Morgunblaðið - 02.02.2000, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 02.02.2000, Qupperneq 26
26 MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Hörð viðbrögð Evrópuríkja við mögulegri stjdrnarþátttöku Frelsisflokksins í Austurríki ESB fylgist grannt með framvindu ESB gagnrýnt fyrir að vilja taka fram fyrir hendurnar á kjósendum Brusscl, Vín, Berlín. AFP, AP, Reuters. í NAFNI þess að vera skilgreindur vörður þeirra gilda sem í stofn- sáttmála Evrópusambandsins (ESB) eru lagðar til grundvallar nánu sam- starfi aðildarþjóðanna - svo sem lýð- ræðis og virðingu fyrir mannréttind- um - lýsti framkvæmdastjórn ESB því yfir í gær að hún myndi fylgjast náið með framvindu mála í Austur- ríki, þar sem hægrisinnaður „lýð- skrumsflokkur" er í þann mund að komast í ríkisstjórn. Romano Prodi, forseti fram- kvæmdastjómarinnar, gaf yfirlýs- inguna út að loknum neyðarfundi hennar í Brussel í gær, en til hans var boðað í kjölfar þess að ráðherra- ráð sambandsins sendi á mánudag frá sér harðorða viðvörun um að póli- tísk tengsl ESB við Austurríki yrðu skorin niður í algert lágmark ef Frelsisflokkur Jörgs Haiders ætti aðild að næstu ríkisstjóm landsins. „Framkvæmdastjómin hefur tek- ið til skoðunar yfirlýsingu ráðherra- ráðsins frá 31. janúar, sem for- mennskuríkið Portúgal gaf út í nafni 14 aðildarríkja, og deilir þeim áhyggjum sem hún byggir á,“ sagði Prodi á blaðamannafundi. Haider myndi hagnast mest á nýjum kosningnm Viðvömn ráðherraráðsins endur- speglar þau nærri örvæntingarfullu viðbrögð sem þau tíðindi ollu á mánudag, að Frelsisflokkur Haiders og Þjóðarflokkurinn, flokkur austur- rískra íhaldsmanna, væri í þann mund að ganga frá samkomulagi um stjórnarsamstarf, en aðrar tilraunir til stjómarmyndunar eftir þingkosn- ingarnar 3. október sl. hafa ekki skil- að neinum árangri. Valdatómarúm hefur því ríkt í landinu sl. fjóra mánuði. Frelsis- flokkurinn (FPÖ) náði næstflestum atkvæðum í kosningunum og 52 þingsætum, jafnmörgum og Þjóðar- flokkurinn (ÖVP), en hann hefur, undir forystu Wolfgangs Schussels, verið í stjóm með Jafnaðarmanna- flokknum (SPÖ) undanfarin 13 ár. SPÖ, undir forystu Viktors Klima, fráfarandi kanzlara, hélt stöðu sinni sem stærsti flokkurinn og hlaut 65 þingsæti, en nýjustu skoðanakann- anir sýna, að yrði ekkert úr myndun þeirrar nýju stjómar sem nú hillir undir og boðað yrði til kosninga á ný væri líklegasta útkoman sú að Frels- isflokkurinn fengi flest atkvæði. Thomas Klestil forseti hefur enn ekki veitt formlegt umboð til mynd- unar ríkisstjómar FPÖ og ÖVP, en gangi eftir sem þeir Schussel og Hai- der hafa lýst yfir, að stjórnarsátt- máli verði frágenginn í dag eða á morgun, þá væri honum vart stætt á öðra en að leggja blessun sína yfir þann ráðahag. Geri hann það ekki myndi hann með því kalla yfir sig reiði meirihluta austurrískra kjós- enda og sú reiði myndi koma Frelsis- flokknum vel í kosningunum sem þá yrðu óumflýjanlegar. Rangar aðferðir ESB Það eru enda ekki allir ráðamenn Evrópu samþykkir því að Austurrík- ismenn séu beittir svo harkalegum þrýstingi erlendis frá eins og gert er Reuters Jörg Haider, leiðtogi Frelsisflokksins í Austurrfld, situr við samningaborðið ásamt forystumönnum Þjóðar- fiokksins