Morgunblaðið - 02.02.2000, Page 39

Morgunblaðið - 02.02.2000, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ____________MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000 39 MINNINGAR * Staðreyndir um Canada 3000 MIKIL umræða hef- ur verið undanfarið um flugfélagið Canada 3000, Flugleiðir, einok- un á Keflavíkurflugvelli o.s.frv. Mikilvægt er að gleyma okkur ekki í hita leiksins. Sameiginlega þurfum við íslendingar að finna bjarta framtíð fyrir ferðaþjónustuna á Islandi með Flugleið- um, Atlanta, aðilum í ferðaþjónustunni og ekki síður með nýjum flugfélögum sem tilbúin eru að þjóna okkar ís- lenska markaði. Vöxtur innan ferðaþjónustunn- ar á næstu árum verður eingöngu til með hagstæðara verði og aukinni fjöl- breytni. Samgöngur Öll umræða um Kefla- víkurflugvöll er jákvæð, segir Steinþór Jónsson, en allar staðreyndir verða að vera á hreinu. Haustið 1995 fór undirritaður í heimsókn til höfuðstöðva Canada 3000 í Toronto til að kanna möguleika á auknum viðskiptum við Keflavíkur- flugvöll, m.a. með því að flugvélar fé- lagsins millilentu á Islandi á leið sinni frá Vancouver til Evrópu og opna þar með í fyrsta skipti fyrir reglulegt flug með farþega á milli Islands og Kan- ada. Samhliða þessu kom ég með til- lögu um áhafnarskipti hér á landi þannig að áhafnir flugfélagsins gistu hér á Hótel Keflavík. Einnig heim- sótti ég ferðaskrifstoíuna Fiesta West í Vancouver sem sá þá alfarið um að selja flugsæti Canada 3000 og kynnti fyrir þeim ísland sem ferða- mannastað. Vel var tekið í þessar hugmyndir. Sóttum við formlega um leyfi 8. janúar 1996 og barst mér staðfesting frá Samgönguráðuneytinu 31. janúar sama ár. I umsókninni var eingöngu beðið um leyfi til að flyija farþega á milli íslands og Kanada. Aldrei var eða hefur verið sótt um leyfi til að taka farþega til Evrópu enda okkur strax gert ijóst að til þess þyrfti svo- kölluð 5. stigs flugréttindi. Það er því rangt sem Einar Sigurðsson, aðstoð- arforstjóri Flugleiða, sagði m.a. í Kastljósi 18. janúar síðastliðinn, í kappræðum við Helga Jóhannsson forstjóra Samvinnuferða, að við hefð- um sótt um að taka farþega til Evrópu gegn því að Flugleiðir fengju leyfi til að flytja gesti milli Canada og Bandaríkjanna. Sú stóra ákvörðun var aldrei á valdi Canada 3000. Staðreyndin er aftur á móti sú að Flugleiðir fengu leyfi til að fljúga á milli Halifax og íslands vegna þessa samnings við Canada 3000 og hafa því Flugleiðir hagnast mest allra á þess- um samningi enda er afkoma af flug- leiðinni ein sú besta hjá Flugleiðum svo ég vitni beint í samtal mitt við Einar Sigurðsson á dögunum. Auk þess hafa Flugleiðir haft gríðarlegar tekjur af sölu veitinga í allar vélar fé- lagsins sem lentu 18 sinnum á viku í Keflavík árið 1998. Já, samkeppni getur vissulega ver- ið af hinu góða - líka fyrir Flugleiðir. Það er þessi hugsun sem ég vil koma hér á framfæri. íslenski markaðurinn Það var rétt hjá Einari sem hann sagði í Kastijósi, að íslenski markað- urinn er lítill og erfitt að fá aðila sem vilja þjóna honum. Þess vegna er það mjög alvarlegt að við skyldum ekki hafa nýtt okkur sóknartækifæri sem buðust með