Morgunblaðið - 02.02.2000, Page 33

Morgunblaðið - 02.02.2000, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000 33 æstu spor framb.jóðenda luga iast agra forsetakosninga í ihildur Sverrisdóttir fór íklegastir eru til að berj- esta haust. Reuters ita, heilsar stuðningsmönnum sinum npshire. Reuters nnir sér hér í atkvæðaveiðaham niður urasystrunum Lizzy og Laura Saggau. konu sína sárlega og sagði prestinum við jarðarförina að hann hefði elskað hana svo heitt. Og að einu sinni hefði hann verið nærri því að segja henni það. „Guð minn góður,“ stundi kona við hlið blaðamanns og þerraði tár af hvarmi. Hún hefur sjálfsagt áttað sig á skilaboðunum frá Bradley: Kjósið mig núna, sýnið mér að þið elskið mig áður en það er orðið of seint. Fæstir efast um einlægni Bradleys í kosningabaráttunni, en margir benda á að hann muni aldrei fá bandaríska þingið til að samþykkja markmið sín, til dæmis um gjör- breytt heilbrigðiskerfi. A1 Gore vara- forseti sé vænlegri kostur, því hann kunni á kerfið í Washington, sé raun- ar einn máttarstólpa þess og því vænlegri til að ná hófsamari baráttu- málum sínum fram. Bradley verður að ná góðum árangri í New Hampshire ef hann ætlar sér að halda baráttunni áfram af einhverj- um krafti. Reyndar segist hann sjálf- ur ekki ætla að draga sig í hlé þótt Gore sigri í fyrstu lotu. Enginn bilbugur á McCain Á John McCain, öldungardeildar- þingmanni frá Ai'izona, var engan bilbug að finna og stuðningsmenn hans voru fullir eldmóðs, sungu „Go, Johnny, go“ og fögnuðu honum með hrópum og köllum, blístri og stappi. McCain stóð á tröppum ráðhússins í Bedford, umkringdur eiginkonu, börnum og barnabörnum. Það var líkast því að hann væri að taka við embætti forseta Bandaríkjanna. Þessi fundur var ekki hjartnæmur og McCain nefndi ekki jarðarfarir hálfu orði. Hann hvatti að vísu sitt fólk til að mæta á kjörstað og taka alla ætt- ingja sína og vini með sér, lífs sem liðna, a.m.k. „ef þeir eru tiltölulega nýlátnir.“ Þessi athugasemd var dæmigerð fyrir McCain. Hann missir út úr sér óviðeigandi athugasemdir við hvert fótmál. Og kemst upp með það. McCain segist ætla að berjast gegn sérhagsmununum, sem öllu ráði í Washington og hvetja ungu kynslóðina til að taka verðug baráttumál upp á sína arma. Þegar hann lauk stuttri ræðu sinni ærðust stuðningsmennirnir af fögnuði og loftið fylltist af litskrúðugum papp- írsrenningum og sneplum, blöðrum og spjöldum. Þarna var loks stemmningin, sem blaðamaður hafði búist við að finna í New Hampshire. Frambjóðandi í klóm öryggisgæslu í lok dags var haldið til Amherst, á fund Gores varaforseta. Og ef hinir fundirnir þrír voru dæmigerðir fyrir hvern frambjóðendanna, litla veit- ingahúsið hans Bush, hæglátleg ræð- an hjá Bradleys, stráksleg stemmn- ingin hjá McCain, þá var fundur Gores ekki síður dæmigerður. Hann var í íþróttasal grunnskólans í Am- herst, en þegar hvert sæti var skipað var ekki fleirum hleypt inn. Leyni- þjónusta Bandaríkjanna, sem gætir öryggis varaforsetans, hafði kallað til eldvarnareftirlitið og fengið staðfest að fleiri mættu ekki vera í húsinu. Þá var slagbrandurinn settur fyrir dyrnar. Gore var gagnrýndur mjög fyrir það í upphafi kosningabaráttunnar að hann skýldi sér á bakvið varafor- setaembættið, væri ósnertanlegur og umkringdui' lífvörðum allan sólar- hringinn. Hann hefur breytt barátt- unni verulega og til hins betra að þessu leyti, en þetta kvöld í Amherst var hann uppi á sviði að sannfæra kjósendur um ágæti sitt, leyniþjón- ustan var við dyrnar og fundargestir, sem höfðu komið við á fundinum hjá McCain, komust aldrei inn í það heil- agasta. byggir gott fólk“, er eins konar slagorð, sem hann hefur lagt út af þegar hann biður góða fólkið að styðja sig til góðra verka. Hann sagði sögur af fólki án heil- brigðistryggingar og af fátækum, svöngum börnum. Sögur, sem komu tárunum út á stuðningsmönnunum. Hann þakkaði áheyrendum tvívegis liðið ár, eins og hann væri að kveðja endanlega. Svo bætti hann við sögu af gömlum manni, sem grét látna Almennir kjós- endur velja frambjóðandann Hvergi í Bandaríkjun- um er meiri þátttaka í kosningum en í New Hampshire og íbúar þar virðast ætla að halda áfram á sömu braut. I a somu gær var því spáð að metþátttaka yrði í forkosningunum, bæði vegna þess að veður var milt og vegna þess að kosningarnar eru óvenju spennandi. Síðustu skoðanakannanir bentu til lítils munar á milli McCains og Bush og enn minni á milli Gores og Brad- leys. Morgunblaðið/Þorkell Ögmundur Jónasson var málshefjandi utandagskrár- umræðunnar í gær. Morgunblaðið/Þorkell. Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra var til svara í utandagskrárumræðunni. Utandagskrárumræða á Alþingi um rekstrarleyfi vegna gagnagrunns á heilbrigðissviði Upplýst samþykki enn í brennidepli UTGÁFA rekstrarleyfis vegna gagnagrunns á heilbrigðissviði var fyrsta hitamál vorþings að þessu sinni en stjórnarandstæðingar gagn- rýndu í utandagskrárumræðu á Al- þingi í gær að rekstrarleyfið hefði verið útgefið án skilmála um að leita skuli upplýsts samþykkis sjúklinga áður en heilsufarsupplýsingar um þá eru settar í gagnagrunninn. Stjómai'- liðar héldu uppi vörnum í málinu og sögðu kominn tíma til að menn horfðu til allra þeirra jákvæðu þátta sem hljótist af gerð slíks gagnagrunns. Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstrihreyfmgarinnar - græns framboðs, hóf utandagskrárumræð- una og sagði að í kjölfar útgáfu rekstrarleyfis á gagnagrunni á heil- brigðissviði til handa íslenskri erfða- greiningu hf. í janúar væru í uppsigl- ingu málaferli og átök innan heilbrigðiskerfisins. „Þetta þarf engum að koma á óvart,“ sagði Ögmundur. „I húfi eru siðareglur lækna og skyldur þeirra gagnvart sjúklingum og skjólstæð- ingum. Þessar siðareglur eru alþjóð- legar og snúa auk þess að samvisku hvers manns.“ Rifjaði Ögmundur upp að heilsu- gæslulæknir einn hefði ritað skjól- stæðingum sínum bréf og sagt að heilsufarsupplýsingar þeirra yrðu ekki settar í gagnagrunninn nema samþykki þeirra lægi fyrir, og annar læknir hefði sagst ætla að hætta störfum yrði hann ofríki beittur í þessu máli. „Þessi afstaða læknanna finnst mér eðlileg og heiðarleg og í sam- ræmi við alþjóðlegar skuldbindingar sem þeir hafa undirgengist og vís- indasamfélagið samþykkt um upplýst samþykki og trúnað við sjúklinga,“ sagði Ögmundur. Hins vegar væni pólitískir fulltrúar ríkisstjómarinnar í heilbrigðistofnunum á öðru máli. Sagði Ögmundur að þessir aðilar hefðu beint og óbeint haft í hótunum við lækna og þjóðin hefði fylgst agn- dofa með. Ögmundur sagði það mat sitt að þessi trúnaðarbrestur milli heilbrigð- isyfirvalda og lækna í landinu væri af- ai' alvarlegt mál og vildi fá að vita hvernig heilbrigðisráðherra ætlaði að axla þá ábyrgð að tryggja að ekki yrði brotið á réttindum starfsmanna heil- brigðisþjónustunnar sem framfylgja vildu sjálfsögðum og eðlilegum skyld- um gagnvai-t skjólstæðingum sínum. Ögmundur sagði jafnframt að eðli- legt hefði verið að heilbrigðis- og trygginganefnd Alþingis hefði gefist kostur á að fjalla um rekstrarleyfis- veitinguna áður en frá henni var gengið og samningur undirritaður. Spurði hann hvernig heilbrigðisráð- herra hygðist bera sig að gagnvart Alþingi í þessum efnum. Velti Ög- mundur í þriðja lagi fyrir sér hvemig væri varið eftirliti Tölvunefndar eða annarra aðila með notkun lífsýna, ættfræðiupplýsinga og annars innan veggja íslenskrar erfðagreiningar. Öryggiskröfur ekki settar í eitt skipti fyrir öll Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis- ráðherra var til andsvara í utandag- skrámmræðunni og svaraði hún því til að henni hefði frá upphafi verið ljóst að skiptar skoðanir væm um gagnagrannsmálið meðal lækna. Gagnrýni hefði hins vegar einkum snúið að flutningi persónugreinan- legra upplýsinga í gagnagranninn. Um það væri hins vegar ekki að ræða, gagnagrannurinn myndi ekki innihalda slíkar upplýsingar um ein- staka sjúklinga og úrvinnsla úr sjúkraski'ám færi einungis fi'am á viðkomandi heilbrigðisstofnun. Sagði ráðhema að hún vænti þess að þegar menn hefðu kynnt sér þær ströngu öryggiskröfur sem gerðar væra til að tryggja að einstaklingar yi'ðu aldrei persónugreinanlegir myndi draga veralega úr