Morgunblaðið - 18.02.2000, Page 60

Morgunblaðið - 18.02.2000, Page 60
60 FÖSTUDAGUR 18. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Kvikmyndin Þrír kóngar var kynnt á Kvikmyndahátíðinni í Berlín MYNDBÖND ALLT VIRKAR STÆRRA Á HVÍTA TJALDINU Leikarinn og fyrirsætan Mark Wahlberg er í bitastæðu hlutverki í myndinni Þremur kóngum sem frumsýnd er hérlendis í dag. ~ Pétur Blöndal hitti hann að máli í Berlín og komst að því að það er enginn glamúr við það að vera kvikmyndastjarna. SÍÐHÆRÐUR þungarokkari sest gegnt blaðamanni og segir drafandi röddu: „Hæ, maður.“ Undir hárlokkunum sést ógreinilega í kunnuglegt andlit. Hann er með fráhneppt niður á nafla og með keðjur um hálsinn. Maðurinn er Mark Wahlberg sem fer með stórt hlutverk í stríðsmynd- inni Þrír kóngar eða „Three Kings“. Blaðamaður horfir forviða á hann “um stund þangað til hann stynur upp: „Ertu genginn í Guns’n Ros- es?“ „Þetta er nýja vinnan, maður,“ svarar Wahlberg og dregur seym- inn. „Lánið hefur leikið við mig upp á síðkastið, maður, og ég hef fengið nóg að gera.“ Hann horfir glettnis- lega á blaðamann og skiptir skyndi- lega um tóntegund. „Eg leik aðal- söngvara í þungarokkssveit í kvikmynd sem George Clooney framleiðir. Steve Harrick leikstýrir Aem gerði myndina Mr. Holland’s Opus.“ - Er líf rokkstjörnu svipuð lííi kvikmyndastjörnu? „Það er drepleiðinlegt að vera kvikmyndastjarna," svarar hann og hristir höfuðið. „Það vantar glamúr- inn. Þegar ég byrjaði hélt ég að það væri mun betra en vera í tónlistar- bransanum. En nei, maður þarf venjulega að ganga svona um í sex mánuði," segir hann og sveiflar til hárinu, „eða hanga á afskekktum stað í hálft ár eins og í Þremur kóngum. I „Perfect Storm“, sem ég var að ljúka við, var ég rennandi blautur og nærri drukknun í sex mánuði. Nei, égfæ aldrei hlutverkin þar sem ég kyssi stúlkurnar, geng í jakkafötum og er aðalgæinn.“ - Pú kysstir nú nokkrar í Boogie Nights. „Já, en það var allt annað,“ segir hann. „Eg var samt barinn í klessu. Svo er erfitt að fara á stefnumót eft- ir að hafa leikið í þeirri mynd því stúlkurnar halda að það sé svo stórt undir mér. En ég segi þeim bara að allt líti út fyrir að vera stærra á hvíta tjaldinu. Ekki er Sylvester Stallone hár í loftinu.“ - Mætirðu öðru viðhorfi með sítt hár? Þekkir fólk þig svona útlít- andi? „Nei, og það er af hinu góða. Sér- staklega í Los Angeles. Þar hef ég -jSÓtt staði á borð við Rainbow Room, ' Whiskey og fleiri i þeim dúr og eng- inn kannast við mig. En þegar ég reyni að fitja upp á samræðum við stúlkur líta þær bara á mig eins og ég sé það auvirðilegasta af öllu au- virðilegu. Ef ég spyr hvað sé að, líta þær bara á mig með fyrirlitningar- svip og segja mér að hunskast í burtu.“ Hann heldur áfram að rifja upp: „Stundum halda strákar að ég sé stúlka, elta mig uppi og missa andlitið þegar þeir líta framan í mig. Og mér hefur nokkrum sinnum verið ruglað saman við Axl Rose. Vinur minn á Bentley-blæjubíl og lánaði mér hann. Eg ók um borgina með höfuðband og sólgleraugu og þegar þungarokkari ekur um á svona bfl heldur fólk að það sé rokk- stjarna. Svo fólk hrópaði: „Þetta er Axl Rose!“ Og ég reyndi bara að líta út fyrir að vera svalur." - Þú varðst frægur sem fyrir- %æta og sumir segja að þú hafír að- eins náð langt út á líkamann. Hvernig fínnst þér að verða fyrir svona gagnrýni? „Ég er að reyna að taka hana ekki nærri mér. Ef ég get ekki leikið hlutverk og sýnt á mér fleiri hliðar er ég í slæmum málum. Ég hefði þá bara átt að halda mig við fyrirsæt- ustörfin." Hann segir þetta með áherslu og svo bætir hann við bros- andi: „Það er mun meiri glamúr í því að vera fyrirsæta. Maður vinnur í tvo klukkutíma með naktri fyrir- sætu og það eru teknar myndir til að sanna það.