Morgunblaðið - 14.03.2000, Síða 10

Morgunblaðið - 14.03.2000, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ályktanir Búnaðarþings Fasteignagjöld af margföldu raun- verulegu BÚNAÐARÞING hefur skorað á stjórnvöld að leiðrétta hið fyrsta það sem þingið kallar gróft mis- rétti sem felst í álagningu fast- eignagjalda á iandsbyggðinni þar sem gjaldstofninn er uppfærður til markaðsverðs fasteigna á höf- uðborgarsvæðinu. Um leið og það sé gert þurfi að endurskoða tekju- stofna sveitarfélaganna með tilliti til þeirrar lækkunar á tekjum sem leiðrétting fasteignagjaldanna leiðir til. Þá beinir Búnaðarþing því til Fasteignamats ríkisins að hefja þegar vinnu við nýtt brunabóta- mat á fasteignum í sveitum. I greinargerð með ályktun Búnaðarþings segir m.a. að fast- eignagjöld á landsbyggðinni séu reiknuð af margföldu raunveru- legu verðmæti og því augljósara sé ranglætið sem fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur rokið upp að undanförnu en lækkað að verðmæti sama skapi víðast hvar úti á landi. Það hljóti að orka tvímælis hvort það standist grundvallarreglur stjórnarskrár að viðhafa mismun- andi mat á fasteignum eftir stað- setningu þannig að sumir þegnar landsins greiði skatt af raunveru- legu verðmæti en aðm- af marg- földu verðmæti. Þessi mismunun sé eitt lóð á þá vogarskál að auka mun á lífskjörum fólks á lands- byggðinni og höfuðborgarsvæð- inu. Búnaðarþing fól jafnframt stjórn Bændasamtakanna að vinna því framgang að stuðningur stjórnvalda við landbúnaðinn taki mið af legu landsins og því hve landbúnaðurinn gegnir stóru hlut- verki sem kjölfesta dreifðrar byggðar í landinu. Þá mælti Bún- aðarþing með því að tekin verði upp gæðastýring í landbúnaði tU að treysta gæði framleiðslunnar og og auka arðsemi rekstrarins. Alvarleg aðför að eignarrétti BUNAÐARÞING mótmælir harðlega kröfugerð ríkisins um eignarrétt á landi í Árnessýslu á grundvelli laga um þjóðlendur. Búnaðarþing telur fráleitt að fram skuli settar kröfur um að afréttir og þinglýst eignarlönd bænda, sveitar- og eða upp- rekstrarfélaga verði að hluta eða að öllu leyti gerð að þjóðlendum ogþar með eign ríkisins. I ályktun Búnaðarþings segir að kröfugerð ríkisins sé alvarleg aðför að eignarrétti og vísar þingið til 72. greinar stjórnar- skrárinnar þar sem segir: „Eign- arrétturinn er friðhelgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. Þarf til þess lagafyrir- mæli og komi fullt verð fyrir.“ Búnaðarþing samþykkti að beina því til Alþingis og ríkis- stjórnar að lögfest verði að ríkið hafi sönnunarbyrði fyrir eignar- rétti á landi, landsréttindum og hlunnindum. Því er beint að Al- þingi að setja inn ákvæði í lög um þjóðlendur, sem kveði á um að þar sem fyrir liggja staðfest landamerki samkvæmt lögum þar um og þinglýsingar á tiltekn- um svæðum þá standi það. Þau lönd geti aldrei orðið þjóðlendur. Búnaðarþing vill að kröfur ríkis- ins í lönd í Arnessýslu verði dregnar til baka og endurskoð- aðar og verði aldrei gerð krafa um að eignarlönd, þar sem fyrir liggja staðfest landamerki, verði þjóðlendur. Þá verði unnið að því að fjár- málaráðherra leggi fram rökst- uddar kröfur