Morgunblaðið - 18.02.2000, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
Tveir sviptir veiðileyfi
AÐEINS 2 bátar voru sviptir veiði-
leyfi í janúarmánuði síðastliðnum
vegna afla umfram heimildir. Fékk
annar báturinn , Aili Júl ÞH 5, leyfið
að nýju þegar daginn eftir enda hafði
aflamarksstaða hans þá verið lag-
færð. Hinn báturinn, Ólafur Magn-
ússon VE 16, var sviptur leyfinu
þann 20. janúar þar til aflamarks-
staða hans yrði lagfærð.
IMOKIA 5110
Lang vinsælasti GSM síminn!
Tryggðu þér eintaka af þessum
einstaklega vandaða síma á þessu
frábæra verði.
Þyngd 170 grömm. SMSskilaboð,
Biðtimi allt að 270 klst. númerabirtir.
Taltimi allt að 5 klst. Dagbók, klukka,
100 slmanúmer I minni. vekjaraklukka.
Innbyggðir leikir.
TAL12
er 12 mánaða
GSM áskrift greidd með
kreditkorti eða Veitikorti. TALkort
kostar 1.999,- og er greitt fyrir það aukalega.
Ótrúlega gott verð
~L fyrir hágæða
DP800LEE
I »RDS
• Geislaspilari
• Stafr. útvarp
•4 x 34 watta magnari
Tengjanl. beint við 4 hátalara
AKF8065RDS ------------------
Gottútvarpá 1
frábæru verði! 1
• RDS 1
• Stafr. útvarp
• Kassettutæki
• Tengjanl. beint við 4 hátalara
laugardaga
10:00 - 16:00 og
sunnudaga
<13:00 - 17:00 y
BT Skeifunni - S: 550-4444 • BT Hafnarfirði - S: 550-4020
BT Reykjanesbæ - S: 421-4040 • BT Akureyri - S: 461-5500
BT Kringlunni - S: 550-4499
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Skipverjar á Jóni Kjartanssyni SU fylgjast með loðnunni renna sína leið í lestarnar.
Fullfermi í 5 köstum
á nokkrum tímum
í
f-:
|
Góð loðnuveiði hjá Jóni Kjartanssyni SU á vertíðinni
JÓN Kjartansson SU kom til Eski-
fjarðar skömmu eftir hádegið í gær
með fullfermi af loðnu, um 1.500
tonn, sem áhöfnin fékk í átta köstum
við Hrollaugseyjar suðvestur af
Hornafirði. Skipið fór frá Eskifirði á
miðvikudagsmorgun eftir að hafa
landað jafn miklum afla sem fékkst á
Mýrargrunninu sem sýnir að loðnan
er á vesturleið þó hægt fari.
Jón Kjartansson er í hópi afla-
hæstu loðnuskipa en í fyrrnefndum
túr var fimm sinnum kastað og skip-
ið fyllt á sjö til átta tímum. „Við vor-
um komnir á miðin um klukkan þrjú
um nótt, köstuðum fimm sinnum og
vorum búnir að fylla fyrir klukkan 11
um morguninn," segir Grétar
Rögnvarsson, skipstjóri, en mest
fengu þeir um 500 tonn í kasti. Loðn-
an var góð og fóru um 40 tonn í fryst-
ingu.
Um 11.000 tonn í flottroll
Grétar notaði flottroll við veiðarn-
ar í janúar og fram í byrjun febrúar
og veiddi um 11.000 tonn í trollið en
hefur kastað nótinni í sex síðustu
túrum og er samtals kominn með um
15.000 tonn. „Það er alltaf gaman á
nótinni enda er hún skemmtilegasta
veiðarfærið," segir Grétar. „Það
fylgir þessu mikil spenna og veiði-
skapurinn er skemmtilegur, þegar
mikið er fyrir. Stórtækt veiðarfæri.
Það er að vísu erfiðara fyrir karlana,
smá puð meðan á því stendur, en það
tekur fljótt af enda ekki erfitt að
vinna átta til tólf tíma í rykk.“
Trollið bjargvættur
í gær hafi verið tilkynnt um land-
anir á samtals um 266.000 tonnum af
loðnu á vertíðinni og hafði um 45.000
tonnum verið landað hjá Hraðfrysti-
húsi Eskifjarðar á Eskifirði, um
39.000 tonnum hjá Síldarvinnslunni í
Neskaupstað og um 36.000 tonnum
hjá SR-mjöli á Seyðisfirði en minna
annars staðar. Stærsti hlutinn veidd-
ist í flottroll en mikil veiði hefur ver-
ið í nótina undanfama daga.
Grétar segir að miklu máli hafi
skipt að geta notað flottrollið áður en
loðnan kom upp á grunnið og það sé
mikill misskilningur að það hafi
skemmt fyrir. „Hefði flottrollið ekki
verið notað hefði lítil sem engin
loðnuveiði verið í janúar. Þeir, sem
ekki voru með flottroll, voru orðnir
langeygðir eftir loðnunni og sumir
sögðu að trollið hefði skaðleg áhrif
og hefði útrýmt stofninum, en það er
algjör þvæla. Það er mjög mikið að
sjá af loðnu á miðunum en hún fer
ekki mjög hratt. Hins vegar veit
maður aldrei hvort um sömu torfu er
að ræða en aðalatriðið er að það er
nóg af henni.“
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Gott veður hefur verið á loðnumiðunum undanfarna daga en kaldi var á heimleið í vikunni.
I
|
¥