Morgunblaðið - 18.02.2000, Blaðsíða 20
20 FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Samningur um samstarf rflds og Akureyrarbæjar um menningarmál undirritaður
Framlög til menning-
armála nær tvöfaldast
frá því fyrst var samið
BJÖRN Bjarnason menntamála-
ráðherra og Kristján Þór Júlíusson
bæjarstjóri á Akureyri undirrituðu
í gær samning um samstarf ríkis
og Akureyrarbæjar um menning-
armál á Akureyri en samningurinn
gildir til loka ársins 2002.
Menntamálaráðherra sagði
samninginn taka við af öðrum sem
gerður var árið 1996 og kvað á um
framlög ríkisins til menningarmála
en samkvæmt honum námu fjár-
veitingar tæplega 29 milljónum
króna. Framlög ríkisins á þessu
ári nema hins vegar 41,3 milljón-
um króna, árið 2001 verða þau 52
milljónir króna og árið 2002 nema
þau 64 milljónum króna. Samning-
urinn var undirritaður með fyrir-
vara um samþykki Alþingis.
„Eins og sjá má á þessum samn-
ingi mun fjárveiting ríkisvaldsins
til menningarmála á Akureyri nær
tvöfaldast frá því fyrst var samið,“
sagði Björn. Hann gat þess að tek-
ið er mið af því í samningnum að
Amtsbókasafnið á Akureyri geti
gegnt hlutverki sínu sem eitt af
skylduskilasöfnum í landinu, að á
Akureyri verði rekið atvinnuleik-
hús, að Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands fái styrk til starfsemi sinnar
og tryggt verði áfram samstarf
Listasafnsins á Akureyri og Lista-
safns íslands.
Þá verða á samningstímanum
metnar forsendur fyrir hlutdeild
ríkissjóðs í stofnkostnaði og
rekstri menningarhúss á Akureyri,
í stofnkostnaði viðbyggingar við
Amtsbókasafnið, grundvelli þess
að koma upp iðnminjasafni á Akur-
eyri og hvort stofna eigi til rann-
sókna, minjavörslu og kynningar á
Gásakaupstað í samvinnu við
Þjóðminjasafnið. „Ég er sérstak-
lega spenntur að sjá hvernig hug-
myndinni um byggingu menning-
arhúss reiðir af, við munum skoða
það mál og ræða það nánar á
samningstímanum," sagði mennta-
málaráðherra.
Kristján Þór Júlíusson bæjar-
stjóri á Akureyri sagði að for-
svarsmenn bæjarfélagsins hefðu
undanfarin misseri knúið á um
aukið framlag ríkisins til menning-
armála og orðið hefði verið við því
nú. „Þannig að ég er afskaplega
ánægður með þennan samning,“
sagði bæjarstjóri, en það hefði ver-
ið staðfastur vilji fulltrúa ríkisins
að taka á í þessum málaflokki með
bæjarfélaginu. Bæjarsjóður mun
leggja fram fé til menningarmála á
móti ríkinu. „Framlag Akureyrar-
bæjar til menningarmála á hvern
íbúa er hærra en í Reykjavík og
við erum stolt af því,“ sagði Krist-
ján Þór.
í framhaldi af undirritun samn-
ings um samstarf ríkis og Akur-
eyrarbæjar um menningrmál á Ak-
ureyri voru einnig undirritaðir
samningar milli Akureyrarbæjar
Morgunblaðið/Kristján
Kristján Þór Júliusson bæjarsljóri og Björn Bjarnason mcnntamála-
ráðherra undirrita samning um framlög til menningarmála á Akureyri.
annars vegar og Leikfélags Akur-
eyrar og Sinfóníuhljómsveitar
Norðurlands hins vegar um fram-
lög bæjarins til atvinnuleikhússins
og Sinfóníuhljóm- sveitarinnar árin
2000-2002. Valgerður Bjarnadótt-
ir, formaður Leikfélags Akureyrar,
kvaðst ánægð með að samningur
væri í höfn, fjárveitingar til félag-
ins færu stighækkandi og á þriðja
og síðasta ári samningsins væri
leikfélagsfólk að sjá fjárveitingu
sem þau reyndar gjarnan vildu fá
nú í ár. Gunnar Frímannsson, for-
maður stjórnar Sinfóníuhljómsveit-
ar Norðurlands, sagði um tíma-
mótasamning að ræða sem gerði
hljómsveitinni kleift að starfa með
öðrum hætti en áður, grundvöllur
hennar styrktist og unnt væri að
útvíkka starfsemina.
