Morgunblaðið - 18.02.2000, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2000 45
MINNINGAR
I
+ Erla Sigurðar-
dóttir fæddist 15.
janúar 1931. Hún
lést 10. febrúar síð-
astliðinn. Erla var
dóttir Signrðar Ein-
arssonar, múrara-
meistara og Emelíu
Davíðsdóttur, hús-
móður.
Erla giftist ung
Andrési Hjörleifs-
syni. Þau eignuðust
tvo syni, Sigurð og
Ólaf.
Eftirlifandi eigin-
maður hennar er
Einar Jónsson og eiga þau þijú
börn, Hafdísi, Emelíu og Einar
Jón.
Útför Erlu fer fram frá Höfða-
kapellu í dag og hefst athöfnin
klukkan 14.
í bljúgri bæn og þökk til þín
sem þekkir mig ogverkin mín.
Ég leita þín Guð leiddu mig
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt sem miður fer
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér
ég betur kunni að þjóna þér
Því veit mér feta veginn þinn
að verðir þú æ drottinn minn.
(Séra Pétur Þórarinsson.)
Erla mín. Loksins
ertu búin að fá hvíldina.
Þér var svo sannarlega
orðið mál á henni. Þeir
hafa nú ekki verið marg-
ir dagamir sem þú hefur
getað hlakkað til að
vakna hress og frísk og
getað gert það sem þig
hefur langað til. Hann
hefur svo sannarlega
vitað hvað hann var að
gera himnafaðirinn þeg-
ar hann lagði þetta allt á þig. Hann
hefur vitað að þú mundir standast
þessa raun með reisn, því mikið var á
þig lagt og þú tókst því öllu með
stakri ró og varst glöð ef þú hafðir
heilsu tii að skreppa í heimsókn til
okkar dagstund og þótt þú værir í
rúminu daginn eftir léstu þig hafa
það. Maður skildi oft ekki hvað þú
hafðir mikinn styrk til að berjast við
alla þína sjúkdóma og vita að ekkert
var hægt annað en að bíða og vona að
næsti dagur yrði örlítið betri, en sú
von brást nú ansi oft. En sem betur
fer stóð þinn góði maður, hann Ein-
ar, eins og klettur við hliðina á þér
með alla sína umhyggju og þannig
var það þar til yfir lauk. Manni
fannst nú nóg komið, en samt var það
ekki svo því ofan á allt annað bættist
þessi illvígi sjúkdómur sem svo
marga hefur lagt að velli. En þú
tókst því af rósemi eins og öllu hinu,
og svo mikill var styrkur þinn að þið
hjón voruð búin að ráðstafa öllu í
sambandi við þína síðustu kveðju-
stund. Eftir stendur þitt fallega
heimili sem ber þess vott hvað þú
varst listfeng og áttir auðvelt með
alla handavinnu, þótt þú gengir
sjaldan heil til skógar. Hann Einar á
eftir að ylja sér við að horfa á falleg
málverk og annað sem þú gerðir þeg-
ar þú hafðir heilsu til og við sendum
honum og hans fjölskyldu samúðar-
kveðjur. Ég veit að það hefur verið
tekið vel á móti þér þegar þú mættir í
faðm ástvinanna hinum megin.
Vertu sæl, Erla mín, og takk fyrir
samfylgdina.
Davíð og Bóthildur.
Kær vinkona mín frá bemsku og
alla tíð, Erla, er látin eftir löng og
ströng veikindi. Við vorum nágrann-
ar í Skerjafirðinum litlar telpur og
svo seinna í Safamýrinni þá giftar
konur með börn og bú.
Nábýli okkar var frábært, aldrei
hallaði orði, það var góður tími.
Morgunkaffitíminn okkar ásamt
Ernu og Rögnu vom yndislegir.
Samband okkar slitnaði ekki þótt
Erla flytti norður.
Ég þakka þér og Einari áralanga
vinátttu. Við Ingólfur vottum fjöl-
skyldu þinni okkar dýpstu samúð.
Kær kveðja.
Þin vinkona,
Vilhelmína Böðvarsdóttir.
ERLA
SIGURÐARDÓTTIR
+
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og
afa,
MAGNÚSARJÓNSSONAR,
Sólvangsvegi 1,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki sjúkra-
hússins Sólvangs fyrir góða umönnun.
Guð blessi ykkur öil.
Dagný Pedersen,
börn, tengdabörn
og barnabörn.
tr
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
GESTS MAGNÚSSONAR.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna. Sérstakar þakkir til lækna og starfs-
fólks lyfjadeildar 1 á Fjórðungssjúkrahúsi Akur-
eyrar.
Rut Ingimarsdóttir,
Sigurður Már Gestsson, Anna Karelsdóttir,
Viktor Már Gestsson, Edda Hjörleifsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
AUGLYSINGAR
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
Fasteignasala/
sölumaður
Mjög umsvifamikil og öflug fasteignasala
óskar eftir að ráða sölumann til starfa.
Góðir tekjumöguleikar.
Áhugasamirsendi umsókn til auglýsingadeildar
Morgunblaðsins fyrir þriðjudaginn 22. feb.
merkta: „Sölumaður — 9276".
Bókhaldsþjónusta
Tek að mér alla almenna bókhaldsþjónustu,
launaútreikning og VSK uppgjör. Möguleiki
er á að koma á staðinn ef þess er óskað.
Þeir, sem hafa áhuga, vinsamlegast leggi inn
nafn, heimilisfang og síma á auglýsingadeild
Mbl., merkt: „M - 9274".
