Morgunblaðið - 30.01.2000, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 2000 53
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Tómasarmessa
í Breiðholtskirkju
TÓMASARMESSAN hefur vakið
athygli víða um lönd á undanförnum
árum og eru slíkar messur jafnan
fjölsóttar og hefur svo einnig verið
hér. Messan hefur vakið mikla
ánægju þeirra sem þátt hafa tekið og
virðist hafa unnið sér fastan sess í
kirkjulífi borgarinnar. Eins og áður
er messan haldin í Breiðholtskirkju í
Mjódd síðasta sunnudag í mánuði.
Framkvæmdaaðilar að þessu messu-
haldi eru Kristilega skólahreyfingin,
Félag guðfræðinema, Breiðholts-
kirkja og stór hópur presta og
djákna. Það er von okkar, sem að
messunni stöndum, að þær góðu
móttökur sem Tómasarmessan hef-
ur hlotið hingað til gefi tóninn um
framhaldið og að hún megi áfram
verða mörgum til blessunar og starfi
íslensku kirkjunnar til eflingar á því
hátíðarári sem nú er hafið.
Markmið Tómasarmessunnar er
öðru fremur að leitast við að gefa nú-
tímamanninum auðveldara að
skynja návist drottins, einkum í mál-
tíðinni sem hann stofnaði og í bæna-
þjónustu og sálgæslu, en mikil
áhersla er lögð á fyrirbænaþjónustu.
Þá einkennist messan af fjölbreyti-
legum söng og tónlist og sömuleiðis
af virkri þátttöku leikmanna.
Sorg og sorgar-
vlðbrögð -
fyrirlestur
SÉRA Sigfinnur Þorleifsson,
sjúkrahúsprestur, mun flytja erindi
um sorg og sorgarviðbrögð á
fræðslukvöldi í safnaðarsal Grafar-
vogskirkju nk. mánudagskvöld, 31.
janúar, kl. 20.
í framhaldi af fyrirlestrinum verð-
ur stofnaður sorgarhópur/nærhóp-
ur. Slíkir hópar eru samansettir af
einstaklingum sem mynda trúnaðar-
samband sem hefur það að markmiði
að styrkja viðkomandi í sorgarferl-
inu.
Hópurinn hittist í 10 skipti. Prest-
ar safnaðarins hafa haft umsjón með
hópunum sem starfræktir hafa verið
síðustu árin. Hópinn í vetur mun sr.
Vigfús Þór Árnason leiða. Allir eru
velkomnir á fyrirlesturinn sem lýkur
með kaffiveitingum.
Bústaðakirkja. TTT, æskulýðs-
starf fyrir 10-12 ára, mánudag kl. 17.
Friðrikskapella. Kyrrðarstund í
hádegi á morgun, mánudag. Léttur
málsverður í gamla félagsheimilinu
að stundinni lokinni.
Laugarneskirkja. Morgunbænir
mánudag kl. 6.45. Mánudagskvöld
kl. 20.12 spora hópurinn.
Neskirkja. TTT, 10-12 ára starf,
mánudag kl. 16. Kirkjukór Nes-
kirkju æfir mánudag kl. 19. Nýir fé-
lagar velkomnir. Fótsnyrting á veg-
um Kvenfélags Neskirkju mánudag
kl. 13-16. Upplýsingar í síma 551-
1079. Foreldramorgnar alla mið-
vikudaga kl. 10-12.
Seltjarnarneskirkja. Æskulýðsfé-
lagiðkl. 20-22.
Árbæjarkirkja. Yngri deild æsku-
lýðsfélagsins kl. 20-22. Kirkjuprakk-
arar, 7-9 ára, kl. 16-17 á mánudög-
um. TTT-starf 10-12 ára, kl. 17-18 á
mánudögum. Eldri deild æskulýðs-
félagsins kl. 20-22.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir
9-10 ára drengi á mánudögum kl. 17-
Jersey-, krep-
og flónels-
rúmfatasett
Póstsendum
Skólavörðustíg 21u, Ilcykjavík, BÍnii 551 4050.
