Morgunblaðið - 17.02.2000, Page 51

Morgunblaðið - 17.02.2000, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ PIMMTUDAGUR17. FEBRÚAR 2000 51 Morgunblaðið/Amór Ágæt þátttaka hefir verið í vetur hjá bridsfélögunum á Suðurnesjum. Myndin var tekin á dögunum í Board-A-Match sveitakeppninni. Talið frá vinstri: Ingimar Sumarliðason, Einar Júlíusson, Trausti Þórðar- son og Víðir Friðgeirsson. Nítjánda bridshátíð Flugleiða, BSÍ og BR um næstu helgi BRIDS llmsjón Arn6r G. Ragnarssnn HALLDÓR Blöndal forseti Al- þingis setur 19. Bridgehátíð Flug- leiða sem verður haldin á Hótel Loft- leiðum um helgina. Þátttaka er mjög góð að venju, en 130 pör og 80 sveitir hafa skráð sig. Keppendur koma alls staðar að á landinu en einnig frá Bandaríkjun- um, Kanada, Svíþjóð, Noregi og Færeyjum. Keppnisstjórar verða Sveinn Rún- ar Eiríksson og Eiríkur Hjaltason. Allir áhugamenn um brids eru hvatt- ir til að líta við á Hótel Loftleiðum og fylgjast með skemmtilegri keppni. Sunnudag og mánudag verða valdir leikir sýndir á sýningartöflu, en nú verða í fyrsta sinn spiluð sömu spil á öllum þorðum í sveitakeppninni. Hægt verður að fylgjast með stöð- unni í textavarpinu á síðu 326 og á heimasíðu BSÍ: www.bridge.is Brid- gehátíð-dagskrá. Tvímenningur Föstudagur 18. febrúar kl. 19.00 mótið sett kl. 19:15-0:30 1. -10. umf. Laugardagurl9. febrúar kl. 11:00-13:10 11. -14. umf. kl. 13:10-14:00 matarhlé kl. 14:00-19:30 15.-23. umf. Sveitakeppni: Sunnudagur 20. febrúar kl. 13:00 -19:00 l.-4.umf. kl. 19:00-20:30 matarhlé kl. 20:30 - 23:15 5. - 6. umf. Mánudagur 21. febrúar kl. 13:00-19:15 7. -10. umf. kl. 19:30 verðlaunaafhending Fimmtudags- spilamennskan Fimmtudaginn 10. febrúar mættu 27 pör að spila. Spilaður var mitchell með tveimur spilum á milli para. Miðl- ungur 312. Lokastaðan varð þessi: NS HallurSimonars.-ísakÖmSigurðss. 356 KristinnKarlss.-KristinnKristinnss. 351 Jón Baldvinss. - Jón Hilmarss. 350 AV Guðmundur Péturss. - Aron Þorfinnss. 360 HelgiSigurðss.-HelgiJónss. 352 HjálmarPálss.-ÞórirSigursteinss. 339 Ásmundur Ömólfss. - Gunnl. Karlss. 339 Mæting er orðin mjög góð á fimmtudögum. Guðmundur og Aron eru þar með komnir með bestu prós- entuskor mánaðarins, 57,69%. Félag- arnir Hallur og ísak eru efstir í bronsstigum skoruðum í febrúar, 48 stig. Besta prósentuskor og flest bronsstig skoruð gefur glæsilega matarúttekt á Þremur frökkum. Verðlaun fyrir besta árangur hvers mánaðar í fimmtudagsspilamenn- skunni er að verðmæti 10.000, fyrir hæstu prósentuskor 5.000 kr. og fyrir flest bronsstig skoruð 5.000 kr. Nú er rétti tíminn til að koma sér í æfingu fyrir Stórmót Flugleiða. 