Morgunblaðið - 30.01.2000, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 2000 49
BRÉF TIL BLAÐSINS
- öld breytinga
Ný öld
Frá Birnu Smith:
ALLIR helstu spámenn sögunnar
hafa spáð miklum breytingum á
þessari nýju öld, að það verði sannar
framfarir í öllum málum sem verða
mannkyninu og jörðinni til blessun-
ar. í Biblíunni er einnig talað um
breytingar, þar er talað um 1000 ára
ríkið, ríki fríðar og ljóss. Spurningin
er hinsvegar: Hvernig viljum við
hafa hina nýju öld, viljum við breyt-
ingar?
Pað verða að sjálfsögðu engar
breytingar, nema mannkynið sjálft
þrái breytingar og knýi það fram
með vilja og krafti. En hvemig eig-
um við að vita hvað við viljum? Við
sem erum alin upp undir vængjum
blekkingar, mikillar neikvæðni, trú-
leysi, vonleysi og samlagað okkur
svo að hinum firrta veruleika nútím-
ans að við vitum ekki einu sinni hver
við sjálf erum né hvert við stefnum.
Við erum orðin svo sljó að við látum
fjölmiðlana mata okkur á hverri lyg-
inni á fætur annarri og hættum að
hugsa sjálfstætt.
Viljum við breytingar?
Já, við öpum upp eftir hvert öðru
að við vildum óska að það ríkti friður
í heiminum og að enginn þyrfti að
svelta og þá verða allir hamingju-
samir. En nú ríkir bæði friður og vel-
megun á íslandi í dag og samt er
langt frá því að hér búi hamingjusöm
þjóð. Ég held að það sé sama hversu
háværar raddir lækna um að heil-
brigði hafi aukist og að lækningar og
lyf hafi fundist við hinum og þessum
sjúkdómum, þá komumst við ekki
hjá því að horfa uppá þær uggvæn-
legu staðreyndir að alvarlegir sjúk-
dómar fara ört vaxandi og að ungt
fólk deyr í blóma lífsins.
Eigum við að sætta okkur við það
að sjálfsmorðstilfelli og þunglyndi sé
í takt við nágrannaþjóðir okkar og að
við eigum bara að bryðja Prozac og
þá sé okkur borgið? Eg held að það
sé kominn tími til að staldra við og
íhuga hvert við stefnum. Ef við vær-
um á réttri braut, ættu sjúkdómar að
vera á undanhaldi og útgjöld til heil-
brigðismála að lækka. En reyndin er
önnur, sjúkdómar og útgjöld aukast
jafnt og þétt. Er ekki kominn tími til
að hætta að láta blekkjast og fara að
knýja fram breytingar? Sá sem eng-
ar breytingar vill heldur áfram að
hugsa eins og hann hefur alltaf hugs-
að og heldur þá áfram að fá það sem
hann hefur alltaf fengið. Þeir sem
hinsvegar vilja breytingar verða að
gera sér grein fyrir því að breyting-
arnar verða fyrst að gerast hjá hon-
um sjálfum, bæði í hugsun og verki.
Hvað óttumst við?
Vissulega erum við ekkert annað
en það sem fyrir okkur var haft og
við ólumst upp við. Ólumst við upp
við að trúa á okkur sjálf? Trúa á
sköpunarkraft okkar? Eða kraft
hugans? Lærðum við að nálgast okk-
ur sjálf og þekkja okkar dýpstu vit-
und? Lærðum við að trúa og treysta
skapara okkar? Nei, við erum ein-
faldlega trúleysingjar og okkur
vantar alla tengingu við Guð. Okkur
var aðeins kennt að leita til hans í
neyð, og óttast hegningu hans.
Málið er að án bænarinnar og
trausts á Guði og okkur sjálfum,
reikum við eins og vængstýfðir fugl-
ar sem geta ekki hafið sig til flugs.
Okkur var kennt að við ættum ekki
að gráta eða að vera með tepruskap,
þess vegna lokum við á tilfinningar
okkar og flýjum þær með því að vera
að aðhafast eitthvað allan daginn, frá
því að við vöknum og þangað til við
sofnum og jafnvel deyfum huga okk-
ar og tilfinningar með geðlyfjum,
víni eða öðrum vímuefnum. Því ótt-
umst við hugkyrrð? Hvað erum við
að flýja? Okkur sjálf? Tifinningar
okkar? Óuppgerð mál? Sorgina, eða
kannski vonbrigðin? Vissulega leitar
okkar innri líðan upp á yfirborðið, ef
við kyrrum hugann. Málið er að það
er í lagi að finna til, innibyrgð vanlíð-
an getur valdið bæði andlegum og
líkamlegum sjúkdómum. Við verðum
að hætta þessum flótta, og hætta að
fylgja straumnum í trúleysi og von-
leysi.
Maðurinn er skapaður til þess að
græða sig sjálfur, ekkert er honum
um megn. Við verðum að hysja okk-
ur upp úr aldagömlum hjólförum og
marka ný með trúna að leiðarljósi.
Trúna á okkur sjálf fyrst og fremst,
kraft okkar og viljastyrk. Höfum að
lokum í huga að Guð hefur aldrei yf-
irgefið okkur, það erum frekar við
sem höfum yfirgefið hann.
BIRNA SMITH,
Höfða, Mosfellsbæ.
Viðskiptavinir athuqið:
Á morgun mánudag verður
L0KAÐ
vegna undirbúnings fyrir útsölu.
w
Utsalan byrjar þriðjudaginn
1. febrúar kl. 9.
SKOUERSLUN
KÚPAVOGS
HAMRAB0RG 3 • SÍMI 554 1754
ÚTSAUMUR
Skemmtilegur og skapandi
Nýi vörulistinn frá Margaretha er kominn.
Pantið ókeypis eintak.
Sími 533 5444 Fax 533 5445
Netfang: handavinna@margaretha.is
Hringið í síma 533 5444 og pantið ókeypis eintak.
Vörulistinn hefur að geyma handavinnu í miklu úrvali
og við allra hæfi, bæði fyrir byrjendur og fagfólk.
Svarseðiií
Já takk! Sendið már póstlistann - mér að KOSTNAÐARLAUSU!
Nafn____________________________________________________
Heimilisfang____________________________________________
Póstnúmer-----------------------------------------------
Margaretha, Kringiunni 7,103 Reykjavík, sími 533 5444
NÝJ/llÍ£) UfA KRINGLUBiu BfÓHÖLLI^