Morgunblaðið - 30.01.2000, Side 28

Morgunblaðið - 30.01.2000, Side 28
Í8 SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ / / Aætlað hefur verið að velta tengd stangaveiði á Islandi sé í kringum 1,8 milljarðar á ári hverju og þar af renni um helmingur beint til veiðifélaga, þ.e.a.s. landeigenda. Laxveiðileyfí standa undir stærstum hluta þessarar tölu sem hefur farið hækkandi síðustu árin. En auðlindin, þótt rík sé og gjöful, er einnig brothætt og viðkvæm. Guðmund- ur Guðjónsson ræddi um þessi mál við Sigurð Guðjónsson, framkvæmdastjóra Veiðimálastofnunar, sem sagði m.a. að oftrú á kerfíð mætti ekki stefna framtíð fiskistofna í voða. Morgunblaðið/gg Hver lax er dýrmætur. Gj öful auðlind en viðkvæm Sumir telja það laxastofnum til framdráttar að sleppa veiddum laxi. UMRÆDD tala, 1,8 milljarðar, er einskorðuð við veiðileyfi og nánustu þjónustu við veiðimenn, svo sem fæði og uppihald í veiðihúsum, leið- sögumenn og umboðslaun milhliða við sölu veiðileyfa. Inni í tölunni eru ekki tekjur fjölmargra aðila sem njóta góðs af miklum og vaxandi fjölda stangaveiðimanna. Má þar nefna þá sem reka söluskála, bens- ínstöðvar, gistiþjónustu, bflaleigur, flugþjónustur og fleira. Sigurður Guðjónsson styðst í útreikningum sínum við ritgerð sem Björn Snær Guðbrandsson vann á sínum tíma og var notuð til uppreiknunar af tímaritinu Frjálsri verslun fyrir nokkrum árum. Um það bil helm- ingur af umræddri upphæð er til- komin af veiðileyfunum einum, hinn helmingurinn af þjónustunni þeim tengdum. Laxveiði á nær alfarið umrædda tölu, en að sögn Sigurðar er hlutur silungsveiði vaxandi. Þar eru tölur þó allar lægri. Bæði eru silungsveiðileyfi mun ódýrari en laxveiðileyfi þó þau hafi víðast hækkað talsvert síðustu árin og í langflestum tilvikum vantar auk þess marga þjónustuliðina sem tengjast beint laxveiðinni. Hins veg- ar njóta óbeinu aðilarnir ekki síður ríkulega góðs af landshomaflakki silungsveiðimanna. Sá þáttur kann að vera nokuð stór, því almennt er talið að silungsveiðimenn séu mun fleiri en laxveiðimenn. Hver lax skilar miklu Sigurður hefur reiknað út hvað hver lax er að skila í tekjum talið. Hann segist hafa miðað við fjögur síðustu árin, en tvö þau fyrstu var verðlag nokkuð stöðugt á veiðileyfa- markaðinum. Síðan byrjaði verð að hækka nokkuð og á síðasta ári mik- ið. „Það er mikil þensla farin af stað, það nægir að skoða ár eins og Miðfjarðará, Þverá, Langá, Fnjóská og fleiri. Aðrar ár eru fastar í samn- ingum, en þær munu eflaust fljóta með um leið og færi gefast. Ég reiknaði út meðalverð veiðileyfa á þessu tímabili og miðað við að í fyrra veiddust liðlega 30.000 laxar á stöng hér á landi, sem var aðeins undir meðalveiði síðustu ára. Mér telst til, að með þjónustunni hafi hver lax lagt sig á um 58.000 krón- ur, þar af renna 18.000 til 20.000 krónur beint til veiðifélaganna. Þetta er tala sem hækkar með þenslu og því fleiri laxar sem veið- ast, þeim mun minna skilar hver veiddur lax. Hins vegar sjáum við síðustu árin að það eru engar bylt- ingar í veiði, heildaraflinn að að dingla þetta sitt hvoru megin við meðaltalið. Það var þó 9.000 laxa sveifla á milli sumranna 1998 til 