3., 10., 17. og 24. febrúar telja til verðlauna í febrúarmánuði. Spilað er í húsnæði Bridssambands íslands og byrjar spilamennska kl. 19.30. Keppnisstjóri er Eiríkur Hjaltason. Sveit Óskars Sigurðssonar efst hjá Hreyfli Sveit Óskars Sigurðssonar sigr- aði í Board-A-Match sveitakeppn- inni sem lauk sl. mánudagskvöld. Sveitin hlaut 201 stig en helztu keppinautarnir, sveit Kristins Ingvasonar, var með 195. Sveit Vina varð í þriðja sæti með 175 og sveit Sigurðar Ólafssonar fjórða með stig. Spilað er á mánudagskvöldum í Hreyfilshúsinu. Félag eldri borgara í Kópavogi Tuttugu og eitt par mætti í föstu- dagsspilamennskuna 11. febrúar og var að venju spilaður Michell-tví- menningur. Efstu pör í N/S: Lárus Hermannss. - Ólafur Láruss. 280 Garðar Sigurðss. - Þórður Jörundss. 244 Rafn Kristjánss. - Oliver Kristóferss. 231 Hæsta skor í A/V: HelgaHelgad.-JúlíusIngibergss. 265 Anton Sigurðss. - Hannes Ingibergss. 236 Ingibjörg Stefánsd. - Þorst. Davíðss. 236 Sl. þriðjudag mættu 20 pör og þá urðu úrslit þessi í N/S: Helga Helgad. - Þórhildur Magnúsd. 259 Guðjón Kristjánss. - Magnús Oddsson 248 Alfreð Kristjánss. - Kristján Ólafss.247 A/V: Hreinn Hjartarson - Ragnar Björnss. 240 Ásta Erlingsd. - Garðar Sigurðss. 237 Lárus Hermannss,- Þorleifur Þórarinss. 234 Meðalskor báða dagana var 216. Bridsdeild Barðstrendinga og Bridsfélag kvenna Mánudaginn 31. janúar sl. hófst aðalsveitakeppni 2000 með þátt- töku 16 sveita. Þegar spilaðar hafa verið 6 umferðir með monrad-út- reikningi er röð efstu sveita eftir- farandi: Jón Stefánsson 125 Árni Hannesson 122 Sérsveitin 113 Aðalbjörn Benediktss. 103 Smárinn 94 Glanssveitin 91 Eðvarð Hallgrímss. 88 Vegna bridshátíðar verður ekki spilað mánudaginn 21. febrúar nk. Við spilum næst mánudaginn 28. febrúar, þá spila á 1 borði Jón Ste- fánsson og Sérsveitin, á 2 borði Árni Hannesson og Aðalbjörn Benediktsson. Skák aldarinnar kynnt á morgun SKAK Hellisheimilið SKÁK ALDARINNAR 18. febrúar 2000 SKAK aldarinnar verður kynnt á morgun á skemmtikvöldi skák- áhugamanna sem haldið verður hjá Taflfélaginu Helli í Þöngla- bakka 1 í Mjódd. Dagskrá skemmtikvöldanna hefst kl. 20. Fyrst heldur gestur kvöldsins fyrirlestur og svarar spurning- um. Síðan geta þeir sem það kjósa sest að tafli. Skipt er í tvo til þrjá riðla eftir styrkleika. Allir ættu því að fá andstæð- inga við sitt hæfi. Að þessu sinni verður kynnt niður- staðan úr vali á skák aldarinnar. Friðrik Ólafsson stórmeist- ari, sem nýlega var kjörinn skákmaður aldarinnar, verður gestur kvöldins og mun skýra skák aldarinnar. Valið á skák aldarinnar fór þannig fram, að fyrst var öllum íslenskum skákmönnum gefinn kostur á að tilnefna skákir. Að því loknu var kosið á milli þeirra skáka sem voru tilnefndar. Alls voru 37 skákir tilnefndar, flestar þeirra skákir sem vakið hafa heimsathygli. Þegar valið var á milli tilnefndra skáka fengu þess- ar flest atkvæði (í tímaröð): Wade - Friðrik Ólafsson, 1954 Friðrik Ólafsson - Fischer, 1958 Friðrik Ólafsson - Eliskases, 1960 Szabo - Guðmundur Sigurjónsson, 1968 Tal - Friðrik Ólafsson, 1975 Korchnoi - Jóhann Hjartarson,1988 Jóhann Hjartarson - Korchnoi, 1988 Helgi Ólafsson - Levitt, 1990 Kamsky - Helgi Ólafsson, 1990 Gylfi