Morgunblaðið - 30.01.2000, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 23/1-29/1
► VIÐ næstu ferð banda-
rísku geimskutlunnar er
Keflavíkurflugvöllur einn
af 10 varavöllum hennar.
Leið skutlunnar út úr
gufuhvolfinu liggur um
norðurhvel á fyrstu mínút,-
unum og því þarf hún
varavelli á því svæði ef
eitthvað bregður útaf.
Varnarliðsmenn sátu nám-
skeið vegna þessa undir-
búnings.
► IRVING Oil, kanadískt
olíufyrirtæki, hefur á ný
sótt um aðstöðu hérlendis
fyrir starfsemi sína. Hafa
bæjaryfirvöld Kópavogs
fengið erindi um lóð við
Kópavogshöfn. Fyrirtækið
ráðgerir einnig innflutning
á smurolíu í samvinnu við
Austnes.
► DAGSKRÁ menningar-
ársins 2000 var sett í
Reykjavík á laugardag. Á
annað hundrað viðburðir
voru á dagskrá um helg-
ina, tónleikar, listsýningar,
ljósmyndasýningar og fjöl-
margt annað.
► LANDLÆKNIR hefur
skipað starfshóp til að
undirbúa hópleit að ristil-
krabbameini. Segir hann
kostnað við slíka leit ekki
mikinn miðað við að hægt
verði að fækka tilfellum.
► LOKIÐ er vinnu við
deiliskipulag að nýju íbúð-
arhverfi í Eyjafjarðarsveit.
Er markmið sveitarfélags-
ins að laða að fleiri íbúa.
Krefjast 90-110
þúsund króna
lágmarkslauna
FÉLÖG Verkamannasambands Is-
lands lögðu fram kröfugerð sína á
þriðjudag þar sem krafist er 15 þús-
und króna hækkunar á launum árlega
út samningstímann og að lágmar-
kslaun verði þá 110 þúsund krónur. í
kröfugerð Flóabandalagsins, nokk-
urra verkalýðsfélaga á höfuðborgar-
svæðinu, er krafist 91 þúsund króna
lágmarkslauna.
Bændur fá hlut
í mjólkursamlagi
BÆNDUR í samvinnufélagi mjólk-
urframleiðenda í Eyjafirði og Suður-
Þingeyjarsýslu munu eignast allt að
34% hlutafjár í félagi sem yfirtekur
rekstur og eignir mjólkursamlaganna
á Akureyri sem eru á Húsavík.
Skuldbinda bændur sig jafnframt til
að leggja alla mjólk í samlagið í fimm
Ný bflastæðahús
FYRIRHUGAÐ er að reisa bíla-
stæðahús í Reykjavík, í miðborginni
og við Hlemm sem kostað geta kring-
um tvo milljarða króna. Einnig eru
uppi hugmyndir um að breyta gjald-
skrá gjaldskyldra bflastæða í mið-
borginni og verða gjöld við Laugaveg
og í miðborginni hækkuð verulega.
Rekstur í samræmi
við tekjur
TILLÖGUR um rekstraráætlun
stóru sjúkrahúsanna í Reykjavík eru í
smíðum en forstjóri þeirra segir að
reksturinn verði að vera í samræmi
við tekjur. Gert er ráð fyrir að þrengja
þurfi til dæmis að starfsemi skurð-
deilda, öldrunardeilda og geðdeilda.
Rússar auka
vopnakaup
LITIÐ miðar í sókn rússneska
hersins gegn skæruliðum Tsjetsjena í
Grosní og eru margir farnir að efast
um, að bardagaaðferðir hans dugi til
að ná borginni. Talið er, að nokkrar
þúsundir skæruliða séu þar til varnar
en ekki er vitað hve margir óbreyttir
borgarar eru þar enn. Eru nefndar
tölur frá 10.000 og upp í 40.000 en víst
þykir, að fjöldi óbreyttra borgara,
jafnvel margar þúsundir manna, hafi
týnt lífi í árásum á borgina. Einn for-
ingi skæruliða, Khattab, hefur gefið í
skyn, að þeir muni á næstunni grípa
til hryðjuverka í Rússlandi og af þeim
sökum hefur viðbúnaður lögreglu ver-
ið aukinn um landið allt. Þá hefur
Rússlandsstjóm samþykkt að auka
kaup á hefðbundnum vopnum um 50%
á þessu ári. Vladímír Pútín, settur
forseti Rússlands, segir þó, að kaupin
tengist ekki Tsjetsjníustríðinu.
