Morgunblaðið - 17.02.2000, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Frekari framkvæmdir í flugstöðinni á Akureyri fyrirhugaðar
Tæplega 200 þúsund farþegar
fóru um völlinn á síðasta ári
FLUGMÁLASTJÓRN hefur
auglýst eftir tilboðum í umfangs-
miklar breytingar á miðhluta flug-
stöðvarinnar á Akureyrarflugvelli.
Að sögn Sigurðar Hermannssonar,
umdæmisstjóra Norðurlandsum-
dæmis, er stefnt að því að hefja
framkvæmdir í mars og ljúka þeim
fyrir 1. júlí í sumar en einnig er sá
möguleiki uppi á borðinu að hefja
ekki framkvæmdir fyrr en eftir 1.
september í haust.
Á síðasta ári fóru 194.000 farþegar
um Akureyi-arflugvöll eða um 13.000
fleiri en árið áður og hafa farþegar
aldrei verið fleiri. Sigurður sagðist
vona að farþegarnir í ár yrðu
200.000. Flugfargjöld hafa lækkað
töluvert eftir að samkeppni var kom-
ið á í innanlandsfluginu, auk þess
sem ferðatíðnin hefur aldrei verið
meiri. Sigurður benti á að daglega
væri boðið upp á 10 ferðir til Reykja-
víkur, fyrir utan ferðir til annarra
staða og það hefði vissulega sitt að
segja.
Hann sagði að í fyrirhuguðum
framkvæmdum ætti að endurnýja
miðhlutann í flugstöðinni, þ.e. brott-
fararsal og veitingaaðstöðu, til sam-
ræmis við það sem búið væri að gera
í norðurenda og nýbyggingu að
sunnan. Einnig verða byggðir tveir
glerskálar til austurs, annars vegar
til að stækka farþegasalinn og hins
vegar verður gerð aðstaða í tengsl-
um við millilandaflugið og snýr m.a.
að vegabréfsskoðun. Að auki verður
aðstaða fyrir tollskoðun og vopnaleit
bætt. Sigurður sagði að þessum
framkvæmdum fylgdu einhver
óþægindi fyrir flugfarþega en stefnt
væri að því að þær tækju sem styst-
an tíma.
Enn er plássleysi í flugstöðinni
I tengslum við þessar fram-
kvæmdir verður kaffiterían flutt til í
húsnæðinu eða í norðausturhornið,
sunnan við Fríhöfnina og við það
opnast salurinn til vesturs. Veitinga-
aðstaðan verður bætt til muna og
gestir geta setið þar á stólum við
borð. Sigurður sagði að jafnframt
yrði ráðist í framkvæmdir á 2. og 3.
hæð og aðstaða hlaðmanna bætt.
Einnig er inni í þessum pakka að
skipta um gler í gamla hluta hússins
og mála það að utan og á þessum ut-
anhússframkvæmum að vera lokið 1.
september. Seinna á árinu er svo
stefnt að því að endurnýja tæki og
búnað í flugtuminum en sú fram-
kvæmd tengist ekki útboðinu nú.
Fjölgað í slökkviliði vallarins
Með þessum framkvæmdum er
verið að ljúka við frágang flugstöðv-
arinnar en Sigurður sagði verkið
hafa tekið mun lengri tíma en ætlað
var. Hins vegar er viðbyggingin nýja
mun minni en upphaflega var áform-
að og sagði Sigurður að byggingin
liði alltaf fyrir það. En þá var miðað
við að komusalurinn væri allur sunn-
an við innritunina en hann er nú
norðurenda hússins. „Þrátt fyiir
þessar breytingar þjáumst við enn af
plássleysi og það háir okkur. Það
hafa heldur aldrei fleiri farþegar far-
ið um völlinn en í fyrra og er aukn-
ingin milli ára um 8%. Á sama tíma-
bili var aukningin í Reykjavík ekki
nema um 2%.
Næsta sumar verður haldið áfram
við endurnýjun brautarljósa, sem
byijað var á sl. sumar og þá standa
fyrir dyrum töluverðar breytingar á
aðstöðu Slökkviliðs Akureyrarflug-
vallar, sem Flugmálastjórn rekur.
Fyrirhugað er að fjölga slökkvilið-
smönnum um þrjá á þessu ári, úr
fjórum í sjö. Sigurður sagði að fjölg-
un slökkviliðsmanna tengdist ekki
beint hugmyndum um að sameina
slökkvilið flugvallarins og Slökkvi-
liðs Akureyrar en að þær viðræður
væru enn í gangi.
„Það verður væntanlega fjölgað í
liðinu hvort sem af sameiningu verð-
ur eða ekki - þörfin er eftir sem áður
fyrir hendi,“ sagði Sigurður.
Þessu til viðbótar starfa fjórir
flugumferðarstjórar á Akureyrar-
flugvelli á vegum Flugmálastjómar,
einn radíóviðgerðarmaður og þrír
menn á vélaverkstæði, sem sjá um
snjómokstur og viðhald tækja.
Guðmund-
ur efstur
fyrir loka-
umferðina
GUÐMUNDUR Daðason hefur
hálfs vinnings forskot í A-flokki
fyrir lokaumferðina á Skákþingi
Akureyi’ar en síðasta umferðin
verður tefld í kvöld, fimmtudag.
Guðmundur hefur hlotið 4,5
vinninga en Jón Björgvinsson
er í öðru sæti með 4 vinninga.
