Morgunblaðið - 02.02.2000, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000 29
LISTIR
Einn söguþráður
eða margir
TÍMARIT
S a g n f r æ ð i
NÝ SAGA
Ný saga. Tímarit Sögufélags. 11.
árg. 1999. Ritstjórar: Guðmundur
J. Guðmundsson, Guðmundur Jdns-
son og Sigurður Ragnarsson.
104 bls.
í NÝRRI sögu eru að þessu sinni
birtar fjórar sagnfræðilegar greinar.
Þrjár þeirra hafa að því leyti sameig-
inlegt þema að þær fjalla öðrum
þræði um meðferð fræðanna á til-
tækum heimildum um sögu fyrri
alda. Hver með sínum hætti grafa
greinarnar undan viðteknum túlkun-
um á heimildunum og sýna fram á
hvernig menningarbundnar hug-
myndir hafa skotið rótum í orðræðu
um Islandssöguna.
Viðfang Helgu Kress er skrifta-
mál sem eignuð hafa verið Ólöfu n'ku
SJÖNVARP
II o i in i Itl a |i æ tli r
ÍSLAND OG ATLANTS-
HAFSBANDALAGIÐ
Leiðin frá hlutleysi 1940-1949,
Friður í skjdli vopna 1949-1974,
Ný viðhorf í vamarmálum
1974-1999. Þættir gerðir fyrir Rík-
isútvarpið í tilefni af 50 ára afmæli
Atlantshafsbandalagsins. Höfundur
handrits: Hannes Hdlmsteinn Giss-
urarson. Framleiðendur Sigurgeir
Orri Sigurgeirsson og Ólafur Jó-
hannesson. Kvikmyndagerðin Leif-
ur heppni 1999.
LÝÐVELDIÐ ísland var stofn-
að á Þingvöllum 17. júní 1944 á
tímum grimmilegasta og umfangs-
mesta hildarleiks mannkynsins;
heimsstyrjaldarinnar síðari. I
ljóma lýðveldisstofnunarinnar
gerðu Islendingar sér vonir um
það, að land þeirra mætti búa við
frið og öryggi í framtíðinni. Það
hillti undir lok styi'jaldarinnar og
bjartari tímar voru framundan eft-
ir þær fórnir, sem þjóðin hafði fært
á altari stríðsguðsins. En birta hill-
ingarinnar var tálsýn, því öflugasta
bandalagsríki
Vesturveldanna við að brjóta á
bak aftur útþenslustefnu nazism-
ans, Sovétríkin, hóf fljótlega sókn
til að þvinga kúgunarkerfi komm-
únismans yfir heimsbyggð alla.
Það var gæfa íslenzku þjóðarinn-
ar, að leiðtogar vestrænna ríkja,
undir forustu Breta og Bandaríkja-
manna, ákváðu að stöðva landvinn-
inga Stalíns og félaga, en þá höfðu
fjölmörg ríki þegar fallið undir
hramm kommúnismans í austan-
verðri Evrópu. Einbeitni vest-
rænna ríkja við að verja frelsi sitt
leiddi til stofnunar Atlantshafs-
bandalagsins vorið 1949. Upp frá
þeirri stundu glataði ekkert ríki í
Evrópu frelsi sínu. Nú, 50 árum
síðar, er lýðum ljóst, hvílíkt gæfu-
spor stofnun bandalagsins var. Is-
lendingar mega þakka það um ald-
ur og ævi, að þeir áttu pólitíska
leiðtoga, sem höfðu hugrekki og
víðsýni til að leiða lýðveldið unga
til samstarf við vestræn lýðræðis-
ríki innan vébanda NATO. Það var
ekki létt verk á sínum tíma, því
þeir voru úthrópaðir sem föður-
landssvikarar og landsölumenn af
fulltrúum austrænu helstefnunnar
hér á landi. Aðild íslands að NATO
kostaði átök allt þar til að kerfi
kommúnismans hrundi í Evrópu í
kjölfar falls Berlínarmúrsins. A
hálfrar aldar afmæli NATO kepp-
ast fyrrverandi kommúnistaríki
austan járntjalds um það að
tryggja öryggi sitt innan vébanda
Atlantshafsbandalagsins. Miðað við
þá viðsjárverðu tíma er það var
Loftsdóttur. Helga sýnir fram á að
lýsingar meintra skriftamáia Ólafar
bendi til að karlmaður hafi skrifað
textann. Tilgáta hennar er að
skriftamálin hafi verið skrifuð sem
skopstæling staðlaðra forskiifta, en
slíkar stælingar eru vel þekktar frá
síðmiðöldum. í umfjöllun sinni um
feril skriftamálanna í heimi fræð-
anna sýnir Helga hvernig kynbundn-
ir fordómar fræðimanna allt til nú-
tímans hafi mótað lestur þeiiTa.