LaiiPft í vfirhevrslur
yfir Kohl
RANNSÓKNANEFND þýska
þingsins, sem er að kanna fjármál
Kristilega demókrataflokksins, CDU,
mun ekki kalla Helmut Kohl, fyrrver-
andi kanslara, fyrir nefndina fyrr en
að nokkrum mánuðum liðnum. Verð-
ur Horst Weyrauch, fyrrverandi
skattaráðgjafi CDU, yfirheyrður
fyrst en tillaga kristilegra demókrata
um að byrjað yrði á Kohl var felld.
Segir -CDU það sýna, að hinir flokk-
arnir hafi meiri áhuga á að klekkja á
CDU en komast að því hvort mútur
hafi haft áhrif á ákvarðanir Kohl-
stjórnarinnar. Tölur yfir það fé, sem
flokksdeildir CDU komu fyrir á leyn-
ireikningum, hækka stöðugt en einnig
er hafin rannsókn á ásökunum um, að
nokkrir frammámenn í Jafnaðar-
mannaflokknum hafi þegið greiða af
stórfyrirtækjum.
► ÞEIR A1 Gore, varafor-
seti Bandaríkjanna, og
George W. Bush, ríkisstjóri
í Texas, sigruðu örugglega í
fyrstu forkosningum banda-
rísku stjórnmálaflokkanna,
demókrata og repúblikana,
í Iowa sl. mánudag. Á
þriðjudag verða for-
kosningar í New Hampshire
og benda skoðanakannanir
til, að Gore muni einnig þar
sigra andstæðing sinn, Bill
Bradley. Kannanir sýna
hins vegar, að John McCain,
helsti andstæðingur Bush,
standi uppi sem sigurvegari
í New Hampshire.
► BANDALAG flokka und-
ir forystu ísraelska Verka-
mannaflokksins hefur verið
sektað og gert að greiða
234 millj. ísl. kr. fyrir að
brjóta lög um fjármögnun
stjórnmálaflokka. Ehud
Barak, forsætisráðherra
ísraels, neitar allri vitn-
eskju um þetta mál en bönd-
in berast helst að þremur
frammámönnum í Verka-
mannaflokknum. Er einn
þeirra mágur Baraks. Þá er
áfram unnið að rannsókn á
hugsanlegum skatta-
lagabrotum Ezer Weiz-
mans, forseta Israels.
► GÖRAN Persson, for-
sætisráðherra Svíþjóðar,
varaði við andlýðræðisleg-
um samtökum á borð við
nýnasista er hann setti ráð-
stefnu um helförina gegn
gyðingum, sem hófst í
Stokkhólmi á miðvikudag.
Sitja hana um 600 manns,
þar á meðal Davíð Oddsson
forsætisráðherra.
Skipulag Náttúruverndarráðs rætt á Náttúruverndarþingi
Heitar umræður um sam-
búð ráðsins og ráðherra
HEITAR umræður spunnust um
átök innan Náttúruvemdarráðs og
sambúð ráðsins við umhverfisráð-
herra á öðrum degi Náttúruverndar-
þingsígær.
Dr. Ami Bragason flutti yfirlitser-
indi um stöðu náttúruverndar og
sagði að hlutverk Náttúmverndar
ríkisins væri m.a. að veita stjórn-
völdum aðhald jafnhliða því að fylgja
eftir stefnumörkun stjórnvalda í
málaflokknum. Árangur í náttúm-
verndarmálum fengist einkum með
metnaðarfullri stefnumótun stjórn-
valda, aukinni fræðslu og gagnrýnni
umræðu.
