Morgunblaðið - 02.02.2000, Page 6

Morgunblaðið - 02.02.2000, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR | | Gjaldsvæði 1 ] Gjaldsvæði 2 Ný bílahús, möguleg staðsetn, Gamla höfnin lS«jeauj 'O Ný götustæði (fjöldi) 0 Breytt notkun (fjöldi) Rauðarárvík / Meirihluti borgarráðs samþykkir hækkun á gjaldskrá Bflastæðasjóðs Oddviti Sjálfstæðis- flokks um gjaldskrár- hækkun BílastæðasjóðS Skatt- lagning til að auka tekjur Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæð- isflokksins greiddu atkvæði gegn tillögu meirihluta borgar- ráðs um hækkun á gjaldskrá Bílastæðasjóðs á fundi borgar- ráðs í gær. „Við leggjum meg- ináherslu á að þarna er um skattlagningu að ræða og verið að ná í miklar viðbótartekjur til að standa undir fjárfestingum framtíðarinnar,“ sagði Inga Jóna Þórðardóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks. Ófært að fara svona bratt í hækkun „Eftir sem áður er ýmislegt í tillögunni sem er við erum sátt við og teljum að horfi til betri vegar eins og sveigjanleikinn í stýringunni og fjölgun bíla- stæða en við teljum ófært að fara svona bratt í þessa hækk- un og bjóða Reykvíkingum upp á 200% hækkun á einu bretti,“ sagði hún. „Þetta er langt um- fram það sem rekstur bílastæð- anna þarf. Við þurfum hins veg- ar að skoða sérstaklega nýjar fjárfestingar í bílastæðahúsum, sem vissuleg er þörf á. Þar er- um við þeirrar skoðunar að leita þurfi nýrra leiða en ekki að taka það með gjaldtöku frá þeim sem eru að nota miðborg- ina í dag.“ Inga Jóna sagði að meðan miðbærinn væri í vamarstöðu gagnvart uppbyggingu í Kringlunni og í Smáranum væru þessar hækkanir úr takti við það sem þyrfti að gera fyrir starfsemina í miðborginni. Megintilgangur að skapa hreyfíngu á bílastæðunum MEIRIHLUTI borgarráðs hefur samþykkt tillögu um hækkun á gjaldskrá Bílastæðasjóðs úr 50 krón- um í 150 krónur fyrir hveija klukku- stund á dýrari stæðum við Laugaveg og í Kvosinni. Jafnframt verður tek- ið upp lágmarksgjald 10 krónur fyrir styttri dvöl. A ódýrari stæðum verð- ur lágmarksgjald 80 krónur á klukkustund og þar verður hámarks- dvöl tvær klukkustundir. Að sögn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra er megintilgangur hækkunarinnar að skapa hreyfingu á stæðunum þannig að fleiri komist að. Miðborginni til hagsbóta „Það er ekki við því að búast að all- ir séu á eitt sáttir um svona veiga- miklar breytingar en við teljum að þessar tillögur verði miðborginni til hagsbóta," sagði borgarstjóri. „Það er verulegur skortur á skammtíma- stæðum í miðborginni og ef fólk ekur um án þess að fá stæði þá gefst það Morgunblaðið/Þorkell Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri, Stefán Hermannsson borgar- verkfræðingur og Stefán Haraldsson, framkvæmdastjóri Bílastæða- sjóðs, kynntu tillögur að hækkun á gjaldskrá Bflastæðasjóðs og breyt- ingar á gjaldsvæðum. upp og hættir að koma þangað. Það þyrfti að fjölga stæðunum um allt að þúsund og auka tekjur Bflastæða- sjóðs um allt að 200 milljónir á ári.