Morgunblaðið - 02.02.2000, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Samtök verðbréfafyrirtækja hafa sent Fjármála-
eftirlitinu tillögur að nýjum verklagsreglum
Viðbragða Fjármálaeftir-
litsins að vænta í næstu viku
FJÁRMÁLAEFTIRLITINU bár-
ust í gær tillögur að nýjum verk-
lagsreglum frá Samtökum verð-
bréfafyrirtækja og að sögn Páls
Gunnars Pálssonar, forstjóra Fjár-
málaeftirlitsins, verða þær teknar
til skoðunar á næstu dögum.
„Við munum vonandi í næstu viku
upplýsa þá um okkar sjónarmið, en
við munum reyna að hraða þessu
eins og kostur er,“ sagði Páll Gunn-
ar í samtali við Morgunblaðið.
Undanþágur ekki valdið
hagsmunaárekstrum
Bankaráð íslandsbanka telur að
öll atriði í athugasemdum Fjármála-
eftirlitsins vegna viðskipta starfs-
manna bankans með óskráð verð-
bréf séu upplýst og að undanþágur
sem veittar haíi verið frá verklags-
reglum hafi ekki stangast á við meg-
inmarkmið þeirra og því ekki valdið
hagsmunaárekstrum. Bankaráðið
fjallaði á fundi sínum í gær um þær
athugasemdir sem bankanum bár-
ust frá Fjármálaeftirlitinu, og í yfir-
lýsingu frá bankaráðinu segir að
það telji ábendingarnar eðlilegar og
það hafl brýnt fyrir stjórnendum
bankans að halda öll ákvæði verk-
lagsreglnanna og heimila engar
undanþágur að óbreyttum reglum.
„Reynslan sýnir að verklagsregl-
urnar þarfnast endurskoðunar og
væntir bankaráðið þess að eiga gott
samráð við Fjármálaeftirlitið um
það mál,“ segir í yfirlýsingunni.
Kristján Ragnarsson, formaður
bankaráðs íslandsbanka, sagði í
samtali við Morgunblaðið að banka-
ráðið tæki mál þetta mjög alvarlega.
„Við leggjum mikið upp úr því að
á þessum markaði ríki traust og
gott siðferði, en það er mjög mikil-
vægt að tillitssemi og aðgát sé við-
höfð og hvergi skapist ótti við mis-
notkun af neinu tagi,“ sagði
Kristján.
Þörf á stífum og
samræmdum reglum
Auk íslandsbanka og VÍB gerði
Fjármálaeftirlitið athugasemdir við
framkvæmd verklagsreglna hjá
Landsbréfum, Búnaðarbankanum,
Verðbréfastofunni hf. og Burnhams
International. í athugasemdum
Fjármálaeftirlitsins kemur fram að
í einu tilviki hefðu verklagsreglur
verið staðfestar þar sem stjórn við-
komandi fyrirtækis var heimilað að
gefa takmarkaðar undanþágur frá
banni við viðskiptum með óskráð
verðbréf, en staðfesting Fjármála-
eftirlitsins á þessu undanþágu-
ákvæði hefði verið afturkölluð og
allar undanþágur því bannaðar. Jaf-
et Ólafsson, forstjóri Verðbréfastof-
unnar hf., staðfesti í samtali við
Morgunblaðið að um Verðbréfastof-
una væri að ræða og að athuga-
semdir hefðu borist frá Fjármála-
eftirlitinu.
„Við getum staðfest að við feng-
um minniháttar athugasemdir við
framkvæmdina á þessu. Við höfðum
heimildina en samkvæmt tilmælum
frá Fjármálaeftirlitinu var þessi
heimild afnumin og við höfum beint
því til starfsmanna Verðbréfastof-
unnar að eiga engin viðskipti,
hvorki með skráð eða óskráð bréf,
þangað til nýjar reglur hafa verið
samdar. Verðbréfastofan er óskráð
félag og við höfum hvatt starfsmenn
til að eiga hlutabréf í Verðbréfastof-
unni, þannig að við gátum ekki verið
að setja reglur um að það væri
bannað. Núna er hins vegar búið að
banna það tímabundið þangað til
menn finna farsæla lausn á þessu.
