Morgunblaðið - 02.02.2000, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
P
AKUREYRI
Félagsstofnun stúd-
enta á Akureyri
Bæjarráð
styrkir bygg-
ingafram-
kvæmdir
BÆJARRÁÐ Akureyrar samþykkti
á fundi í vikunni að styrkja Félags-
stofnun stúdenta á Akureyri með 1,5
milljóna króna framlagi vegna bygg-
ingaframkvæmda, en Félagsstofnun
hafði óskað eftir 1,6 milljóna króna
framlagi frá Akureyrarbæ vegna
framkvæmda við byggingu stúd-
entaíbúða.
Á vegum Félagsstofnunar stúd-
enta á Akureyri er nú verið að reisa 7
hæða hús með 29 íbúðum en fyrsta
skóflustunga að byggingunni var
tekin í september síðastliðnum. í
húsinu verða 14 þriggja herbergja
íbúðir og jafnmargar tveggja her-
bergja íbúðir auk einnar einstakl-
ingsíbúðar. Félagsstofnun kaupir í
fyrsta áfanga 10 íbúðir í húsinu, sem
SJS-verktakar eru að byggja, en
skuldbindur sig til að taka hinar
íbúðirnar á leigu. Stefnt er að því að
kaupa allar íbúðirnar svo fljótt sem
auðið er, sennilegast á næstu tveim-
ur árum.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Dönsuðu í einn sólarhring
NEMENDUR í 10. bekk f Glerár-
skóla tóku sig til um helgina og
dönsuðu í einn sólarhring. Fyrsti
dansinn var stiginn kl. 21 á föstu-
dagskvöld og svo var stanslaust
stuð á gólfinu í félagsmiðstöðinni
þar til yfir lauk á sama tfma á laug-
ardagskvöld. Áður höfðu nemendur
safnað áheitum en með þessu mara-
þoni söfnuðu þau um 85 þúsund
krónum sem lagðar verða í ferða-
sjóð þeirra.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Gísli Olafsson, fyrrverandi yfírlögregluþjónn, sagðist hafa verið félagi í
Rauða krossinum frá fæðingu, en hér ræðir hann við Jósep Hallsson
slökkviliðsmann í afmælissamkomu Akureyrardeildar Rauða krossins.
Freyvangsleikhiisið
Fló á skinni
frumsýnt
FREYVANGSLEIKHÚSIÐ í Eyja-
fjarðarsveit frumsýnir hinn vel-
þekkta og bráðsmellna gamanleik
Fló á skinni eftir Georges Feydeau,
föstudaginn 4. febrúar.
Þýðingu verksins, sem er franskt
að uppruna, gerði Vigdís Finnboga-
dóttir. Leikstjóri er Oddur Bjami
Þorkelsson, sem á síðustu misserum
hefur getið sér gott orð fyrir leik-
stjóm hjá áhugaleikfélögum.
Fló á skinni hefur verið sýnd víða
um land við miklar vinsældir enda um
að ræða verk sem kætir alla fjölskyld-
una. Svo sem gjaman er í leikritum af
þessum toga er atburðarásin hröð,
svo hröð að lítið þarf til að misskiln-
ingur verði og auki enn á skemmtan
leikhúsgesta og bráðfyndið írafárið á
sviðinu - án þess það fari þó alveg úr
böndunum.
Leikendur eru 14 talsins í sýning-
unni og þar af einn í tveimur hlut-
verkum, báðum býsna stómm. Á fjöl-
unum hjá Freyvangsleikhúsinu má
núna sjá marga af reyndustu leikur-
um félagsins og auk nýrra andlita
sem gengið hafa tíl liðs við hópinn.
Við gerð íburðarmikillar sviðs-
myndar naut Freyvangsleikhúsið
hugmyndar Hallmundar Kristinsson-
ar og var hún síðan útfærð af leik-
stjóra í samvinnu við smiði félagsins.
Búningar vom hannaðir á staðnum
eftir línum sem Hlín Gunnarsdóttir
búningahönnuður lagði. Þá hafa ófá
handtök verið unnin hvað varðar
saumaskapinn sem reyndist drjúgur
svo og málningarvinnu, sviðsbúnað
ogleikmuni.
Önnur sýning á „Fló á skinni“ verð-
ur sunnudaginn 6. febrúar og stefnt
er að sýningum allar næstu helgar.
Akureyrar-
deild Rauða
krossins
75 ára
FJÖLMARGIR fögnuðu með for-
svarsmönnum Akureyrardeildar
Rauða krossins þegar haldið var
upp á 75 ára afmæli deildarinnar
um helgina.
Deildin var stofnuð að frum-
kvæði Steingríms Matthíassonar
þáverandi héraðslæknis 29. jan-
úar árið 1925 og hefur markmiðið
frá upphafi verið að hlúa að þeim
sem um sárt eiga að binda. Starf-
semin byggist að mestu leyti á
öflugu sjálfboðaliðastarfi en um
500 félagar eru í Akureyrardeild-
inni.