andstöðu gegn gagnagranninum. Kvaddi Ingi- björg síðan Davíð Þór Björgvinsson lagaprófessor og Sigurð Guðmun- dsson landlækni til vitnis um það hversu háir múrar hefðu verið settir til að vemda einstaklinga. Sagði hún Davíð Þór m.a. hafa bent á að þrír að- ilar, starfrækslunefnd, Tölvunefnd og þverfagleg siðanefnd, hefðu eftirlit með gerð og starfrækslu grannsins. Hins vegar vakti ráðherra athygli á því að skv. rekstrarleyfinu væra ör- yggiskröfur ekki settar í eitt skipti fyrir öll, þær myndu taka mið af breyttum aðstæðum á hverjum tíma. Jafnframt væri það alveg skýrt að við gerð leyfisins hefði verið tryggt að öllum alþjóðareglum væri fylgt hvað varðar persónuvemd. Sagði Ingi- björg að það væri því „...hreint og beint hlægilegt að heyra gagnrýn- endur hrópa á torgum „mannrétt- indabrot", „mannréttindabrot““. Bætti hún við: „Rekstrarleyfishafi verður að fara að ákvæðum í rekstr- arleyfi og eins og fram kemur í lögum skal starfrækslunefnd hafa eftirlit með því að brot á ákvæðum í rekstr- arleyfi getur varðað sviptingu leyfis.“ Um aðkomu Alþingis sagði Ingi- björg að rekstrai'leyfið hefði þegar verið sent fulltráum í heilbrigðis- og trygginganefnd. Hnykkti hún síðan á því að það væri rangt að læknar yrðu sniðgengnir í málinu hvað varðaði flutning gagna í gagnagi-unninn því m.a. yrði haft samráð við Læknaráð og faglega stjórnendur heilbrigðis- stofnana. Verið að hlunnfara þjóðina? Hópm- þingmanna kvaddi sér hljóðs að þessu loknu og gagnrýndu stjómarandstæðingar framgang málsins. Bi-yndis Hlöðversdóttir, Samfylkingu, sagði m.a. að eina leiðin tO að tryggja sátt um gagnagranns- málið væri ef leitað væri samþykkis sjúklinga áður en gögn um þá yrðu flutt í granninn. Þuríður Backman, vinstri-græn- um, benti á að í gildandi lögum væri kveðið á um að sjúklingar þyrftu að samþykkja fyrirfram þátttöku í vís- indarannsóknum og að samskipti lækna og sjúklinga væra bundin tránaði. Velti hún því þess vegna fyr- ir sér hvernig heilbrigðisstofnanir gætu ákveðið að afhenda þriðja aðila, þ.e. íslenskri erfðagreiningu, heil- brigðisupplýsingar sjúklinganna. Kolbrán Halldórsdóttir, VG, hnykkti á þessu og bætti því við að réttur barna, þroskaheftra og annarra, sem ekki gætu beitt sér, væri fótum troð- inn. Heilsufarsupplýsingar þessa fólks færu einfaldlega í gagnagrunn- inn og þær yrðu ekki afmáðar síðar þótt menn vildu. Enginn stæði heldur vörð um rétt dáins fólks. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Samfylkingu, gerði að umtalsefni þær greiðslur sem íslensk erfða- greining þyrfti skv. rekstrarleyfi að greiða í sjóði landsmanna, þ.e. 70-140 milljónir á ári, og sagði hún þar um smámuni að ræða og að verið væri að - hlunnfara þjóðina. Svanfríður Jónas- dóttir, Samfylkingu, vakti hins vegar athygli á þeirri staðreynd að ís- lenskri erfðagreiningu væri gert skylt að greiða allan kostnað vegna gagnagrannsmálsins, þ.e. eins konar auðlindagjald. Sagði Svanfríður stjórnvöld hér vera að marka stefnu sem sjálfsagt væri að gilti í öðram at- vinnugreinum einnig. Horft verði til þeirra möguleika sem felast í grunninum Tómas Ingi Olrich, Sjálfstæðis- flokki, benti hins vegar á að rekstur gagnagrunna hefði viðgengist víða erlendis um hálfrar aldar skeið og í fæstum tilfellum væru persónuupp- ’*■ lýsingar í slíkum grannum dulkóðað- ai'. Islendingar væra því að íyðja nýja braut í þeim efnum með gagna- granninum, og þeim reglum sem um hann giltu. Enda væri erlendis litið mjög til okkar í því efni. Hjálmar Ámason, Framsóknar- flokki, sagði ítarlegar umræður hafa farið fram í sölum Alþingis um gagnagrunnsmálið þegar lög voru sett um málið í fyrra og umræðan nú væri því óþörf. Sagði hann tíma til kominn að menn færu að einblína á þá miklu möguleika sem fælust í gagnagrunninum. Tók Pétur H. 7 Blöndal, Sjálfstæðisflokki, í sama streng og sagði íslenska erfðagrein- ingu hafa gefið vel menntuðu fólki færi á starfi við sitt hæfi á íslandi. Var það mat hans að jafn gagnlegt og sjálfsagt væri að láta heilsufarsupp- lýsingar sínai' í granninn og að gefa blóð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.