Morgunblaðið - 17.02.2000, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 17.02.2000, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ HOFUÐBORGARSVÆÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2000 13 \ REYKJA- \ VÍK \ Selja- \ hverfi Smára- Æ lind J Miðjan <£' Glað- N heimar Sala- hverfi GARÐABÆR Hæ, er ég í beinni? Já. Hm, hvað segið þið? Utvarps- mennirnir lagfæra heyrnar- tólin og mjaka sér ábúðar- miklir að hljóðnemunum. Einn þekkir hlustandann og vill fá að vita hvaðan er hringt - úr stærðfræðitíma. Blaðamaður hváir við enda nokkuð viss um að farsímar séu illa séðir í grunnskólum borgarinnar. Samtalið held- ur áfram og nokkur stund líður þar til hægt er að fá tvo af útvarpsmönnimum ungu í Utvarpi Þormóði í kjallara gamla Gufu- nesbæjarins í Grafarvogi til að stíga út úr stúdíóinu í stutt viðtal. Jón Ernst Ágústsson Berndsen, 13 ára, segist stjórna þættinum ásamt Pálma Kristmunds- syni, jafnaldra sínum. „Við fylltum út umsókn í skólan- um og fengum að vera með þáttinn núna. Hann heitir Sportrönd. Ég veit ekki hvort að við fáum að prófa aftur. Ásgeir og Guðmundur Helgi eru gestir,“ segir hann og tekur glaðbeittur á móti hinum stjórnanda Sport- randar. „Hérna er Pálmi. Þú getur bara talað við hann,“ segir Jón og er þotinn. Ekkert stress Pálmi tekur tíðindunum með stóískri ró. „Nei, nei - þátturinn snýst ekkert endi- lega um íþróttir. Við erum meira bara að djóka og spila hipp hopp. Við spilum ýmist diska að heiman eða héðan. Inn á milli tökum við sim- ann. Vinir okkar hringja dá- lítið oft. Annars er tiðnin 98,3 og hlustunarsvæðið nær alveg út á Seltjarnarnes," segir hann og biður leyfis um að fá að víkja. Stelpurnar taka sig alvarlega Ásgeir Logi Þórsson, 15 ára, hefur fylgst rólegur með. „Við Guðmundur Hclgi Guðmundsson erum gestir núna. Okkar útvarpsþáttur er ekki fyrr en á föstudaginn kl. 14. Hann heitir Smjörleif- ur. Nafnið er bara brandari enda verður þátturinn fyrst og fremst léttur. Gengur út áað segja brandara og alls konar sögur. Tónlistin er að- allega rapp og hipp hopp. Krakkarnir vilja ekkert ann- að - kannski spilum við líka Led Zeppelin og Bubba," segir hann og þvertekur fyr- ir að sjá framtíð sína fyrir sér á ljósvakamiðlunum. „Mér finnst rosalega skemmtilegt að prófa að vera í útvarpi. Hins vegar hef ég ekki hugsað mér að verða útvarpsmaður.“ Eru engar stelpur í þessu? „Jú, nokkrar, bara ekki núna. Stelpur eru ekki eins áhugasamar og strákar um að fá að koma fram í út- varpi. Oft taka stelpur sjálf- ar sig svo alvarlega og hafa áhyggjur af því að segja ein- hverja vitleysu í útvarpinu. Við undirbúum okkur ekki neitt, röflum bara okkur sjálfum til ánægju. Ekkert stress. Við verðum bara að passa okkur að halda okkur innan reglnanna." Regln- Morgunblaðið/Golli Ragnar Harðarson, tómstundaleiðbeinandi, segir að ungl- ingarnir hafi mjög gaman af því að koma fram í útvarpi. Guðmundur Helgi Guðmundsson, Ásgeir Logi Þórsson, Jón Ernst Ágústsson Berndsen og Pálmi Kristmundsson í beinni. Tæknimaður var Jón Gunnar Gunnarsson. anna? „Já, við megum ekki segja allt. Ekki