18. Æskulýðsstarf fyrir 9.-10. bekk á
mánudögum kl. 20-22.
Grafarvogskirlga. Bænahópur kl.
20. Tekið er við bænarefnum í
kirkjunni alla daga frá kl. 9-17 í síma
567-9070.
Hjallakirkja. Æskulýðsfélag fyrir
unglinga 13-15 ára kl. 20.30 á mánu-
dögum. Prédikunarklúbbur presta í
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra er
á þriðjudögum kl. 9.15-10.30. Um-
sjón dr. Sigurjón Ámi Eyjólfsson.
Seljakirkja. Æskulýðsfundur í
dag kl. 20. KFUK-fundir á mánudög-
um kl. 17.15. Stelpustarf á vegum
KFUK og kirkjunnar fyrir 6-9 ára
og kl. 18.30 fyrir 10-12 ára. Mömmu-
morgnar á þriðjudögum kl. 10-12.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Ungl-
ingakór á mánudögum kl. 17-19.
Æskulýðsfélag mánudag kl. 20-22.
Hafnarfjarðarkirkja. Æsku-
lýðsstarf yngri deild kl. 20.30-22 í
Hásölum.
Krossinn. Almenn samkoma í
Hlíðasmára 5 kl. 16.30. Allir vel-
komnir.
Hvammstangakirkja. KFUM og
-K-starf kirkjunnar á mánudag kl.
17.30 á prestssetrinu.
Landakirkja, Vestmannaeyjum.
Kl. 11 bamaguðsþjónusta með söng
og leik. Kl. 14 messa með altaris-
göngu. Kaffisopi í safnaðarheimilinu
á eftir. Kl. 20.30 æskulýðsfundur.
Fríkirkjan Vegurinn. Fjölskyldu-
hátíð kl. 11. Blessun og fögnuður í
húsi drottins. Léttar veitingar eftir
samkomuna. Samkoma kl. 20. Högni
Valsson prédikar. Allir hjartanlega
velkomnir.
Hvítasunnukirkjan Ffladelfía. Al-
menn samkoma kl. 16.30. Lofgjörð-
arhópurinn syngur, ræðumaður
Svanur Magnússon. Ungbarna- og
barnakirkja meðan á samkomu
stendur. Állir hjartanlega velkomn-
ir.
Hjálpræðisherinn. Kl. 19.30 bæn.
Kl. 20 hjálpræðissamkoma. Kafteinn
Miriam Óskarsdóttir talar. Mánu-
dag: Kl. 15 heimilasamband.
Boðunarkirkjan. Á mánudags-
kvöldum kl. 20 er dr. Steinþór Þórð-
arson með Enoks-námskeið í beinni
útsendingu á Hljóðnemanum 107.
Hvammstangakirkja. KFUM og
-K-starf kirkjunnar mánudag kl.
17.30 á prestssetrinu.
Akraneskirkja. Mánudagur:
Fundur í æskulýðsfélaginu í húsi
KFUM og -K kl. 20.
Hólaneskirkja, Skagaströnd. Á
morgun, mánudag: Unglingadeild
KFUM & -K kl. 20 fyrir 13 ára og
eldri.
Lágafellskirkja. Mánudagur:
Kirkjukrakkar - starf fyrir 7-9 ára
börn frá kl. 17.15-18.15. Húsið opnað
kl. 17. Umsjón Þórdís.
Víkurprestakall í Mýrdal. Ferm-
ingarfræðsla á mánudögum kl. 13.45.
Pm'W&s-tEm.
____— .. «
Útsala notaðra bíla
opið í dag, sunnudag kl. 10-17.
*
■
Annað eins hefur ekki sést hér á landi!
1 1 1 1 c X
i V J o _
(í húsi Ingvars Helgasonar og Bílheima) Sævarhöfða 2-112 Reykjavík
Símar: 525 8096 - 525 8020 - Símbréf 587 7605 - Tölvupóstur gusi@ih.is