TILKYMIMINGAR
BORGARSKIPULAG REYKJAVIKUR
BORGARTÚN 3-105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um breytingu á
deiliskipulagi í Reykjavík
Gylfaflöt 32
í samræmi við 1. mgr. 21. gr. skipulags- og
byggingarlaga er hér með auglýst til
kynningar tillaga um stækkun lóðarinnar
Gylfaflöt 32.
Tillagan liggur frammi í sal Borgar-
skipulags- og Byggingarfulltrúa, Borgar-
túni 3, 1. hæð, virkadaga kl. 10:00 -16:00
frá 18. febrúar til 17. mars 2000.
Ábendingum og athugasemdum skal skila
skriflega til Borgarskipulags eigi síðar en
30. mars 2000.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við
tillöguna innan tilskilins frests, teljast
samþykkir.
_______________________________________
UPPBOÐ
Uppboð
Uppboð munu byrja ó skrifstofu embættisins á Aðalgötu 7,
Stykkishólmi þriðjudaginn 22. febrúar 2000 kl. 10.00 á eftirfar-
andi eignum:
Borgarbraut 6, íbúð 0201, Grundarfirði, þingl. eig. Þorsteinn Bjarki
Ólafsson, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður.
Borgarbraut 9, efri hæð, Grundarfirði, þingl. eig. Sprettur ehf., Kópa-
vogi, gerðarbeiðendur Ibúðalánasjóður, Rafmagnsveitur ríkisins,
Reykjavík og Þorgeir Árnason ehf.
Brautarholt 21, Snæfellsbæ, þingl. eig. Reynir Jónsson og Margrét
S. Ingimundardóttir, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður.
Hellisbraut 15, Snæfellsbæ, þingl. eig. Fróði Ársælsson, Albert Guð-
laugsson og Hafdís Bára Þórðardóttir, gerðarbeiðandi (búðalánasjóður.
Helluhóll 9, Snæfellsbæ, þingl. eig. Ársæll Kristófer Ársælsson og
Aðalsteina Erla L. Gísladóttir, gerðarbeiðendur (búðalánasjóður,
Lífeyrissjóður verslunarmanna og Olíufélagið hf.
Hjarðartún 1, efri hæð, Snæfellsbæ, þingl. eig. Anna Sofía Gærdbo,
gerðarbeiðandi (búðalánasjóður.
Hraunás 12, Snæfellsbæ, þingl. eig. Magnús Guðmundsson, gerðar-
beiðandi íbúðalánasjóður.
Ólafsbraut 42, Snæfellsbæ, þingl. eig. Magnús Guðni Emanúelsson
og Arndis Þórðardóttir, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður.
Ólafsbraut 46, Snæfellsbæ, þingl. eig. Guðbjörg Særún Sævarsdóttir
og Þóroddur Halldórsson, gerðarbeiðandi Landsbanki (slands.
Sigurbjörg SH-48, skrnr. 1129, þingl. eig. Auðbergur ehf., gerðarbeið-
endur Gjaldtökusjóður/ólögm. sjávarafl, Lífeyrissjóður sjómanna,
Olíufélagið hf. og Samvinnusjóður íslands hf.
Snæfellsás 13, Snæfellsbæ, þingl. eig. Júlíus Daníel Sveinbjörnsson,
gerðarbeiðandi Ibúðalánasjóður,
Snæfellsás 7, Snæfellsbæ, þingl. eig. Þorbjörg A. Höskuldsdóttir,
gerðarbeiðandi Byko hf.
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi,
15. febrúar 2000.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Álftarimi 5—7, Selfossi, ib. 0205,89,0 fm, 6,43% húss. þingl. eig.
Hafþór Bragason, gerðarbeiðendur Álftarimi 5—7, húsfélag og Bygg-
ingasjóður verkamanna, fimmtudaginn 24. febrúar 2000 kl. 10.30.
Sýslumaðurinn á Selossi,
17. febrúar 2000.
Uppboð
Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti
1, Isafirði, þriðjudaginn 22. febrúar2000 kl. 14.00 á eftirfar-
andi eign:
Stórholt 7, 0102, (safirði, þingl. eig. Rósa Björk Svavarsdóttir og Jón
Kornelíus Magnússon, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður.
Sýslumaðurinn á ísafirði,
17. febrúar 2000.
KENNSLA
Brian Tracy
:(5>
International
PHOENIX-namskeiöin
www.sigur.is
FELAGSLIF
I.O.O.F. 1 = 1802188’/! = 9.0 0*
Aðalstöðvar KFUM og KFUK,
Holtavegi 28.
VAKA á föstudagskvöld kl.
20.00.
Þema: Hvað kostar að fylgja
Jesú? Ólafur Jóhannsson talar.
Mikill söngur og lofgjörð.
Gott samfélag.
Kristniboðssambandið.
I.O.O.F. 12 m 1802188'/2 = Sp
Frá Guðspeki-
félaginu
l/igólfsstræti 22
Askriftarsimi
Ganglera er
896-2070
l<*
I kvöld kl. 21 heldur Gunnar Her-
sveinn erindi: „Orð um ást“ í húsi
félagsins, Ingólfsstræti 22.
Á laugardag kl. 15—17 er opið hús
með fræðslu og umræðum, kl.
15.30 verður sýnt myndband:
„Tækniundur forsögulegra þjóða“.
Á sunnudögum kl. 17—18 er hug-
leiðingarstund með leiðbeiningum
’rir almenning.
fimmtudögum kl. 16.30— 18.30
er bókaþjónustan opin með miklu
úrvali andlegra bókmennta. Starf-
semi félagsins er öllum opin.
Jf
augl@mbl.is
Sparaðu þér umstang og tíma með því að
senda atvinnu- og raðauglýsingar til birtingar
i Morgunblaðinu með tölvupósti.
Notfærðu þér tæknina næst.
ét