Morgunblaðið - 26.01.2000, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000 51
FÓLK í FRÉTTUM
Atli Már
Sigurðsson:
„Hvers konav þekk-
ing veitir manni aukið
sjálfstraust ímann-
legum samskiptum.“
Rebekka
Árnadóttir:
„Allt sem gerst
hefur, gerist á
einhvern hátt
aftur."
Hallur Dan
Johansen:
„Við öðlumst ekki
þjóðarvitund fyvr en
við höfum kynnst upp-
runa okkar.“
Guðlaugur
Aðalsteinsson:
„Sögu þekking gerir
okkur kleiit að
komast hjá mistök-
um forfeðranna."
Friðrika Björk
Þorkelsdóttir:
„Það er ekki byrjað nógu
snemma á þvf að reyna að
kveikja áhuga bama á fortíð
sinni ogsögu.“
Jón Sigurðsson
AHYGGJUR Davíðs Oddsson-
ar forsætisráðherra af þekk-
ingarskorti ungu kynslóðar-
innar á sögunni og þeim persónum
sem átt hafa þátt í að móta hana hafa
hrint af stað líflegri umræðu um
stöðu sögukennslunnar. Fræðimenn
og sögukennarar hafa margir hverjir
tekið undir með ráðherra en benda
jafnframt á að áherslur sögukennslu
séu að breytast, frá hinni hefð-
bundnu stjómmálasögu og „stagl-
fræði“ til félagssögunnar, þar sem
frekari áhersla er lögð á skilning á
fortíðinni og þátt almennings í að
skapa hana.
En hvaða skoðanir hefur sjálft
unga fólkið á sögunni og sögukennslu
almennt? Lætur það sig varða hvaða
áherslur eru lagðar við sögukennslu?
Hvort sé mikilvægara; að muna svo-
nefndar „staðreyndir" sögunnar, ár-
töl og nöfn persóna, eða að skilja for-
tíðina og bakgrunn sinn? Kærir það
sig kannski kollótt um allt það sem
þegar hefrn- átt sér stað og horfír
fremur blint fram á við? Fyrir svör-
um urðu þau Rebekka Árnadóttir,
Hallur Dan Johansen, Friðrika
Björk Þorkelsdóttir, Guðlaugur Að-
alsteinsson og Atli Már Sigurðsson
en þau voru gripin af handahófi á
göngum framhaldsskólanna. Hvaða
augum líta þessir krakkar fortíðina
og hina svokölluðu „söguvitund"?
Til þess að skoða nánar skynjun
þeirra vora þau síðan til gamans beð-
in um að nefna þau atriði og einstakl-
inga sem mestan svip settu á 20. öld-
ina.
Sagan hjálpar okkur að
komast hjá mistökum
Hvaða þýðingu teljið þið að sagan
hafí fyrir samtímann?
Öll telja þau að sagan og þekking
á henni sé afar mikilvæg.
Hún sé hjálpartæki okk-
ar til þess að skilja nú-
tímann. „Við reynum að
læra af því sem forfeður
okkar hafa gert,“ segir
Hallur. „Reynsla þeirra
er eitthvað sem hægt er
að nota, t.d. til að komast
hjá því að endurtaka mis-
tökin,“ bætir Guðlaugur
við. I því sambandi bend-
ir Hallur á þann lærdóm
sem við getum dregið af
stríðsátökum sögunnar
og hvernig komast megi
hjá þeim í framtíðinni.
„Það er t.a.m. nauðsyn-
legt að kynna sér hvernig þjóðir
hafa rifið sig upp eftir styrjaldar-
átök, stríðsþjáðar og í molum. Við
ættum t.d. að geta lært af því hversu
vel Þjóðverjar náðu að rétta úr kútn-
um að lokinni síðari heimsstyrjöld-
inni.“ Rebekka lítur svo á að sagan
gangi í hringi: ,jHlt sem gerst hefur,
gerist á einhvern hátt aftur og með
því að þekkja fortíðina getum við
betur búið okkur undir framtíðina.
