Morgunblaðið - 30.01.2000, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JANÚAR 2000 51
BRIDS
IJmNjðn (iiiðmundur
Páll Arnarson
ÞRJÚ grönd er hinn sjálf-
sagði samningur í NS, en
það er alls ekki jafn sjálf-
gefið að fá niu slagi. Það
tókst þó á báðum borðum í
töfluleik dönsku og
kanadísku kvennanna í und-
ankeppni HM:
Norður gefur; NS á hættu.
Norður
* DG54
¥ 10865
♦ ÁK7
*42
Vestur Austur
* 96
V KG973
* 104
* KDG10
A 10872
¥ 42
♦ DG83
* 653
Suður
* ÁK3
¥ ÁD
* 9652
* Á987
Vestur Norður Austau- Suður
K.S.MÖ. Saltm. Drögm. Cimon
Pass Pass 1 grand
2 hjörtu 3 hjörtu* Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
„Hvað varð um gömlu sekt-
ardoblin?" var spurt í móts-
blaðinu. Hér hefði það
vissulega gefið 800 að dobla
vestur í tveimur hjörtum, en
keppnisspilarar nútímans
hafa þó flestir kosið að
fórna stöku ávinningi aí
þessum toga fyrir þá mörgu
kosti sem það hefur að nota
dobl í stöðu norðurs til út-
tekar.
En þótt vestur slyppi við
refsidoblið, var innákoman
upplýsandi og auðveldaði
sagnhafa vinnuna í þremur
gröndum.
Möller spilaði út laufkóng,
svo drottningu og loks gosa,
þegar Cimon dúkkaði
tvisvar. Cimon var fljót að
átta sig á kjarna málsins.
Hún tók ÁK í tígh og spaða
og sendi vestur síðan inn á
lauftíu. Möller átti ekkert
nema hjarta eftir og varð að
sjpiia upp í gaffalinn.
A hinu borðinu vakti suður
á tígli og vestur kom inn á
einu hjarta. Síðan lá leið NS
í þrjú grönd og danski sagn-
hafinn endurtók spila-
mennskuna í opna salnum
spil fyrir spil!
Þetta er snoturlega spilað,
en kannski ekki flókið eftir
innákomuna og laufsókn
vesturs. En ein spurning er
áleitin: Hvað varð um
„gömlu“ sköpunargáfuna?
Af hverju dettur engum
vesturspilara í hug að koma
út með laufdrottninguna?
Nú, eða gosann? Gera eitt-
hvað til að villa um fyi-ir
sagnhafa. Segjum að vestur
spili laufinu í röðinni DG10.
Þá mun sagnhafi væntan-
lega staðsetja kónginn í
austur og hugsanlega reyna
að fría sér slag á tígul. En
þá kemst austur inn jtil að
spila hjarta í gegnum ÁD og
samningurinn fer einn nið-
ur.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistil-
kynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Fólk
getur hringt í síma
569-1100, sent í bréfs-
íma 569-1329, eða sent
á netfangið ritstj
(ffimbl.is.
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,103
Reykjavfk
Árnað heilla
ÁRA afmæli. Á
morgun, mánudag-
inn 31. janúar, verður átt-
ræð Steinunn Júlíusdótt-
ir, Hlaðhömrum, Mos-
fellsbæ. Eiginmaður
hennar, Runólfur Jónsson,
lést 1991, en þau bjuggu í
Gerði, Mosfellsbæ. Ætt-
ingjum og öðrum vinum
Steinunnar er boðið í kaf-
fiteiti í dag, sunnudaginn
30. janúar, milli kl. 15-18 í
safnaðarheimili Lágafells-
sóknar, Þverholti 3, Mos-
fellsbæ.
SKÁK
Ijmsjóii Helgi Ánx
Grétarsson
Svartur á leik.
Eftir misheppnaða byrj-
un er Leif Johannessen, sem
stýrir hvítu mönnunum, í
stökustu vandræðum með
kóngsstöðu sína og slæma
samvinnu mannanna. Svart-
ur, Mikhail Rytchagov, fann
skemmtilega leið til að ljúka
skákinni: 23. - a6! 24. Da5
Einnig leiðir til taps: 24.
Dxb6 - Hxe2+ 25. Kb3 -
Hxb2+ 26. Kxb2 - Dd2+ 27.
Ka3 - Hxc3+ 28. Db3 -
Hxb3+ 29. ab - Dxd5 24. -
Hxe2+ 25. Kb3 - Hxb2+!
Hvítur gafst upp.
Þessar duglegu stúlkur söfnuðu 9.916 krónum til styrktar
Rauða krossi fslands. Þær heita: Hjördís Sveinbjörnsdóttir,
Melkorka Þöll Vilhjálmsdóttir, Kristel Finnbogadóttir og
Björg Finnbogadóttir.
COSPER
tj
LJOÐABROT
AMMA KVAÐ
Ekki gráta, unginn minn,
amma kveður við drenginn sinn.
Gullinhærðan glókoll þinn
geymdu í faðmi mínum,
elsku litli ljúfurinn,
líkur afa sínum.
Afi þinn á Barði bjó,
bændaprýði, ríkur nóg.
Við mér ungri heimur hló;
ég hrasaði fyrr en varði.
Ætli ég muni ekki þó
árið mitt á Barði?
Elsku litli ljúfur minn,
leiki við þig heimurinn.
Ástin gefi þér ylinn sinn,
þótt einhver fyrir það líði.
Vertu eins og afi þinn
allra bænda prýði.
Örn Arnarson.