1999, en fyrra sumarið veiddust rétt tæplega 40.000 laxar og komu þá um 45.000 krónur fyrir hvem veidd- an lax,“ segir Sigurður. Ljóst er, að um umtalsverðar tekjur er að ræða hjá þeim landeig- endum sem eru svo heppnir að eiga hluti í laxveiðiám, en á sama tíma og menn hafa umræddar tekjur vill Sigurður undirstrika að auðlindin er bæði viðkvæm og brothætt. ís- lenskir laxastofnar hafa verið í nokkru jafnvægi, en erlendis er ekki sömu sögu að segja og þrátt fyrir margs konar umsvif einstakl- inga og hópa í þágu laxvemdar hafa laxastofnar í flestum löndum farið hallloka. Svo mjög, að fyrir vestan haf berjast ýmsir umhverfisvemd- arhópar fyrir því að Atlantshafs- laxinn verði skráður sem tegund í útrýmingarhættu. Sigurður segir að vel þurfi að gæta auðlindarinnar á íslandi og menn megi ekki sofna á verðinum. Blikur séu fljótar á loft ef ekki er að gætt. „Það þarf að skoða vandlega hvort laxastofnar hér á landi þola þá aukningu í sókn sem orðið hefur. Að mínu viti hafði lagabreyting sem gerð var árið 1994 ekki góð áhrif. Þar var kveðið á um rýmri heimildir í veiðitíma. Menn gátu sótt um framlengingar og hafa verið tals- vert í því fari að treysta um of á kerfið. Hugsað sér að fyrst þetta sé leyfilegt þá hljóti það að vera allt í lagi. A sama hátt hafa menn freist- ast til að bæta við stöngum þegar eftirspurnin eftir laxveiði hefur auk- ist. Veiðifélög verða að fara að öllu með gát og afla sér þekkingar á ást- andi stofnsins í ánni. Þetta gera mörg veiðifélög með árlegum rann- sóknum, en alls ekki öll.En spurn- ingin er alltaf þessi: Hvað þolir stofninn? Er verið að taka of mikið af stórlaxi, er gengið of freklega á hrygningarstofninn? Hvað með ný- liðun og hvað með ofveiði? Við þekkjum dæmi um að stangaveiði getur náð 70-80% af laxagöngunni í einstökum ám. Við höfum áhyggjur af þessu og höfum hleypt af stokk- unum vöktunarverkefni þar sem við munum fylgjast með tveimur af þessum minni og viðkvæmari ám, Krossá á Skarðsströnd og Vestur- dalsá í Vopnafirði, og nota reynslu okkar þar til að draga ályktanir og finna út hvemig best er að tryggja vöxt og viðgang laxastofna. Þetta mun verða eitt af meginmálum okk- ar á ársfundinum í mars. Þá mun m.a. Bjarni Jónsson fiskifræðingur á Hólum mæta með niðurstöður sín- ar frá rannsóknum á ástandi laxa- stofns Vatnsdalsár, þar sem nær öllum veiddum laxi hefur verið sleppt síðustu sumur. Það er mikil- vægt að fá botn í þetta mál, því sum árin eru litlu árnar hart sóttar. Ef það er bara eitt og eitt ár, þá ná þær sér aftur, en ef ástandið er við- varandi þá er illt í efni og ástæða til grípa til viðeigandi ráðstafana." Hvuð vakti eiginlegu fyrir mönn- um að heimila þessar frumlenging- ar? „Þessi breyting var hugsuð fyrir bergvatnsár sem falla til jökulvatna, þar sem lax á það til að ganga seint á hausti úr jökulvatninu. Þetta á reyndar ekki við um Borgarfjarð- arárnar og ekki lengur um Svartá, þar sem Blanda er nú tæplega jöku- lá lengur. Þá er eftir Stóra-Laxá. Mistökin í þessu liggja í þeirri hættu, að menn fari að færa sig upp á skaftið og komast upp með það. En það er veiðifélaganna að sækja um framlengingar á sama hátt og það er fyrst og síðast þeirra að hafa áhyggjur af hugsanlegum afleiðing- um þessa. Þetta eru jú þeirra tekjur. Eins og ég sagði, menn hafa haft tilhneigingu til að treysta um of á kerfið, en vonandi er það að breytast. Við höfum látið vita af okkur í þessu máli, m.a. sent út bréf til veiðiréttareigenda þar sem við óskum eftir upplýsingum um veiðiá- lag og fjölda stangardaga.