þessu nýja og öfluga flug- félagi, Canada 3000, sem vissulega vildi þjóna okkar markaði. Þessu tækifæri klúðruðum við með rangri verðlagningu. En eru afgreiðslu- gjöld Flugleiða of há og af hveiju? Samkvæmt nýrri skýrslu eru af- greiðslugjöld með því hærra sem þekkist í okkar flugumhverfi. Vandamálið felst þó í þeirri staðreynd að af- greiðslugjöldin eru reiknuð út eins og lend- ingargjöldin - eitt gjald fyrir hverja lendingu. Canada 3000 hefur t.d. aldrei sett út á lending- argjöldin. En hvaða gjöld er verið að ræða um? 1. Afgreiðslugjöld taka Flugleiðir fyrir að afgreiða far- þega, þ.e. þjónusta sem felst í útgáfu brottfararspjalda og afgreiðsla á far- angri flugfarþega o.s.frv. 2. Lendingargjöld tekur Flugmála- stjórn fyrir flugumferðarþjónustu. Þau er 7,05 dollarar sem reiknast á hámarks flugtaksþunga flugvélar. Þegar Flugleiðir lenda í Halifax greiðir félagið fast lendingargjald eft- ir stærð flugvélar. Síðan greiðir það afgreiðslugjald sem er u.þ.b. 200.000 kr. Hjá Flugleiðum er Halifax enda- stöð sem þýðir að allir farþegar fara úr vélinni og nýir koma í staðinn. Raunhæft væri að ætía að að meðal- tali 150 farþegar séu að fara frá borði og 150 farþegar komi um borð. Sam- tals hafa því verið innheimtar 666 kr. pr. farþega. Þegar vélar Canada 3000 lenda á Keflavíkurflugvelli greiðir það félag líka fast lendingargjald auk af- greiðslugjalds til Fiugleiða sem við segjum hér það sama, u.þ.b. 200.000 kr. Hjá Canada 3000 er Keflavík milli- lendingarstaður - ekki endastöð. Það þýðir að flestir farþegamir eru áfram um borð og örfáir farþegar afgreiddir af Flugleiðum á leið sinni til Kanada sem hafa verið u.þ.b. 20 manns að meðaltali. Samtals hafa því Flugleiðir innheimt kr. 10.000 pr. farþega í þessu dæmi sem er um 1.500% hærra gjald pr. farþega heldur en Flugleiðir greiða sjálfar í Halifax. Stundum eru farþegamir þó fleiri en stundum færri, en afgreiðslugjald Flugleiða er ávallt það sama. Það er vandamálið. Flugleiðir millilenda hvergi nema á í slandi og þar af leiðandi er ekki verið að bera saman sömu hluti þegar tals- menn þeirra segja að afgreiðslugjöld- in séu þau sömu og hjá aðilum sem þeir versla við. Hvað myndu þeir t.d. segja ef afgreiðslan á Keflavíkurflug- velli yrði sett í hendur annarra og þeir sjálfir þyrftu að greiða full afgreiðslu- gjöld sbr. Canada 3000 fyrir tiltölu- lega fáa farþega sem bætast við í millilendingum þeirra hér á íslandi? Myndu þeir sætta sig við sömu út- skýringu og þeir gefa að engin for- dæmi séu fyrir verðlagningu af- greiðslugjalda pr. farþega? í sumar munu flugvélar Canada 3000 aðeins fljúga einu sinni í viku með millilendingu í Keflavík. Ég hef á undanfómum vikum verið á fundum með forstjóra Canada 3000 sem hefur tilkynnt mér formlega að afgreiðslu- gjöld Flugleiða séu það há að hann sjái ekki raunhæfan möguleika á að taka farþega hér þó svo að lendingar- og eldsneytisgjöld séu í góðu meðal- lagi. Þetta er einfaldlega skoðun við- skiptavinarins. Ég mun áfram reyna með öllum ráðum að finna nýjan flöt á samskiptum íslands og Canada 3000. í dag standa yfir stórframkvæmdir á Keflavíkurflugvelli vegna