Morgunblaðið - 17.02.2000, Síða 6

Morgunblaðið - 17.02.2000, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Auglýsingaherferð Tóbaksvarnarnefndar vekur athygli Fj ölbreytt og sterk viðbrögð komin fram VIÐBRÖGÐ almennings við nýrri auglýsingaherferð Tóbaksvamar- nefndar gegn skaðsemi tóbaks- reykinga hafa verið fjölbreytt og sterk að sögn Þorgríms Þráinsson- ar framkvæmdastjóra Tóbaksvam- arnefndar. Borist hafa tölvubréf, marg^ir hafa hringt í Tóbaksvarn- arnefnd og menn hafa ekki síður tjáð sig á götum úti við aðstand- endur auglýsinganna. Augiýsingaherferðin er gerð að ástralskri fyrirmynd, sem staðið var að í álfunni fyrir þremur ámm með þeim árangri að 190 þúsund Ástralir hættu að reykja. Þær upp- lýsingar fengust með könnun sem gerð var nokkrum mánuðum eftir herferðina. Til stendur til að fylgja herferð Tóbaksvamarnefndar eftir á sama hátt hérlendis. Þorgímur segir viðbrögð al- mennings við auglýsingunum sem birst hafa í blögðum og sjónvarpi hérlendis hafa verið að mestu já- kvæð en neikvæð viðbrögð hafi engu að sfður einnig komið fram. „Kona sem reykti benti t.d. á að böra sín væru svo hrædd um að hún myndi deyja að hún fengi eng- an frið og líkti auglýsingunum við ofsóknir," tekur Þorgrímur sem dæmi. „Samtfmis höfum við fengið tölvupóst frá fjölda fólks sem segir að loksins hafi sannleikurinn verið sýndur eins og hann er. Það sem okkur þykir hvað jákvæðast er að heyra frá fólki sem hætti að reykja um áramótin, en var á barmi þess að falla aftur þegar auglýsingam- ar fóru að birtast. Auglýsingaraar urðu þess valdandi að styrkja þetta fólk í trúnni og þannig tókst því að halda áfram í reykleysi. Það lá í augum uppi að fjöldi fólks ætlaði að hætta að reykja um áramótin og hófum við því herferðina f janúar til að styðja við bakið á því.“ Viðbrögð almennings og samfé- lagsins alls urðu siðast mjög sterk þegar auglýsingar Tóbaksvamar- nefndar birtust fyrir þremur ámm. Boðskapur þeirra var þó gjörólíkur þeim sem nú er færður, enda var þá gefið f skyn að reykingamenn væm ekki eins góð fjárfesting fyrir atvinnurekendur og reyklausir þar sem fleiri vinnustundir glötuðust hjá reykingamönnum en hinum reyklausu. Gengnm of langt fyrir þremur árum „Það verður að viðurkennast að við gengum of langt í auglýsingun- um um glataðar vinnustundir, enda fjölluðu þær of mikið um reykinga- manninn sem slíkan. Atvinnu- rekendur vom þar hvattir til að ráða reyklausan starfsmann, en eftir á að hyggja vom þau skilaboð mistök. Engu að siður vöktu þau mikil viðbrögð hjá almenningi og fjölmiðlum og sköpuðu mikla um- ræðu og því má kannski segja að mistökin hafi verið af hinu góða. Að þessu sinni em hins vegar við- brögðin mun fjölþættari. Við höfum m.a. fengið upp- hringingar frá forvarnafulltrúum í gmnn- og framhaldsskólum, sem vilja taka á reykingavandanum í sínu umhverfi og þar með má e.t.v. segja að lögiii, sem Tóbaksvarnar- nefnd vinnur eftir, séu farin að virka eins og til er ætlast, þ.e. að sem flestir í samfélaginu séu hvatt- ir til að vinna að þessum málum, enda reykingavandinn ekki einka- mál Tóbaksvarnarnefndar." Þorgrímur segir að þótt Ingi- björg Pálmadóttir heilbrigðis- ráðherra sé mjög áhugasöm um f óbaksvarnir og hafi gefið Tób- aksvaraaraefnd svigrúm til að end- urskoða lög um tóbaksvamir skjótí það skökku við þegar annar armur hins opinbera hefti forvamastarf Tóbaksvaraamefndar. „Við höfum reynt að knýja á um Hvcr einista síf arctta vcláur þcr sicaftal —■— y/Kw.reyklsusás i Auglýsingum Tóbaksvarnarnefndar hefur bæði verið lýst sem jákvæðum stuðningi og ofsóknum. verðhækkun á tóbaki en gengið illa,“ segir hann og bendir aðspurð- ur á að rannsóknir hafi sýnt að sé