Morgunblaðið - 30.01.2000, Blaðsíða 56
56 SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
,1
FOLKI FRETTUM
Roger Whittaker heldur tónleika á Islandi
Ætla að kenna Is-
lendingum að blístra
Dægurlagasöngvarinn heimskunni
Roger Whittaker heldur um þessar mundir
ferna tónleika á skemmtistaðnum
Rroadway. Skarphéðinn Guðmundsson
átti í vikunni við hann stutt spjall um
----------------7--------------------
væntanlega Islandsheimsókn.
FERILL Rogers Whittakers
spannar meira en fjörutíu ár.
Hann hefur selt yfír 50 millj-
ónir hljómplatna um heim allan og
eru tónleikar hans enn í miklum
metum og eftirsóttir. Mörg laga
hans eru orðin sígild og nægir þar
að nefna „The Leavin’ (Durham
Town)“, „The Last Farwell“ og
„Streets Of London".
Roger Whittaker fæddist í Nair-
obi í Kenýa árið 1939. Aður en söng-
ferillinn hófst nam hann sjávarlíf-
fræði og lagði stund á barna-
skólakennslu. Hann sló fyrst í gegn
árið 1962 og reis frægðin hæst við
upphaf áttunda áratugarins þegar
hann kom fjölmörgum lögum inn á
vinsældalista um heim allan.
Einkenni þessa geðþekka söngv-
ara eru djúp og þýð rödd og einkar
sérkennileg blísturtækni sem hann
notar á skemmtilegan máta í mörg-
um laga sinna. Blístrið er reyndar
svo frægt orðið að það er órjúfan-
legur hluti af ímynd hans og orð-
spori.
Eftirsóttur
skemmtikraftur
Þrátt fyrir að minna hafi heyrst
frá honum undanfarin ár en áður er
hann síður en svo dauður úr öllum
æðum. Hann er mjög eftirsóttur
skemmtikraftur og ferðast enn vítt
um heiminn til tónleikahalds og nú
er loksins röðin komin að því að
skemmta íslenskum aðdáendum.
Því var vel við hæfi að ræða við
hann um heimsóknina.
- Góðan daginn!
(Glaðlegur og afar djúpradda.)
Góðan daginn!
- Hvernig hefurðu það í dag?
Ég hef það mjög gott, þakka þér
fyrir.
- Má ég gerast svo djarfur að
spyrja; hvar ertu niðurkominn ?
Ég er í Englandi eins og stendur.
Ég á hús hérna í vesturhluta lands-
ins og mun dvelja hér fram að Is-
landsförinni.
- Hvað hefurðu haft fyrir stafni
upg á síðkastið?
Ég lauk hljómleikaferð um Kan-
ada og Bandaríkin rétt fyrir jólin
síðustu og hef dvalist hér í Englandi
síðan þá. Ég átti svo sannarlega
skilið að fá stutt frí eftir langa og
stranga hljómleikaferð.
- Hlakkarðu til Islandsferðarinn-
ar?
Mjög svo. Ég hef aldrei staldrað
við á Islandi en þegar ég átti mína
eigin flugvél millilenti ég henni all-
oft á leið minni til Bandaríkjanna.
Þannig að ég hef einungis fengið
smjörþefinn af landinu.
- Hvað vitneskju hefurðu um larid
ogþjóð?
(Stutt þögn.) Ég hef séð talsvert
um ísland á sjónvarpsskjánum. Að-
allega náttúrulífsmyndir um sérk-
enni landsins, goshverina og eld-
fjöllin. Ég er afar spenntur að fara
að skoða þetta. Annars verð ég að
viðurkenna að að öðru leyti kann ég
lítil deili á landinu en það stendur
sem betur fer til bóta.
líantar þig föshu?
©rstftgey
Laugavegi 58
sími 5513311
Hjá okkur er útsala.
Líttu í
útsölugluggann
FLESTAR VERSLANIR
frá kl. 13.00- 17.00
STJÖRNUTORG
skyndibita- og veitingasvæ&ib
fráld. 11.00-21.00
alla daga.
Þ H R S E
9
Roger Whittaker
Veit hyað virkar
á íslandi
- Hverju mega íslenskir unnend-
ur þínir eiga von á?
Ég hef spilað mikið á hinum
Norðurlöndunum og ég geri ráð fyr-
ir að ykkur svipi um margt til íbúa
þeirra. Ég hef smám saman komist
að því hver eru mín vinsælustu lög á
þessum slóðum og býst við því að
bjóða upp á viðlíka efnisskrá á Is-
landi. Vinsæl lög á borð við „I Don’t
Believe In If Anymore", „New
World In the Morning", „The Last
Farewell" og „The Leavin’ (Dur-
ham Town) og „Mexican Whistler".
Þar að auki er enn brýnni ástæða til
þess að flytja vinsælu lögin á íslandi
því íslenskir áhorfendur hafa aldrei
séð mig flytja þau áður á tónleikum.
Til viðbótar við sígildu lögin mín
mun ég síðan flytja nokkra afríska
söngva, því þangað rek ég uppruna
minn, ástaróða og svo spjalla ég
auðvitað við áhorfendur þess á milli.
Þetta verður ein allsherjar skemmt-
un.
- Þú munt því leggja sérstaka
áherslu á að spanna allan ferilinn,
syngja þín ástsælustu lög?
Að sjálfsögðu. Reyndar verður
maður ávallt að bjóða upp á sín ást-
sælustu lög því þau eru svo stór
hluti ferilsins, svo ríkur hluti lífs
míns. Þetta eru jú eftir allt saman
lögin sem skópu mig.
- Ætlarðu að kenna áhorfendum
að blístra?