Þór Þórhallsson - Ernst, 1992 Skákmaður aldarinnar, Friðrik Ólafsson, á flestar skákir á þess- um lista og upplýst hefur verið, að hann tefldi jafnframt skák al- darinnar. Friðrik mun því verða gestur skemmtikvöldsins og þalda fyrirlestur kvöldsins, þar sem hann skýrir m.a. skák ald- arinnar. Allir skákáhugamenn eru hvattir til að mæta og taka með sér gesti. Aðgangseyrir er 500 kr. Hann rennur allur til styrktar alþjóð- legu skákmótahaldi hér á landi. Metþátttaka hjá Taflfélaginu Helli Meistaramót Taflfélagsins Hellis fyrir árið 2000 er hafið. Þátttakendur eru 28 og hafa aldrei verið fleiri. Meðal þátttak- enda er Björn Þorfinnsson, sem hefur undanfarin þrjú ár orðið skákmeistari Hellis. Að þessu sinni er ljóst, að Davíð Kjartans- son mun veita honum harða keppni um titilinn. Stigahæstur keppenda á mót- inu er Róbert Harðarson. Næststigahæstur er alþjóðlegi meistarinn Sævar Bjarnason og í þriðja sæti er Sigurbjörn Björns- son sem hefur sigrað á meistara- móti Hellis undanfarin tvö ár. Hellisbúarnir Björn og Davíð koma þar næstir.Teflt er eftir svissneska kerfinu og urðu flest úrslit eftir bókinni í 1. umferð: Róbert Harðarson - Ingólfur Gíslason 1-0 Sigurður Ingason - Sævar Bjarnason 0-1 Björn Þorfinnsson - Sveinbjöm Jónsson 1-0 Andrés Kolbeinsson - Davíð Kjartans- son 0-1 Jón Árni Halldórsson - Páll Sigurðsson i-0 Hjörtur I. Jóhannss. - Þorvarður F. Ól- afss. 0-1 Pétur Atli Lárusson - Valdimar Leifsson Stefán Arnalds - Egill Þorláksson 1-0 Bjarki Fr. Bjarnas. - Jó- hann H. Ragnarss. 0-1 Pétur Jóhanness. - Ólafur í. Hanness. 0-1 Baldur Möller - Halldór H. Hallsson 1-0 Jónas Jónasson - Sigur- björn Björnsson 1-0 Guðjón H. Valgarðss. - Kristján Örn Elíass. 0-1 Grímur Daníelsson - Vig- fús Ó. Vigfússon 0-1 Einu úrslitin sem koma hér á óvart er sigur Jónasar gegn Sigurbirni og sigur Kristjáns gegn Guð- jóni, sem er einn af okkar efnilegustu skákmönnum. Heimasíða Hellis (simnet.is/ hellir) mun fylgjast með mótinu og birta úrslit, pörun, mótstöflu og skákir hverrar umferðar auk Ijósmynda frá mótinu. Spútnikar á Skákþingi Stórmeistarinn Þröstur Þór- hallsson og Bragi Þorfinnsson urðu efstir og jafnir á Skákþingi Reykjavíkur. Þeir þurftu því að tefla einvígi um titilinn skák- meistari Reykjavíkur árið 2000. Þröstur sigraði örugglega í ein- víginu, hlaut þrjá vinninga gegn engum, og þar með mun hann hafa sett nýtt met, en hann hefur sigrað alls sjö sinnum á Skák- þingi Reykjavíkur. Fyrirfram mátti búast við sigri Þrastar á mótinu þar sem hann var stiga- hæstur keppenda og reynslu- mikill stórmeistari. Hins vegar komu margir aðrir keppendur á óvart með góðri frammistöðu. Það sem staðfestir það einna ber- legast er sú staðreynd að hátt í tugur skákmanna hækkaði um eða yfir 100 Eló-skákstig á þessu eina móti. Slík uppsveifla er nokkuð algeng meðal ungra skákmanna, en engu að síður var í hópi þeirra sem mesta hækkun hlutu, skákkappar er