Morgunblaðið - 18.02.2000, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2000 47
UMRÆÐAN
Skíðaganga - holl
og góð hreyfíng
HVER kannast ekki
við að hafa fengið sam-
viskubit yfir aðgerða-
leysi sínu þegar frum-
skógur geymslunnar
er kannaður? Kostur
slíkra staða er hin full-
komna óvissa um hvað
er handan við hornið
og maður veit aldrei á
hvað maður rekst
næst! Fótanuddtækið,
bumbubaninn alræmdi,
gamla þrekhjólið og
gönguskíði liggja þar
ónotuð með þann eina
tilgang að safna ryki.
En það er ekki öll von
úti enn fyrir þessi
gömlu grey. Gönguskíði er víða að
finna í geymslum landsmanna og
ætla ég mér í þessari grein að færa
rök fyrir því hvers vegna fólk ætti
að taka þau fram, eða þá að kaupa
sér nýjan búnað til að hafa til taks í
geymslum sínum.
Mikil vakning hefur átt sér stað á
undanförnum árum um mikilvægi
hreyfingar og heilsusamlegs lífern-
is. Fólk hefur í vaxandi mæli til-
einkað sér breytt viðhorf og orðið
þátttakendur í þessari fjöldahreyf-
ingu í átt til betri lífsstíls. Kyrr-
setufólki er ekki lengur til setunnar
boðið þar sem það er í sífellu minnt
á að sófadagar frá 17-23 alla daga
vikunnar, allt árið um kring er
nokkuð sem beinlínis er ógn við
heilsu þeirra og vellíðan. Aróður
þessa efnis er mikill, enda ekki að
ástæðulausu. Við höfum bara einn
líkama sem verður að bera okkur á
höndum sér þar til lífi okkar lýkur
og því verðum við að hlúa vel að
heilsunni. Vissulega getum við
fengið ýmiskonar
aukabúnað á líkamann
sem óþarft er að
minnast á, en þegar
öllu er á botninn
hvolft getum við til-
einkað okkur hollar
Mfsvenjur og á þann
hátt fengið meira út
úr lífinu en ella.
Margir kostir eru í
boði til þess að hreyfa
sig og langar mig hér
að fjalla um það út-
breiðslustarf sem
unnið er innan Skíða-
sambands Islands,
SKÍ, hvað skíðagöngu
varðar.
Undanfarin sex ár hefur SKI
staðið fyrir umfangsmiklu út-
breiðsluátaki með yfirskriftinni
Skíðagöngukennsla fyrir almenn-
ing. Tilgangur átaksins er að gefa
almenningi kost á að kynnast
íþróttinni og fá kennslu í grunnat-
riðum hennar. Kennslan er almenn-
ingi að kostnaðarlausu í samvinnu
við fyrirtæki og sveitarfélög. Fólk
sem kemur í kennslu til okkar get-
ur fengið útbúnað að láni án endur-
gjalds við kennsluna. Átakið hefur
notið mikilla vinsælda meðal al-
mennings og hefur SKI ferðast vítt
og breitt um land í þessu skyni. Síð-
asta vetur var metþátttaka hjá okk-
ur jjegar um 6.000 manns voru með.
I vetur ætlum við að einbeita
okkur að höfuðborgarsvæðinu og
munum við bjóða almenningi upp á
kennslu á fleiri stöðum hér sunnan-
lands en áður hefur verið. Með því
viljum við koma til móts við fólk á
svæðinu og hafa viðtökur nú þegar
verið mjög góðar. Ennfremur höf-
um við á síðustu árum boðið fyrir-
tækjum, starfsmannahópum,
skokkhópum og öðrum hópum upp
á kennslu og hefur aukningin verið
mikil á því sviði. Áhugasamfr geta
haft samband við okkur með tölvu-
pósti, netfang okkar er ski@toto.is.