Jafnir í þriðja til fimmta sæti
með 3,5 vinninga eru Þór Val-
týsson, Halldór Brynjar Hall-
dórsson og Ólafur Kristjánsson.
í sjöttu umferð hafði Jón
Björgvinsson betur gegn Stef-
áni Bergssyni, Ólafur Krist-
jánsson vann Halldór Bi-ynjar,
Gylfi Þórhallsson vann Þór Val-
týsson en Guðmundur Daðason
fékk vinning þar sem andstæð-
ingur hans Torfi Stefánsson
mætti ekki til leiks.
I B-flokki er Haukur Jónsson
efstur með 4,5 vinninga úr 5
skákum en Hreinn Hrafnsson
hefur jafn marga vinninga en úr
6 skákum. Ágúst Bragi Bjöms-
son er í þriðja sæti með 3,5 vinn-
inga.
BUÐARVOGIR
• VerÖútreikningur kr/kg
• 30 verðminni kr/kg
• Stór upplýsingaskjár
Kvnningarverð
frá kr. 29.700 án vsk.
0jbELTAK„
- vogir cru okkar fag -
Síöumúla 13, sími 588 2122
www.mbl.is
Leikklúbbur-
inn Saga sýn-
ir Matthildi
LEIKKLÚBBURINN Saga
frumsýndi í gærkvöld, miðvikudag-
inn 16. febrúar í Kompaníinu leik-
ritið Matthildi, en það er hlaðið
húmor með svörtu ívafi. Leikstjóm
og leikgerð er í höndum Amdísar
Hrannar Egilsdóttur sem byggir á
sögu Ronalds Dahls. Leikritið fjall-
ar um stúlkuna Matthildi, sem er
undrabarn sem hlýtur slæma með-
ferð foreldra sinna.
Arndís lærði leiklist og leikhús-
fræði í París, hún lék með Resid-
enz-leikhúsinu í Vín að námi loknu
og hún hefur leikið með Hafnar-
fjarðarleikhúsinu, Iðnó og Leikfé-
lagi Akureyrar en Matthildur er
frumraun hennar sem leikstjóra.
Með helstu hlutverk fara Baldvin
Ólafsson sem sögumaður; Drífa
Guðmundsdóttir sem Matthildur;
Hreggviður Gunnarsson sem hr.
Ormar, faðir Matthildar; Vala
Höskuldsdóttir sem frú Ormar,
mamma Matthildar; Vilhelm Ein-
arsson sem Mikjáll, bróðir Matt-
hildar og Sunna Valgerðardóttir
sem frk. Frenja.
Næstu sýningar em fimmtudag-
inn 17. febrúar kl. 20, laugardaginn
18. febrúar kl. 16 og sunnudaginn
19. febrúar kl. 16.
Norræna félagið
Akureyri
Opinn fiindur í Deiglunni
laugardaginn 19. februar
kl. 16:00
♦ Þema fúndarins verður Færeyjar.
♦ Fjölbreytt og áhugaverð dagskrá.
♦ Fundurinn er öllum opinn -
Verið velkomin.
Stjómin
Morgunblaðið/Kristján
Staurahreinsun á
Svalbarðsströnd
STARFSMENN RARIK eru þessa
dagana að taka niður háspennu-
línu og staura á Svalbarðsströnd,
frá Sveinbjarnargerði og suður
undir Mógil. Um er að ræða hluta
af svokallaðri Grenivíkurlínu, sem
komin er í jörð frá Rangárvöllum á
Akureyri og að Sveinbjarnargerði.
Þá er þessi lína einnig komin í jörð
frá nýju brúnni yfir Fnjóská og til
Grenivíkur og hún er því aðcins á
lofti frá Sveinbjarnargerði og
norður undir Fnjóská. Þetta er ein
elsta háspennuli'na á Norðurlandi
eystra, reist í kringum 1940.
Alls verða teknir niður tæplega
100 staurar á þessari leið og má
fullvíst telja að bændur séu
ánægðir með þessa framkvæmd
enda hafa staurarnir verið fyrir-
ferðarmiklir í túnum þeirra. Þeir
fá því tún sín óskipt á ný en einnig
eru ýmsir á því að töluverð sjón-
mengun sé af háspennulinu sem
þessari.
Stauralínan sem nú er að hverfa
er líka óvenju þétt en hún var tvö-
földuð á áttunda áratugnum í
kjölfar mikillar ísingar og Ijóns af
þeim sökum. Og þeir starfsmenn
RARIK sem þarna voru að vinna
töldu því enga ástæðu til að setja
þetta niðurrif í sérstakt umhverf-
ismat.
Fyrirlestur
um hafís og*
loftslag
DR. MARTIN W. MUes frá Há-
skólanum í Bergen heldur fyrir-
lestur fimmtudaginn 17. febrúar
á vegum Stofnunar Vilhjálms
Stefánssonar um hafísmælingar
og loftslagsbreytileika við norð-
anvert Norður-Atlantshaf. Dr.
Miles dvelst sem gistifræðimað-
ur Stofnunar Vilhjálms Stefáns-
sonar í Davíðshúsi á Akureyri.
Fyrirlesturinn verður á
ensku og er haldinn í kennslu-
stofu við aðalsal Háskólans á
Akureyri að Sólborg kl. 16.15 og
er öllum opinn.