Ég er sjálfur sammála því að setja
þurfi mjög stífar, samræmdar
reglur þannig að allir séu undir
sama hatti,“ sagði Jafet.
Viðræður
hafnar um
sérsamninga
Flóabanda-
lagsins
Á SAMNINGAFUNDI Flóabanda-
lagsins og Samtaka atvinnulífsins í
gær var ákveðið að ríkissáttasemjari
tæki að sér verkstjórn í viðræðum
um sérsamninga stéttarfélaganna
þriggja sem mynda Flóabandalagið
og vinnuveitenda. Þar er um að ræða
samninga við olíufélögin, Mjólkur-
samsöluna, samning vegna hafnar-
verkamanna o.fl. Halldór Björnsson,
formaður Eflingar, segir að þetta
þýði þó ekki að félögin hafi vísað
samningunum til sáttasemjara.
Á fundinum var gengið frá skipan
starfshóps til að skoða kröfu Flóa-
bandalagsins um stofnun fræðslu-
sjóðs sem á að sinna starfsmenntun.
Bandalagið krefst þess að slíkur
sjóður verði stofnaður og að vinnu-
veitendur greiði í hann 0,25% af
heildarlaunum. Halldór segir að
menn ætli samhliða þessari vinnu að
ræða meginkröfur Flóabandalagsins
um hækkun launa og hækkun á
greiðslum í lífeyrissjóð.
Stöðva varð umferð í tvær klukkustundir um Reykjanesbrautina á með-
an lögregla athafnaði sig ásamt sjúkraliði.
Kona beið
bana í bflslysi
RÚMLEGA fertug kona beið bana í
bílslysi við Kúagerði á Reykjanes-
brautinni skömmu fyrir klukkan 11 í
gærmorgun.
Tildrög slyssins voru þau að kon-
an, sem ók sendibifreið sinni norður
eftir Reykjanesbrautinni, missti
stjórn á bifreiðinni og lenti framan á
fólksbifreið sem kom úr gagnstæðri
átt. Ökumaður hennar, karlmaður
um fimmtugt, var fluttur á slysadeild
vegna mars sem hann hlaut undan
bflbelti.
Engir farþegar voru í bifreiðunum.
Tilkynnt var um slysið klukkan
10.42 og var þyrla Landhelgisgæsl-
unnar kölluð á vettvang skömmu síð-
ar, en ekki reyndist þörf á aðstoð
hennar þar sem hin slasaða var þá
látin. Loka varð fyrir umferð um
Reykjanesbrautina í tvær klukku-
stundir á meðan lögregla athafnaði
sig á vettvangi ásamt sjúkraliði og
myndaðist mikill umferðarhnútur á
veginum á meðan.
skemmdar ef ekki ónýtar eftir
áreksturinn og voru fluttar af vett-
vangi með kranabifreið.
Ekki er unnt að greina frá nafni
hinnar látnu að svo stöddu.
Bændur fá hluta af söluverði
mjólkursamlagsins á Hvammstanga
MS rekur samlagið áfram
með auknum afköstum
NYTT samkomulag hefur náðst
milli stjórnenda Mjólkursamsöl-
unnar í Reykjavík og Kaupfélags
Vestur-Húnvetninga um kaup MS
á mjólkursamlaginu á Hvamms-
tanga. Mjólkursamsalan mun sam-
kvæmt samkomulaginu reka áfram
mjólkursamlag á staðnum og auka
umfang rekstrarins með því að
flytja þangað mjólk. Bændum
stendur til boða að fá 20 milljónir
af söluandvirði mjólkursamlagsins
í sinn hlut.
Mjólkursamsalan og Kaupfélag
Vestur-Húnvetninga sömdu í nóv-
ember um kaup MS á mjólkursam-
laginu á Hvammstanga og hugðist
Mjólkursamsalan hætta mjólkur-
vinnslu á staðnum og flytja mjólk-
ina til vinnslu í samlagi sínu í Búð-
ardal. Töldu stjórnendur MS að
unnt yrði að spara 25-30 milljónir
kr. á ári með því. Hins vegar kom
fram megn óánægja á Hvamm-
stanga og meðal bænda í Húna-
þingi vestra með samkomulagið,
einkum vegna þess að heimamenn
sáu eftir þeim 8-9 störfum sem nú
eru við mjólkurvinnslu og bændur
kröfðust hlutdeildar í eignum
mjólkursamlagsins. Fór svo að
stjórn kaupfélagsins treysti sér
ekki til að leggja kaupsamninginn
fyrir fulltrúafund til staðfestingar.