Upplýsingar um væntanlega dag-
skrá verður að finna á íþróttasíðum
DV og á visir.is. Dagskráin verður
einnig uppfærð á textavarpi RÚV á
Hreyfing
Skíðaganga, segir
Bjarni Friðrik
Jóhannesson er ein
besta alhliða hreyfíng
sem völ er á.
síðu 369 í allan vetur. Auglýsinga-
veggspjöldum verður einnig dreift
á alla kennslustaði. Okkur hefur í
gegnum tíðina reynst erfitt að birta
dagskrá langt fram í tímann sökum
veðurfars, en viljum benda fólki á
að dagskráin tekur stöðugum
breytingum og því um að gera að
hafa augun opin. Að gefnu tilefni vil
ég taka það fram að fólk þarf ekki
að skrá sig fyrirfram í almennings-
kennslu okkar, heldur bara að
mæta á staðinn.
Styrktaraðilar átaksins í ár eru
Bakkavör hf., Ingvar Helgason hf.,
Olís, Tóbaksvarnarnefnd, DV, Nan-
oq, Fálkinn, Útilíf, Intersport og
Leppin. Þetta eru þeir aðilar sem
gera okkur kleift að halda þessu
mikla starfi gangandi.
En hvers vegna ætti ég að vilja
Bjarni Friðrik
Jóhannesson
Röskva vill bæta
aðstöðu háskólanema
Húsnæðisvandi Há-
skólans verður sífellt
alvarlegri. Bygginga-
framkvæmdir hafa
ekki haldist í hendur
við aukinn fjölda nem-
enda og því er brýnn
skortur á kennslustof-
um, lesaðstöðu og
tölvuaðstöðu. Röskva
hefur í vetur hafið
markvissa baráttu fyr-
ir betri aðstöðu. Tók
hún málið m.a. upp á
háskólafundi þar sem
samþykkt var að Há-
skólinn markaði sér
skýra stefnu í aðstöðu-
málum stúdenta. Einn-
ig var haft gott samráð við yfirmenn
Háskólans, kennara og nemendur
um bráðabirgðaaðgerðir þar sem
ástandið var verst.
Röskva hefur nú sett fram skýra
húsnæðisstefnu fyrir kosningarnar
til Stúdentaráðs og háskólaráðs hinn
23. febrúar næstkomandi.
Aukinn þrýstingur á stjórnvöld
Röskva leggur höfuðáherslu á
markvissan þrýsting á stjórnvöld um
aukið fé til byggingaframkvæmda.
Eins og staðan er í dag byggjast
fjárveitingar til
nýbygginga og við-
halds Háskólans nær
eingöngu á afkomu
Happdrættis Háskóla
íslands. Þótt happ-
drættið hafi verið góð
hugmynd fyrr á öldinni
er Ijóst að aukið fé þarf
að koma úr ríkissjóði,
enda um ótrygga fjár-
mögnunarleið að ræða.
Opna þarf augu stjórn-
valda iýrir þeirri miklu
nemendaaukningu sem
qrðið hefur í Háskóla
íslands.
Einnig þarf virkt að-
hald með Háskólanum
sjálfum, þannig að þær bygginga-
framkvæmdir sem svigrúm er til fyr-
ir séu raunhæfar og hagkvæmar.
Meginmarkmiðið er að veita sem
flestum aðstöðu en ekki að byggja
listaverk.
Betri nýting
Bókhlöðunnar
Auk meginmarkmiðsins um aukið
fé úr ríkissjóði vill Röskva hrinda í
framkvæmd skipulögðum bráða-
birgðaaðgerðum til að slá á brýnustu
húsnæðisþörfina. Röskva vill nýta
Stúdentarád
Ef Háskólinn vill ekki
dragast aftur úr, segir
Margrét Vilborg
Bjarnadóttir, er brýnna
úrbóta þörf í
húsnæðismálum.
Þjóðarbókhlöðuna betur með skil-
virku skráningarkerfi. Einnig vill
Röskva kanna möguleika á fjölgun
lesborða á fyrstu hæð safnsins og að
þar verði komið upp nestisaðstöðu.
Kennslustofur opnaðar
Röskva vill að kennslustofur verði
opnaðar sem lesaðstaða utan
kennslustunda. Slíkt þarf að gera á
skipulegan hátt svo ljóst sé hvar
megi lesa og hvenær. Það er synd að
horfa upp á læstar kennslustofur
meðal skorturinn á lesaðstöðu er
jafn mikill og raun ber vitni.