Fortíðin er líka ástæðan fyrir þvi að
allt er eins og það er í dag.“ „Þjóðar-
vitund er ennfremur nokkuð sem við
öðlumst ekki fyrr en við höfum
kynnst uppruna okkar, komist að því
hvaðan við erum,“ segir Hallur. Atli
Már telur auk þess hvers konar
þekkingu veita manni aukið sjálfs-
traust, meira öryggi til þess að
Reuters
Fall Berlínarmúrsins hafði mikil áhrif á alla heimsbyggðina.
stunda mannleg sam-
skipti.
Kennslubækurnar
æði misjafnar
Hvað fínnst ykkur um
sögukennsluna á grunn-
skóla- og framhalds-
skólastigi?
Þau eru að mestu sam-
mála um að saga sé og
ætti í eðli sínu að vera
skemmtilegt fag. „Það
kemur af sjálfu sér, því
allir eru í eðli sínu for-
vitnir,“ segir Hallur.
Friðriku Björk finnst
saga reyndar hundleiðinleg en við-
urkennir þó fúslega að hún sé afar
mikilvæg og það renni betur og bet-
ur upp fyrir fólki eftir því sem það
eldist og þroskast. Atli Már telur
söguna líka nauðsynlegan hlekk í
menntakeðjunni og er alfarið á móti
því að vægi hennar fari minnkandi.
Guðlaugi finnst heldur ekki rétt að
faginu sé gert mishátt undir höfði
eftir námsbrautum því sagan nýtist
öllum jafnt, óháð því hvort numin
séu viðskipti eða tungumál. Krakk-
arnir segja að sögukennslan sé æði
misjöfn á íslandi og misgóð eftir
skólum, en þau megi ekki gleyma
þeirri staðreynd að öll námsfög
höfða misvel til nemenda. Atli Már
segist t.d. vera almennt mjög sáttur
við hana á meðan Friðriku og
Reuters
Tónlistarmaðurinn Michael
Jackson markaði tímamót f tón-
listarsögu 20. aldarinnar.
Heimsstyrjaldirnar eru meðal þess sem mark sitt setti á öldina.
Rebekku finnst hún einfaldlega leið-
inleg og kenna fyrst og fremst
kennslugögnunum um, þau séu
bæði illa upp sett og þurr aflestrar.
Rebekka tekur fram að það eigi þó
ekki við um allar kennslubækurnar:
„Sumar eru upplýsandi og aðgengi-
legar þar sem ekki er einfaldlega
vaðið úr einu ártalinu í annað, sem
getur verið mjög ruglandi. Það kall-
ar á leiðinlegan utanbókarlærdóm.“
Halli finnst miklar framfarir hafa
orðið í þessum efnum og að nýrri
kennslubækur séu mun betri og að-
gengilegri en hinar eldri. Hallur
heldur áfram: „Kennarar verða að
hafa það í huga að mörgum nem-
endum finnst fagið vera þurrt. Því
mæðir mikið á þeim að gera það líf-
legt.“ Atli Már er því sammála og
telur mjög mikilvægt að sögukenn-
arar séu skemmtilegir. Þar finnst
Guðlaugi hinsvegar pottur vera
brotinn. Kennarar nýti sér ekki
nægilega hversu viðfangsefnið get-
ur verið skemmtilegt, „sem ég
reyndar geri mér fulla grein fyrir
að er mjög vandasamt verk og alls
ekki á færi allra.“ Það tekur Atli
Már heilshugar undir.
Sjálfstæðisbaráttan,
Kraftwerk og Guð-
mundur Steinsson
Mikíl umræða hefur verið að undanförnu um sögu-
vitund ungs fólks og stöðu sögukennslu í landinu.
Skarphéðinn Guðmundsson rakst á nokkra fram-
haldsskólanema og ræddi við þá um tilgang sög-
unnar og það sem mestan svip setti á 20. öldina.