Þannig hafi fræðimönnum þótt eðli-
legt að tengja nafn þessarar áhrifa-
konu skriftamálunum, þar sem þar
stofnað má líkja stöðunni í dag við
kraftaverk.
Þættir þeirra Hannesar Hólm-
steins Gissurarsonar og félaga um
ísland og Atlantshafsbandalagið,
sem Ríkisútvarpið lét gera til að
minnast 50 ára afmælisins, eru í
sjálfu sér merki um þær breyting-
ar, sem orðið hafa á íslenzku þjóð-
félagi frá stofnun bandalagsins.
Útverðir sovétveldisins hér á landi
hefðu ekki tekið því þegjandi, að
„útvarp íslenzkrar alþýðu" væri
„misnotað" með þessum hætti til
að reka áróður fyrir erlendar „auð-
stéttir, nýlendukúgara og heims-
valdasinna“. I heild má segja, að
þættirnir eru gott yfirlit yfir að-
dragandann að stofnun NATO og
sögu bandalagsins allt fram á okk-
ar daga. Nýjar kynslóðir íslend-
inga, sem ekki upplifðu þau miklu
og óvægnu átök, sem urðu hér á
landi við inngönguna í bandalagið
og fyrstu áratugina á eftir, hafa
gott af því að sjá þessa þætti og
þeir eru kjörið námsefni í fram-
haldsskólum landsins.
Við gerð þáttanna hefur verið
leitað fanga víða, m.a. að nýjum og
gömlum fréttamyndum, sem marg-
ar eru eftirminnilegar, ekki sízt frá
Islandi. Skotið er inn gömlum og
nýjum fréttaviðtölum við stjórn-
málamenn og fræðimenn, sem gefa
þáttunum aukið vægi, og m.a.
koma fram sjónarmið andstæðinga
aðildar landsins að bandalaginu.
Jón Ólafsson sagnfræðingur skýrir
m.a. frá því að hann hafi fundið
skjal í Moskvu sem sannar að ís-
lenzki sósíalistaflokkurinn tók við
beinum pólitískum fyrirmælum
þaðan um afstöðu til mála.
Þættirnir eru fróðlegt yfirlit um
þróunina í alþjóðamálum og á ís-
landi, allt frá því landið varð full-
valda ríki 1918 og mótaði þá stefnu
um ævarandi hlutleysi. Rakin er
þróunin heima og heiman, sem
gerði það að verkum að horfið var
frá hlutleysisstefnunni eftir hern-
ám Breta og herverndarsamningin
við Bandaríkin í júlí 1941. Áherzla
er að sjálfsögðu lögð á stofnun
NATO 4. apríl 1949,
gerð varnarsamningsins og
komu bandarísks varnarliðs til
Keflavíkur 1951 í skugga Kóreu-
stríðsins. Þá eru þorskastríðunum
væri að finna enn eitt merki kveneðl-
isins.
Svemr Jakobsson er að því leyti á
svipuðum slóðum og Helga að hann
tekur að sér að hrekja forsendur við-
tekins útgangspunkts sögunnar.
Haraldur hárfagri hefur lengi verið
mikilvæg persóna í söguskynjun ís-
lendinga en í þessari grein heldur
Svei-rir því fram að hann hafi fyrst
og fremst lifað í bókum síðari tíma
manna. Sverrir bendir á að Harald
sé ekki að finna í samtímaheimildum
en hins vegar sé þar að finna ýmis-
legt sem stríði gegn fullyrðingum
við Breta gerð skil og hversu
heilladrjúg NATO-aðildin var Is-
lendingum í þeim átökum. Þáttun-
um lýkur eftir fall Berlínarmúrsins
og hrun Sovétríkjanna og gerð er
grein fyrir breyttu hlutverki
bandalagsins nú á dögum og aðild-
arumsóknum fyrrverandi austan-
tjaldsríkja, sem umfram allt vilja
tryggja öryggi sitt innan vébanda
NATO.