ríkisins til þjóð- lendna fyrir landið allt, áður en óbyggðanefnd tekur einstök svæði til úrskurðar. Óbyggðan- efnd leggi síðan fram áætlun um í hvaða röð verður fjallað um ein- stök landsvæði og á hvaða tíma. Diana E.H. Russell, bandarískur prófessor 1 félagsfræði Morgunblaðið/Ásdís Fullt var út að dyrum á fyrirlestri dr. Russel, en htín var stödd hér á landi í tilefni tíu ára afmælis Stígamóta. Augljós tengsl milli kláms og ofbeldis FULLT var út úr dyrum á fyrir- lestri dr. Díönu E.H. Russell, próf- essors í félagsfræði við Mills-há- skóla í Kaliforníu, sem haldinn var í veitingasal á annarri hæð í Iðnó á laugardag, en erindi hennar gekk út á að sýna fram á hvernig klám í blöðum, tímaritum og kvikmjmdum geti ýtt undir kynferðislegt ofbeldi gegn konum og jafnvel börnum. Russell hefur helgað sig rann- sóknum á þessu efni undanfarin 25 ár og segir að upplýsingar hvaðan- æva úr samfélaginu styðji þá kenn- ingu hennar að klám, hvort sem það er ofbeldisfullt eða ekki, or- saki nauðganir. Til að mynda bendir hún á það á heimasíðu sinni að hátt hlutfall nauðgara og barn- aníðinga hafi viðurkennt að klám hafi örvað þá til ofbeldisverkanna. Samkvæmt skilgreiningu Russel er klám það efni sem sameinar kynlíf og/eða afhjúpun kynfæra við ofbeldi eða niðurlægingu á þann hátt að það virðist styðja, fyrirgefa eða hvetja til þess konar hegðunar, þ.e. til að mynda til þess að kynlíf og ofbeldi eigi samleið. í erindi sínu sýndi Russel fund- argestum fjölda ljósmynda og teiknimynda sem gætu fallið undir þessa skilgreiningu hennar á klámi en þær myndir höfðu allar verið birtar í karltímaritum á borð við Hustler og Playboy. Reyndar tók hún fram að sams konar myndir væri einnig fínna í íslenska tímaritinu Bleiku og bláu. Margar myndanna sem Russel hafði í fórum sínum gáfu til kynna að konum líkaði kynferðisleg ár- eitni, ofbeldi og jafnvel nauðganir og taldi hún ljóst að slík skilaboð ýttu undir kynferðislegt ofbeldi í hinum raunverulega heimi. Til að mynda sýndi ein myndaserían hvernig karlmaður nauðgaði konu sinni eftir að hafa dregið hana á ofbeldisfullan hátt inn á bað og önnur sýndi látna konu hanga uppi í tré eftir að hafa orðið fyrir kyn- ferðislegu ofbeldi. Þessar myndir voru sviðsettar en í erindi sínu greindi Russel frá því að innan við mánuði eftir að síðarnefnda myndin hefði birst í bandaríska tímaritinu Hustler hefði látið stúlkubarn fundist hangandi uppi í tré í Bandaríkjun- um á nákvæmlega sama hátt. Þeirri stúlku hefði jafnframt verið nauðgað. Morgunblaðið/Jim Smart Færri komust að en vildu á kyriningu á vefnum og Netklúbbi Flugleiða sl. laugardag og var haldin aukakynning síðar um daginn. Biskup áminnir séra Gunnar Björnsson Mikill áhugi á Flugleiða- vefnum FÆRRI komust að en vildu á al- mennum kynningarfundi um starfsemi Netklúbbs Flugleiða í bíósal Hótels Loftleiða. Var því haldin aukakynning en alls mættu á þriðja hundrað manns. „Við höfum verið að fá margar fyrirspurnir um vefinn okkar og Netklúbbinn undanfarna mánuði og kynningarfundurinn var hald- inn til að fræða viðskiptavini okk- ar um hvernig vefurinn og Net- klúbburinn virkar,“ segir Símon Pálsson hjá Flugleiðum. „Við- brögðin voru á þann veg að við munum halda fleiri fundi á næst- unni bæði hér á höfuðborgar- svæðinu og einnig á landsbyggð- inni.