Morgunblaðið - 02.02.2000, Page 24
24 MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Rannveip: Guðmundsdóttir alþinfflsmaður um íbúðalánasjjóð
Ráðherra fer með rangt mál
RANNVEIG Guðmundsdóttir al-
þingismaður segir Pál Pétursson
félagsmálaráðherra fara með rangt
mál, í viðtali við Morgunblaðið í
gær, að sú reglugerðarbreyting
sem gerð var á húsbréfakerfinu í
lok desember geri alla íbúðakaup-
endur jafnsetta.
Að sögn Rannveigar hefur reglu-
gerðarbreytingin það í för með sér
að allir íbúðarkaupendur, sem sýnt
geta fram á að standa undir skuld-
bindingum, geti fengið 6 milljóna
króna hámarkslán við skipti á íbúð-
um. „Nú er hámarkslán veitt, óháð
því hvort kaupandinn þarf á allri
upphæðinni að halda. Því er t.d.
unnt að nota lánin til að fjármagna
eigin neyslu."
Grundvallarbreyting
á húsnæðiskerfinu
Hún segir það vekja furðu sína
að ráðherra tali um að breytingin
komi eldra fólki og eigendum fast-
eigna á landsbyggðinni til góða,
vegna þess að það fólk hafi áður, í
öllum tilfellum, fengið að láni mis-
muninn á verði keyptra og seldra
íbúða.
Rannveig telur að hér sé á ferð-
inni grundvallarbreyting á húsnæð-
iskerfinu. „Þegar Ibúðalánasjóður
var settur á laggirnar þótti það
vera grundvallaratriði að íbúðar-
kaupendur fengju einungis mismun
kaupverðs og söluverðs lánaðan.
Ekki var ætlast til að meira væri
lánað en þurfti til að kaupa íbúð.“
Hún segir breytinguna hafa opn-
að fyrir þenslu á íbúðalánamarkaði
og við blasi að útlán Ibúðalánasjóðs
muni aukast.
Þetta er þó ekki það eina innan
húsnæðiskerfisins sem aukið hefur
á þenslu, að mati Rannveigar.
„Þau mörk sem gilda um hvað
einstaklingar þurfa að hafa til ráð-
stöfunar við íbúðarkaup voru ný-
lega hækkuð. Þau voru áður 18%,
en eru nú komin í 30%. Forsendan
fyrir breytingunni var sú að menn
gáfu sér að neysla allra í þjóðfélag-
inu væri jöfn. Þetta ýtti meðal ann-
ars undir það, að fólk keypti dýrari
eignir en skynsamlegt þótti sam-
kvæmt fyrri reglum. Afleiðingin
varð sú að þetta reyndist mikill
lántökuhvati og jók því á þensluna
í þjóðfélaginu," bætti Rannveig við.
Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, um íbúðalánasjóð
Það stendur sem
sagt hefur verið
HALLDÓR J. Kristjánsson, bank-
astjóri Landsbanka Islands, segist
fagna því að Páll Pétursson, félags-
málaráðherra, skuli vera tilbúinn að
skoða þann möguleika að tiltekinn
þáttur í starfsemi Ibúðalánasjóðs
verði yfirtekinn af bankakerfinu.
Hann segir þetta ekki síður fagn-
aðarefni fyrir Samband íslenskra
viðskiptabanka, sem hafi lagt slíka
breytingu til. Varðandi útlánaaukn-
ingu til einstaklinga sagði Halldór
að það stæði sem hann hefði sagt.
Hlutur Ibúðalánasjóðs í útlána-
aukningu til einstaklinga á síðasta
ári væri um 49% af heildaraukningu
útlána til einstaklinga á árinu. Hitt
væri vafalaust rétt að íbúðalána-
sjóður hefði aukið útlán sín á milli
áranna um 14,4%. Bankinn hafi ein-
ungis verið að vekja athygli á því, í
umræðu um þenslu og útlánaaukn-
ingu, að u.þ.b. helmingur af útlána-
aukningu til einstaklinga á síðasta
ári stafaði frá íbúðalánasjóði.
„Samstarf Landsbankans og
Ibúðalánasjóðs er og hefur verið
með miklum ágætum. Eg held að
það sé ekki hægt að lesa út úr okk-
ar orðum beina sérstaka gagnrýni á
starfsemi íbúðalánasjóðs. Við vor-
um hins vegar að varpa fram hug-
myndum um breytta verkaskipt-
ingu bankanna og íbúðalánasjóðs
með það að markmiði að auka hlut-
deild bankakerfisins í veitingu
íbúðalána. í því sambandi var
minnst á tillögur Sambands ís-
lenskra viðskiptabanka um að
íbúðalánasjóður breyttist í verð-
bréfunarfyrirtæki, þ.e. annaðist
heildsöluþjónustu á markaðnum,"
segir Halldór.
Hann kveðst hafa lagt á það
áherslu á fundinum að þróunin í
verkskiptingu gæti tekið um 5-10
ár. „Við erum ekki að leggja til að
Landsbankinn taki yfir íbúðalána-
markaðinn, heldur að bankakerfið í
heild sinni komi sér saman um betri
verkaskiptingu milli íbúðalánasjóðs
og bankanna og að það verði gert í
góðu samstarfi við Ibúðalánasjóð."