“ Tillagan gerir ráð fyrir að skamm- tímastæðum verði fjölgað um 85 ný stæði auk þess sem hundrað gömul stæði verða gerð gjaldskyld. Ráð- gert er að byggja tvö ný bflastæða- hús og er kostnaður við þær fram- kvæmdir áætlaður um 2 milljarðar. Gert er ráð fyrir að nýja gjald- skráin taki gildi mánudaginn 17. apr- íl næstkomandi og verður stöðumæl- um breytt fyrir þann tíma þannig að þeir munu taka við 10, 50 og 100 króna mynt. Kostnaður við nýja mæla og breytingu á eldri mælum er áætlaður um 20 millj. Borgarráð hefur enn fremur sam- þykkt tillögu borgarstjóra um að lækka íbúakort Bflastæðasjóðs úr 5.000 kónum á ári í 3.000 krónur og koma þannig til móts við íbúa í mið- borginni. Stöðumælasektir hækka Að fengnu samþykki dómsmála- ráðherra er gerir tillagan ráð fyrir að stöðumælasektir hækki og verði 1.500 krónur og að sekt vegna ólög- legra stöðu hækkar í 2.500 krónur. Jafnframt mun frestur til að greiða sektir verða lengdur í 14 daga en eft- ir þann tíma hækkar sektin um 50%. Itrekun á neyðarkalli frá Blóðbankanum SLÆM birgðastaða er hjá Blóð- bankanum þrátt fyrir neyðarkall sem sent var um útvarpsstöðvar í siðustu viku. 280 manns svöruðu kallinu á tveimur dögum. Þessi þrjú hraustmenni þáðu kaffi og meðlæti að lokinni blóðgjöf síð- degis í fyrradag. Staðan lagaðist nokkuð fyrir siðustu helgi en er þó Iéleg enn. Ef vel ætti að vera þyrfti 70-80 blóðgjafa daglega til að anna eftirspurn. Eins og sjá má er blóðgjöfum boðið kaffi og meðlæti til hressingar að lokinni blóðgjöf og láta fastir við- skiptavinir bankans afar vel af meðlætinu og mæla með þvi við hvern sem er. Dómur felldur vegna morðs á eigin- manni íslenskrar konu í Bandarikjuinmi Eiga yfír höfði sér allt að 40 ára fangelsi ANNAR tveggja manna, sem ákærðir voru fyrir að myrða David Albert, bandarískan tónlistarmann, sem var kvæntur íslenskri konu, Bimu Blöndal Albert, var á föstudag dæmdur fyrir morð að óyfirlögðu ráði og á yfir höfði sér milli 20 og 40 ára fangelsi. Hinn var dæmdur fyrir samsæri um að fremja morð og kveða lög í Pennsylvaníu, þar sem morðið var framið í lok apríl á liðnu ári, á um að því geti fylgt jafn löng fangelsisvist eða 20 til 40 ár. Morðið var framið í bænum Brist- ol í Pennsylvaníu. Albert var á leið ásamt félögum sínum í bfl frá hljóm- sveitaræfingu þegar tveir bflar fóru að elta þá. Hann nam staðar og í kjölfar rifrildis brutust út átök. Al- bert var meðal annars laminn í höf- uðið með hamri og hrygg-, rifbeins- og höfuðkúpubrotnaði. Hann lést á sjúkrahúsi eftir að hafa legið í dái í fjóra daga. Jeremiah Reeves var dæmdur fyr- ir að hafa ráðið honum bana og Jam- es Galione fyrir aðild að morðinu. AIls telur lögregla að tíu manns hafi tekið þátt í átökunum og gæti farið svo að fleiri verði handteknir í kjöl- far þessa dóms, að því er fram kemur í dagblaðinu Bucks County Courier Times. Réttarhöldin stóðu yflr í þijár vik- ur og á föstudag kvað kviðdómurinn upp dóminn eftir að hafa fjallað um málið fyrir luktum dyrum í tvo daga. Mennimir höfðu gengið lausir gegn tryggingu, en dómarinn úrskurðaði að þeir skyldu nú hefja fangavist sína. Hversu þungan dóm þeir hljóta verður ákveðið innan 60 daga frá því að dómurinn féU. Lögmenn mann- anna hafa þegar lýst yfir því að þeir muni áfrýja. Bima Blöndal var í dómshúsinu þegar dómurinn féll og sagði í Cour- ier Times að hún hefði tárast. í sam- tali við blaðið sagði Birna að hún hygðist dveljast áfram í Bandaríkj- unum ásamt tæplega tveggja ára gömlum syni þeirra Davids, þrátt fyrir áfallið við að missa mann sinn, og til greina kæmi að verða banda- rískur ríkisborgari: „Hér á ég fjöl- skyldu. Hér er nú heimili mitt.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.