(Hlær.) Vitanlega. Ég mun svo
sannarlega kenna Islendingum hina
frægu afrísku blísturtækni. Það er
nauðsynlegt.
Tímabært að
heimsækja Island
- Að sögn tónleikahaldara hefur
verið reynt að bóka þig í heil fímm
ár. Ertu alltaf svo eftirsóttur?
Þetta er einfaldlega spuming um
skipulag. Ég fer það víða um heim
að ekki er alltaf hægt að koma við
tónleikum í viðkomandi landi fyrr
en það fellur inn í heildarskipulagið.
Nú er ég t.d. á leið til Bandaríkj-
anna og því var hægt að koma því
við í skipulaginu að staldra við á ís-
landi í leiðinni og halda nokkra tón-
leika þar, sem mér finnst frábært
og svo sannarlega tímabært.
- Hver er drifkraftur þinn eftir að
hafa afrekað svo margt í gegnum
árin ? Hvað rekur þig áfram ?
Ég hef hreinlega unun af starfi
mínu. Ég söng eitt sinn: „Fólk spyr
hví ég hef sungið svo lengi en söngv-
arnir eru líf mitt.“ Það er einmitt
meinið. Söngvar em stór hluti af því
sem ég er og að skemmta fólki gefur
lífinu sem ég lifi gildi.
- Þú ert sávarlíffræðingur að
mennt. Ætlarðu að nota tækifærið
og skoða fjölskrúðugt sjávarlífíð við
strendur Islands?
(Hlær) Það vildi ég gjarnan. Ég
hef heyrt að það sé frábært að
stunda laxveiði á íslandi. Ég væri
meira en lítið til í að renna fyrir eins
og einn lax.
- Að lokum. Einhver skilaboð til
aðdáenda þinna á Islandi sem bíða
komu þinnar?
Ég hlakka, eins og fyrr segjr,
mjög mikið til þess að koma til ís-
lands. Ég er handviss um að þeir
eiga eftir að skemmta sér konung-
lega. Sjálfur er ég líka sérlega
spenntur að spila fyrir áhorfendur
sem hafa aldrei séð mig á tónleikum
áður.
- Þakka þér fyrir viðtalið og fyrir
hönd unnenda þinna á Islandi þá
hlökkum við mikið til þess að sjá
þig■
Þakka þér kærlega fyrir og vertu
blessaður.
Dreifing
Morgunblaðsins
1 H R T B fl 5 L (E R
Nú er hægt að finna allar upplýsingar um
þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
á þjónustusíðum Morgunblaðsins,
á miðvikudögum og sunnudögum!
ASKRIFTARDEILD
Sími: 569 1122/800 6122* Bréfasími: 569 1115 « Netfang: askrift@mbl.is
Stutt
Reeves
stendur í
ströngu
► LEIKARINN
Keanu Reeves
kemur til með að
leika aðal-
hlutverkið í
myndinni „The
Ottoman Emp-
ire“, eða Veldi Ot-
toman sem verð-
urvillt
gamanmynd um mann sem selur
húsgögn í New Jersey og býr yfir
hræðilegu leyndarmáli.
Það er kvikmyndafyrirtækið Col-
umbia Pictures sem stendur að
myndinni sem verður tekin í sumar
en leikstjóri hennar verður valinn
Andrew Bergman sem samdi einnig
handritið.
Veldi Ottoman mun taka allan
tíma Reeves í sumar en í haust hefj-
ast tökur á framhaldsmynd Matrix
sem Andy og Larry Wachowski eiga
heiðurinn af.
Pitt og Clooney
í eina sæng
► UMÞESS-
AR mundir eru
tveir mjög svo
kynþokkafullir
leikarar að ræða
við Warner Bros.
fyrirtækið um
myndina Ocean’s
Eleven. Það eru
þeir George
Clooney og Brad
Pitt, en um er að ræða gamanmynd
í leikstjórn Steve Soderbergh. Aðr-
ir leikarar hafa sýnt handriti mynd-
arinnar mikinn áhuga og eru
Johnny Depp, Julia Roberts og
Mike Myers meðal þeirra. Myndin
Qallar um vinahóp sem leggur á
ráðin um að ræna spilavíti en í
mynd eftir sömu sögu fóru Sammy
Davis Jr., Frank Sinatra og Dean
Martin með aðalhlutverkin.
Hlutverk Pitt verður ólíkt því
sem hann á að venjast, því undan-
farið hefur hann aðallega leikið 1 al-
varlegum myndum á borð við Bar-
dagaklúbbinn, Má ég kynna Joe
Black og Seven, en nú er komið að
Oceans Eleven.
Norton þvingar
De Niro
► VERIÐ get-
ur að hinn bráð-
efnilegi leikari
Edward Norton,
sem fór með aðal-
hlutverk á móti
Brad Pitt í Bar-
dagaklúbbnum,
muni í sinni
næstu mynd leika
á móti sjálfum
Robert De Niro. Frank Oz (Bowfing-
er) mun leikstýra myndinni, en hún
fjallar um ungan mann sem reynir að
fá gamlan uppgjafa þjóf til að taka að
sér eitt stórt verkefni í viðbót. Tökur
munu hefjast í apríl og verður Mont-
real fyrsti tökustaðurinn.
Félagasamtök - skólar - fyrirtæki
Vantar ykkur aðstoð við
auglvsingaötlun
Kynntu þér málið
S. 588 5484
auglýsingaötlun
útprentun reikninga
innheimta
markaðsráðgjöf
auglýslngagerð
Maricaðsráðglöl & hagræðlng
8keiöapvogl 71,104 Reykjavi, netfang Jonb@iiuwdtaJa
UPPLÝSIN6RSÍMI 5BB 77BB SKRIFSTOFUSÍMI 5 B B 9 2 0 0