Morgunblaðið - 26.01.2000, Síða 54
54 MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
.
I tilefni af því að komin er út símaskrá Felags
framhaldsskólanema á tölvutæku formi Eigðu við mig, býður
mbl.is upp á skemmtilegan leik.
Svarið léttum spurningum og hægt er að vinna eitt af eftirtöldu:
• 50.000 kr. inn á reikningi hjá S24
• 28" Daewoo sjónvarp frá BT
• 3 stk. Nokia 3210 sími
frá Símanum GSM
• Lyra MP3 spilari frá BT
• Playstation leikjatölva frá BT
• 50 miða á Djöflana
í Borgarleikhúsinu
• 200 miða á forsýningu Toy Story 2
• 25 stk. af bókinni Heimur
kvikmyndanna, ritstýrt af
Guðna Elíssyni
• Ýmsir smávinningar
Eigðu við mig er símaskrá Félags framhaldsskólanema á íslandi á tölvu
tæku formi. Auk símaskrárinnar er að finna lög með hljómsveitunum
Landi og sonum, Jagúar og Sigur Rós. Einnig er þar að finna
margmiðlunarkynningar frá fyrirtækjunum sem að diskinum standa.
0mbl.is
-ALLTAf= eiTTH\TATJ HÝTT~
FÓLK í FRÉTTUM
Reuters
Freddie Prinze Jr fer með annað aðalhlutverkið í „Down to You“, en hér
sést hann í félagi við leikkonuna Brandy sem lék með honum í „Ég veit
enn hvað þú gerðir síðasta sumar“.
Táningamynd
vinsælust
vestanhafs
Reuters
Denzel Washington í hlutverki
hnefaleikarans Ruben „Hurri-
cane“ Carter sem er þriðja vinsæl-
asta myndin vestanhafs í dag.
UM SÍÐUSTU helgi var táninga-
myndin „Down to You“ mest sótta
myndin vestanhafs og vék hún
rapparanum Ice Cube úr sessi, en
mynd hans, „Next Friday“, sem
einnig er sýnd í Reykjavík um
þessar mundir, var í efsta sætinu
fyrir viku. „Down to You“ skartar
unglingastirninu Freddie Prinze
Jr. og Juliu Stiles í aðalhlutverk-
um, en myndin var frumsýnd vest-
anhafs í vikunni. I þriðja sætinu er
síðan myndin „The Hurricane",
þar sem Denzel Washington fer
með hlutverk þekkts hnefaleika-
kappa, en Washington hlaut ein-
mitt Golden Globe-verðlaun á
sunnudaginn fyrir túlkun sína í
hlutverkinu. Litla músin Stúart
fylgir fast í kjölfarið. Tvær aðrar
nýjar myndir eru á listanum vest-
anhafs, þær „Play It to the Bone“,
hnefaleikamynd með Woody Har-
relson og Antonio Banderas, og
nýjasta mynd Alans Parker, „Ang-
ela’s Ashes“.
Rodman í sjónvarpið
NBA-STJARNAN, Dennis Rodman
mun leika ráðagóðan mann með
byssukúlu í höfðinu er hann geng-
ur til liðs við sjónvarpsþættina The
Consultants sem verða á dagskrá
næsta haust vestanhafs. Fleiri
frægir íþrótt akappar munu koma
við sögu og er Rena Mero fótbolta-
kona, Jeff Speakman karate-
meistari og fyrrum þungarvigtar-
meistarinn Jeremy Williams meðal
leikenda. Þættimir The Consult-
ants snúast um hóp rannsóknar-
manna sem eru snjallir bardaga-
og stríðsmenn. Þættirnir verða
teknir upp í Las Vegas.
„Við höfum þegar fengið frá-
bæran hóp leikara til liðs við okk-
ur og það hefur góð áhrif,“ sagði
Alan Mruvka framleiðandi þátt-
anna. „Krakkar em alveg br-jál-
aðir í Rodman, hann er gríðar-
lega vinsæll. Hann hefur allt sem
þarf til að bera til að verða góð
hasarmyndahetja."
Rodman er fyrrverandi leik-
maður körfuknattleiksliðanna
Chicago Bulls og L.A. Lakers en í
þáttunum mun hann leika snjalian
stríðssérfræðing sem er með byssu-
kúlu í höfðinu og það kemur niður
á skapinu í honum en einnig hafa
skynfæri hansmagnast til muna.
„Við vildum búa til skemmtilegt
hlutverk handa Dennis,“ segir
Michael Berk, annar framleiðandi.
„Þetta er eitthvað sem hann hefur
Reuters
aldrei fengist við áður og þess
vegna er hann yfir sig hrifinn. Það
er gaman fyrir okkur því það er
frábært að njóta nærveru hans.“
Rodman er ekki með öllu ókunn-
ur leiklistinni því hann hefur leikið
í kvikmyndunum Simon Sez og
Double Team auk þess sem hann
hefur tekið að sér gestahlutverk í
nokkrum sjónvarpsþáttum.