“ - Af hverju tókstu að þér hlut- verk í Þrem ur kóngum ? „Ég hafði aldrei lesið handrit í líkingu við þetta, David [O’ Russel] var í miklu áliti hjá mér sem leik- stjóri og hlutverkið var bitastætt. Það var ólíkt öðrum sem ég hafði fengist við og það veigamesta í myndinni. Ég gat samsamað mig því hlutverki eins og ég held að flestir menn á mínum aldri í Banda- ríkjunum hefðu gert. Því maður heldur að maður viti hvað er á seyði í heiminum af því að horfa á fréttir og lesa blöðin. I Persaflóastríðinu var eins og maður væri að horfa á tölvuleik. Það var ekkert voðalega spennandi, fór fram í sjónvarpinu og maður gat alltaf fundið hnefa- leika, körfubolta eða eitthvað annað áhugaverðara að horfa á. Ég hugs- aði með mér að við værum bara að bjarga Kúveit og steypa Saddam af stóli; að bjarga heiminum eins og alltaf. En þegar ég las handritið og fékk upplýsingar um hvað fór þarna fram í raun og veru var mér brugð- ið. Mér fannst atriðið þar sem ég er píndur af íröskum hermanni skipta sköpum í myndinni. Ef það væri sannfærandi myndi það opna augu manna fyrir þessum atburðum. Al- menningur myndi þá kannski leita sannleikans og viða að sér upplýs- ingum í stað þess að einblína á fréttaflutninginn. Sjálfur trúði ég ekki Enquirer heldur New York Post en komst að því að ekki er mik- ill munur þar á. Raunar finnst mér Enquirer skemmtilegri, - svo lengi sem það er ekki skrifað um mig.“ - Þekkirðu einhverja sem börð- ustí stríðinu? „Já, ég þekki nokkra sem fóru í stríðið en lentu þó aldrei í bardaga. Og auðvitað hittum við fjölmarga þegar við undirbjuggum okkur fyrir myndina, ekki aðeins úr Persaflóa- stríðinu heldur líka úr Kóreustríð- inu og Víetnam. Við hittum líka nokkra íraska hermenn. Það var mjög áhugavert og það nýttist manni vel að hafa allt þetta fólk til að ráðgast við. Ég reyni alltaf að viða eins miklum upplýsingum að mér og mögulegt er, svo ég viti hvar ég stend þegar tökur hefjast. En þegar allt kemur til alls er það leik- stjórinn sem ræður. Ég mæti bara í vinnuna á hverjum degi og kann textann. Síðan hef ég ákveðna hug- mynd um hvernig á að leika hlut- verkið en það er leikstjórinn sem á síðasta orðið. Ég lauk einmitt nýl- ega við aðra mynd og leikstjórinn hringdi í mig til þess að segja að honum þætti það mjög miður en hann hefði þurft að klippa út eitt at- riði. „Mér gæti ekki verið meira sama,“ sagði ég. „Hvað áttu við?“ spurði hann. „Þetta er ekki mitt mál. Þú ert að gera þessa mynd. Ég skilaði mínu og ljúktu bara við myndina eins og þér sýnist," svar- aði ég. Hann var óskaplega þakklát- ur og fjasaði heillengi um alla þá leikara sem yrðu svo reiðir að þeir vildu ekki kynna myndina og slitu öllu sambandi við leikstjórann. Ég vinn aldrei þannig. Ég set allt traust mitt á leikstjórann og hef þá líka útgönguleið ef myndin gengur illa; ég segist bara hafa farið að ósk- um leikstjórans: „Talaðu við hann. Hann er í næsta herbergi og kemur hingað eftir smástund." - Hvernig var að leika ípíningar- atriðinu? „Sársaukafullt," svarar hann og hlær. „Upphaflega var atriðið mun lengra og ansi harkalegt, en það varð að stytta það. Kringumstæð- urnar voru samt dálítið spaugilegar. Mestur hluti myndarinnar var tek- inn undir bemm himni og þetta var eitt af fáum atriðum sem voru tekin í kvikmyndaveri. Svo ekki þurfti að hafa áhyggjur af sólsetri eða flug- vélum. En það fyndna var að allir mættu til að horfa á atriðið. George [Clooney] mætti og samt átti hann ekki að leika; hann vildi bara sjá þá pína mig. Það mættu allir leikararn- ir og þeim fannst meiriháttar að sjá mig engjast í heilar 25 tökur. Við tókum atriðið á tveim dögum en björgunaratriðið ekki fyrr en tveim vikum síðar. Þá fannst mér við ekki ná sama neistanum áður en ég sá síðar að ég hafði rangt fyrir mér. Það er kannski þess vegna sem David er leik- stjórinn en ekki ég.