segja helvítis eða blóta á ensku. Annars er gaman að tala við hlustend- ur. Stundum er beðið um lög eða kvartað yfir því að alltaf sé verið að spila sömu tón- listina eins og núna,“ segir hann að lokum. Eftir að smellt hefur verið af nokkrum myndum inn í stúdíóinu er Ragnar Harðar- son, tómstundaleiðbeinandi, króaður af á efri hæðinni í Gufunesbænum. Hann segir að umsóknareyðublöðum vegna útsendinga á vegum Útvarps Þormóðs hafi verið dreift til nemenda í 8. til 10. bekk í Grafarvogi. „Við röð- uðum síðan niður krökkum á útsendingartímann. Niður- staðan varð sú að allir fengu að spreyta sig. titsendingar- tíminn er frá því 9 á morgn- ana til 10 kvöldin. Endur- tekið efni er flutt til 2 eftir hádegið. Markmiðið er fyrst og fremst að leyfa krökkun- um að prófa að koma fram í úvarpi. Reynslan hefur verið frábær og gaman að sjá hvað krakkarnir verða öruggari þegar líður á þættina en hver þáttur er um tveir tím- ar.“ títvarp Þormóður verð- ur rekið í Gufunesbænum frá 14.-25. febrúar. Fleiri sveigjanleg- ar kennslustundir Laus kennslu- stofa er á leiðinni skólastarfs sé úthlutað til skóla í samræmi við fjölda nemenda yfir ákveðnu há- marki í hverjum árgangi. Húsaskóli hefur því yfir að ráða ákveðnum heildarfjölda kennslustunda til sveigjan- legs skólastarfs í skólanum. Skólastjómenda er að raða kennslustundunum niður eft- ir þörfum, t.d. vegna sérstak- lega þungra bekkja, eða geyma til annama nota ella væri ekki um áðurnefndan sveigjanleika að ræða. Nú hefur verið komið til móts við Húsaskóla með því að bæta við kennslustundum til sveigjanlegs skólastarfs í samræmi við fjölgun nem- enda á skólaárinu. Stjórn- endur skólans verða sjálfír að taka ákvörðun um hvort heildaráætlun kennslustunda til sveigjanlegs skólastarfs verður stokkuð upp til að hægt sé að skipta 5. bekk upp í þrjá bekki eða ekki,“ sagði hún. Aðspurð sagðist Sigrún ekki kannast við að til væri sérstakur neyðarsjóður eins og Ásta Ágústsdóttir, for- maður foreldraráðs, vísar til í blaðinu í gær. Hins vegar væri til sjóður undir yfir- skriftinni „Fjölgun nem- enda“. Sjóðnum hefði verið komið upp til að bregðast við breytingum í skólastarfi frá því ganga þyrfti frá fjárhags- áætlun vegna skólastarfs í lok árs þar til skólaárið hæf- ist haust eftir. Hún kvað óv- íst hvort úthlutað yrði úr sjóðnum til Húsaskóla í vor. Frekari aðgerðir hugsanlegar Fjallað var um erindi vegna húsnæðisvanda skól- ans í svokallaðri verkefnis- stjórn á vegum borgarráðs fyrir skömmu. „Við fengum inn erindi frá foreldrum í gegnum Fræðslumiðstöð vegna húsnæðisskorts í skól- anum. Svo heppilega vildi til að tekin var í notkun við- bygging við Árbæjarskóla í janúar. Þar var því hægt að fá eina lausa 60 fm kennslu- stofu og færa yfir til Húsa- skóla. Ekki líður á löngu þar til lausu kennslustofunni verður komið fyrir á lóðinni. Við treystum því að stjórn- endur skólans munu með út- sjónarsemi sjá bestu leiðina til að nýta kennslustofuna í þágu skólastarfsins,“ sagði Sigrún og kvaðst vonast til að með áðumefndum aðgerð- um og ráðgjöf af hálfu Guð- mundar Þórs