tóbaksverð hækkað um 10% hætti 4% reykingamanna að reykja. „Tóbak hækkaði sfðast í janúar 1998 og forvarnargildi hækkunar tóbaksverðs er ótvírætt. Ég skynja hins vegar þá pólitisku hræðslu sem ríkir vegna slíkra verðhækk- ana því verðið er tengt vísitölufra- mfærslu og menn óttast vitaskuld þá litlu verðbólgu sem kemur fram við hækkun á tóbaki. Mér fyndist hins vegar miklu eðlilegra að hafa heilbrigðissjónarmið að leiðarjósi því framtíð komandi kynslóða er í húfi. Ég myndi glaður sætta mig við örlitla verðbólgu ef hún yrði til þess að þúsundir ungmenna myndu ekki byrja að reykja. Spamaður þjóðfélagsins vegna þess væri ómetanlegur. Ef sigarettupakkinn væri dýrari, þá myndi unga fólkið ekki tíma að reykja - hugsanlega vildi það fremur veija fjármunum sínum í afnotagjöld af GSM-síma,“ segir Þorgrímur. Fjarðabyggð | stefnir að sölu hlutabréfa FJARÐABYGGÐ stefnir að því að selja hlutabréf í Sfldarvinnslunni og | Hraðfrystihúsi Eskifjarðar fyrir um 150 milljónir króna á þessu ári til I þess að fjármagna einsetningu P grunnskólanna í Neskaupstað og á Eskifirði. Neskaupstaður og Eskifjarðar- bær áttu verulegan hlut í stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum staðanna, Sfldarvinnslunni hf. og Hraðfrysti- húsi Eskifjarðar hf. Fyrri bæjar- stjómir ákváðu að selja hlutabréf í fyrirtækjunum til þess að fjármagna firamkvæmdir sem nauðsynlegar eru til að einsetja grunnskóla beggja staðanna og byggja leikskóla p á Eskifirði. Guðmundur Bjarnason, bæjarstjóri Fjarðabyggðar, segir að bæjarstjórn hins sameinaða sveitar- félags hafi fylgt þessari stefnu og verið að selja hlutabréf í félögunum. Því yrði haldið áfram á þessu ári. Eftir sölu hlutabréfa á síðasta ári og fyrri árum á Fjarðabyggð nú 8-9% í Sfldarvinnslunni og lítinn hlut í Hraðfrystihúsi Eskifjarðar. Ef seld verða hlutabréf fyrir 150 | milljónir kr. á þessu ári og það verð- f ur allt af hlut Fjarðabyggðar í Sfld- arvinnslunni minnkar eignarhluti bæjarins um fimmtung. ------C-4-*------ Hald lagtá65 grömm af hassi LÖGREGLAN í Reykjavík lagði § hald á alls 65 grömm af hassi í gær- | kvöld, handtók tvo pilta um tvítugt í tengslum við málið og sleppti þeim að loknum yfirheyrslum. Lögreglumenn við eftirlit stöðvuðu fyrst biíreið annars piltsins og fundu þá 15 grömm af hassi við leit í bif- reiðinni. í framhaldinu var gerð hús- leit í íbúð í Hafnarfirði og þar fundust 50 grömm af hassi. Hinn pflturinn var þá handtekinn vegna fíkniefnaneyslu. Báðir voru færðir til yfirheyrslu t þar sem þeir gerðu grein fyrir sínum málum en málið verður áfram til rannsóknar hjá lögreglunni. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri á fundi um byggðamál á Akureyri í gær Ræktum sam- starf, ekki sundurlyndi Ekki til farsældar að straumurinn liggi óheftur inn á höfuðborgarsvæðið Morgunblaðið/Kristján Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarsljóri Reykjavíkur, í sóknarhug á hádegisverðarfundi á Akureyri. FJÖLGA mun um 56 þúsund manns í Reykjavík á næstu 20 árum sam- kvæmt spá sem gerð hefur verið þar um. Það þýðir að byggja þarf 34 þús- und nýjar íbúðir í borginni og skapa 39 þúsund ný störf. Þörf erfyrir um 1.600 hektara lands undir nýja byggð. Umferð í borginni mun aukast um 40% frá því sem nú er og uppbygging stofnbrauta gæti kostað um 40 millj- arða. Sömu upphæð þarf að veija í uppbyggingu menntakerfisins vegna þessarar fjölgunar. Þetta kom fram í máli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra á hádegisverðarfundi sem Háskólinn á Akureyri, Atvinnuþróunarfélag Eyja- fjarðar og sjónvarpsstöðin Aksjón stóðu fyrir á Fiðlaranum á Akureyri í gær. Hún sagði að í kjölfar þessarar fjölgunar myndi mengun aukast