Fulltrúar félagsins kynntu
starfsemi deildarinnar og þá gátu
gestir skoðað sjúkrabíl og ýmis
tæki og tól sem til eru í eigu
deildarinnar auk þess sem boðið
var upp á kaffiveitingar.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Þessir ungu menn höfðu óskaplega gaman af því að prófa sætin í sjúkra-
bílnum, á afmælishátíðinni um helgina, og er aldrei að vita nema þeir
eigi eftir að Ieggja Rauða krossinum lið þegar fram líða stundir.
Háskólinn á
Akureyri
Axel
Björnsson
prófessor í
umhverfis-
vísindum
AXEL Bjöi-ns-
son jarðeðlis-
fræðingur hef-
m m ur verið ráðinn
prófessor í um-
hverfisvísind-
um við Háskól-
ann á Akureyri.
Hk IB Axel lauk
wffTi W doktorsprófi í
.Ajtel jarðeðlisfræði
Björnsson frá Háskólan-
um í Göttingen
í Þýskalandi árið 1972. Hann
starfaði á jarðhitadeild Orku-
stofnunar frá 1972 til 1990 og
vann þar einkum við jarðhitaleit
og að virkjun jarðhita fyrir
fjölmargar nýjar hitaveitur en á
áttunda áratugnum tvöfaldaðist
það húsrými, sem hitað var með
jarðhita. Axel var deOdarstjóri
jarðeðlisfræðideildar og síðar
yfirverkefnisstjóri og staðgeng-
01 forstjóra jarðhitadeildar
Orkustofnunar. Hann stundaði
einnig eldfjaUarannsóknir í
tengslum við Kröfluelda og
grunnrannsóknir á eðli og eigin-
leikum jarðskorpunnar. Árið
1990 hóf Axel störf hjá Vísinda-
ráði og var framkvæmdastjóri
ráðsins og Vísindasjóðs til árs-
ins 1994, þegar Vísindaráð og
Rannsóknarráð ríkisins voru
sameinuð. Frá 1995 starfaði Ax-
el á Norrænu eldfjallastöðinni í
Reykjavík við grunnrannsóknir
í jarðvísindum, eldfjaUafræði og
rannsakaði umhverfisáhrif elds-
umbrota á jökulár uns hann tók
við starfi prófessors við Háskól-
ann á Akureyri þar sem hann
mun sinna kennslu og rann-
sóknum í jarðvísindum og um-
hverfisfræðum.
Axel hefur áður kennt við Há-
skóla Islands, Háskólann á Ak-
ureyri, Jarðhitaskóla Samein-
uðu þjóðanna og við erlendar
stofnanir og verið faglegur ráð-
gjafi Sameinuðu þjóðanna í erl-
endum jarðhitaverkefnum. Eft-
ir hann Uggja tugir
vísindagreina í erlendum og inn-
lendum tímaritum um niður-
stöður eigin rannsókna svo og
tugir rannsóknarskýrslna um
jarðhita- og eldfjallarannsóknir.
Axel hefur setið í ritstjóm
þriggja erlendra fagtímarita,
verið fulltrúi íslands í nefndum
á vegum Norrænu ráðherra-
nefndarinnar og Evrópubanda-
lagsins og gegnt ýmsum öðrum
trúnaðarstörfum fyrir stjóm-
völd og vísindasamfélagið.
Hann sat m.a. í 15 ár í ráðgjafar-
ráði Almannavarna um náttúru-
vá, hann var m.a. um skeið for-
maður Jarðfræðafélags íslands
og er nú varaforseti Vísindafé-
lags íslendinga.
Kona Axels er Hrefna Krist-
mannsdóttir, jarðefnafræðingur
og deildarstjóri á Orkustofnun.
AKO/Plastos gerir flutninga- og
þjónustusamning við Eimskip
FORSVARSMENN AKO/Plastos á Akureyri og
Eimskips hafa nýlega gengið frá samningi um
flutninga, en samkvæmt honum mun Eimskip
annast allan forflutning fyrir AKO/Plastos og
skjalavinnslu erlendis sem og innflutning og toll-
skýrslugerð hér á landi. Þá mun Eimskip sjá um
flutning alls hráefnis frá Reykjavík að verksmiðju
AKO/Plastos á Akureyri, á sjó og landi, flutning á
framleiðslu fyrirtækisins frá verksmiðju á Akur-
eyri til Reykjavíkur inn á vömhótel Eimskips og
dreifingu frá vömhótelinu í smávöraverslanir og
til annarra viðskiptavina um allt land.
Auk þessa hefur verið gerður þjónustusamning-
ur um skrifstofuaðstöðu fyrir þjónustumiðstöð
AKO/Plastos í húsnæði VM í Klettagörðum í
Reykjavík, en þar er miðstöð Flytjanda, sem er
með víðtækt flutninga- og þjónustunet um land
allt.
Samningarnir hafa í för með sér aukið hagræði
fyrir AKO/Plastos, þar sem flutningar, dreifing og
þjónusta er á einni hendi.
AKO/Plastos framleiðir, flytur inn og selur
plastumbúðir. Heildarfjöldi starfsmanna er um 60
manns og fyrirtækið er með starfsemi á tveimur
stöðum, framleiðslu á Akureyii og þjónustumið-
stöð í Garðabæ, en sú starfsemi flytur innan nokk-
urra vikna í Klettagarða sem fyrr segir.
I
1
■
0
|
I-