“ Hann segir að fundargestir hafi verið á öllum aldri og bendir á að elsti gesturinn á kynningu Flug- leiða hafi verið Karl Sæmundsson, 91 árs gamall eftirlaunaþegi, sem er búinn að ferðast um allan heim og er farinn að nota Netið. „Á þessum fundi kynntum við Netklúbbinn okkar og sýndum fólki m.a hvernig hægt er að bóka sig í flug á Netinu svo og hvernig á að bóka hótel og bílaleigubfla." Símon segir að viðskiptavinir Flugleiða skipuleggi æ oftar ferð- ir sínar sjálfir og því var sérstak- lega farið f að kynna hvernig hægt, er að skoða vefsíður er- lendra ferðaskrifstofa á við Thomas Cook og Tjæreborg þar sem hægt er að kaupa áframhald- andi flug ef áfangastaður með Flugleiðum er t.d. Kaupmanna- höfn eða London. Þá var fólki sýnt hvernig hægt er að ná sam- bandi við ferðamálaráð hinna ýmsu landa og borga til að afla sér upplýsinga um áfangastaði og t.d. gistimöguleika og afþreyingu. BISKUP íslands hefur áminnt séra Gunnar Björnssón, sóknarprest í Holti í Önundarfirði, vegna fram- komu sem „þykir ósamrýmanleg því embætti sem þér gegnið", eins og segir í bréfi biskups. „Yður er hér með gefinn kostur á að bæta ráð yð- ar“, segir einnig. Karl Sigurbjörnsson biskup veitir áminninguna á grundvelli úrskurðar áfrýjunarnefndar þjóðkirkjunnar og laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Sr. Gunnari er gefinn kostur á að óska eftir rökstuðningi fyrir áminning- unni og hann getur einnig kært ákvörðunina til dóms- og kirkju- málaráðherra. Þá hefur verið tekin ákvörðun um að sr. Gunnar Bjömsson flytjist til í starfi frá 1. apríl. Mun hann gegna starfi sérþjónustuprests er heyrir undii- prófast í Reykjavíkurprófasts- dæmi eystra. Mun hann meðal ann- ars sinna þar afleysingum en einnig öðrum verkefnum samkvæmt nánari fyrirmælum biskups. Þessi ákvörðun er teldn í samráði við dóms- og kirkjumálaráðherra. Sr. Gunnar heldur ábúðan'étti á prestssetrinu að Holti til fardaga í maí á vori komanda. I sérstöku bréfi biskups til sr. Gunnars mælir hann fyrir um ákveðna háttsemi og framgöngu og kveðst gera það vegna þjáninga og sorgar sem hann hafi valdið sóknar- börnum sínum í Holti. Ber honum að haga sér óaðfinnanlega þann tíma sem hann á eftir að dveljast í Holti, sýna íbúum prestakallsins íyllstu til- litssemi og virðingu og aðhafast ekk- ert sem talist geti ögrandi framkoma í garð þefrra. Biskup leggur sr. Gunnari einnig á herðar að biðjast ski’iflega afsökunar á framkomu sinni gagnvart sóknarbörnum prestakallsins og öðrum sem hann hefur brotið gegn samkvæmt úr- skurði áfrýjunamefndar. „Eg óska eftir að sjá einlæga iðrun yðar og viljayfirlýsingu um yfirbót", segir í bréfi biskups. Fer hann þess einnig á leit við sr. Gunnar að hann flytji sem fyrst úr prestssetrinu. Séu það tilmæli þar sem ljóst sé að hann hafi þar ábúðarrétt til fardaga. Björn Jóhannesson, lögmaður sr. Gunnars Björnssonar, sagði skjól- stæðing sinn ekki vilja tjá sig um málið að svo stöddu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.