Hugmyndir um stóriðju á Eyjafjarðarsvæðinu
Áfram verður unnið að
staðarvalsathugunum
ATVINNUÞRÓUNARFÉLAG
Eyjafjarðar, Akureyrarbær og Fjár-
festingaskrifstofan hafa gert með sér
formlegt samkomulag um að vinna
áfram að staðarvalsathugunum fyrir
stóriðju á Eyjafjarðarsvæðinu.
Ýmsar athuganir hafa farið fram á
Dysnesi í Amarneshreppi en ekki er
eingöngu verið að horfa til þess
AKUREYRARAPÓTEK flytur um
helgina úr miðbænum þar sem það
hefur verið starfrækt um áratuga
skeið og í verslunarmiðstöðina í
Hrísalundi. Jafnframt verður tekið
upp nýtt nafn á apótekið sem hér eft-
ir heitir Lyf og heilsa, Hrísalundi.
Flutningur þessi hefur verið á döf-
inni nokkuð lengi, en tilgangurinn
svæðis í þessu sambandi, heldur er
líka verið að kanna hvemig hægt er
að koma heppilegri orkufrekri starf-
semi fyrir á iðnaðarlóðum eins og við
Krossanes og á Árskógsströnd. Þetta
kemur fram í fréttabréfí Atvinnuþró-
unarfélagsins.
Einnig kemur þar fram að mjög
brýnt sé að leita frekari valkosta í
með honum er að þjóna betur byggð-
inni á brekkunni og í Glerárhverfí og
vonast forsvarsmenn apóteksins til
þess að íbúar þessara svæða kunni
að meta breytinguna.
Samhliða flutningunum verður af-
greiðslutíma breytt, en opið verður
virka daga frá kl. 10 til 19, en um
helgar er opið frá kl. 12 til 16.
þessum efnum. Undanfama mánuði
hafa verið kannaðir möguleikar á
uppsetningu sinkverksmiðju við
Eyjafjörð, eftir að Svanbjöm Sig-
urðsson kom á sambandi við finnska
aðila sem áhuga hafa á þátttöku.
Jafnframt er bent á í fréttabréfinu að
framtak Svanbjöms sýni að frum-
kvæði heimamanna sé mikils virði og
því mikilvægt að allir íbúar á svæðinu
séu vakandi íyrir slíkum tækifærum,
sem þeir geti svo komið til Atvinnu-
þróunarfélagsins til nánari úrvinnslu.
Svanbjöm rafveitustjóri hefur ver-
ið að kanna möguleika á að hér verði
reist sinkverksmiðja og hefur hann
m.a. horft til Skjaldarvíkur í Glæsi-
bæjarhreppi með hugsanlega stað-
setningu í huga en Skjaldarvík er í
eigu Akureyrarbæjar. Þetta mál sem
og önnur eru þó aðeins á umræðust-
igi enn sem komið er.
Apótek opnað í Hrísalundi
NORÐURSLÓÐADAGUR
í Norræna húsinu Reykjavík 19. febrúar 2000
Dagskrá
10:00 Ávarp umhverfisráðherra
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar
Háskóli norðurslóða og Northern Research Forum (NRF)
North Atlantic Biocultural Organization (NABO)
Norðurslóðasamstarf um landbúnað (CAA)
Samstarf um skógrækt á norðurhjara
12:00 Matarhlé
13:00 Norðurskautsráðið og stefna þess
Conservation of Arctic Flora and Fauna (CAFF)
Protection of Arctic Marine Environment (PAME)
Arctic Monitoring and Assessment Programme (AMAP) og
Emergency Prevention Preparedness and Response (EPPR)
Staða fslands í rannsóknasamstarfi á norðurslóðum
Alþjóðlegt samstarf um haflsrannsóknir og þjónustu
Samstarfsverkefni um fornveðurfar
Norræna áætiunin um rannsóknir á norðurhjara
15:30 Kaffihlé
Alþjóðleg samvinna íslendinga
á norðurslóðum
Stofnun Vilhjálms Stefánssonar stendur fyrir
sérstökum degi, Norðurslóðadeginum, til-
einkuðum samstarfi og rannsóknum íslendinga
á norðurslóðum. Stefnt er að því að dagurinn
verði árviss viðburður. Að þessu sinni er lögð
áhersla á alþjóðlega samvinnu í málefnum norð-
urhjarans og hlutverk íslendinga í því samstarfi.