í Vín í gær, en flokkarnir sögðust vera að leggja síðustu hönd á sijómarsáttmála, þrátt fyrir harða gagnrýni á ráðahaginn erlendis frá. með yfirlýsingu ráðherraráðs ESB. Ingo Friedrich, varaforseti Evrópu- þingsins og sem slíkur hæst setti kjömi fulltrúi Þýzkalands í stjóm- kerfi ESB, gagnrýndi í gær aðgerðir ráðherraráðsins. Sagði hann rangt af sambandinu að blanda sér með svo afgerandi hætti í austurrísk innan- ríkismál. Hótun hinna aðildarríkj- anna 14 um að frysta pólitísk tengsl við Austurriki myndi ekki leiða til annars en aukins fylgis við Haider og flokk hans. Og Karl Lamers, utanríkismála- talsmaður þingflokks Kristilegra demókrata á þýzka þinginu, gagn- rýndi ESB einnig fyrir að hóta Aust- urríki alþjóðlegri einangran. „Slíkt styrkir aðeins stöðu Jörgs Haiders. Með ríkisstjómarþátttöku myndi opnast tækifæri til að rjúfa þau álög sem honum hefur tekizt að leggja á austurríska kjósendur sem lýð- skramari á hægrivængnum og fjöl- miðlafyrirbæri,“ hefur þýzka dag- blaðið Hannoversche Állgemeine Zeitung eftir Lamers. Gerhard Schröder, kanzlari Þýzkalands og leiðtogi þýzkra jafn- aðarmanna, hefur lýst yfir áhyggjum af þróun mála og hvatt Austurríkis- menn til að stíga ekki þau skref sem myndu kalla einangrun yfir landið. Enn aukast vandræði Schaubles Verst gagnrýni vegna funda með vopnasala Berlfn. AP, Reuters. JAFNAÐARMENN á þýska þing- inu og dagblöð í Þýskalandi kröfðust í gær afsagnar Wolfgangs Scháubles úr embætti flokksformanns Kristi- legra demókrata (CDU), en sam- flokksmenn vörðu hann og lögðu að honum að sitja áfram. Scháuble hef- ur nú þvert ofan í fyrri yfirlýsingar viðurkennt að hafa tvisvar hitt vopnasala, sem greiddi fé í leynisjóði flokksins. Scháuble hefur áður ítrekað stað- hæft að hann hafi aðeins hitt vopna- kaupmanninn Karlheinz Schreiber einu sinni. Fundum þeirra hafi borið saman í september 1994 og þá hafi Scháuble tekið við 100.000 marka greiðslu af Schreiber, jafnvirði um 3,7 milljóna íslenskra króna. Nú seg- ist Scháuble hafa flett í dagbók sinni og séð að hann muni hafa hitt mann- inn aftur í júní 1995. Hann kveðst þó ekki muna hvort sá fundur hafi raun- veralega átt sér stað. Scháuble hefur áður sagst munu bjóða sig fram til endurkjörs á flokksþingi Kristilegra demókrata í apríl. Dagblaðið Frankfarter Ali- gemeine Zeitung dró þó í efa í gær að svo gæti orðið eftir að hann hefði orð- ið uppvís að ósannindum. Schreiber, sem er búsettur í Kan- ada, hefur sagt að hann hafi með greiðslunni viljað kaupa sér stuðning Kristilegra demókrata við áform þýsks fyrirtækis, sem hann var um- bjóðandi fyrir, um að reisa vopna- verksmiðju þar í landi. Þýsk stjóm- völd hafa farið fram á framsal Schreibers frá Kanada vegna meintra brota hans á þýskum skatta- lögum. Bundesnachrichtendienst (BND), hefði á áttunda áratugnum byrjað að koma milljónum marka í reiðufé til stærstu stjómmálaflokkanna í land- inu, í því skyni að féð yrði nýtt til að styðja við bakið á lýðræðisþróuninni á Spáni og í Portúgal. Að sögn AP staðfestu heimildarmenn innan þýzku stjómsýslunnar frásögn blaðs- ins, en samkvæmt henni rannu á bil- inu 30 og 40 milljónir marka, andvirði 1100-1500 milljóna króna, frá leyni- þjónustunni til flokkanna á