í borginni sem og hávaði frá umferð. „Við munum þurfa að ganga mjög á óbyggð svæði. Fólk er æ betur að gera sér grein fyrir því að land er auð- lind, en áður var ekki svo mfldð hugs- að á þeim nótum,“ sagði borgarstjóri. Ingibjörg Sólrún sagði að oft vildi gleymast í umræðu um landsbyggð- arvandann að tvær hliðar væru á pen- ingnum. Það hefði ekki gengið vand- ræðalaust að taka við þeim þjóðflutningum sem verið hefðu frá landsbyggð til höfuðborgarsvæðisins alla þessa öld, en þó aldrei meiri en á síðasta áratug. „Þetta er auðvitað ekki bara vandi, það er líka fengur fyrir sveitarfélög að fá tfl sín fólk, því fylgja útsvarstekjur og margfeldis- áhrifin eru mikil og einnig skiptir það máli varðandi menninguna. Reykja- vík væri ekki það sem hún er nú ef fólk hefði ekki verið að flytja þangað alla þessa öld,“ sagði Ingibjörg Sól- rún. Hún benti á að forsvarsmenn sveit- arfélaga á höfuðborgarsvæðinu hefðu verið feimnir við að opna þessa um- ræðu, því þeir hefðu verið að keppa innbyrðis um fólkið. „Það hefur verið sett samasemmerki milli þess að því fleiri því betra, en dýpra hefur ekki verið Utið í málið“. Stofnkostnaður vegna Grafarvogs 5,2 milljarðar íbúar Reykjavíkur voru um 7 þús- und í upphafi aldarinnar en 110 þús- und árið 1998, þannig að þeim hefur fjölgað um nær 100 þúsund á tímabil- inu, og á höfuðborgarsvæðinu öllu hefur fjölgað um 150-60 þúsund manns. Mest hefur fjölgunin orðið síðustu 20 ár, en um 1.500 til 2.000 manns hafa árlega flutt af lands- byggðinni til Reykjavíkur á því tíma- bili. Samkvæmt framreikningi Byggð- astofnunar fyrir næstu 20 ár er áætl- að að íbúum Reykjavíkur fjölgi um 1.500 manns árlega næstu 20 ár en á höfuðborgarsvæðinu öllu fjölgi um 3.300 manns árlega. Nokkuð er um flutning fólks innan höfuðborgar- svæðisins, til dæmis flytja um 1.000 manns árlega frá Reykjavík til nágrannasveitarfélaga en síðustu ár hafa einnig um 400 manns flust frá út- löndum til Reykjavíkur. Borgarstjóri gerði fundarmönnum grein fyrir stofnkostnaði borgarinnar við uppbyggingu Grafarvogshverfis, en hann nemur samtals um 5,2 millj- örðum króna. Uppbygging gatna og holræsa kostaði um 700 mifljónir króna, bygging leik- og grunnskóla sem og íþróttamannvirkja kostaði 3.700 miljónir og áætlað verð á landi er um 750 milljónir króna. Kostnaður við byggingu íbúða er um 2,6 milljarð- ar króna, en nettókostnaður borgar- innar á hvem íbúa er um 700 þúsund krónur. Ríkisvaldið hefiir enga stefnu gagnvart höfuðborgarsvæðinu Ingibjörg Sólrún sagði rfldsvaldið ekki hafa neina stefnu gagnvart höf- uðborgarsvæðinu og nefndi í því sam- bandi m.a. almenningssamgöngur, skipulag bæja, nýtingu lands, umferð, | borgarhverfi og byggðaröskun í þétt- býli, og nefndi að byggðaröskun hefði orðið innan Reykjavikur þar sem hnignun hefði orðið í eldri hverfum og miðbærinn ætti í vök að verjast. Að mati borgarstjóra þarf höfuð- borgin að vera sterk en það þarf líka að vera lífvænlegt á landsbyggðinni, ella yrðum við í menningar- og félags- legu tilliti fátækari og því væri mikil- vægt að reyna að spoma við þeim miklu flutningum sem enn ættu sér stað frá landsbyggð inn á höfuðborg- arsvæðið. IngibjörgSólrúntelureinnigmikil- ? vægt að marka ábyrga byggðastefnu, stefnu sem felist í því að byggja upp sterka byggðakjama þó því fylgdi sársauki í þeim byggðalögum sem ekki væm skilgreind sem slík. Borg- arstjóri lagði því til að landsbyggðar- menn og höfuðborgarbúar ræktuðu með sér samstarf en ekld sundur- lyndi. Taldi hún að á því væri almenn- ur skilningur að það væri ekki til far- sældar að straumur fólks lægi óheftur áfram til höfuðborgarsvæðisins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.