bera virð- ingarmeiri aldur. Sá sem hækkaði mest á skákstigum og kom skákspeking- um einna mest í opna skjöldu með frábærri frammistöðu var Sigurður Páll Steindórsson. Hann hlaut 7% vinning og sigraði m.a. Róbert Harðarson, Júlíus Friðjónsson og alþjóðlegu meistarana Jón Viktor Gunnars- son og Sævar Bjarnason. Þessi ungi MR-ingur hefur á síðastliðn- um 13 mánuðum hækkað um hvorki meira né minna um 395 skákstig, eða frá 1.840 stigum 1. janúar 1999 í það að hafa nú 2.235 stig. Hvítt: Sigurður Páll Steindórs- son Svart: Róbert Harðarson 1. c4 Rf6 2. Rc3 c5 3. g3 Rc6 4. Bg2 d6 5. d3 g6 6. e4 Bg7 7. Rge2 0-0 8. 0-0 Rd4?! Betra var að leika 8. - Bd7 og framfylgja áætlun sem Smyslov fyrst innleiddi í heimsmeistara- einvígi hans og Botvinniks 1957. Áætlunin er Re8-c7, Hb8 og þeg- ar hentar b7-b5. Með textaleikn- um er staða svarts ekki jafn sveigjanleg. 9. h3 Re8 10. Be3 f5 11. f4 Hb8 12. Kh2 Rc7 13. a4 a6 14. Hbl b5 15. cxb5 axb5 16. b4 Eftir ónákvæmni svarts í átt- unda leik hefur hann í raun fylgt eftir áætlun Smyslovs, nema hvað riddarinn hreiðraði strax um sig á d4. Munurinn á því er töluverður þar sem yfirtaka manna á miðborðsreitum er að öllu jöfnu ekki jafn áhrifarík og þegar þeir beita þrýstingi á þá. Engu að síður er staðan í dýna- mísku jafnvægi þar sem tafl- mennska hvíts hefur ekki verið nægilega kraftmikil. I framhald- inu verða svörtum á þau mistök að velja ranga áætlun sem bygg- ist á myndun frelsingja á a-lín- unni. 16. - Rxe2?! Betra var: 16. - bxa4 17. bxc5 Hxbl 18. Dxbl dxc5 19. Bxd4 cxd4 20. Rxa4 með u.þ.b. jafnri stöðu. 17. Rxe2 bxa4?! Gefur eftir á miðborðinu án þess að fá nægilegt mótspil. 17. - cxb4 var betra. 18. bxc5 Hxbl 19. Dxbl dxc5 20. Bxc5 fxe4 21. dxe4 Dd2 22. Rgl! Snjall riddaraleikur sem styrk- ir hvítu stöðuna. 22. - Be6 23. e5!? Hugmyndin að baki þessu er að skrúfa fyrir löngu skálínuna al-h8, en með því verður mótspil svarts mjög veikt. Hvítur hefur nú vænlega stöðu, sem Sigurði tekst að bæta með tveim peðs- vinningum. 23. - Bf5 24. Db7 Re6 25. Bxe7 He8 26. Bb4 Db2 27. Db5! Hc8 28. Dxa4 Hc2 29. Da8+ Bf8 30. Bxf8 Rxf8 31. Dd5+ Einfaldari vinningsleið virðist vera 31. Hdl með hugmyndinni Hdl-d8. 31. - Be6 32. De4 Bc8 33. Khl Hxg2 Vonast eftir sprikli meðfram a8-hl skálínuna, en svartan skortir mannskap til þess að það gangi upp. 34. Dxg2 Bb7 35. Rf3 Da3 36. Kh2 Re6 37. Df2 Dd3 38. Rg5 Rd4 39. e6 Rf5 40. Hel Dd5 41. e7 Rxe7 42. Rxh7! Kxh7 43. Hxe7+ Kh6 44. Hel Bc6 45. Db2 Dd8 46. f5! og svartur gafst upp. Skákmót á næstunni 18.2. Hjá Helli. Skemmtikvöld kl. 20 20.2. Síminn-Internet. Mát- netsmót 24.2. Finnland. NM í skólaskák 27.2. Hellir. Kvennameistara- mót 3.3. Hellir. Klúbbakeppni Daði Örn Jónsson Helgi Áss Grétarsson 1-0 Friðrik Ólafsson AUGLÝSINGADEILD Sími: 569 1111, Bréfsítni: 569 1110 Nelfang: augl@mbl.is vg> mbl.is -ALLTa/= eiTTHV'AO HYTT~

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.