Morgunblaðið - 26.01.2000, Side 60
Heimavörn
&
Sími: 580 7000
ffgtuMiifeife
Drögum næst
10. febrúar
HAPPDRÆTTI
fcOft HÁSKÓLA ÍSL
vænlegast til vinnini
SLANDS
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVÍK, SÍMI6691100, SÍMBRÉFS691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIDSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.1S, AKUREYRI: KA UPANGSSTRÆTII MIÐYIKUDAGUR 26. JANÚAR 2000 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK.
Hlegið
dátt í
^ Kópavogi
GLEÐIN réði svo sannarlega ríkj-
um á samkomu Hláturklúbbsins í
Gullsmára, félagsheimili eldri
borgara í Kópavogi, í gærkvöldi.
Klúbburinn, sem stofnaður var
fyrir um ári og opinn er öllum
eldri borgurum í Kópavogi, hittist
ætíð siðasta þriðjudagskvöld í
mánuði og er þá jafnan slegiö á
létta strengi og hlegið dátt.
Gærkvöldið var engin undan-
tekning; gamanyrðin í formi
sagna af kynlegum kvistum elleg-
ar vfsna af ýmsu tagi fuku og allir
skemmtu sér konunglega
Sá er einmitt tilgangur félags-
skaparins, því maður er manns
^gaman og óljúgfróðir menn hafa
löngum sagt að hláturinn lengi
lífið. Víst er að margir vildu þá
Lilju kveðið hafa.
I Gleði /31
Morgunblaðið/Sverrir
Félög Verkamannasambandsins leggja fram kröfur í komandi viðræðum
Krafa um að lágmarkslaun
verði 90-110 þúsund krónur
VERKAMANNASAMBANDIÐ og
félög verkafólks á höfuðborgarsvæð-
inu, sem mynda Flóabandalagið,
lögðu fram kröfugerðir í komandi
kjaraviðræðum í gær. VMSÍ krefst
þess að laun hækki árlega um 15.000
kr. og lágmarkslaun verði 110 þúsund
í lok samningstímabilsins. Flóa-
bandalagið krefst þess að laun hækki
um 5% og lágmarkslaun verði 91 þús-
und í lok samningstímans.
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, sagði að lokn-
um samningafundum í gær að kröfur
Verkamannasambandsins væru al-
gerlega óraunhæfar. Þær byggðust á
grunni sem ekki gæti leitt til niður-
stöðu. Kröfur Flóabandalagsins sam-
rýmdust heldur ekki þeim markmið-
um sem vinnuveitendur hefðu sett
sér, en þær væru hins vegar annars
eðlis og myndu verða ræddar frekar á
fundi hjá sáttasemjara nk. föstudag.
Kreíjast hækkunar á
greiðslum í lífeyrissjóð
VMSÍ krefst þess að laun hækki
árlega um 15.000 kr. Þar að auki
krefst það þess að lífeyrisgjald vinnu-
veitenda hækki úr 6% í 11,5% og
vinnuveitendur greiði 0,30% í starfs-
menntasjóð.
Flóabandalagið krefst þess að
lægstu laun hækki um 30% á samn-
ingstímanum en almenn launahækk-
un verði 15,76%. Bandalagið krefst
2% hækkunar á framlagi vinnuveit-
enda í lífeyrissjóð og að greiðslur
vinnuveitenda í starfsmannasjóð
verði 0,25%.
í báðum kröfugerðunum er farið
fram á tryggingaákvæði í þeim til-
gangi að laun verkafólks dragist ekki
aftur úr öðrum launum. Báðir aðilar
bjóðast til að gera samninga til
þriggja ára. í kröfugerð Flóabanda-
lagsins segir að bandalagið sé tilbúið
að leggja sitt af mörkum, ef tryggt
þykir að framlagið leiði til lækkunar
verðbólgu. Reynsla síðustu þriggja
ára sýni hins vegar að framlag verka-
fólks dugi ekki, eitt og sér, til að halda
niðri verðbólgu. Aðrir verði einnig að
leggja sig fram eigi að takast að halda
stöðugleika í efnahagsmálum.
Formannafundur VMSÍ sam-
þykkti í fyrradag að stofna aðgerða-
hóp og er miðað við að hann grípi til
aðgerða eigi síðar en 10. mars hafi
samningar ekki tekist. Engin formleg
samþykkt hefur verið gerð af hálfu
Flóabandalagsins í þessa veru.