“ Silungur einnig í deiglunni Á sama tíma og laxveiðin hefur rótfest sig svo mjög að vinsældum að nánast engin aukning er á fram- boði og slegist er um þekktustu árnar, lendi þær í útboði, eykst mjög ásókn í göngusilungsveiði, sjóbirting og sjóbleikju. Þama eru miklir möguleikar. Þó að átak hafi verið í rannsóknum á þessum teg- undum allra síðustu ár, má segja að þama sitji menn aftar á merinni í þekkingu á því hvað þeir stofnar þola. „Þetta var ekki vandamál, sóknin var óvíða svo þung, en nú verður að skoða málin. Sjóbirtingur getur ver- ið sérstaklega viðkvæmur og ámar sjálfar verja stofna sína misvel. Þá á ég við að þær em misjafnar frá náttúmnnar hendi. Flestar bestu sjóbirtingsárnar em í Vestur- Skaftafellssýslu og þó stutt sé á milli þeirra em þær afar ólíkar. Tökum sem dæmi Grenlæk annars vegar og Hörgsá hins vegar. Fram- leiðslan er margfalt meiri í Grenlæk og áin sýnist standa undir því veið- iálagi sem hún er beitt. Aðgengilegt veiðisvæði Hörgsár er hins vegar stutt og framleiðslan lítil miðað við á eins og Grenlæk. Hins vegar hef- ur álag á Hörgsá aukist til muna. Þar er bæði vor- og haustveiði á sjóbirtingi og góð nýting stangar- daga. í slíkum tilvikum er nauðsyn- legt að skoða hvort stofn árinnar þolir álagið,“ segir Sigurður. Sjóbleikjustofnar em liðfleiri í flestum tilvikum en stofnar sjóbirt- inga og sjóbleikjan er sterk í mun fleiri ám og víðar á landinu en sjó- birtingurinn. Lífsskilyrði fyrir hana era víða mjög góð og sumar ár era beinlínis gósenland fyrir hana. Sig- urður bendir á að ein allra besta sjóbleikjuá landsins, Eyjafjarðará, er ekki aðeins vatnsmikil og því vandveiddari en smærri vatnsföll, heldur getur snjóbráð hamlað veið- um og þá varið um leið stofninn, svo dögum og jafnvel vikum skiptir. Sama megi segja um Svarfaðar- dalsá. ,AHrar aðgæslu er þó þörf við mat á hvað sjóbleikjustofnar þola, því aðsóknin í hana eykst ekki síður en í sjóbirtinginn. Því miður þekkj- um við lífsferil sjóbleikju allt of lítið og svo koma einnig inn atriði eins og netaveiði í sjó, sem víða er tals- verð en lítið skráð, t.d. í Eyjafirði. Gallinn við silungsrannsóknir er hins vegar sá að þó veiðifélög séu öll af vilja gerð, þá em yfirleitt litl- ar tekjur af veiðiskapnum í byijun og ná aldrei þvílíkum upphæðum og þar sem lax er aðalfiskurinn. Fyrir vikið eiga landeigendur tæplega fyrir rannsóknum og eina leiðin er að fá fé utan frá. Það er erfitt verk og ekki hlaupið að því, þó það hafi tekist stöku sinnum eins og við sjóbirtingsrannsóknir í Fitjaflóði og norður í Hópi. Þetta stendur og fell- ur með styrkjum á sama tíma og rannsóknir þarf venjulega að stunda um eitthvert árabil. Menn sjá vandann þar í hnotskurn," segir Sigurður Guðjónsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.