Éftir áramótin hófust að nýju við-
ræður við Mjólkursamsöluna um
breyttan kaupsamning jafnhliða
því sem rætt var við fulltrúa
Kaupfélags Eyfirðinga og fulltrúa
Sólar-Víkings á Akureyri, sem
vildu halda áfram mjólkurvinnslu á
Hvammstanga í samvinnu við
bændur.
Mj ólkurvinnsla
aukin
í fyrradag náðist á Hvamms-
tanga samkomulag milli stjórn-
enda Mjólkursamsölunnar og
stjórnar Kaupfélags Vestur-Hún-
vetninga um breyttan kaupsamn-
ing. í honum felst að MS rekur
mjólkursamlagið á Hvammstanga
áfram og mun auka vinnslu með
því að flytja þangað mjólk frá
vestustu bæjunum í Austur-Húna-
vatnssýslu. Er talið að mjólkurinn-
legg á Hvammstanga aukist um
nálægt einni milljón lítra á ári, en
það nemur nú liðlega 2,4 milljón-
um lítra. Guðlaugur Björgvinsson,
forstjóri Mjólkursamsölunnar, seg-
ir að vegna óska heimamanna hafi
málið verið skoðað upp á nýtt með
það í huga að finna góðan rekstr-
argrundvöll fyrir samlagið. Það sé
unnt með því að verja til þess
auknu mjólkurmagni. Samlagið
verður áfram sérhæft ostagerðar-
bú. Kaupverð eigna mjólkursam-
lagsins er það sama og í fyrra
samkomulagi, rúmar 95 milljónir
kr. fyrir utan birgðir, en fært hef-
ur verið á milli eignaliða í samn-
ingnum. Ljóst er að Mjólkursam-
salan mun þurfa að leggja í
kostnað við endurbætur á mjólk-
ursamlagshúsinu til að vinnslan
þar fullnægi gæðakröfum fyrir-
tækisins.
Kaupsamningurinn verður lagð-
ur fyrir fulltrúaráð kaupfélagsins
næstkomandi þriðjudag og viku
síðar hjá Mjólkursamsölunni.
Stefnt er að því að MS yfirtaki
rekstur samlagsins 1. mars næst-
komandi. Fyrir fundinn í fulltrúa-
ráði kaupfélagsins munu kúabænd-
ur fjalla um efni hans á fundi í
mjólkursamlaginu, væntanlega á
mánudag.
Óvíst um
viðbrögð bænda
I tengslum við samning kaupfé-
lagsstjórnarinnar og Mjólkursam-
sölunnar undirritaði formaður
Nautgriparæktarfélags Vestur-
Húnavatnssýslu samning við
stjórn kaupfélagsins um að sam-
vinnufélag kúabænda fengi 20
milljónir af söluandvirði samlags-
eignanna í sinn hlut.
Skúli Einarsson, formaður kúa-
bænda, segist hafa gert kröfu um
að minnsta kosti 34% eignarhlut-
deild, svipað og KEA hefði boðið
bændum í Eyjafirði og Þingeyjar-
sýslu, en ekki hafi tekist að ná því
fram. Segist hann óánægður með
það. Samkomulagið er gert með
fyrirvara um samþykki bænda og
kveðst Skúli ekki treysta sér til að
fullyrða um niðurstöðu þeirra.
Sérblöð í dag
www.mbl.is
Verdlaunakrossgáta
► Þættir - íþróttir
► Kvikmyndír - Fólk
Hálfur mánuóur
af dagskrá
frá miðvikudegi
til þriðjudags
sslteuit
► í VERINU í dag er m.a. sagt frá innflutningi á nílar-
karfa til Evrópu, gengislækkun evrunnar og áhrifum
þess á saltfiskútflutning, farið í heimsókn í bleikjueldi
í Vogum og forvitnast um af labrögð á Suðurnesjum.
Fimm breytingar á byrjunar-
liðinu gegn Finnum /C1
Jóhanna setti ísiandsmet
í bekkpressu /C2