stækkun- ar Leifsstöðvar en ég spyr, hvar og hvemig hefur markaðssetningu Keflavíkurílugvallar verið háttað síð- ustu ár og hver ber ábyrgð á henni? Er það rétt að flugfélagið sem við sóttum um leyfi fyrir til að taka far- þega árið 1996 sé það eina sem mark- aðsmenn Keflavfturflugvallar geta státað af? Um þetta mikilvæga verk- efni íslendinga allra mun ég fjalla áfram á næstunni. Höfuadur er hótelstjóri á Hótel Keflavfk. Steinþór Jónsson SIGRIÐUR J. GUÐMUNDSDÓTTIR + Sigríður fæddist í Reykjavík 17. nóvember 1918. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Grens- ásdeild, 19. janúar síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Val- gerður Viglundsdótt- ir, f. 13. september 1883, d. 9. febrúar 1954, og Guðmundur Magnússon, f. 22. nó- vember 1876, d. 18. ágúst 1959. Systkini Sigríðar sem eru lát- in: Sigurður, f. 18. apríl 1910, d. 6. október 1985; ÓI- afur, f. 8. október 1912, d. 1. febr- úar 1995; Ástrós, f. 29. mars 1914, d. 14. júní 1992; Þorvaldur, f. 1. febrúar 1920, d. 11. mars 1997. Eftir lifa: Einar, f. 28. ágúst 1915; Magnús, f. 17. ágúst 1917; Sigríð- ur Emma, f. 22. september 1921. Sigríður óist upp hjá móður- systur sinni, Ásu Viglundsdóttur, f. 28. desember 1889, d. 26. des- ember 1981. Sigríður giftist 25. maí 1940 eft- irlifandi eiginmanni sínum, Árna Sigurðssyni, f. 9. desember 1915. Foreldrar hans voru Sigurður Fallin er frá öndvegiskonan Sigríð- ur J. Guðmundsdóttir eftir skamma sjúkrahúslegu. Ég kynntist Sigríði fyrir um 15 árum er ég hitti dóttur þeirra Áma og Sigríðar, Þuríði. Mér er minnisstætt hversu vel Sigríður tók mér frá byrjun og hversu þægileg návist hennar var. Eftir því sem kynni okkar urðu meiri komst ég enn betur að því hversu góða konu hún hafði að geyma. Jafnaðargeð hennar og hjálpsemi var viðbrugðið. Sam- viskusemi og dugnaður voru henni í blóð borin og hún vann við aðhlynn- ingu aldraðra og sjúkra á Hvítaband- inu vel fram yfir sjötugt. Sigríður var félagslynd og söngelsk og söng bæði í Söngsveitinni Fílharmóníu og Litla kómum, kór eldri borgara í Nes- kirkju, fram á síðustu ár. Gott hjarta- lag og þægilegt viðmót Sigríðar fannst mér koma sérstaklega fram í sambandi litlu dóttur okkar og henn- ar. Þær urðu strax hinar mestu vin- konur og vildi Sigríður allt fyrir hana gera. Þau em ófá minningabrotin úr fjölmörgum sumarbústaðaferðum víðsvegar um landið með afa og ömmu, sem voru ómissandi í slíkar ferðir. Það var farið í gönguferðir með ömmu, spilað við ömmu og sung- ið með ömmu eða horft á sjónvarp með ömmu; Sigríður var alltaf reiðu- búin að eyða tíma sínum á þann hátt sem hún hélt að myndi gleðja dóttur okkar. Aldrei sagði hún styggðaryrði við hana og oftar en ekki gátu þær setið og talað saman og hlegið að öllu og engu eins og tvær gamlar vinkon- ur, þótt aldursmunurinn væri sjötíu ár. Slíkar stundir eru ómetanlegar. Sigríður og Ámi höfðu verið gift í tæp sextíu ár. Þau voru mjög samrýnd og því er missir Árna mikill. Árni minn, guð styrki þig í sorg þinni. Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst Sigríði og varðveiti minningu hennar, þín verður sárt saknað. Jakob Gunnarsson. Það eru ljúfar minningar, sem ég á um tengdamóður mína, sem kvaddi þennan heim hinn 19. janúar eftir stuttveikindi. Ekki datt mér í hug á jólaskemmt- un fjölskyldunnar milli jóla og nýárs, þar sem Sigríður var ætíð hrókur alls fagnaðar og flaug um gólfið með barnabömin sín, að hún ætti svona stutt eftir. Fyrir rúmum þrjátíu ánnn kynnt- ist ég Sigríði og Áma, tengdaföður mínum, er ég gekk að eiga einkason- inn á heimilinu, Sigurð. Mér leið strax vel á heimili þeirra og oft var fjör, sungið og spilað, enda elskaði tengdamamma tónlist. Það var stór stund í lífi Siggu ömmu síðastliðið sumar þegar dóttir okkar Sigurðar, Erla, gifti sig. Sigga fór að píanóinu og bað alla viðstadda Árnason, f. 29. nóv ember 1877, d. 18. apríl 1952, og Þuríð- ur Pétursdóttir, f. 22. júní 1886, d. 15 desember 1949. Sigríður og Ámi eignuðust fimm börn: 1) Ása Auður, f. 24.júlf 1940, d. 17. júlí 1943. 2) Þuríður, f. 1. október 1946, maki Christopher Ian Collett, f. 20. ágúst 1948, d. 22. júní 1984, sonur þeirra Ámi James. SambýlismaðurÁsu Jakob Gunn- arsson og dóttir þeirra fris Björk. 3) Sigurður, f. 12. desember 1947, maki Þorbjörg Kristjánsdóttir, þau skildu. Dætur þeirra Erla og Elínborg. 4) Sigurbjarni, f. 13. júlí 1948, d. 28. ágúst 1949. 5) Val- gerður, f. 29. ágúst 1951, maki Jón Rúnar Sveinsson. Böm þeirra Árni Freyr, Hallveig og Amór. Sigríður og Árni bjuggu lengst af í Reykjavík, en síðastliðin fimm ár í Vogatungu 25A í Kópavogi. Útför Sigríðar fór fram fimmtu- daginn 27. janúar í kyrrþey að ósk hinnar látnu. að syngja með sér „Erla, góða Erla“. Þótt leiðir okkar Sigurðar skildu fyrir allmörgum árum hafði það lítil áhrif á samband okkar Siggu, enda varhún sérstaklega trygglynd kona. Ég þakka fyrir góða samfylgd og votta tengdafóður mínum og bömum þeirra mína innilegustu samúð, einn- ig ömmubömunum, sem hafa mikið misst, en þau elskuðu ömmu sína og muna hana ætíð sem hressa og káta. Þorbjörg Kristjánsdóttir. Elsku amma, við söknum þín mjög mildð og vonum að þér líði vel á þeim stað sem þú ert núna. Við hefðum viljað hafa þig lengur hjá okkur en við verðum víst að sætta okkur við það að þú sért farin. Við munum geyma minninguna um þig í hjarta okkar. Hér kemur ljóð til þín, elsku amma, sem er samið af föðurömmu okkar, því tónlist og söngur var stór hluti af lífi þínu. Tónlistinertöframál ertendrarljóðiðsanna, vekur bæði tofra og tál ítilfinningumanna. Höf: Hallveig Guðjónsdóttir ^ Hallveig og Amór. Elsku amma mín, ég mun sakna þín, hér er ljóð til þín. Þei,þeiogró, þögn breiðist yfir allL Hniginersólísjó. Sof þú í blíðri ró. Viðhöfumvakaðnóg. Værðarþúnjótaskalt Þeþþeiogró. Þögn breiðist yfir allt. (JóhannJónsson.) ,jr íris Björk. Það eru margar góðar stundir sem ég hef átt með Siggu ömmu og Áma afa. Þegar ég var lítil var ég oft hjá þeim á Langholtsveginum og mátti ég gera allt og fá allt sem ég vildi, kaffi með eins miklum sykri og ég vildi og súrmjólk með svo miklum púðursykri að hún varð svört á litinn. Eitthvert skiptið kom það upp að mér þótti kokkteilber alveg ofsalega góð, í næstu heimsókn var mér afhent heil krukka og sagt gjörðu svo vel. Fram