STJÖRIVUSPA
cflir Frances Drake
*
VATNSBERI
Afmælisbarn dagsins:
Þú hefurgaman afannarra
verkum, en ættirað leyfa
eigin sköpunarhæfíleikum að
njóta sín meir.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Aðgát skal höfð í nærveru
sálar. Þess vegna skaltu jafn-
an gæta þess,hvernig þú set-
ur hlutina fram, því töluð orð
verða ekki tekin aftur.
Naut
(20. apríl - 20. maí) P*
5Þú þarft að venja þig á að
ræða við fjölskylduna um þau
vandamál, sem koma upp og
hafa á hreinu, hvað hver á að
gera til þess að leysa málin.
Tvíburar .
(21. maí - 20. júní) “AA
Það er ekki nóg að setja fram
eigin skoðanir, heldur verður
þú líka að hlusta á það, sem
aðrir hafa fram að færa, og
taka tillit til þess.
Krabbi ^
(21. júní-22. júlí)
Það er auðvelt að vera vitur
eftir á. Vendu þig af því að
hneykslast stöðugt á annarra
gjörðum og vandaðu frekar
sjálfan þig til orðs og æðis.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) m
Það fer bókstaflega allt 1
taugarnar á þér í dag svo það
reynir verulega á þolinmæði
þeirra, sem í kringum þig
eru. Reyndu að vera örlítið
jákvæðari.
Meyja **
(23. ágúst - 22. sept.) (fiSL
Þú hefur byrinn með þér til
að klára þau verkefni sem
setið hafa á hakanum.
Gakktu þó ekki fram af þér,
það er allt í lagi að verkið
taki tvo daga.
(23. sept. - 22. október)2£^
Þú átt bágt með að þola verk-
lag annarra. En það eru fleiri
en ein leið að markinu svo
leyfðu þeim að hafa sinn hátt
á meðan það skemmir ekki
fyrir.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ef þú ert ekki ánægður með
verk annarra skaltu bara
vinna þau sjálfur. Þá kemstu
að því, að það er oft betra um
að tala en í að komast.
Bogmaður # ^
(22. nóv. - 21. des.) ClO
Þú þarft fyrst að koma á
jafnvægi í sjálfum þér áður
en þú ferð að fást við aðra
hluti. Innri togstreita getur
skemmt fyrir þér á öðrum
sviðum.
Steingeit
(22. des. -19. janúar)
Það er mikil kúnst að stjórna
öðru fólki. Bezti stjórnandinn
er sá, sem aldrei þarf að
beita valdi, heldur laðar það
bezta fram í öðrum án þess.
Vatnsberi
(20. jan. -18. febr.)
Ef þér finnst þú þurfa að
setja fleiri inn í málið áður en
þú ferð af stað með það,
skaltu velja þá vandlega, sem
þú vilt treysta fyrir því.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Hvað er svo glatt sem góðra
vina fundur? Láttu sjálfum
þér líða vel; það gildir að
vera jákvæður, líka þegar
erfiðleikar steðja að.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindaíegra staðreynda.
Opið frá kl. 12 til 18
smáskór
í bláu húsi
v/Fákafen
a/Ettingjar, vinir og
Jyrrum samstarfsfólk
Mínar hjartanlegustu þakkir til ykkar allra,
sem glöddu mig með hlýjum kveðjum, gjöfum
og samverustund í tilejhi af 90 dra afmœli
mínu 9. janúar sl.
Guð blessi ykkur öll.
Þórhallur Björnsson.
Sparidagar á
Hótel Örk
Sparidagar á Hótel Örk.
Holl hreyfing og útivera,
skemmtun, glens og
gaman alla daga.
Ókeypis aukanótt
Sparidagarnir lengjast um einn dag ykkur að kostnaðarlausu
og hefjast nú með kynningarfundi og kvöldverði á sunnu-
dagskvöld svo að dagskráin geti byrjað af fullum krafti strax
á mánudagsmorgun.
Innifalið:
Sparidagar verða:
27. feb. 5„ 12.og 19.
mars og 2. apríl.
Verð kr. 15.900
fyrir manninn í 5 daga í tvíbýli.
Aukagjald fyrir einbýli kr. 1.500 á nótt.
Atthagafélög í Reykjavik athugið!
Nú er vinsælt að hitta gamla vini og
kunningja á sparidögum
á Hótel Örk.
Kynnið ykkur hvenar sveitungar
ykkar verða á sparidögum og bókið
sömu daga.
Gisting, morgunverður af
hlaðborði, þríréttaður kvöld-
verður og eldfjörugt félagslíf
alla daga og kvöld.
Gleðistund á Miðgerðisbar
öll kvöld.
LYKIL
HÓTEL
HVERAGERÐI, sími 483 4700. Fax 483 4775 f
Mánudagsspjall
í hverfinu
Á morgun
í Valhöl!
Háaleitsbraut
Alþingismenn og borgarfuiltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða með viðtalstíma í hverfum borgarinnar
næstu mánudaga.
Ámorgunverða
Guðmundur Hallvarðsson alþingismaður og
Inga Jóna Þórðardóttir borgarfulltrúi
í Valhöll, Háaleitsbraut 1.
kl. 17.15-19.15.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla Reykvíkinga
til að ræða málin og skiptast á skoðunum við
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Hafðu áhrif og
láttu þínar skoðanir heyrast.
IMæsti mánudagsspjallfundur:
Mánudagur 7. febrúar
kl. 17.15 - 19.15, í Gravavogi, Hverafol 1-3,
(Félagsheimili sjálfstæðismanna)
Vöröur - Fulltrúaráð sjélfstœðisféloganna í Reykjavík
www.xd.is
sími 515-1700
V
sjAlfst&ðisflokkukinn