Flutt verða erindi um alþjóðasamvinnu á vett-
vangi umhverfismála, sjálfbærrar þróunar og
norðurslóðafræða. Að þeim loknum verður efnt
til pallborðsumræðna um strauma og stefnur í
norðurslóðasamvinnu. í anddyri Norræna húss-
ins verður veggspjaldakynning á verkefnum og
stofnunum sem tengjast dagskránni.
Ráðstefnan er öllum opin svo lengi sem húsrúm
leyfir. Allar frekari upplýsingar fást hjá Stofnun
Vilhjálms Stefánssonar í síma 463 0580 eða í
netfangi stef@svs.is
16:00 Opin pallborðsumræða um norðurslóðasamstarf á fslandi
17:00 Ráðstefnuslit
Morgunblaðið/Jónas Helgason
í ferðinni í sumar verður vitaskuld komið við í Gjánni eða Gjógv eins og
þetta litla þorp heitir á máli heimamanna.
Norræna félagið á Akureyri
Fundur og fræðslu-
kvöld um Færeyjar
NORRÆNA félagið á Akureyri efn-
ir til fundar í Deiglunni í Kaupvangs-
stræti á morgun, laugardaginn 19.
febrúar, kl. 16 en hann verður helg-
aður Færeyjum. Félagið hyggst á
næstu mánuðum efla tengslin við
Færeyjar og mun í því skyni gangast
fyrir stuttri röð fræðslukvölda í
mars en þeim verður fylgt eftir með
ferð til Færeyja í sumar.
Sérstakur gestur fundarins verð-
ur Sigurlín Sveinbjarnardóttir for-
maður Norræna félagsins á íslandi
og mun hún fræða fundargesti um
sitthvað er varðar starf félagsins
bæði hér á landi og margvísleg sam-
starfsverkefni hinna norrænu þjóða.
Edvard Fuglo, þekktur færeyskur
myndlistarmaður segir frá listsköp-
un sinni og starfi sínum með Leikfé-
lagi Akureyrar og Helgi Þ. Svavars-
son skólastjóri Tónlistarskólans á
Akureyri flytur færeyska tónlist.
Skemmtiferð
til Færeyja
Stefnt er að því að halda fjögur
fræðslukvöld um Færeyjar í mars
þar sem fjallað verður um landa-
fræði og sögu eyjanna, rætt um nátt-
úru þeirra og skoðaðar myndir af
helstu náttúrufyrirbærum. Þátttak-
endur fá einnig tækifæri til að kynn-
ast tungumáli og menningu eyja-
skeggja. Færeyingasaga verður
tekin til umfjöllunar og borin saman
við aðrar íslendingasögur.
Fræðslukvöldunum verður fylgt
eftir með skemmti- og fræðsluferð til
Færeyja um mánaðamótin júh'-ágúst
í sumar. Siglt verður með Norrænu
og dvalið í Þórshöfn í tæpa viku.
Ferðalöngum gefst kostur á að taka
þátt í Olafsvökunni og síðan verður
siglt um eyjarnar með íslenskri leið-
sögn. Komið verður til Kirkjubæjar,
Vestmanna, Fuglafjarðar, Klakks-
víkur og margra fleiri áhugaverðra
staða. Umsjónarmaður námskeiðs-
ins og leiðsögumaður í ferðinni verð-
ur Jónas Helgason menntaskóla-
kennari. Þátttaka er öllum heimil.
Þeir sem ekki koma á morgun en
hafa áhuga fyrir námskeiðinu geta
leitað upplýsinga hjá Unni Þor-
steinsdóttur formanni Norræana fé-
lagsins á Akureyri eða hjá umsjónar-
manni námskeiðsins.