Ásmundssonar, verkefnisstjóra í stjórnun grunnskóla, yrði hægt að leysa vanda skólans. Ef ekki yrði Fræðsluráð að endur- meta ástandið og grípa til frekari aðgerða fyrir næsta skólaár. Formaður Fræðsluráðs um áhyggjur foreldraráðs Húsaskóla -10. bekk í Grafarvogi með útvarp á FM 98,3 Húsaskóla í Grafarvogi hefur verið úthlutað viðbótar- kennslustundum til sveigjan- legs skólastarfs í samræmi við fjölgun nemenda frá því skólastarfið hófst í haust. Ein færanleg kennslustofa verður flutt frá Árbæjar- skóla í Húsaskóla á næst- unni. Húsaskóli hefur verið undir eftirliti og fengið að- stoð frá Fræðslumiðstöð í allan vetur, að sögn Sigrúnar Magnúsdóttur, formanns Fræðsluráðs. Sigrún sagði í samtali við Morgunblaðið að Fræðsluráð Reykjavíkur hefði orðið fyrst til að móta reglur um kennslustundir til sveigjan- legs skólastarfs. „Við skulum hafa í huga að áður hefur bekkjum verið skipt upp, t.d. í íþróttum og hannyrðum. Ailur bekkurinn var aðeins að jafnaði saman 2/3 af skóladeginum. Með reglum um kennslustundir til sveigj- anlegs skólastarfs getur sá samverutími minnkað niður í 1/3 af skóladeginum í fjöl- mennum bekkjum. Reglu- rnar miða við að kennslu- stundum til sveigjanlegs Morgunblaðið/Kristínn Á Snorrabraut. Hinn nýi kirkjugarður í Leirdal í Kópavogi, fyrsti áfangi er dökklitaður Unnið við kirkjugarð í Leirdal í sumar Kópavogur FRAMKVÆMDIR hefjast í sumar við undirbúning að nýjum kirkjugarði í landi Kópavogs í Leirdal. Stefnt er að því að taka fyrsta áfanga kirkjugarðsins í notkun árið 2003. Að sögn Þórsteins Ragn- arssonar, forstjóra Kirkjug- arða Reykjavíkurprófasts- dæmis, mun Kópavogsbær afhenda garðinn með endan- legu efsta moldarlagi en stefnt er að því að taka í notk- un fyrsta grafarsvæði garðs- ins, 3 hektara, árið 2003 en alls eru 12 hektarar lands ætl- aðir undir garðinn. Tekinn í notkun 2003 í sumar á að undirbúa svæðið og koma fyrir lögnum en sumrin 2001 og 2002 verð- ur m.a. gengið frá göngustíg- um og lýsingu og akbrautir malbikaðar. Einnig verður garðurinn girtur og sáð gras- fræi í opin svæði og komið upp bráðabirgðahúsnæði áður en kirkjugarðurinn í Leirdal verður tekinn í notkun 2003. Grafarvogur Jóla- skraut verður menning- arborgar- skraut Miðbær ÞEIR sem eiga gjarnan leið um miðbæ Reykjavikur hafa eflaust tekið eftir því að víða hanga jólaskreyt- ingar enn uppi. Mörg trjánna eru enn prýdd ljds- um og skreytingar og ljós hanga á staurum við sumar göturnar. Að sögn Rúnars Svein- björnssonar, verkstjóra götuljósadeildar Orkuveitu Reykjavíkur, hefur perum verið leyft að loga á öspum í miðbænum, í janúar og febrúar undanfarin ár til að lifga upp á skammdegið. Hann segir það hins vegar nýmæli að skraut á staurum á Snorrabraut, í Lækjar- götu og Aðalstræti fái að standa, en það sé gert í til- efni þess að Reykjavík er ein af menningarborgum Evrópu. Þá hafi jólastjörn- ur verið fjarlægðar af skreytingunum, rauðar jólaperur teknar og grænar og hvítar settar í staðinn, en grænn og hvítur eru litir menningarborgarinnar. Krakkar í 8. Húsahverfi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.