Grunur um hitasótt í
veturgömlum trippum
GRUNUR leikur á um að hitasótt
*sé komin upp í veturgömlum tripp-
um á tveim bæjum í Arnessýslu.
Ekki verður gripið til sértækra að-
gerða ef grunurinn reynist réttur
vegna þess að ekki er hægt að
stöðva útbreiðslu hitasóttarinnar
og ekki síður vegna þess að um er
að ræða unghross og þar af leið-
andi hefur sóttin ekki áhrif á
hrossaútflutning.
Að sögn Sigríðar Björnsdóttur,
dýralæknis hrossasjúkdóma á Hól-
um í Hjaltadal, vaknaði grunur um
að um hitasótt væri að ræða þegar
rannsóknir leiddu í ljós að útilokað
. . f í 0 I)
Í I |ll>W
Lifandi
morgunþáttur!
• fjórir fréttatímar
• opin dagskrá
• virka daga kl. 7-9
væri að trippin hefðu veikst af
salmonellu eða votheysveiki. Ein-
kennin sem trippin sýna eru hiti og
lystarleysi en ekkert smit hefur
enn fundist að sögn Sigríðar. Hún
segir að ekki sé ólíklegt að trippin
hafi á sínum tíma fengið mótefni
gegn hitasóttinni margnefndu með
fyrstu móðurmjólkinni sem veitir
tímabundið ónæmi en þegar það
hafi gengið til þurrðar í líkama
þeirra hafi þeim ekki tekist að
mynda mótefni af sjálfsdáðum og
því sé hugsanlegt að hitasóttin
herji á þau nú. Ekkert fullorðið
hross á bæjunum hefur sýnt sömu
einkenni og trippin og segir Sigríð-
ur að menn séu rólegir yfir fregn-
unum.
Hitasóttin margnefnda stakk sér
niður á höfuðborgarsvæðinu í febr-
úar árið 1998 og breiddist út um
landið á næstu mánuðum með þeim
afleiðingum að útflutningsbann var
ítrekað sett á hross eftir því sem
svæði landsins sýktust eitt af öðru.
KennslumiðstQð
sett á fót í HI
STEFNT er að því að koma á fót
kennslumiðstöð við Háskóla Islands
nú á vormisseri. Hún hefur það hlut-
verk að veita kennurum skólans fag-
lega aðstoð við að sinna kennslunni
sem best. Kom þetta fram á kennslu-
málaráðstefnu HÍ þar sem kennsla,
þverfaglegt nám og fjármál skólans
voru til umræðu.
Stofnun kennslumiðstöðvarinnar
kemur til í kjölfar samnings milli
menntamálaráðuneytisins og HÍ um
kennslu en í samningum er tekið
fram að skólinn muni tryggja gæði
kennslu og náms. Hefur ráðuneytið
veitt skólanum styrk til þess að efla
þekkingu kennara sinna á upplýs-
ingatækni og verður hann notaður til
að koma kennslumiðstöðinni af stað.
Kennslumiðstöðin mun heyra undir
kennslusvið og gert er ráð fyrir að
hún verði faglega tengd uppeldis- og
menntunarfræði í félagsvísindadeild.
Fram kom að fram til þessa hefði
kennsluhlutverkið ekki haft sama
vægi og rannsóknir til dæmis hvað
varðaði möguleika á stöðuhækkun-
um innan skólans. Sagði Guðrún
Geirsdóttir lektor nauðsynlegt að
breyta þessu viðhorfi. Þá kom fram
að áhugi fyrir þverfaglegu nám færi
vaxandi bæði meðal nemenda skól-
ans og atvinnurekenda sem óskuðu í
meira mæli en áður eftir starfsfólki
með víðtæka og fjölbreytta mennt-
I Aukinn áhugi/30
Landssíminn eykur
afköst GSM-kerfísins
LANDSSÍMI íslands hf. mun í
dag tilkynna um stórfellda upp-
byggingu á GSM-símakerfinu sem
ráðist verður í á næstunni. Er þar
bæði um að ræða aukna afkasta-
getu og stækkun dreifisvæðisins.
Samið hefur verið við sænska
fyrirtækið Ericsson um kaup á
margs konar búnaði vegna þess-
arar uppbyggingar. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins er
verð hans nokkuð á annan milljarð
króna.
Framkvæmdir við uppbygging-
una hefjast fljótlega en hún nær
nánast um landið allt.