Morgunblaðið - 18.02.2000, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 18.02.2000, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ 56 FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2000 y\ www.rit.ee þýðingar á ensku - vefsíður, ársreikningar o.fl. Blöndunartæki Gamaldags blöndunartæki framleidd bæði fyrir eldhús og baðherbergi. Blöndunartæki fyrir handlaugar eru framleidd með háum og lágum stút. Yfirborðsáferðin erýmist króm, gull eða króm/gull. T€flGI i Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur Sími: 564 1088 • Fax: 564 1089 Fást i byggingavöruverslunum um landallt Ofnæmis- prófað Miklu lægra verð Multi Vitamins & Minerals 30 hylki Auögieypanleg Dreifing: Hollefni ehf. GEV-ErTABS' MULTI VíTAMINS &MINERALS Náttúrlegt Sama gæða varan FAX 552 6666 Pottar í Gullnámunni dagana 3. til 16. febrúar 2000 Silfurpottar: Dags. Staður Upphæð 3. feb. Ölver....................................258.653 kr. 4. feb. Háspenna, Laugavegi...................... 68.531 kr. 4. feb. Háspenna, Hafnarstræti ............. 132.039 kr. 5. feb. Háspenna, Laugavegi..................... 180.440 kr. 6. feb. Háspenna, Hafnarstræti ............. 180.649 kr. 7. feb. Spilastofan, Geislagötu 12, Akureyri .... 111.640 kr. 7. feb. Háspenna, Laugavegi..................... 84.826 kr. 8. feb. Catalína ........................... 142.104 kr. 8. feb. Mónakó................................. 123.254 kr. 9. feb. Háspenna, Laugavegi..................... 112.297 kr. 10. feb. Háspenna, Laugavegi..................... 186.532 kr. 11. feb. Hafurbjörninn, Grindavík................ 148.496 kr. 11. feb. Háspenna, Hafnarstræti .............. 85.696 kr. 11. feb. Videomarkaðurinn, Bæjarlind ......... 72.339 kr. 14. feb. Háspenna, Hafnarstræti ..............323.262 kr. 14. feb. Videomarkaðurinn, Bæjarlind............. 121.237 kr. 15. feb. Sunnukráin, Akureyri.................... 173.325 kr. 16. feb. Mónakó.................................. 185.967 kr. 7. mars Ölver............................... 62.119 kr. Staða Gullpottsins 17. febrúar kl. 9.00 var 11.601.357 kr. Silfurpottarnir byrja alltaf í 50.000. kr. og Gullpottarnir í 2.000.000 kr. og hækka síðan jafnt og þétt þar til þeir detta. ÍDAG VELVAKAJVDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Kannast einhver við þessa mynd? VELVAKANDA bárust myndir sem fundust fyrir utan Laugardalshöll fyrir um það bil 12-15 árum síð- an. Ef einhver kannast við konuna á myndinni, er hægt að hafa samband í síma 569-1201. Akureyrarskyr KONA hafði samband við Velvakanda og vildi koma á framfæri að það væri hægt að kaupa gamaldags Akur- eyrarskyr einu sinni í viku í KEA Nettó í Mjódd. Einnig vildi hún benda á það að Askaskyrið frá Búðardal fengist í hverri verslun. Það skyr væri eins og skyrið sem búið hefur verið til á Islandi í gegnum tíðina og best væri að geyma það lengi í ísskápnum, því þá súrnar gerillinn. Þakkir ANNA Soffía vildi koma á framfæri þökkum til stræt- isvagnabílstjórans á leið 5. Hún tók strætisvagn fðstu- daginn 11. febrúar sl. kl. 16.58 frá Lækjartorgi þeg- ar óveðrið geisaði í Reykja- vík. Hún fór úr vagninum við Austurbrún. Þar var al- veg snarvitlaust veður og hún fauk þegar hún fór út úr vagninum. Bílstjórinn snaraði sér þá út og leiddi hana heim að húsinu. Húf- an hafði fokið af henni og kom einn farþeginn með hana til hennar. Vildi hún senda þeim báðum sinar bestu þakkir fyrir aðstoð- ina. Slæmt ástand við strætisvagnaskýlin ÞAÐ er alltaf verið að hvetja fólk til þess að nota strætisvagnana. Núna í þessari ófærð er það nánast vonlaust. Þegar göturnar eru ruddar, er snjónum rutt upp að gangstéttar- brúnunum. Það þarf að