eftir aldri voru bakaðar og^ málaðar piparkökur hjá ömmu og afa' og máttum við Ella systir gera þær þykkar og þunnar með litlum glasúr eða bara glasúr. Ömmu var mikilvægt að vera með þeim sem voru henni kærir. Hún fékk ávallt alla fjölskylduna til sín á jóla- dag og er það dýrmætt að hafa átt þær stundir með henni, Ama afa, Lillu og Þuru og þeirra fjölskyldum. Sigga amma var mjög hrifin af börnum og frá síðustu jólum verður ógleymanleg innileg gleði hennar er hún fékk litla langömmustrákinn i fangið. Sá stutti var ekki síður hress. Jólaböllin voru einnig fastur liður þar sem amma var fyrst inn á gólf og síð- ust út og bókstaflega blómstraði í söng og dansi. Og hvort sem var í boðum eða á böllum var sama hversu lengi var staldrað við, ömmu fannst það alltaf of stutt, enda mátti fjörið helst aldrei taka enda. Gleði og piparkökuilmur munu ávallt fylgja minningunni um Siggu ömmu. Erla Sigurðardóttir. SIGURBORG ÞORA SIGURÐARDÓTTIR + Sigurborg Þóra Sigurðardóttir fæddist í Lækjarhús- um í Borgarhöfn f Suðursveit 17. októ- ber 1926. Hún lést á Vífilsstaðaspítala 12. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Bústaða- kirkju 21. janúar. Við fráfall ferming- arsystur minnar og vinkonu gegnum árin koma ýmis minninga- brot upp í hugann frá þeim tímum, er við lékum okkur saman sem börn. Ég hugsa til þess með gleði hversu ánægjulegt var að koma til fjölskyldunnar í Lækjar- húsum, þar sem manni var tekið með gleði og alúð. Og ekki skorti verkefni að leika okkur. Þótt við ættum ekki dýr og fín leikfong eða tölvur var aldrei vandamál að finna sér verk- efni við okkar hæfi. Þegar börnin af Borgarhafnarbæjum og Hestgerði komu saman var farið út á tún og í ýmsa leiki, sem þá tíðkuðust meðal barna, en eru nú því miður horfnir og úreltir en vöktu engu síður gleði en leikir barna í dag. Síðan komu ungl- ingsárin og leiðir skildi. Bogga fór til Reykjavíkur að vinna, eins og geng- ur, og kynntist þá eftirlifandi manni sínum, Jóhanni Kristmundssyni múrarameistara, og þau eignuðust síðan fimm börn, en böndin slitnuðu samt aldrei. Þegar ■ bömin komust á þann aldur að fara í sveit, eins og sagt er, kom Siggi, sonur þeirra, til okkar í Hestgerði og var nokkur sumur við leik og störf. I hvert sinn sem ég hef komið til Reykja- víkur hef ég heimsótt Boggu og Jóhann og dvaldi stundum hjá þeim, og kom yfirleitt til Boggu eftir að hú^p fór á sjúkrahús, þar sem hún varð að dvelja síðustu árin. Og þegar börnin voru uppkomin og fór að hægjast um komu þau hjónin oftar austur á heimaslóðir Boggu og tjölduðu þá oft í svonefndu Kambstúni, fallegum stað milli Borgarhafnar og Hest- gerðis. Bogga fór ekki út á vinnumarkað- inn eftir að hún giftist, en heimilinu og börnunum helgaði hún krafta sína, svo og áhugamálum, sem voru hannyrðir og þá einkum prjónaskap- ur, enda mun ekki vera hægt að hafj|i tölu á peysunum hennar og dúkun- um. Peysurnar hafa eflaust mörgum hlýjað og dúkarnir prýða mörg heimili. Ég sendi aðstandendum innileg- ustu samúðarkveðjur og kveð mína kæru vinkonu með söknuði. Fermingarsystir, Jóhanna Ólafsdóitir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.