Að loknu yfirlitserindi Árna áttu
að hefjast umræður um erindi hans,
en á fundarmönnum brann annað
málefni. Guðmundur Páll Ólafsson
náttúmfræðingur, var framarlega á
mælendaskrá og deildi á Siv Frið-
leifsdóttur umhverfisráðherra fyrir
sérkennilega umræðu um Náttúm-
vemdarráð í Ríkisútvarpinu á föstu-
dag. Sagði hann að ráðherra ætti að
lesa plögg sín betur áður en hún
fjallaði um ófagleg vinnubrögð í
Náttúruverndarráði.
Seta í Náttúruverndar-
ráði oft erfíð
„Ég viðurkenni það fúslega að
seta í Náttúmverndarráði var oft á
tíðum erfið, en þetta er sú seta sem
hefur gefið mér og mörgum mjög
mikið. Við deildum ekki um það
hvað við ættum að gera heldur að-
ferðir," sagði Guðmundur og endur-
speglaði þar viðhorf annama sem
tóku til máls.
Guðmundur sakaði umhverfis-
ráðherra um að hafa með yfirlýs-
ingum sínum í Ríkisútvarpinu gert
lítið úr náttúmfræðiþekkingu hans
og annarra, misvirt eigið starf og
traðkað á mannréttindum að auki.
„Mér þykir það hart að ráðherra
skuli ekki skilja það að við getum
barist af fullum krafti án þess að
það sé metorðastigi í pólitískum
fiokkslínum," sagði Guðmundur og
sagði það sjálfsögð lýðréttindi hans
og annarra að stofna frjáls náttúm-
vemdarsamtök.
Friðrik Dagur Arnarson og Ólöf
Guðný Valdimarsdóttir, fráfarandi
formaður Náttúverndar ríkisins
lýstu einnig yfir vanþóknun sinni á
framgöngu ráðherra í útvarpi og
varð Ólöfu Guðnýju einnig rætt um
starfið innan Náttúraverndarráðs.
„Það verður tekist á áfram í
Náttúraverndarráði, það verður
erfitt að vera formaður þess,“ sagði
Ólöf og lýsti þeirri skoðun sinni að
Náttúraverndarráð ætti að vera
óbreytt og að það þyrfti að styrkja
og styðja. „Þar á umhverfisráðherra
að vera í fararbroddi," sagði Ólöf.
Þóra Ellen Þórhallsdóttir próf-
essor sagði að mikið hefði verið rætt
um deilur innan Náttúruverndar-
ráðs og stirða sambúð með umhverf-
isráðuneytinu og sagði rót vandans
vera þá að ráðuneytið hefði ekki ver-
ið í forystuhlutverki í umhverfismál-
um. Vandinn fælist ekki í vinnu-
brögðum Náttúmverndarráðs þótt
vissulega mætti bæta þau. Ráðið
hefði skilað frábæm starfi sem væri
þakkarvert.
Siv Friðleifsdóttir vísaði því á bug
að hún hefði gripið inn í kosningar í
Náttúmverndarráð í útvarpsviðtali
og skoraði á gagnrýnendur sína að fá
útskrift af ummælum sínum í RÚV í
umræddu viðtali.
„Ég lýsti þeim þremur leiðum sem
koma til greina varðandi samsetn-
ingu Náttúruverndarráðs. Síðan
sagði ég hvað formaðurinn Ólöf Guð-
ný Valdimarsdóttir hafði sagt hér,
þar sem hún velti því upp hvort það
væri eðlilegt að þeir sem væra virkir
í frjálsum félagasamtökum væm
þarna innanborðs. Ég var því ein-
ungis að lýsa umræðunni hér,“ sagði
Siv og sagði það alveg Ijóst að það
væm þrír einstaklingar í Náttúm-
verndarráði sem hefðu verið mjög
virkir í umhverfsverndarsamtökum.