Söguvitund ungu kynslóðarinnar
Utanbókarlærdómur dugir
skammt og drepur áhugann
Hvað með áherslur í sögukennsl-
unni; á að draga úr áherslum á stað-
reyndir og leggja frekar upp úr skiln-
ingi nemenda á fortíðinni?
Öll eru þau sammála um að stað-
reyndimar skipti vissulega miklu
máli og ekki megi hafna þeim alfarið.
Hinsvegar ætti að leggja mun fi'ekari'
áherslu, en hingað til hefur verið
gert, á að nemendur skilji hvers
vegna fór sem fór. „Mér finnst mikil-
vægt að þegar staðreyndir eru reif-
aðar, þá séu þær lagðar skýrt fram
og í réttri tímaröð. Þannig er betur
hægt að átta sig á framvindu sögunn-
ar,“ segir Rebekka. Hún segir jafn-
framt of mikla upptalningu stað-
reynda leiða til páfagaukslærdóms,
sem krakkamir eru allir sammála
um að dugi skammt. „Ég hef ekki
mikið álit á utanbókarlærdómi," seg-**.
ir Atli Már, „ártöl og nöfn skipta
minha máli en skilningur á sögunni,
að maður sé látinn hugsa um fortíð-
ina og taka afstöðu til hennar." Friðr-
ika Björk segir utanbókaraðferðina
allt of fyrirferðarmikla á grunnskól-
astiginu, sem drepi hreinlega áhug-
ann á sögunni strax í fæðingu: „Það
er ekki byijað nógu snemma á því að
reyna að kveikja áhuga bama á fortíð
sinni og sögu.“ Krakkamir telja sam-
spil skipulagðra og upplýsandi náms-
gagna og áhugaaukandi kennslu vera
lykilinn að góðri sögukennslu. Meira
mæði þó á kennaranum en bókunum,
því undir honum sé komið að vekja
áhuga og viðhalda athygli á viðfangs-
efninu. Góður kennari geti blásið lífi í
og bjargað lélegu kennslugagni en^
góð kennslubók geri ekkert gagn ef
kennarinn veldur ekki starfi sínu.
Tækniframfarir og Vigdís
Nefnið mér nokkur atriði sem ykk-
ur Snnst hafa sett svip sinn á 20. öld-
ina:
Rebekka: „Heimsstyijaldimar
fyrri og síðari, þéttbýlisþróunin á ís-
landi og tölvuvæðingin.“
Hallur: „Sjálfstæðisbaráttan og
lýðveldisstofnunin, kalda stríðið,
kjamorkusprengjan og tölvur.“
Friðrika: „Fyrst og fremst tækn-
iframfarir."
Guðlaugur: „Tæknivæðingin í upp-
hafi aldarinnar og þær uppfinningar
sem íylgdu henni, fyrri og síðari
heimstyrjaldirnar, Berlínarmúrinn
og upplýsingabyltingin."
Atli Már: „Stríð almennt og þá
helst fyrri og síðari heimsstyijöldin,
bættar samgöngur, tækniframfarir
og geimferðir."
Nefnið mér að lokum þá einstakl-
inga sem sett hafa mestan svip á 20.
öldina:
Rebekka: „Michael Jackson, Vig-
dís Finnbogadóttir, Halldór Lax-
ness; Elton John og Stephen King.“
Hallur: „Hitler, Roosevelt, Lenin,
Einstein og fransld fomleifafræðing- t
urinn Jean-Frangois Champollion.“
Friðrika: „Vigdís Finnbogadóttir,
Hitler, Saddam Hussein, Guðmund-
ur Steinsson og móðir Teresa.“
Guðlaugur: „Vigdís Finnbogadótt-
ir, Hitler, Kraftwerk, Bill Gates og
Einstein."
Atli Már: „Hitler, Einstein, Hall- .
dór Laxness, Lenín og Bob Dylan.“