Morgunblaðið - 18.02.2000, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2000 25
Verdbréfaskráning gerir athuga-
semdir við skýrslu Verslunarráðs
Sameining’
við VÞÍ ekki
verið rædd
STJÓRNIR Verðbréfaskráningar
og Verðbréfaþings hafa ekki rætt sín
á milli um hvort sameina eigi félögin
tvö að því er fram kom í máli Þor-
steins Þorsteinssonar, fram-
kvæmdastjóra Verðbréfaskráning-
ar, á kynningarfundi félagsins sl.
þriðjudag.
Verslunarráð íslands mæltist til
þess í skýrslu sinni til viðskiptaþings
að könnuð yrði hagkvæmni þess að
sameina félögin tvö.
Þorsteinn segir að viðræður hafi
farið fram milli stjórnanna um sam-
vinnu félaganna. „Við höfum rætt
hvaða leiðir séu færar til að spara
kostnað. Meðal annars hafa komið
upp hugmyndir um að starfsemi fé-
laganna verði í framtíðinni í sameig-
inlegu húsnæði."
Hann bætti því við að stefna
stjórnanna beggja væri sú að vinna í
sameiningu að því að ná eins mikilli
hagkvæmni í rekstri og unnt væri.
Ábyrgð á hluthafaskrám áfram
h(já stjórnum hlutafélaga
En Verðbréfaskráning gerir ýms-
ar athugasemdir við efni skýrslu
Verslunarráðs. „Það má segja að
punktar Verslunarráðs séu orðnir
gamlir. Viðræður hafa farið fram
milli allra aðila verðbréfamarkaðsins
um skráningarstarfsemina og Verð-
bréfaskráning hefur farið yfir ýmis
mál með útgefendum hlutabréfa.
Flest álitaefnin sem til staðar voru,
eru nú leyst,“ segir Þorsteinn.
Hann vék máli sínu að þeirri gagn-
rýni, að ábyrgð stjórna hlutafélaga á
hluthafaskrám myndi færast til Verð-
bréfaskráningar. „Samkvæmt hluta-
félagalögum ber stjóm hlutafélags
ábyrgð á hluthafaskrám. Þessi
ábyrgð verður eftir sem áður inn í
lögunum. Skrámar verða áfram að-
gengilegar inn í hlutafélögunum sjálf-
Aðalbankastjóri
bandaríska
seðlabankans
Yextir gætu
hækkað enn
frekar
ALAN Green-
span, aðalbanka-
stjóri bandaríska
seðlabankans,
varaði við því í
gær að bankinn
gæti þurft að
hækka vexti enn
frekar til að vama
því að bandarískt
efnahagslíf of-
hitni. Greenspan
sagði efnahagsástand í Bandaríkjun-
um ótrúlega gott um þessar mundir.
Bandaríski seðlabankinn hefur
hækkað vexti fjómm sinnum síðan í
júní 1999, til að kæla niður hagkeríið
þar í landi, en Greenspan sagði í
ræðu sinni fyrir bandaríska þingið
að „litlar sannanir" væm fyrir því að
það hefði borið nægan árangur.
Margir gera ráð fyrir að vextir verði
hækkaðir á næsta vaxtaákvörðunar-
degi í mars næstkomandi.
Viðvöran Greenspans hafði þegar
í stað áhrif á verð hlutabréfa um all-
an heim, að því er fram kemur á
fréttavef BBC.
um, en ekki hjá Verðbréfaskrán-
ingu.“
Þorsteinn segir að þegar kerfíð
hafi verið gagnrýnt hafi oft verið tek-
ið mið af framkvæmdinni í Dan-
mörku. „Þar hafa bankar og fjár-
málastofnanir séð um hluthafa-
skrámar fyrir útgefendur, sam-
kvæmt þar til gerðum samningum.
Lögunum þar hefur verið breytt á
þann veg að ábyrgðin á hluthafa-
skrám þarf ekki endilega að vera hjá
stjómum hlutafélaga, heldur geta
þær framselt hana. Hugsanlega mun
sams konar breyting verða gerð hér-
lendis, þróist markaðurinn á þann
veg. En þetta er ekki svona hérlendis,
heldur er Verðbréfaskráning í dag
aðeins þjónustuaðili við hlutafélögin.“
Hlutafélögin hafa ein
aðgang að skránum
„Sá misskilningur hefur komið
upp að einhverjir aðilar, t.d. fjár-
málafyrirtæki, hefðu aðgang að hlut-
hafaskrám í gegnum Verðbréfa-
skráningu íslands. Þetta verður alls
ekki þannig, heldur munu hlutafé-
lögin sjálf semja við Verðbréfa-
skráningu um að skrá bréfin rafrænt
og hafa ein aðgang að hluthafaskrán-
um,“ segir Þorsteinn.
Að hans sögn hefur einnig mis-
skilnings gætt varðandi framkvæmd
annarra eignaskráninga verðbréfa
en þeirra sem hljótast af beinum við-
skiptum, t.d. vegna gjafa og erfða.
Hann segir Verðbréfaskráningu
hafa farið yfir með hlutafélögum
hvemig þessu verði háttað. Eftir
breytinguna yfir í rafrænt form
munu félögin enn geta þjónað þeim
hluthöfum sem leita til þeirra og
óska eftir þessum breytingum.
FBA kaupir
28,9% í
Frjálsum
fjarskiptum
GENGIÐ hefur verið frá samn-
ingum um kaup FBA á 28,9%
hlut í Frjálsum fjarskiptum hf.
og er um nýtt útgefið hlutafé að
ræða. Að sögn Páls Þórs Jóns-
sonar, framkvæmdastjóra
Frjálsra fjarskipta styrkir að-
koma FBA rekstur og upp-
byggingu fyrirtækisins.
Frjáls fjarskipti vora stofnuð
í janúar 1999 og allt síðastliðið
ár var unnið að undirbúningi að
því að reisa fyrirtækinu traust-
ar stoðir.
„Fyrirtækið hefur haslað sér
völl á fjarskiptamarkaði og
býður nú þegar lægra verð á
símtölum til útlanda en önnur
símafyrirtæki. Frjáls fjarskipti
stefna að því að bjóða alhliða
símaþjónustu á næstu mánuð-
um, þ.á m. innanlandssímtöl og
alhliða þjónustu og lausnir fyrir
fyrirtæki og einstaklinga," seg-
ir í tilkynningu frá Frjálsum
fjarskiptum.
í janúar keyptu Frjáls
fjarskipti Heimsnet sem er int-
ernet- og tölvuþjónustufyrir-
tæki fyrir einstaklinga og fyrir-
tæki. Heimsnet var stofnað árið
1997 og hefur sérhæft sig í
tengingum við Internetið
ásamt almennri tölvuþjónustu
fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Alan
Greenspan
Höfuðborgarsvæðið: aust-noröaustan átt,
20-25 m/s, snjókoma og skafrenningur á köflun
Frost 5 tii 7 stig.
*■
Kringlan
-hönnud fyrir
íslenskar aðstæður
/Cr(Aa(«ov
■VRÖPU A«l» tRRR
Þ fl R 5 E
9
M /H
J fl R T fl fl S L E R
AFGREIDSLUTÍMAR
mán.- fim. 10.0Ö tii 18.30 / fös. 10.00 til 19.00 / law. 10.00 til 18.00 / sun. 13.00 til 17.00
UPPlÝSlttGASÍMt 588 7788 SKRiFSTOFUStMI 568 9200
ÍH»i