klofa skafla og ruðninga þegar fólk fer í og úr vögn- unum. Það getur skapast gífurleg hætta fyrir fólk. Eg var vitni að því að kona sem kom út úr strætisvagni datt um leið og hún kom út. Það er gífurlega slæmt ástand við strætisvagna- skýli borgarinnar, sem þyrfti að laga sem allra fyrst. Farþegi. Til kattareigenda Nú er kominn tími til að kattareigendur hætti að væla og kvarta um að þeir fái ekki að hleypa köttunum sínum út meðan á kattar- átakinu í miðbænum stend- ur. Þið hafið sennilega lesið mörg lesendabréf frá reið- um kattareigendum kvart- andi og vælandi út af þessu átaki í miðbænum i þeim til- gangi að losa miðbæinn við flækings- og villiketti. Núna í gær (7. febrúar) birtist svo gríðarstór grein, á baksíðu DV, um kattar- eiganda og köttinn hans, dr. Jón. Dr. Jón hafði verið fangaður tvisvar sinnum og neitar eigandinn að borga þessar 7.500 kr sem hann skuldar bænum fyrir að fá köttinn til baka. Eigandinn segir að kötturinn hafí aldrei gert þarfir sínar í kassa og þegar eigandinn hélt kettinum inni í einn dag, vegna kattarátaksins, hafði hann skitið og migið út um alla íbúð. Eg segi bara gott á þig. Nú sérð þú magnið af skit og hlandi sem kötturinn þinn, einn köttur, skilur eftir sig víðs- vegar í borginni á hverjum einasta degi! Og þá í flest- um tilfellum í barnasand- kössum í leikskólum og gæsluvöllum borgarinnar. Þessi kattareigandi veit greinilega ekki neitt um ketti eða hvernig á að sjá um ketti því allir vita að hver köttur þarf sinn eigin sandkassa til að gera þarfír sínar í. Mér finnst viðbjóðs- legt að láta köttinn sinn míga og skíta úti um alla borg í alla barnasandkassa þar sem litlu bömin leika sér og stinga svo hland- blautum sandinum upp í sig. Kattarskítur er líka fullur af hringormum og öðrum sníkjudýrum sem lifa í meltingarvegi allra katta og geta smitast yfir i menn. Fólk getur ekki opn- að glugga án þess að köttur stökkvi inn og geri þarfir sínar þar inni (það hefur gerst). Þeir sem geta ekki verið með kettina sína inni hjá sér eiga ekkert að vera að fá sér ketti. Hvað er gaman við að eiga kött sem er aldrei heima hjá sér? Flestir hreinræktaðir kett- ir eru innikettir og líður bara vel, því þeir hafa aldrei farið út og það sem þeir þekkja ekki sakna þeir ekki. R.M. Tapað/fundió Gyllt dömuúr týndist 10. FEBRÚAR sl. týndist fingert gyllt dömuúr með gylltri keðju. Eigandi úrs- ins tók leið 6 frá Nesvegi að Regnboganum við Hverfis- götu og gekk síðan upp á Laugaveg. Skilvís finnandi er vinsamlegast beðinn að hafa samband við Rögnu í síma 651-7049. Poki með fatnaði týndist POKI með gráum buxum, svörtum bol og fjólubláum trefli týndist á Spotlight 12. febrúar sl. Skilvís finnandi er vinsamlegast beðinn að hafa samband í síma 554- 2537. Fundarlaun. Nokia 5110 týndist NOKIA 5110 gsm-sími týndist laugardagskvöldið 12. febrúar sl. Framhlið símans er græn-fjólublá sanseruð. Síminn týndist annaðhvort fyrir utan Glaumbar eða innan. Finn- andi hafi samband viðð Svövu í síma 566-6532. Gsm-sími í óskilum GSM-SÍMI fannst við Tjörnina í Reykjavík mánu- daginn 14. febrúar sl. Upp- lýsingar í síma 587-2870. Gsm-simi týndist GSM-SÍMI týndist á Skóla- vörðustíg laugardaginn 12. febrúar sl. Finnandi vinsa- mlegast hafi samband við Helgu í síma 555-4731. Dýrahald Kettlingar fást gefins FALLEGIR 2ja mánaða kettlingar fást gefins. Þeir eru karlkyns, tveir svartir og einn svartur/ hvítur. Þeim vantar heimili strax því annars því miður ekkert nema svæfing. Sími 5541596, 8661646 eða 8663756. Víkverji skrifar... ÍKVERJI dagsins er mikill kattavinur og hefur aldrei skilið þá sem taka hunda fram yfir þessi göfugu dýr. Allir hljóta líka að sjá að kettir gera mikið