vélina
vinsamlegast látið vita í
síma 553-1588.
BMW-bfllykill fannst
BMW-bíllykill og húslykill
fundust á bílaplani Kringl-
unnar laugardaginn 22.
janúar sl. Upplýsingar
gefur Rannveig í síma 565-
3479.
SKAK
Með morgunkaffinu
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Víetnamar hafa sótt mjög í sig veðrið
á skáksviðinu undanfarin ár og sér-
staklega eru þeir taldir göldróttir í tak-
tík. Hins vegar leikur lánið ekki alltaf
við þá eins og þessi staða frá opna mót-
inu í Groningen sýnir, þar sem Rechel
hafði hvítt gegn hinum efnilega Víetn-
ama Nguyen Chi Minh. 24.Hxe7!
Svartur gafst upp.
Jú, elskan. Hundurinn
saknar þin.
Víkverii skrifar...
A
Atímum kalda stríðsins skipti
vemlegu máli hveijir gegndu
stöðu bandarísks sendiherra á ís-
landi. Yfirleitt vom það miklir hæfi-
leikamenn enda lagði Bandaríkja-
stjóm áhei-zlu á að senda slíka menn
hingað vegna þeirrar lykilstöðu, sem
Island gegndi á þeim tíma.
Einn hinn fremsti í þeim hópi var
Frederic Irving, sem var sendiherra
Bandaríkjanna hér á þeim tíma, sem
fyrri vinstri stjóm Ólafs Jóhannes-
sonar sat að völdum á árunum 1971-
1974. Sú ríkisstjóm hafði það á
stefnuskrá sinni að segja upp varn-
arsamningnum við Bandaríkin og
senda varnarliðið heim. Þegar af
þeirri ástæðu var mikilvægt hver
væri viðmælandi þeirrar ríkisstjórn-
ar af hálfu bandarískra stjórnvalda.
En til viðbótar kom, að annað
þorskastríðið við Breta stóð á meðan
sú stjórn var við völd, sem hafði m.a.
truflandi áhrif á samskipti íslands
og Atlantshafsbandalagsins.
Bandaríski sendiherrann á Islandi
þurfti því að eiga viðræður við ís-
lenzk stjórnvöld um bæði þessi erf-
iðu deilumál.
xxx
Istuttu máli sagt tókst Frederic
Irving á við þessi erfiðu verkefni
með þeim hætti að báðir höfðu sóma
af, íslendingar og Bandaríkjamenn.
Þegar Irving kom hingað til lands
hafði hann ekki áður gegnt sendi-
herrastarfi fyrir þjóð sína en eftir
starfsferil hans hér var hann skipað-
ur einn af aðstoðarutanríkisráðherr-
um Bandaríkjanna og varð þar með
einn af æðstu yfirmönnum banda-
ríska utanríkisráðuneytisins.
I kjölfarið á því tók hann við emb-
ætti sendiherra Bandaríkjanna á
Jamaica.
Irving tók á þeirri viðkvæmu
stöðu, sem upp var komin í sam-
skiptum íslands og Bandarikjanna
af mikilli festu, hreinskiptni en jafn-
framt varfæmi og hafði ríkan skiln-
ing á stöðu mála í íslenzkum stjórn-
málum.
Hann átti mikil samskipti við Ein-
ar Ágústsson, þáverandi utanríkis-
ráðherra, og Ólaf Jóhannesson, þá-
verandi forsætisráðherra. En hann
var einnig í nánu sambandi við aðra
ráðamenn vinstri stjórnarinnar eins
og t.d. Hannibal Valdimarsson svo
og forystumenn stjórnarandstöð-
unnar á þeim tíma, ekki sízt Geir
Hallgrímsson.
Þeir sem fylgdust náið með störf-
um Frederic Irving á þessum áram
era þeirrar skoðunar, að hann hafi
verið í hópi tveggja til þriggja
fremstu sendimanna Bandaríkja-
stjórnar frá því að lýðveldi var stofn-
að á Islandi.
xxx
Eftir að Irving lét af störfum í
bandarísku utanríkisþjónust-
unni tóku hann og Dorothy kona
hans sér búsetu skammt frá Boston,
þar sem þau hafa búið síðan. Þau
bera í brjósti sterkar tilfinningar til
Islands, komu hingað í heimsókn eft-
ir að starfsferli þeirra hér var lokið
og hafa haldið sambandi við Islend-
inga, sem þau kynntust hér á sínum
tíma og ræktað þá vináttu með ein-
stæðum hætti.
Með þetta í huga er það nánast
óskiljanlegt að þessi mæti og merki
sendiherra skuli hafa orðið fyrir að-
kasti á opinberam vettvangi í fyrra-
dag af hálfu fyrrverandi íslenzks
ráðherra, þar sem ummæli vora látin
falla, sem eiga sér enga stoð í vera-
leikanum.
Frederic Irving var einn öflugasti
bandamaður, sem stuðningsmenn
aðildar Islands að Atlantshafsbanda-
laginu og varnarsamningsins við
Bandaríkin áttu á mjög viðsjárverð-
um tímum í íslenzkum stjórnmálum
og fyrir það ber að færa honum
þakkir, ekki sízt af hálfu þeirra, sem
vora í forystu fyrir Sjálfstæðis-
flokknum í þá tíð.