Morgunblaðið - 17.02.2000, Page 29

Morgunblaðið - 17.02.2000, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2000 29 LISTIR Olíumál- verk á Kaffí Nauthól NÚ STENDUR yfir kynning á sjö olíumálverkum Kristínar Geirs- dóttur í Kaffi Nauthól. Myndimar eru unnar á síðasta ári og vísar Kristín til margræðni þríhymings- ins, gagnsæis litarins en litimir í myndunum tengjast litum náttúr- unnar. Kristín hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í sam- sýningum bæði heima og í út- löndum. Kynningin stendur fram að mánaðamótum. Nýjar bækur • ÍSLENSK skip - Bátar, er í bókaflokkn- um Islensk skip. Um er að ræða fjögur ný bindi um báta auk við- bótarbindis um skipin eftir Jón Bjömsson frá Bólstaðahh'ð, en fyrstu fjögur bindi verksins komu út árið 1990. Með útgáfu þessari má segja að fyrir liggi heildaryfirht um sögu íslenskrar skipa- og smábátaút- gerðar á 20. öld, segir í fréttatilkynningu. í viðbótarbindinu Gagnsæ víðátta, olía á striga, eftir Kristinu Geirsdóttur. um skipin eru raktar allar breytingar sem átt hafa sér stað, auk þess sem töluvert hef- ur bæst við af upp- lýsingum um ýmis skip sem voru í eldri bókunum en ekki fundust nægar heim- ildir um. í bókunum fjórum er yfirlit yfir alla smá- báta sem skráðir hafa verið í skipaskrá frá upphafi. Greint er frá rösklega 5.600 bátum Jón en þar sem margir Björnsson þeirra hafa borið fleira en eitt nafn og eiga sér mikla sögu eru alls um 10.700 flettur í öllu verkinu. Kaflaskipting fer eftir umdæmis- bókstöfum; sagt er frá öllum bátum sem skráðir hafa verið innan við- komandi umdæmis, og eigendasaga hvers og eins rakin. Greint er frá ferli bátsins og afdrifum. í bókunum eru alls um hálft þriðja þúsund mynda, heimildaskrá og nafnaskrá yfir alla bátana, svo og heildarskrá þar sem þeim er raðað eftir skipaskrárnúmerum. Útgefandi er Iðnnn. Ritsafnið er prentað í Odda og kostar 21.523 kr. Söngleikur úr sögum Poes LEIK- og söngvaramir Bjöm Grundies og Sandra Flubacher sjást hér á æfingu á POEtry, söngleik eft- ir þá Robert Wilson og Lou Reed. Söngleikurinn var frumsýndur í Thaha-leikhúsinu í Hamborg í Þýskalandi síðasthðinn sunnudag, en það er byggt á ellefu sögum og ljóðum hins þekkta bandaríska rit- höfundar Edgars Allans Poe. Grjótháls 1 Sími 575 1200 Söludeild 575 1220 Renault Clio kostar frá 1.188.000 kr. Hvemig væri að fá sér stærri bíl á frábærum kjöram. Pað er ekki mikið að borga 13.865 kr. á mánuði fyrir jafn góðan bíl* (Meðalgreiðsla á mánuði með vöxtum og áföllnum kostnaði m.v. 84 mán. bílalán og 284.500 kr. útborgun (t.d. bíllinn þinn)). Komdu og prófaðu Renault Clio á betri kjörum. RENAULT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.