gagn, halda niðri músastofninum í sveitum og eru eig- endum sínum til yndis í þéttbýlinu. Þótt einn og einn fuglsungi sé freist- andi biti á vorin er ekkert við því að segja. Að minnsta kosti ættum við mennimir að þegja, ekki reka kettir fuglaverksmiðjur með það eitt að markmiði að framleiða ungt og meyrt kjöt á pönnuna. Það gerum við. I fréttum segir að vestanhafs rorri nú margir húskettir og hundar um í spikinu vegna þess að eigendumir, aðallega þeir sem sjálfir em of hold- ugir, geíl þeim allt of mikið. En Vík- verji sem er kattarlaus þessa stund- ina, hefur áhyggjur af því að það séu ekki eingöngu Bandaríkjamenn sem séu syndugir í þessum efnum. Hann sér oft dæmi um vansæla ketti í Reykjavík, ketti sem deyja löngu fyr- ir tímann vegna þess að eigendurnir em að kæfa þá í mat. Af hverju ekki að spara svolítið fóðrið en gæla því meira við blessuð dýrin og þá er átt við öll gæludýr? xxx SKYNDILEGA skall á talsvert rok á íslandi með mikilli snjó- komu, flugsamgöngur lömuðust og hundmð bíla sátu fost í sköflum á höfuðborgarsvæðinu. Víkverji lenti eins og fleiri í erfiðleikum af völdum veðurhamsins og honum létti þegar hann sá að samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar var þetta meiri snjó- koma á einum degi en gengur og ger- ist. Fara þurfti 16 ár aftur í tímann til að finna eitthvað sambærilegt í Reykjavík. Það var þá ekki bara minnisleysi og minnkandi hæfileikar okkar borg- arbúa til að kljást við náttúruöflin sem olli vandanum. Hann var raun- veralegur en það sem Víkveija fannst sérkennÚegast var að sjá skeyti um málið á vefnum hjá stórri, erlendri fréttastofu, AFP. Þar sagði meðal annars að strætis- vagnar í höfuðborginni hefðu oft ekki komist leiðar sinnar vegna einkabíla sem skildir hefðu verið eftir í snjón- um. Snjóplógar hefðu ekki heldur getað athafnað sig af sömu orsökum. Einnig var fjallað um erfiðleika flugf- arþega sem ekki hefðu komist frá Keflavík og orðið að veija nóttinni í flughöfninni. Einhvern tíma hefði okkur þótt furðulegt að snjókoma á íslandi þætti tíðindum sæta í öðmm löndum en kannski er þetta aðeins dæmi um alþjóðavæðingu og vaxandi umsvif fjölmiðla. xxx VINKONA Víkveija fékk sér fyr- ir skömmu snæðing í hádeginu á nýjum veitingastað í miðborginni og ekki hafði hún neitt út á matinn að setja. Hann var að vísu dýr en mjög góður og vel fram borinn enda fær staðurinn frábæra umsögn í veitinga- húsagagnrýni blaðsins. En það var annað sem henni fannst í senn afleitt og um leið hlægi- legt. Hægt er að fá sérstakan mat- seðil þar sem rakið er hvað sé á boð- stólum í hádeginu. Oft hefur hún séð ritvillur á matseðli og séu veitingam- ar góðar og þjónustan notaleg er fólk yfirleitt ekki að kippa sér mikið upp við slíka fegurðarbletti. En umrædd- ur seðill hlýtur að slá öll met sem áð- ur hafa verið sett í þessum efnum norðan Alpafjalla, ef ekki víðar. Fyrst skal þess getið að nöfn á áfengistegundum em fjölmörg vit- laust stafsett og ætti þó að vera hægðarleikur að líta á barinn til að fullvissa sig áður en handritið er sent í prentun. (Pappírinn var þykkur og vandaður, ekki vantaði það.) Rætt var m.a. um Cocnac (Cognac), Arm- aniac (Armagnac), Bailys (Bailey’s), Camus Extra Ordinary (Camus Extra Ordinaire), Martell Gordon Bleu (Martell Cordon Bleu), Grand mariner Gold (Grand Mamiere Gold). Einnig var gestum bent á að hægt væri að fá Expresso (Espresso) kaffi og Cappochino (Capuccino). Boðið var upp á Iris coffecake (Ir- ish coffeecake), chocoladecake (chocolatecake) Zuchini (Zucchini), cottage chesse (cottage cheese) og ekki má gleyma baquette with turky (baguette with turkey)!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.