“ Fullur sjálfstrausts - Getur maður hlakk- að til að horfa á þig í myndinni The Yards? „Já, ég hef horft á hana þrisvar sinnum og hún er ein af uppáhalds myndunum mínum. Ég hef raunar haft gaman af öllum mínum mynd- um, sumum meira en öðrum; stundum hef ég þurft að sannfæra mig um að þær séu góðar. En ég lýg engu þegar ég segi að þessi mynd er frábær. Aðalsögupers- ónan er ekkert alltof mikil mannvitsbrekka. Hann er látinn laus úr fangelsi í upphafi mynd- arinnar og það kemur í ljós að hann var að taka á sig sökina fyrir ein- hvern annan. Helst af öllu vill hann hugsa vel um móður sína, sem leikin er af Ellen Burst- yn. I öðrum hlutverkum eru allir helstu skap- gerðarleikarar í New York, Faye Dunaway, James Caan, Joaquin Phoenix og Sharon Stone. Myndin er á viss- an hátt eins og Guðfaðir- inn þar sem hún fjallar um fjöl- skylduna, með ákveðnum greini, en hún er samt ekki um mafíuna. Hún fjallar um spillingu en líka þennan unga mann sem er að reyna að átta sig á lífinu, hugsa um móður sína og fullorðnast." - Hvenær verður hún frumsýnd? „Það er búið að velja hana í keppnina í Cannes." - Var ekkert átak á sínum tíma að venda kvæði sínu í kross og ger- ast leikari? „Ég hef alltaf verið fullur af sjálf- strausti og aldrei hlustað á úrtölur, allt frá því ég var krakki. Ekki það að ég sé grobbinn. Ég hef bara trú á sjálfum mér og treysti mér í hvað sem er. En ég veit líka að enginn bjóst við að þetta tækist hjá mér. Það vissi enginn hvað í mig væri spunmð. En við því var ekkert að gera. Ég setti mér bara að vinna af einurð með góðu fólki og velja myndir af réttum ástæðum; ekki láta peninga spila inn í þá ákvarð- anatöku. Þegar ég lít til baka voru margir mjög undrandi á því að ég ætlaði mér frama í kvikmyndum, fjölmargir hlógu að mér og fóru ekki leynt með það.“ - Sá hlær best sem síðast hlær. „Já,“ hrópar hann upp yfir sig. „Þetta eru sömu mennirnir og eru núna að bjóða mér tíu milljónir doll- ara fyrir að leika í geimmynd." - Tíu milljónir doliara!? „Já. Hehumm. Eða þannig. Það er sko heildarkostnaðurinn við myndina." Hlaupa- gikkurinn Lóla MYNDBÖND Lola Rennt SPEJVIVUIVIYIVD ★★★'Æ Leikstjórn og handrit: Tom Tykwer. Kvikmyndataka: Frank Griebe. Aðalhlutverk: Fanka Pot- ente, Moritz Bleibtreu. (80 mín) Þýskaland. Stjörnubíó, febrúar 2000. Öllum leyfð. ÞÝSKA myndin um hlaupagikk- inn Lólu hefur hlotið verðlaun á kvik- myndahátíðum og fengið góða að- sókn utan Þýskalands. Myndin þykir bera með sér ferska strauma í þýska kvikmynda- gerð en hún er til- raunakennd og blandar saman tækni í anda tölvu- leikja og MTV- sjónvarpsstöðvar- innai' til að ná fram hraðri og mjög sjónrænni heild. Söguþráðurinn er einfaldur, Lóla þarf að ná ákveðnu takmarki innan ákveðins tíma, þ.e. að útvega 100.000 mörk handa kærastanum ellegar verður hann drepinn. Þessi frásögn er hins vegar ekki aðalatriðið í myndinni, hún er aðeins grunnefniviður í leik leikstjór- ans. Þannig lýtur frásögnin fremur lögmálum tölvuleikja en veruleikans. Sjónræn áhrif fást fram með klipp- ingum, ýmsum innskotum og kraft- mikilli teknótónlist. Sterk hreyfing er í myndinni og myndar samfellt flæði sem vegur skemmtilega upp á móti brotakenndri frásögninni. Myndin er athyglisverð og frumleg tilraun sem vel hefur tekist til með. Heiða Jóhannsdóttir Apaspil í Mexíkó MOOKIE Mookie GAMAIVMYIVD ★★% Leikstjóri: Hervé Palud. Handrit: Igor Aptekman og Simon Michael. Aðalhlutverk: Jacques Villeret, Er- ic Cantona og Emiliano Suarez. (90 mín) Frakkland. Skífan, 2000. Öll- um leyfð. HÚMORINN í þessari frönsku mynd er lúmskt skemmtilegur. Þar segir frá munki sem starfar við trúboð í Mexíkó. Hann finnur apa illa haldinn í eyðimörkinni og nefnir Mookie. Þegar upp kemst um einstaka tal- hæfileika Mookie verður allt vit- laust. Munkurinn leggur á flótta með apann sinn og slæst í för með atvinnuboxaranum Anthony (Eric Cantona). Myndin er þokkalega vönduð og vel gerð, létt og krydd- uð með frönskum húmor. Það skemmtilegasta í myndinni er þó tengslamyndun harðjaxlsins Anth- onys og apans, sem er nokkurs konar útúrsnúningur úr sögunni um töffarann sem lærir að sýna ástúð og umhyggju. Fótboltakapp- inn Eric Cantona virðist vera hinn sæmilegasti leikari. Cantona er bráðskemmtilegt framlag f -mynd- ina og má vel mæla með henni sem ágætri fjölskylduskemmtun. Heiða Jóhannsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.