tímabil- inu 1974-1982, þ.e. í kanzlaratíð jafn- aðarmannsins Helmuts Schmidts. Þar sem greiðslumar vora inntar af hendi í reiðufé var ekki mikið um eftirlit með því hvemig því væri varið í raun. Suddeutsche Zeitung velti því þess vegna fyrir sér, hvort hluti fjár- ins hefði ekki endað í leynilegum kosningasjóðum á borð við þá sem fjármálahneyksli CDU snýst nú um. Hague stokkar Lundúna- augað vígt VÍÐÁTTUMIKIÐ útsýni yfir Lund- únir er úr Lundúnaauganu, 140 metra háu parísarhjóli á bökkum Thames. Ferð með hjólinu, sem var tekið í notkun í gær. tekur rúman hálftíma og hafa gestir útsýni m.a. yfír bæði Westminster Palace og Big Ben líkt og greina má í bakgrunni myndar- innar. Upphafiega stóð til að vígja hjól- ið á nýársdag sem hluta af ár- þúsundaskiptafagnaði borgarinnar, en vegna tæknilegra örðugleika var vígslu þess frestað um mánuð. upp London. Reuters. MICHAEL Portillo, fyrrverandi vamarmálaráðherra Bretlands, verður líkast til næsti talsmaður skuggaráðuneytis breska Ihalds- flokksins varðandi fjármál að því er fram kom í gær. Portillo tekur þar með við af Francis Maude, sem mun eftirleiðis Ijalla um utanríkismál fyrir flokkinn, embætti sem John Mapeles gætti áð- ur. Búist var við að Portillo, sem var varnarmálaráðherra í ríkisstjórn Johns Majors, myndi fá umsjón með einhverju af skuggaráðuneytunum eftir að hann fór með sigur af hólmi í aukakosningum um þingsæti Kens- ington- og Chelsea-hverfisins í Lon- don á síðasta ári. John Redwood hefur einnig látið af embætti innan skuggaráðuneytis- ins og tekur Archie Norman við stöðu hans sem talsmaður flokksins í umhverfis- og samgöngumálum. Fé frá leyniþjónustunni? Þá komu í gær fram vísbendingar um óvænta uppsprettu fjár sem falið var á leynilegum bankareikningum CDU. í Siiddeutsche Zeitung var sagt frá því, að þýzka leyniþjónustan, „Hetja tsjestjneskrar alþýðu“ EINUM rússneskum hermanni hefur tekist að vinna rússneska flughernum meira tjón en öllum tsjetsjnesku skæruliðunum hing- að til. Fyrir vikið hafa rússneskir fjölmiðlar sæmt hann nafnbótinni „Helja tsjetsjneskrar alþýðu“. Sagan hófst er Sergei Safonov, óbreyttum hcrmanni, var sagt að hreinsa snjó af flugbraut í einni af bækistöðvum flughersins í Astra- khan í Suður-Rússlandi. Brást hann strax við en svo ilia vildi til er hann fór að skafa, að plógurinn rakst í eldsneytistankinn á Sukhoi 24-sprengjuflugvél, sem var á brautinni. Skipti engum togum, að flug- vélin stóð óðara í ljósum logum og vegna þess, að hvasst var í veðri læsti eldurinn sig í aðra Sukhoi 24 og siðan í þá þriðju. Gekk mikið á er sprengjurnar sprungu hver af annarri og um tíma var óttast, að 17 aðrar flugvélar yrðu eldhafinu að bráð. Áætlað er að óheppni Safonovs hafí kostað rússneska flugherinn rúmlega 3,6 milljarða fsl. kr. en Sukhoi 24-sprengjuflugvélin er ein sú fullkomnasta, sem Rússar eiga. Talið er að þær hafí verið 900 talsins áður en Safonov fór að moka snjó. Moskvublaðið Vremja sæmdi Safonov strax nafnbótinni „Hetja tsjetsjneskrar alþýðu“ fyrir af- rekið en rússneskum hermálayfir- völdum er ekki skemmt. Hafa þau fyrirskipað rannsókn og er búist við að hinn ólánsami hermaður verði dreginn fyrir rétt.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.