Þótt hér sé aðeins stiklað á stóru
eru þróuninni, bæði á alþjóðavett-
vangi og innanlands, gerð ágæt skil
af höfundi handritsins. Þó mætti
gjarnan varpa skýrara ljósi á
átök íslenzkra lýðræðissinna og
kommúnista og áhangenda þeirra.
Því er skorað á aðstandendur
þáttanna að bæta hér úr, rekja
sögu átakanna hér innanlands, sem
í raun snerust um sjálfstæði þjóð-
arinnar til framtíðar. Gjarnan má
sýna þá heift, sem beindist að
stuðningsmönnum vestrænnar
samvinnu, og rekja linnulausar
árásir Þjóðviljans og annarra á þá.
Ungt fólk þekkir ekki þessa sögu,
en það er nauðsynlegt vegna fram-
tíðarinnar, því gamlir áhangendur
sovétveldisins fegra fyrri tíma og
sumir þeirra sitja nú í hægu sæti í
lýðræðisríkinu, sem þeir beindu
spjótum sínum að fyrrum.
Björn Jóhannsson
síðari tíma heimilda um tilvist Har-
aldar. Niðurstaða Sverris er að ekk-
ert verði fullyrt um hvort Haraldur
hafi verið til eða ekki, hvað þá að
hann hafi staðið fyrir sameiningu
Noregs og hrundið af stað landflótta
göfugustu manna til íslands.
Þriðja greinin þar sem heimilda-
rýni er í öndvegi er gi’ein Armanns
Jakobssonar ogÁsdísar Egilsdóttur.
Ritgerðin hefur fremur óspennandi
en lýsandi titil, „Er Oddaverjaþætti
treystandi?" Þar er gerðm- saman-
burður á tveimur gerðum Þorláks-
sögu helga og þeirri skoðun haldið
fram að umfjöllun Oddaverjaþáttar
m.a. um staðamál fyrri hafi verið
spunnin upp í pólitísku samhengi
staðamála síðari.
Greinarnar þrjár um sögu fyrri
alda tengja tilkomu heimildanna og
túlkun fræðimanna á þeim pólitísk-
um sjónarmiðum í víðum skilningi.
Sýnt er fram á að í endursköpuninni
á sögunni eru fræðimenn mótaðir í
orðræðu þess umhverfis sem þeir
skrifa í. T.d. bendir rannsókn Sverr-
is Jakobssonar til þess að lífseiglu
sagnarinnar um Harald hárfagra í
sagnfræði muni fyrst og fremst að
leita til þess hlutverks sem hann hef-
ur leikið í sköpunarsögu þjóðarinn-
ar. Menningarbundnar og pólitískar
kringumstæður móta þannig sjónar-
horn fræðanna og gera þau að sjón-
arhorni á, en ekki sannleikann um,
fortíðina. Fræðimenn hafa lengi ver-
ið meðvitaðir um þessi takmörk
fræðanna en á undanfömum áratug-
um hefur áhugi á að kanna eðli og af-
leiðingar þessara marka farið vax-
andi. I ríkara mæli hafa menn
komist að þeirri niðurstöðu að fræð-
in geta ekki staðið utan hins pólitíska
og að einungis meðvitund um viðjar
orðræðunnar getur opnað mögulega
leið til öflugri fræða.
Til þessarar leiðar er skírskotað í
yfirskrift viðtals Páls Björnssonar
við Georg G. Iggers, „Hlutleysi er
ekki lengur í tísku“. Titillinn vísar
m.a. til þeirrar hættu sem yfirlýst
hlutlægni einþráða sagnfræði hefur í
för með sér. Með einþráða sagnfræði
er átt við þá sögu sem skrifuð hefur
verið síðan á 18. öld þar sem saga
Vesturlanda er í aðalhlutverki og í
reynd álitin eina sagan sem staðið
getur undir nafni. Iggers vekur at-
hygh á að annars konar og fjölþráða
saga hafi verið rituð fyrr á öldum,
saga (sögur) sem ekki fylgdi neinum
einum frásagnarhætti heldur gekk
út frá ólíkum menningarlegum for-
sendum. Viss merki em nú á tímum
um að veldi einþráða sögu sé ógnað
innan akademíunnar, t.a.m. með að-
ferðum einsögunnar. Hins vegar,
bendir Iggers á, hafa aðferðir henn-
ar aldrei náð að slíta algerlega
tengslin við einþráða söguna, enda
er erfitt að ímynda sér sagnfræði
sem ekki vísar með einum eða öðram
hætti til þeirrar hefðar sem skapast
hefur í orðræðunni um sögu undan-
farnar tvær aldir.