Fleiri lesborð
Nauðsynlegt er að Háskólinn nýti
sem best þær byggingar sem fyrir
Margrét Vilborg
Bjarnadóttir
^vié/f4\v\\ Brúðhjón
Allnr I)orðbUnaður - GIæsi 1 eg (jjáfdvara - Brúðhjóndlistar
VERslunín
Laugavegi 52, s. 562 4244.
fara á gönguskíði? Skíðaganga er
éin besta alhliða hreyfing sem völ
er á og reynir á flesta vöðva líkam-
ans. Allar hreyfmgar em mjúkar,
fitubrennsla er mikil og hver og
einn ræður því sjálfur hve hratt
hann fer yfir. Það er vitaskuld með
skíðagönguna eins og allt annað að
æfingin skapar meistarann. En það
er rnikill misskilningur að skíða-
ganga sé ekki fyrir hvern sem er. Á
síðustu árum hefur skíðagangan
orðið vinsæl almenningsíþrótt og sí-
fellt fleiri slegist í hóp þeirra sem
vilja nýta sér kosti þessarar hollu
og góðu íþróttar. Skíðagangan er
fyrir alla og er afar góð fjölskyldu-
íþrótt. Þess vegna viljum við hvetja
fólk sem ekki hefur prófað þennan
valkost, eða þarfnast leiðbeiningar
um hvernig bera eigi sig að, til þess
að nýta sér það starf sem er unnið í
þessum efnum á vegum Skíðasam-
bandsins.
Við erum þeirrar skoðunar að
skíðaganga sé spennandi kostur og
hin gríðarmikla aukning iðkenda
síðustu ár staðfestir að almenning-
ur er sama sinnis. Iþróttina er
hægt að stunda alls staðar svo
fremi sem snjór og eitthvert slétt-
lendi sé fyrir hendi og er afar góð
fjölskylduíþrótt. Aðbúnaður skíða-
manna hefur batnað mjög síðustu
ár, þótt vissulega megi alltaf gera
betur í þeim efnum. Eg vil sérstak-
lega benda á Heiðmörk, en hún er
eitt allra skemmtilegasta útivistar-
svæði landsins að mínu mati. Þar er
hægt að ganga á skíðum innan um
skóglendið í fjölbreyttu landslagi,
sem verður nú að teljast framandi
fyrir okkur íslendinga. Göngu-
brautir eru troðnar á meðan að-
stæður leyfa og aðgengi að svæðinu
er yfirleitt gott.
Þegar þessi orð eru skrifuð er
snjórinn kominn aftur og veðurguð-
irnir aftur farnir að taka tillit til
okkar skíðafólksins. Enginn veit
hve lengi þetta ástand varir, en við
verðum bara að bíða og vona að við
fáum meiri snjó. Við höfum þó alltaf
möguleikann á að dansa snjódans-
inn ef bið verður á frekari snjó-
eru. Röskva vill t.d. vinna að því að fá
aftur þá lesbása sem töpuðust í Odda
þegar nýja tölvuverið þar var opnað
á efstu hæðinni. Það er ófært að
flytja alla lesaðstöðu út úr bygging-
um Háskólans yfir í Þjóðarbókhlöðu
sem engan veginn getur tekið á móti
þeim fjölda stúdenta sem stundar
nám við skólann.
Brýnna úrbóta er þörf
Ef Háskólinn vill ekki dragast aft-
ur úr er brýnna úrbóta þörf í hús-
næðismálum. Röskva mun berjast af
krafti fyrir slíkum umbótum, enda er
Háskólinn vinnustaður tæplega
7.000 nemenda sem þurfa aðstöðu til
að búa sig sem best undir framtíðina.
Höfundur er verkfræðinemi og
skipar 5. sæti á lista Röskvu til
Stúdentaráðs.
Stretchbuxur kr. 2.900
Konubuxur frá kr. 1.690
Dragtir, kjólar,
blússur og pils.