Alþingi kemur saman á ný á þriðjudag eftir jólafrí
Ymis hitamál væntanlega
á dagskrá fyrstu dagana
ALÞINGI kemur saman að nýju
eftir jólafrf næstkomandi þriðjudag
og verða störf þingsins með hefð-
bundnum hætti fyrstu dagana þótt
ljóst þyki að ýmis hitamál muni
bera á góma strax í upphafi. Hall-
dór Blöndal, forseti Alþingis, mun
eiga fund með þingflokksformönn-
um á mánudag og verður þar vænt-
anlega gengið endanlega frá dag-
skrá vikunnar.
Rannveig Guðmundsdóttir, for-
maður þingflokks Samfylkingar,
staðfesti í samtali við Morgunblaðið
að Samfylkingin færi fram á ut-
andagskrárumræður um Vatneyr-
ardóminn svokallaða. Sagði hún
einnig að ýmis önnur mál sem
tengdust sjávarútveginum biðu um-
ræðu og að því mætti gera ráð fyrir
að sjávarútvegsmálin og umræður
um fiskveiðistjórnunarkerfið yrðu
áberandi í upphafi þings.
Vinstrihreyfingin - grænt fram-
boð fer hinn bóginn fram á ut-
andagskrárumræðu um veitingu
rekstrarleyfis gagnagmnns á heil-
brigðissviði og virkjunar- og álvers-
mál á Austurlandi, að sögn Steing-
ríms J. Sigfússonar, formanns VG.
Ýmis stjórnarfrumvörp verða
jafnframt væntanlega lögð fram
eða á sett á dagskrá, t.d. frumvarp
félagsmálaráðherra um jafna stöðu
karla og kvenna, og samræmd lög
um félagsþjónustu sveitarfélaga og
málefni fatlaðra. Þykir ennfremur
líklegt að umhverfi efnahagsmála í
aðdraganda kjarasamninga verði
rætt á allra næstu vikum.
Einn nýr þingmaður sest á Al-
þingi á þriðjudag en það er Jónína
FLESTAR VERSLANIR
fró kl. 13.00 - 17.00
STJÖRNUTORG
skyndibita- og veitingasvæ&ib
frá kl. 11.00-21.00
alla daga.
KriKat
C*\C<K
Þ H R 5 E MI /il J H R T H Ð 5 L Œ R
PPLÝSINBHSlMI 5 8 B 7 7 B 8 SKRiFSTDFUSlMI SEB 921
Bjartmarz sem kemur inn fyrir
Framsóknarflokkinn í Reykjavík í
stað Finns Ingólfssonar, fyrrver-
andi iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
sem tekið hefur við starfi seðlab-
ankastjóra. Þarf hún að undirrita
drengskaparheit enda hefur hún
ekki tekið sæti á Alþingi áður.
Tveir þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins koma jafnframt aftur til
starfa, þau Þorgerður K. Gunnar-
sdóttir og Árni Ragnar Árnason.
------------F^A-------
Kristnihátíð
í Garðabæ
FYRSTA hátíðin í Kjalarnes-
prófastsdæmi vegna þúsund ára
kristni á Islandi verður haldin í dag í
Garðabæ. Hefst hún með messu í
íþróttahúsinu Ásgarði kl. 11.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
flytur ávarp og biskup Islands, Karl
Sigurbjörnsson, prédikar.
Klukkan 14 hefst menningardag-
skrá í Vídalínskirkju og Kirkjuhvoli.
Verður m.a. lesið úr verkum Jóns
Vídalíns biskups, Matthías Johann-
essen les úr eigin verkum, Elsa
Waage syngur úr Biblíuljóðum
Dvoaks og fjölmörg önnur dans- og
tónlistaratriði verða flutt.
Dagskránni lýkur með gospeltón-
leikum kl. 20 í Vídalínskirkju.
----------------------
Brotist inn í
áhaldahús
BROTIST var inn í áhaldahús á
Seltjarnarnesi í fyrrinótt og unnar
talsverðar skemmdir.
Samkvæmt. upplýsingum lög-
reglu í gær var ekki búið að upplýsa
hver eða hverjir þar vom að verki.
Gluggai- vom spenntir upp og dyr
brotnar og stolið höggborvél, bíl-
dekkjum og álfelgum.