í grein Önnu Þorbjargar Þor-
grímsdóttur eram við á allt öðram
slóðum. Þar er gerð úttekt á merkri
atvinnusögu matselja í Reykjavík en
allmargar konur höfðu atvinnu af því
fram eftir öldinni að opna heimili sín
og útbúa sem matstofur. Greinin
gefur góða yfirsýn yfir sögu þessar-
ar atvinnugreinar, sem lítið hefur
verið rannsökuð til þessa. Annað efni
í ritinu er uppskrift fáeinna bréfa
vesturfarans Halldóra Jónasdóttur í
Vancouver frá miðri 20. öld í saman-
tekt Katrínar Kristinsdóttur; skipt-
ar skoðanir þeirra Kjartans EmOs
Sigurðssonar og Stefán Pálssonar
um Atlantshafsbandalagið og hug-
leiðing Aðalsteins Árna Baldursson-
ar um hvatir félagasamtaka til að
láta taka saman sögu sína og prak-
tísk úrlausnarefni við slíka sögurit-
un.
Eitt það sem gert hefur Nýja sögu
að áhugaverðu tímariti í gegnum tíð-
ina hefur verið sá metnaður sem höf-
undar og ritstjóm hafa lagt í öflun
myndefnis. Margh- árgangar Nýrrar
sögu státa af merku myndefni sem
varpar ljósi á viðfangsefni grein-
anna, ljósi sem einber ritaður texti
fer á mis við. Þar sem viðfangsefnið
er sótt úr 20. aldar sögu er um auð-
ugan garð að gresja við ritstýringu
mynda eins og sjá má í grein Önnu
Þorbjargar Þorgrímsdóttur. Þar
hefur tekist að tengja saman myndir
og texta á fjölbreyttan hátt með
margskonar ljósmjmdum, gömlum
auglýsingum og teikningum sem efla
verulega gildi ritgerðarinnar. Þegar
viðfangið er miðaldasaga reynir
meira á útsjónarsemi höfunda og rit-
stjóra, enda hefur stór hluti þess
sem kallast getur myndrænt frá
fyrri öldum, og aðgengilegt er, verið
margbirt í bókum og tímaritum.
Þessi árgangm* NýiTar sögu ber
merki þessa vanda og er helst til víða
skreyttur áður birtum myndum sem
auka litlu við greinarnar.
Ólafur Rastrick
Tilkynning um skráningu skuldabréfa á Verðbréfaþing Islands
HRAÐFRYSTIHÚS ESKIFJARÐAR
1. FLOKKUR 1999
kr. 120.000.000.-
kr. hundraðogtuttugu milljónir 00/100
Útgáfudagur: 1. desember 1999
Áv.kr. á útgáfudegi: 6,50%
Grunnvísítala: Nvt. 193,3
Lánstími: 7 ár og 3 mánuðir
Einingar bréfa: kr. 5.000.000.-
Skráning: Veröbréfaþing íslands hefur samþykkt aö taka skuldabréfin á skrá
og veröa þau skráö 2. febrúar 2000, enda veröi öll skilyröi
skráningar uppfyllt.
Upplýsingar og gögn: Skráningarlýsing og önnur gögn sem vitnaö er til í
skráningarlýsingunni liggja frammi hjá Landsbanka íslands hf.,
Laugavegi 77, 4. hæö, 155 Reykjavík og á skrifstofu
Hraöfrystihúss Eskifjaröar, Strandgötu 39, 735 Fjaröarbyggö.
Söluaðilar og
umsjón með útgáfu: Landsbanki Island hf. - Viöskiptastofa, Laugavegi 77,
4. hæö, 155 Reykjavík.
Landsbanki íslands
Landsbankl íslands hf. - Vlöskiptastofa
Laugavegi 77, 155 Reykjavík, sími 560 3100, bréfsfmi 560 3199, www.landsbanki.is
Friður í 50 ár
Allt að 50% af verði á útsölunni