Ódýr náttfatnaður.
Nýbýlavegi 12, sími 5544433
komu, en við skulum vona að til
þess þurfi ekki að koma!
Ég vil því hvetja þig lesandi góð-
ur til að nýta tækifærið á meðan
snjórinn er ti! að draga fraJþj
gönguskíðin úr kjallaranum og
slást í hópinn með okkur. Þeim sem
ekki eiga útbúnað vil ég benda á að
skíðabúðirnar bjóða upp á hagstæð
tilboð þar sem unnt er að fá skíði,
skó, bindingar og stafi saman í
pakka á mjög góðu verði. Mikil
söluaukning hefur orðið hjá skíða-
búðunum, sem er til marks um vax-
andi áhuga almennings á skíða-
íþróttinni. Við munum jafnframt
dreifa upplýsingum um gönguskíða-
tilboð frá Nanoq, Fálkanum, Utilífi
og Intersport til þátttakenda í
kennslu okkar í vetur. Ég vonast tffr'
að sjá sem flesta með okkur í vetur,
gangandi á skíðum í átt til betra
lífs.
Höfundur situr ínorrænu-
greinanefnd SKI.
CQ
3
ÖJ
0588 55 30
Bréfsimi 588 5540
o>
c
3
00
<Ð
(O
Sæberg
Þórðarson,
löggiltur fasteigna- og
skipasali,
Háaleitisbraut 58,
sími 588 5530,
gsm 897 6657.
Opið mán.-fim. frá kl. 8-17 og
þriðjudaga frá kl. 8-18
4ra-6 herb.
KAMBSVEGUR - NEÐRI
SÉRHÆÐ Vorum að fá í sölu
fallega 4ra herbergja íbúð, 95 fm,
á 1. hæð, parket á gólfum. FAL-
LEG EIGN MEÐ GÓÐA STAÐ-
SETNINGU. V. 11,5 M. 1674
EFSTALAND Höfum í einka-
sölu fallega 3-4ra herbergja íbúð á
2. hæð. Parket, stórar suðursvalir.
EIGN MEÐ GÓÐA STAÐSETN-
INGU. V. 9,5 M. 1670
3ja herb.
MIKLABRAUT - SÉRINN-
GANGUR Höfum f einkasölu
3ja herbergja íbúð, 63 fm, á jarð-
hæð í þríbýlishúsi, með sérinn-
gangi. Nýir gluggar og þrefalt
hljóðeinangrunargler með hljóð-
vörn. Tvö herbergi. V. 6,9 m. Ahv.
3 M.1607
ÁLFASKEIÐ - HF. - M.
BÍLSKÚR Höfum í einkasölu
3ja herbergja íbúð, 86 fm, á 1.
hæð í góðu fjölbýlishúsi ásamt
góðum 24 fm bílskúr. ÁHV.
BYGGINGASJÓÐUR. 4,9%
VEXTIR. V. 8,9 M. 1658
2ja herb.
SAFAMÝRI - SÉRINN-
GANGUR Höfum í einkasölu
2ja herbergja íbúð, 50 fm, á jarð-
hæð, með sérinngangi. Parket.
GÓÐ STAÐSETNING. V. 5,9 M.
Áhv. 3,0 M. 1664
NJÁLSGATA - SÉRHÆÐ
Höfum til sölu 50 fm 2]a herb. á
sértiæð. Parket. V. 5,3 m. Áhv. 2,7
m. 1478
Byggingaplatan WD(E©(S®
sem aliir hafa beðið eftir
VIROC®byggingaplatan er fyrir VIROCbyggingaplatan er platan'’! 7
veggi, loft og gólf sem verkfræðingurinn getur
VIROC byggingaplatan er eldþolin, fyrirskrifað blint.
vatnsþolin, höggþolin, frostþolin og
hljóðeinangrandi
VIROCbyggingaplötuna er hægt
að nota úti sem inni
VIROCbyggingaplatan
er umhverfisvæn
PÞ
&CO
Leitið frekari upplýsinga
Þ.ÞORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚtA 29 S: 553 8640 & 568 6100