Að sögn Halldórs gætir misskiln-
ings í orðum félagsmálaráðherra,
að heimilislán Landsbankans séu
einungis veitt íbúum á höfuðborgar-
svæðinu. „Þetta er alls ekki rétt.
Það skilyrði var sett í upphafi þegar
bankinn samdi við langtímafjár-
festa, sem taki þátt í fjármögnun-
inni með kaupum á verðbréfasöfn-
um, að veð sé tekið í fasteignum á
svæðum þar sem virkur húsnæðis-
markaður er og þar sem eignir eru
auðseljanlegar. Að okkar mati er
þetta eðlilegt skilyrði.
Við erum ánægð með viðtökur við
Heimilislánum bankans," segir
Halldór, „og höfum veitt slík lán á
höfuðborgarsvæðinu og víða um
land.“
Bandarískir neytendur
Tvöfalt
hraðari
útgjalda-
aukning
Reuter
ÚTGJÖLD bandarískra neytenda
jukust meira en tvöfalt hraðar á
seinasta ári en sem nam aukningu
tekna, sagði í tilkynningu banda-
ríska viðskiptaráðuneytisins á
mánudag.
Neytendur fórnuðu sparnaði og
eyddu miklu fyrir síðustu jól, sem
jók útgjöld fyrir allt árið 1999
meira en gerst hefur í 10 ár.
Útgjöld neytenda jukust um
0,8% í desember og námu 6,47
trilljón dollurum á ársgrundvelli
sem jafngildir rúmum 476 þúsund
milljörðum íslenskra króna.
Tekjur neytenda jukust hins
vegar aðeins um 0,3% í desember
og námu tæpum 589 þúsund millj-
örðum króna, einnig á ársgrund-
velli.
Yfir allt árið 1999 jukust útgjöld
neytenda til alls kyns vara og
þjónustu um 6,9% og var það
mesta aukning síðan útgjöld jukust
um 7,2% árið 1989. Aukningin var
hins vegar um 5,9% árið 1998.
Tekjur neytenda jukust um 5,9%
á árinu 1999 sem er sama tala og
árið 1998.
Afleiðing af þessu samspili aukn-
ingar tekna og útgjalda er sú að
hlutfall einkasparnaðar hjá banda-
rískum neytendum lækkaði í 2,4
sent á hvern dollar og er það nýtt
met, en sparnaður hafði numið 3,7
sentum á hvern dollar árið 1998.
SPARISJÓÐABANKI
ÍSLANDS HF.
ICEBANK LTD.
Skráning þingvíxla
á Verðbréfaþingi Islands
Nafnverð útgáfu Gefnir verða út allt að 23 flokkar, þar sem hver
og lánstími: flokkur er til 1 mánaðar í senn, í fyrsta sinn
1. febrúar 2000. Heildarnafnverð útgefinna flokka
ræðst af markaðsaðstæðum. Stærð flokkanna
verður á bilinu o -1.500.000.000 kr.
Útgefandi: Sparisjóðabanki fslands hf.
kt. 681086-1379, Rauðarárstíg 27,105 Reykjavík.
Skráningardagur Verðbréfaþing íslands hefur samþykkt að taka
á VÞÍ: útgefna víxla á skrá þingsins enda uppfylli þeir
skilyrði skráningar. Útgáfa hvers flokks verður
tilkynnt á VÞÍ hverju sinni.
Ávöxtunarkrafa Ávöxtunarkrafa ákvarðast af markaðsaðstæðum
á söludegi: á fyrsta söludegi.
Skilmálar: Víxlarnir eru seldir gegn staðgreiðslu
í 10.000.000 og 50.000.000 kr. einingum.
Umsjón með Viðskiptastofa Sparisjóðabanka fslands hf.,
skráningu: kt: 681086-1379 hf, Rauðarárstíg 27,105 Reykjavík.
Skráningarlýsing og önnur gögn
varðandi ofangreinda þingvíxla liggja frammi hjá:
Viðskiptastofu Sparisjóðabanka íslands hf,
Rauðarárstíg 27,105 Reykjavík,
Sími 540-4000, myndsendir 540-4181.
Auk þess er hægt að nálgast upplýsingar
á heimasíðu bankans www.icebank.is
Einn mesti pólfari samtímans
Árið 1990 gekk Berge á Norðurpólinn með Erling
Kagge án utanaðkomandi aðstoðar.
Árið 1994 gekk hann á Norðurpólinn einn án
utanaðkomandi aðstoðar.
Veturinn 1995/1996 gekk Borge á Suðurpólinn
án utanaðkomandi aðstoðar.
Veturinn 1996/1997 var hann fyrsturtil þess að
ganga yfir Suðurskautið án utanaðkomandi
aðstoðar.
Nánari upplýsingar um Borge er að finna á
heimasíðu hans http://www.ousland.com
Missið ekki af þessu einstæða tækifæri!
Miðaverð 500 kr. I
Forsala aðgöngumiða er í Útilrf Glæsibæ. i
ÚTILÍF
GLÆSIBÆ
Sími 545 1500 • www.utilif.is